Morgunblaðið - 24.07.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.07.2002, Blaðsíða 1
171. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 24. JÚLÍ 2002 HUGSANLEGT er talið að Anfinn Kallsberg, lögmaður færeysku land- stjórnarinnar, segi af sér þegar Lög- þingið kemur saman hinn 29. júlí næstkomandi. Óli Breckmann, þing- flokksformaður Þjóðarflokksins, flokks Kallsbergs, segir ekki öruggt að lögmaðurinn vilji leiða landstjórn- ina fyrst forysta annars stjórnar- flokks, Þjóðveldisflokksins, hafi ekki vísað á bug ásökunum á hendur Kallsberg um vafasama fortíð hans. Tórbjørn Jacobsen, þingmaður Þjóðveldisflokksins, hélt því fram í liðinni viku að á meðan Kallsberg starfaði sem endurskoðandi í fær- eysku fyrirtæki hefði hann átt í vafa- sömum viðskiptum. Þjóðveldisflokk- urinn sendi frá sér yfirlýsingu á mánudag þar sem áréttaður var stuðningur hans við landstjórnina en að mál Jacobsens kæmi flokknum ekki við og að hann þyrfti að standa sjálfur fyrir máli sínu. Segir Breckmann hugsanlegt að Kallsberg segi af sér vegna málsins en einnig sé mögulegt að lögmaður- inn sætti sig ekki við að Jacobsen bindi enda á pólitískan feril hans með þessum hætti og að hann reyni að sitja sem fastast. Færeyjar Afsögn Kallsbergs hugsanleg Morgunblaðið. Þórshöfn. HLUTABRÉF héldu áfram að falla í verði í gær þrátt fyrir jákvæðar afkomutölur nokk- urra bandarískra fyrirtækja. Traust manna á mörkuðum heldur áfram að minnka vegna bókhaldshneyksla og sáu fáir ástæðu til bjartsýni í gær. Dow Jones-vísitalan féll um 82,24 stig, eða 1,06%, NAS- DAQ féll um 53,67 stig eða 4,18%. Miklar sveiflur voru á bandarískum mörkuðum og um tíma leit út fyrir að Dow Jones-vísitalan myndi hækka um hundrað stig. „Við erum að leita að botn- inum,“ sagði Will Braman, fjármálasérfræðingur hjá John Hancock-sjóðnum. „Hlutabréf lækka sífellt í verði og ég held að menn fari fljótlega að kaupa á ný.“ Hlutabréf á evrópskum mörkuðum féllu einnig í gær, bæði vegna ástandsins í Bandaríkjunum og vegna frétta af slæmu gengi hol- lensk-belgíska banka- og tryggingafyrirtækisins Fortis. Breska FTSE-vísitalan féll um 37,5 stig eða 0,97% og þýska Xetra DAX-vísitalan féll um 175,6 stig eða 4,76% Áfram verðfall á mörkuðum New York. AP. ALÞJÓÐLEG mannréttindasamtök, Helsinki- samtökin, sökuðu í gær rússneska herinn um að myrða allt að áttatíu Tsjetsjena í hverjum mánuði. Segja samtökin flest fórnarlömbin vera unga karl- menn sem rússneski herinn nemi á brott og myrði undir því yfirskini að um uppreisnarmenn sé að ræða. „Fórnarlömb herferðarinnar á hendur ung- um tsjetsjneskum karlmönnum eru fleiri en í Tsjetsjníustríðunum tveimur,“ segir fram- kvæmdastjóri Helsinki-samtakanna, Aaron Rhodes. „Ef litið er á sönnunargögn frá áreið- anlegum, óháðum mannréttindasamtökum eru um 50 til 80 manns myrtir í hverjum mánuði,“ sagði Rhodes blaðamönnum eftir þriggja daga heim- sókn til Tsjetsjníu og nágrannaríkisins Ingúsetíu. Rhodes segir að þegar litið sé til stærðar tsjetsj- nesku þjóðarinnar, sem talin er vera á bilinu 300.000 til 600.000 manns, sé ljóst að ástandið sé grafalvarlegt, skipulega sé unnið að því að fækka karlmönnum í því skyni að draga úr möguleikum þjóðarinnar á að halda velli. „Það er erfitt að finna sambærileg dæmi í veraldarsögunni.