Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 19
Skráning og nánari upplýsingar í síma 568 5010 og á www.raf.is Ert þú efni í sérfræðing á tölvusviði? Rafiðnaðarskólinn kynnir fjölbreytt sérfræðinám á haustönn 2002 Sérfræðinám MCP - grunnbraut í upplýsingatækni Námsbraut fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa við upplýsinga- tækni. Reynsla af vinnu við net- og tölvukerfi er ekki nauðsyn- leg en þátttakendur verða að vera tölvuvanir og læsir á ensku. Farið er ítarlega í vélbúnað og stýrikerfi tölvu svo og undir- stöðuatriði netkerfa. Nemendur búa sig undir tvö alþjóðleg próf. Þeir sem standast MCP prófið fá Microsoft Certified Professional gráðuna frá Microsoft og hafa strax aukna möguleika á góðu starfi í tölvugeiranum auk þess sem spennandi möguleikar á framhaldsnámi standa til boða. Innifalið í náminu eru þrjár vandaðar kennslubækur og tvær próftökur; A+ Hardware og Windows 2000 Professional (MCP). ➾ Ein önn, 190 kennslustundir, kennt tvisvar í viku. MCSA - kerfisstjórn Windows netkerfa Nám í kerfisstjórn fyrir þá sem hafa lokið við MCP braut eða hafa reynslu af vinnu við tölvukerfi og stefna á þessa nýju próf- gráðu, Microsoft Certified Systems Administrator (MCSA) sem er að slá í gegn í Microsoft heiminum. MCSA gráðan er veitt fyrir að standast 4 valin MCP próf. Þessi próf eru einnig metin til Microsoft Certified Systems Engineer (MCSE) gráðunnar og er MCSA því einnig áfangi fyrir þá sem stefna þangað. Þetta nám hentar þeim sem vilja starfa sem umsjónarmenn netkerfa. Innifalið í náminu eru fjórar MCP próftökur og kennslugögn. ➾ Ein önn, 190 kennslustundir, kennt tvisvar í viku. MCSE - kerfisstjórn og hönnun Windows netkerfa Framhaldsnám í kerfishönnun fyrir þá sem lokið hafa við MCSA braut og vilja öðlast þessa eftirsóttu gráðu; Microsoft Certified Systems Engineer (MCSE). Þetta er æðsta prófgráða Microsoft fyrir umsjónarmenn og hönnuði netkerfa. Handhafar þessarar prófgráðu eru eftirsóttir á vinnumarkaði enda hafa þeir yfir að ráða mikilvægri sérfræðiþekkingu. Náminu lýkur með viðamiklu verklegu lokaverkefni. Innifalið í náminu eru þrjár MCP próftökur og vönduð kennslugögn. ➾ Ein önn, 190 kennslustundir, kennt tvisvar í viku. CISCO - námsbraut Um er að ræða nám til undirbúnings CCNA (Certified Cisco Network Administrator) prófgráðunni frá CISCO. Námið byggir á CISCO Networking Academy Program (CNAP) en það er vefrænt nám undir leiðsögn kennara með verklegum æfingum og prófum. Námið skiptist í fjóra hluta og er bæði fræðilegt og verklegt. Kennd er hönnun, uppsetning og viðhald á dreifðum netkerfum. Námið hentar þeim sem hafa áhuga á að starfa við samtengingar neta í framtíðinni, bæði staðarneta og víðneta. Þetta starfssvið er vaxandi atvinnugrein í dag og eru einstaklingar með góða CISCO þekkingu mjög eftirsóttir á vinnumarkaði. Innifalið í náminu eru öll kennslugögn og þau próf sem CNAP kerfið býður upp á. CCNA próftaka er ekki innifalin. ➾ Tvær annir, 198 kennslustundir, kennt einu sinni í viku. Sérfræðinámskeið Rafiðnaðarskólinn býður mikið úrval sérfræðinámskeiða frá Microsoft. Skólinn hefur einn skóla á Íslandi vottun frá Microsoft sem Certified Technical Education Center (CTEC). Á námskeiðunum er kennt svokallað MOC námsefni sem gefið er út af Microsoft fyrir þessi námskeið og er leiðbeinandinn með kennaragráðu frá Microsoft (MCT). Helstu námskeið á haustönn 2002 verða þessi en einnig verður bætt við nýjum námskeiðum eins og ástæða verður til. Námskeið MOC • Implementing and Managing Microsoft Exchange 2000....................................................................... 1572 • Querying Microsoft SQL Server 2000 with Transact-SQL ................................................................ 2071 • Administering a Microsoft SQL Server 2000 Database ................................................................................ 2072 • Programming a Microsoft SQL Server 2000 Database ................................................................................ 2073 • Managing a Windows 2000 Network Enivironment .......................................................................... 2126 • Microsoft Windows 2000 Network and Operating System Essentials ................................................................. 2151 • Implementing Microsoft Windows 2000 Professional and Server ...................................................... 2152 • Implementing a Microsoft Windows 2000 Network Infrastructure ....................................................... 2153 • Implementing and Administering Microsoft Windows 2000 Directory Services..................................... 2154 • Implementing and Supporting Microsoft Windows XP Professional................................................... 2272 Rafiðnaðarskólinn mun standa fyrir öflugu námskeiðahaldi á næsta skólaári. Í boði verða fjölbreytt sérfræðinámskeið og skipulagðar námsbrautir ætlaðar þeim sem vilja starfa við upplýsingatækni. Skeifan 11 b · Sími 568 5010 · skoli@raf.is · www.raf.is MCP MCSA MCSE Ú t á v i n n u m a r k a ð i n n Nemendur sem hafa litla eða enga reynslu af tölvukerfum en eru vanir tölvunotendur Nýjir nemendur sem þurfa ekki að taka undanfarandi nám Microsoft námsbrautir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.