Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1988, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1988, Blaðsíða 8
Sigrún var við nám í grafík í Myndlista- og handíðaskóla íslands á árunum 1974-77 og dvaldi ári seinna í Póllandi þar sem hún læri messótintu (sérstök aðferð í grafík). Hún hefur haldið sex einkasýningar, tekið þátt í Qölda samsýninga og er einn af stofn- endum Gallerís Langbrókar. Sjö bamabæk- ur hefur hún samið og teiknað, auk þess að myndskreyta bækur annarra höfunda. Nú stendur yfir sýning á olíuverkum hennar á Kjarvalsstöðum. - Ég hef unnið mest í grafík og teikn- ingu. Það er eitt og hálft ár síðan ég fór að mála með olíu og hef verið að því síðan. Unnið í grafík meðfram því. í fyrra dvaldi ég fjóra mánuði á Svea- borg (norrænum gestavinnustofum) í Finn- landi og það var eiginlega þar sem ég byij- aði að mála. Þegar ég kem á nýjan stað þá finnst mér ágætt að byija á einhveiju nýju. I grafíkinni er mikill hluti vinnunnar tæknilegs eðlis. Með þeirri aðferð sem ég hef mest notað, messótintu, vinnur maður ekki stórar myndir. Hún er seinlegogvanda- söm. Málverkið vinnur maður meira beint. Tjá- ir sig beint á strigann milliliðalaust og það hefur verið mér léttir, auk þess að geta unnið með stærri flöt en í grafíkinni. Síðan var mig farið að langa til að vinna með liti en litur í grafík er mjög flókið mál og kost- ar mikla tæknivinnu. Það ýtti mér útí mál- verkið. Og málverkið er skemmtilegt. í grafík- inni, sem reyndar er skemmtileg líka, liggur maður meira yfír verkinu, næstum því dútl- ar. Þar ráða form, ljós og skuggi, en í málverkinu er það samspil litanna og form- ið. Málverkið krefst þess að maður hugsi öðruvísi og það hleypir öðrum takti í vinnu- brögðin. Ég held ég hafí bara þurft að fara að mála, eins og sumir þurfa ítalskt fjallaloft. - Myndefnið hefíir breyst hjá mér með nýjum miðli. Grafíkmyndir mínar eru oft myndir af fólki. í olíumyndunum er líka fólk en fólkið er meira aukaatriði og um- hverfí þess hefur stækkað. Manneskjumar orðnar smávaxnar miðað við umhverfið. Kannski er ég að horfa á heiminn frá öðm sjónarhomi. Samt fínnst mér þetta vera í beinu framhaldi og skylt því sem ég hef verið að gera. Hvaðan myndefnið kemur, veit ég ekki. Það bara kemur. Maður verður náttúrulega fyrir áhrifum frá lífínu án þess að geta greint hvað kemur hvaðan. Ég hugsa að myndimar hér séu ættaðar frá Amarstapa Björg, gerð 1987. að eru þúsund og eitthvað málverk í stöfium heima hjá Sigrúnu Eldjám. Olíumálverk með litum í: Þar em klettahnullungar hver ofan á öðr- um. Sá efsti er að hmni kominn og á næsta stalli stendur maður, horfír á fljúgandi mann, óvar um _það að innan stundar detti á hann bjarg. Ut um allt í loftinu hangir fólk á þráðum, bleikum, grænum, gulum. Fjúkandi himinn, nokkrir regndropar og — Litlar manneskjur í risastóru landslagi og eitthvað gæti farið að gerast. Rætt við SIGRUNU ELDJÁRN myndlistarkonu, sem þekktust er fyrir teikningar sínar og grafík, en sýnir nú olíumálverk á Kjarvalsstöðum. eftir KRISTÍNU ÓMARSDÓTTUR Eins og tennur á risaskepnu, vel lagaðar, gnæfandi, eins og oddur á skurðhnífi, - það er landslag og fólk stendur á blábroddi. Tveir regndropar og blæðir. Manneskjur fljúga, hanga, standa á loft- inu, í hrikalegu en stilltu landslagi. Mann- eskjur í laginu eins og manneskjur á um- ferðarskiltum. Venjulegar manneskjur í íjar- lægð, - smávaxnir, litlir dropar - granda- lausar í gönguferð eða flugferð undir og umhverfís háskann sem eitt augnablik geymir það að hiynja. Sumir eru einir, sumir eru fjölskyldur, sumir eins og þekkjast og reyna að kallast á milli klettabjarga, en ekkert heyrist á þessum venjulega degi í súld. Það er allt eins og rétt áður en eitthvað byijar. Enginn veit hvað eða grunar hið minnsta. Það er rétt áður en eitthvað gerist sem er mikið stærra, hundrað sinnum, þús- undfalt stærra en maðurinn veit. A meðan hangir allt á bláþræði. Einhvem veginn þannig er hægt að lesa ný olíumálverk Sigrúnar Eldjám sem hingað til hefur verið kunn fyrir grafíkmyndir. Nú hefur myndflöturinn stækkað og manneskj- una - sem gjaman hefur verið í nærmynd - hefur hún nú í fjarlægð. Það er komið landslag, umhverfi, himinn, rok, litir, pensil- för. í grafíkmyndum sínum býr Sigrún oft til ljóðrænu úr smáatriðum vikudaganna, - það fljúga litlar smekkbuxur hratt úr fjarska inní mynd. Með olíumyndunum sýnist hún boða háska. Drangar, verkið er frá þessu ári. Manneskjan í yfirvofandi háska

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.