“ Rússneskir embættismenn hafa ekki gefið upp opinberar tölur um mannfall meðal óbreyttra borgara en segja að frásagnir Tsjetsjena sjálfra séu verulega ýktar. Staníslav Ilíjasov, forsætis- ráðherra Tsjetsjníu, sem nýtur stuðnings rúss- neskra stjórnvalda, dró niðurstöður Helsinki-sam- takanna í efa og sagði áttatíu prósent fallinna vera uppreisnarmenn. „Það er rétt að fólk týnir lífi, en það eru glæpamenn sem bera ábyrgð á því,“ sagði Ilíjasov. Rhodes segir hins vegar tölur samtakanna um mannfall í Tsjetsjníu varlega áætlaðar og að morð- um fari síst fækkandi. „Rússneski herinn í Tsjetsj- níu er algerlega stjórnlaus og hlusta hermennirnir ekki einu sinni á yfirmenn sína,“ segir Ljúdmíla Alexeijeva, forseti Helsinki-samtakanna. Samtökin gagnrýndu jafnframt afstöðu Vestur- landa í máli Tsjetsjníu og sögðu þau standa hjá meðan Rússnesk stjórnvöld, sem eru mikilvægur bandamaður Bandaríkjamanna í stríðinu gegn hryðjuverkum, haldi grimmdarverkum sínum áfram. „Hegðun Vesturlanda er óviðunandi,“ segir talsmaður samtakanna, Vladislav Weisman. „Þau hljóta að vita hvað gengur á þarna.“ Ekki óhætt að senda fólk til baka Rhodes og félagar gagnrýndu einnig þá ákvörð- un rússneskra stjórnvalda að loka tsjetsjneskum flóttamannabúðum í Ingúsetíu, sem taka á gildi fyrir áramót. Segja samtökin ástandið í Tsjetsjníu enn það slæmt að ekki sé óhætt að senda fólkið aft- ur inn í landið. „Enginn þeirra sem við ræddum við vildi snúa aftur til Tsjetsjníu,“ sagði Rhodes, en um 140.000 manns eru í búðunum í Ingúsetíu. Helsinki-samtökin, sem hafa bækistöðvar í Vín- arborg, voru stofnuð fyrir rúmum tuttugu árum og draga nafn sitt af Helsinki-mannréttindasátt- málanum frá árinu 1975. Alþjóðleg mannréttindasamtök saka rússnesk stjórnvöld um grimmdarverk Skipulögð morð á ungum karlmönnum í Tsjetsjníu Moskva. AP, AFP. GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti gagnrýndi í gær harðlega eld- flaugaárás ísraelska hersins á heimili Hamas-leiðtoga í Gazaborg í fyrra- kvöld, er kostaði 15 manns lífið. „For- setinn hefur áður sagt það, að Ísrael- ar verði að hafa í huga afleiðingar gjörða sinna,“ sagði Ari Fleischer, talsmaður forsetans, og bætti við að Bush „teldi þessar harkalegu aðgerð- ir ekki stuðla að friði“. Fleischer tók fram að Bandaríkja- stjórn harmaði að saklausir borgarar hefðu látið lífið og sagði að Ísraelum yrði gerð grein fyrir afstöðu Bush eftir hefðbundnum leiðum. Níu börn voru meðal þeirra sem létu lífið er sprengju var varpað frá ísraelskri F-16-orrustuþotu á þéttbýlt hverfi í Gazaborg á mánudagskvöldið. Skot- mark Ísraela var Sala Shehade, for- sprakki vopnaðs arms Hamas-sam- taka múslíma á Gaza, og var hann meðal þeirra sem féllu. Shehade hef- ur skipulagt tugi sjálfsmorðs- sprengjutilræða Palestínumanna gegn Ísraelum undanfarið. Strax í fyrrakvöld atyrti Kofi Ann- an, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ísraela fyrir að hafa ekki reynt að komast hjá mannfalli í röð- um óbreyttra borgara. „Ísraelum ber lagaleg og siðferðisleg skylda til að gera hvað þeir geta til að forðast að saklaust fólk bíði bana,“ sagði Annan. Leiðtogar ríkja um allan heim for- dæmdu í gær árásina, og sögðu Dan- ir, sem nú eru í forsæti í Evrópusam- bandinu, að þeir „fordæmdu harðlega allar hernaðaraðgerðir sem beint væri að hverfum óbreyttra borgara, hvort sem þeir eru ísr- aelskir eða palestínskir“. Breska ut- anríkisráðuneytið sagði árásina „óviðunandi og ekki til bóta“ og hvatti Ísraela til að forðast misbeit- ingu valds. Meðal fleiri ríkja sem fordæmdu aðgerðir Ísraela voru Frakkland, Þýskaland og Noregur, og sagði Jan Petersen, utanríkisráðherra Noregs, að Norðmenn hefðu „enga samúð með palestínskum hryðjuverka- mönnum. En við getum heldur ekki samþykkt að Ísraelar grípi til að- gerða sem brjóta gegn mikilvægum grundvallaratriðum alþjóðlegra laga og eru sem olía á eldinn“. Bush gagnrýnir árás Ísraela á Gaza harðlega Washington, Jerúsalem, París. AFP. Reuters Duani Matar, tveggja mánaða palestínsk stúlka sem var meðal þeirra sem létust í árás Ísraela á Gaza í fyrrakvöld, var borin til grafar í gær.  Ísraelar sakaðir / 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.