Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 11
Reykjanesbrautin er háskalega injó miðað við hinn mikla og vaxandi um-
ferðarþunga.
samdrátt ráðstöfunartekna á þessu
ári.
Ekki er nokkur vafi á að fram-
kvæmdir á borð við tvöföldun Reykja-
nesbrautar og veggöng undir Hval-
fjörð, án þess að ríkissjóður leggi þar
fram krónu, er eitt þeirra ráða sem nú
er eðlilegt og skynsamlegt að grípa
til. Það er löngu tímabært að leita
annarra leiða við fjármögnun vega-
kerfisins því þótt vel hafi miðað í end-
urbótum á síðustu árum er ljóst að
með sama hraða verður hringvegur-
inn allur lagður slitlagi þegar langt er
liðið á næstu öld.
Varðandi Reykjanesbraut hefur
hún þá sérstöðu að vera það mann-
virki sem allir landsmenn, hvar sem
þeir búa, þurfa að nýta sér, sumir oft
á ári hverju. Ástæðan er einfaldlega
alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík, eini
millilandaflugvöllur landsins. Að auki
má benda á að spáð er mikilli fjölgun
erlendra ferðamanna til Islands á
næstu árum og flestallir munu þeir
nota Reykjanesbraut til að komast til
Reykjavíkur eða raunar hvert á land
sem er.
Vissulega má segja að vegtollur á
Reykjanesbraut sé skattur þar sem
vegfarendur um þetta svæði eiga ekki
kost á annarri leið. En hvað má þá
segja um stöðumælagjöld íbúa þétt-
býlisins? I hugmyndum undirbúnings-
félagsins er rætt um að innheimta
svipað gjald og borgað er fyrir hverja
klukkustund í stöðumæli í Reykjavík!
Það er allt og sumt.
Fagleg ximræða
um efnahagsmál
í Fjármálatíðindum birtast greinar
um það sem er efst á baugi í
hagfræði- og efnahagsmálum.
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
KALKOFNSVEGI 1, 150 REYKJAVÍK, SÍMl 699600
Með áskrift að Fjármálatíðindum
fylgist þú því vel með og getur á fag-
legan hátt tekið þátt í umræðunni.
Áskriftarsíminn er 699600.
45
YDDA F21.3/SÍA