Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 45
FASTEIGNAMARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
Sími 588 9090 Fax 588 9095 Síðumúla 21
Til sölu glæsilegar íbúðir
við Suðurhlíð 38, Fossvogi
Glæsilegar íbúðir í vönduðu fjölbýlishúsi á þessum fallega útsýnisstað við Fossvoginn. Allar íbúðirnar afhendast fullbúnar en án
gólfefna og fylgja 1-3 stæði í bílageymslu hverri íbúð. Stærð íbúða er u.þ.b. 90 fm, 105 fm, 126 fm, 132 fm, 140 fm og 180 fm.
Lyftur. Stórar suður- og vestursvalir og sérlóðir. Afhending næsta vor.
Skilalýsing íbúða
Frágangur íbúða: Íbúðirnar afhendast fullbúnar að innan og án gólfefna, en baðherbergi verða flísalögð, einnig verða gólf í
þvottahúsum flísalögð. Lofthæð í íbúðunum er um 2,6 m.
Eldhús: Eldhúsinnréttingar eru frá HTH og hægt er að velja um nokkrar viðartegundir. Hægt er að velja granít-borðplötur af
nokkrum gerðum frá S. Helgasyni og flísar eru á milli efri og neðri skápa.
Salerni: Salerni eru vegghengd og með innfelldum kassa, blöndunartæki fyrir baðkar og/eða sturtubotn verða hitastýrð. Önnur
blöndunartæki eru einnar handar tæki.
Aðrar innréttingar: Skápar verða í svefnherbergjum og anddyri.
Arinn, heitur pottur og lýsing. Gert er ráð fyrir arni í nær öllum íbúðum og tengt er fyrir heitum
potti á svölum þriðju og fjórðu hæðar og einnig í garði fyrstu hæðar.
Innfelld lýsing er að hluta í íbúðum.
Frágangur sameignar:
Húsið verður fullfrágengið að utan, stigagangar og efsta hæðin verða álklædd, annað verður steinað í ljósum lit. Gluggar verða
úr áli að utan en tré að innan, sólstoppgler er í gluggum á suður- og suðvesturhliðum hússins. Svalir þriðju og fjórðu hæðar
verða flísalagðar og með snjóbræðslu, svalir annarrar hæðar eru flísalagðar án snjóbræðslu og verönd á fyrstu hæð verður
hellulögð. Loft í stigagöngum eru sandspörtluð og máluð með plastmálningu. Gólf í stigagöngum eru flísalögð, en önnur gólf í
sameign eru meðhöndluð á sérstakan viðhaldsfrían hátt (Lakro-meðferð). Lýsing í sameign verður fullfrágengin með hreyf-
iskynjurum. Lyftur verða fullfrágengnar og póstkassar settir upp í anddyri ásamt mynddyrasímum.
Bílakjallari:
Í bílageymslu eru stæði fyrir 79 bíla. Hurð að bílageymslu verður úr stáli og fylgir fjarstýring hverri íbúð. Öryggismyndavél
verður í bílageymslu og við alla aðalinnganga. Gert er ráð fyrir að allar íbúðir geti tengst öryggiskerfi en um þá þjónustu semur
hver fyrir sig. Sameign og lóð verða fullfrágengin við afhendingu, þ.m.t púttvöllur og tennisvöllur. Túnþökur, tré og runnar
verða eins og sýnt er á teikningum. Stígar verða hellulagðir, bílastæði malbikuð, upplýst og
merkt. Snjóbræðslulagnir verða í stígum næst húsinu og í rampi.
Jón Guðmundsson, löggiltur fasteignasali
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Byggingaraðili Gigant ehf
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
LYNGÁS - GBÆ - FJÁRFESTING
Skemmtilegt, nýlegt verslunar- og skrif-
stofu húsnæði, samtals 1490 fm. Húsið
er allt í góðri leigu samtals 1.700.000 per
mán. + vsk. Áhvílandi hagstæð lán, góð
fjárfesting. Verð tilboð.
LYNGÁS - GBÆ - FJÁRFESTING
Nýkomið mjög gott ca 960 fm atvh. á
tveimur hæðum. Keyrt er inn á báðar
hæðir. Nokkrar innk.dyr á hvorri hæð.
