Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 34
AUK K113d11-18
OPIN KERFIFRA HEWLETT-PACKARD
ENGIR FARARTÁLMAR
Eldrí gerdir tölva settu mönnum takmörk. Hugbúnaðinn
varaðeins unnt að nota á eina fjölskyldu tölva og allar
breytingar voru dýrar. Með opnum kerfum frá HP eru
hins vegar allir vegir færir. Opin kerfi frá HP voru fyrstu
UNIX kerfin með XPG-3 staðli frá X-Open en hann tryggir
að unnt sé aðflytja þann hugbúnað, sem menn hafa
þróað, milli ólíkra tölvugerða.
HAGKVÆM OG SVEIGJANLEG KERFI
HP 9000 HISC/UNIX getur verið tveggja eða rúmlega
þúsund notenda kerfi - og allt þar á milli. Auðvelt er að
stækka kerfið og oft er það unnt með því einu að skipta
um spjald. Öll fjárfesting í hugbúnaði og jaðartækjum
nýtist aðfullu þótt afköst vélbúnaðar séu aukin.
NEW WAVE TÖLVUN
47% MARKADSHLUTDEILD
Hewlett-Packard berhöfuð og herðar yfir keppinauta sína
hvað varðar sölu á HISC/UNIX kerfum. Markaðshlutdeild
HP var 47% árið 1990 en hlutdeild ÍBM og DEC var aðeins
um 10%. (Heimild: Aberdeen Group)
ÖFLUGUSTU KERFIN
Nýju tölvurnar frá HP, Snákurínn og Nóvan, eru mun
afkastameiri en vélar keppinautanna. HP 9000-730/
Snákur er borðvél sem byggð er á PA-RISC tækni. Afkasta-
tölurnar eru 76 MIPS og 72.2 SPEC-mörk. HP 9000-837/
Nóva, sem erbyggð á sömu tækni, erætluð viðskiptalífinu
og er færslufjöldinn á sekúndu 43,3 TPC-A.
• \ \ \m\ \
Hewlett-Packard býður fyrírtækjum heildarlausn hvað
varðar tölvuvæðingu. Lausn HPfelst í stöðlum bæði hvað
snertir skrifstofukerfi og nettengingar (NewWave tölvunj.
Með NewWave skrifstofukerfinu erm.a. hægt að senda
fax og taka á móti því og senda póst innan og utan
skrifstofu. Forritum er haldið saman á einfaldan hátt með
hlutbundnum aðferðum. Síðast en ekki síst berað nefna
einkar falleg þrívíð notendaskil sem gera alla tölvuvinnu
mun einfaldari og ánægjulegri. Með NewWave
skrifstofukerfinu nýtist fjárfesting í tölvubúnaði út íystu
æsar.
NÝTT HLUTAFÉLAG
Nú hefur skrifstofu Hewlett-Packard á Islandi verið
breylt í íslenskt hlutafélag sem sniðið er að íslenskum
aðstæðum. Með opnum kerfum og góðri fótfestu á
íslenskum markaði eru nýja fyrirtækinu og viðskipta-
vinum þess allir vegirfærir.
HEWLETT
PACKARD
HPÁ ÍSLANOI H F
Höfðabakka 9, Reykjavík, sími (91) 67 WOO