Byggingarréttur. Sérlóð. Góð staðs. Húsið
er í leigu, traustur leigjandi. Góð fjárfest-
ing, Verð tilboð. 81558
TRÖNUHRAUN - GLÆSILEGT
Nýkomið nýtt glæsilegt atvinnuhúsnæði
126 fm auk 34 fm millilofts, samtals ca
160 fm. Innkeyrsludyr, góð lofthæð, frá-
bær staðsetning í grónu hverfi í Hafnar-
firði. Hannað fyrir léttan iðnað og heild-
sölu. Húsið afhendist strax fullbúið að utan, steypt, klætt að utan, tilbúið undir
tréverk að innan. Bílaplan malbikað. Verð 11.8 millj. 60055
SKÚTUVOGUR 2 - RVÍK - TIL LEIGU
Skrifstofuhúsnæði
Glæsil. vandað nýtt lyftuhús (2. hæð) og
3. hæð (útsýnisturn). Tilvalin eign fyrir
t.d. lögfræðing, verkfr., stofnanir, lækna-
stofur o.fl. o.fl. Góð aðkoma næg bíls-
stæði. Einstök staðsetning og auglýs-
ingagildi. Afh. strax. Ath. að 1. hæðin,
jarðhæð er öll leigð, (Húsasmiðjan hf).
AUSTURHRAUN - GBÆ
Til sölu eða leigu nýtt glæsilegt atvinnuh.
ca 1200 fm atv.húsnæði verslun, skrif-
stofur o.fl. Húsið stendur á sérl. góðri lóð
gengt Reykjanesbrautinni og hefur því
mikið auglýsingagildi. Húsnæðið hefur
verið innréttað á glæsilegan hátt og er
hentugt fyrir heildsölu, léttan iðnað o.fl.
Innkeyrsludyr. Til afhendingar strax. Teikningar á skrifstofu. 77940
GRANDATRÖÐ - HF. - ATVH.
Glæsil. atv.húsnæði, 259,6 fm og 127 fm
bil. Sérlóð. Nær fullbúið að innan, fullbú-
ið að utan. Til afhendingar strax. Þetta
húsnæði er sérstaklega hentugt fyrir fisk-
vinnslu og fleira. Verð tilboð. 31469
GJÓTUHRAUN - TIL LEIGU/SÖLU
Glæsil. vandað ca 600 fm atv.hús-
næði/verslun á sérlóð, til sölu eða leigu.
Að auki er gert ráð fyrir millilofti m. góð-
um gluggum. Góð lofthæð og innk.dyr.
Selst/leigist í 180 fm bilum eða stærri.
Möguleiki á 80% láni. Til afhendingar
strax. Teikn. á skrifst. 87209
MELABRAUT - HF.
Vandað fjölnotahús (atvhúsn.) á tveimur
hæðum, samtals ca 1500 fm. Innkeyrslu-
dyr. Selst í einu eða tvennu lagi. Fullbúin
eign. Ath. að öll fiskvinnslutæki geta
fylgt með. Hagst. verð og kjör. Eigandi
bankastofnum. 55429
STAPAHRAUN - HF.
Glæsil. 120 fm atv.húsnæði og stærra í
vönduðu nýju húsi. Afh. strax tilbúið
undir tréverk að innan, fullbúið að utan.
Góð staðs. í grónu hverfi. Lofthæð ca 6
metrar. Innk.dyr ca 4 metrar. Verð 8,4
millj.
DALSHRAUN - HF. - FJÁRFESTING
Nýkomið í einkasölu glæsil. nýinnréttað
verslunarh. í leigu á 1. hæð við fjölfarna
umferðargötu samtals 1328 fm. Óvenju-
stór lóð. Húseignin er öll í leigu til
traustra fyrirtækja. Leigutekjur ca
1.200.000 + vsk. per mán. Viðhaldslítil
toppeign. Fráb. staðs. Hagst. lán. Góð
fjárfesting og arðsemi. Hagstætt verð. 93094
HELLUHRAUN - HF.
Nýkomið í einkas. gott 240 fm atvh. á þessum fráb. stað (hornlóð). Húsnæði sem
býður upp á mikla möguleika. Verð 15,6 millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Á ALÞJÓÐA mannréttindadaginn,
10. desember sl., hélt Karlakórinn
Drífandi á Fljótsdalshéraði að-
ventutónleika í Egilsstaðakirkju.
Tónleikarnir voru haldnir í sam-
vinnu við kirkjusöfnuði á Héraði
og voru til styrktar Amnesty Int-
ernational.
Drífandi, sem stofnaður var fyr-
ir ári síðan, er skipaður 13 körlum
og fluttu þeir lög úr ýmsum áttum
undir stjórn Drífu Sigurðardóttur.
Einnig las sr. Vigfús Ingvarsson
Biblíutexta um bróðurkærleikann
og jöfn kjör manna og Þórey
Birna Jónsdóttir menntaskólanemi
flutti hugleiðingu um mannrétt-
indi. Þá fór sr. Jóhanna Sigmars-
dóttir með bæn og Broddi Bjarna-
son, einn kórfélaga, kynnti starf
Amnesty.
Tónleikagestir áttu þess kost að
undirrita áskorun til Vladimirs
Putin Rússlandsforseta um bætt
mannréttindi þjóð hans til handa.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Karlakórinn Drífandi á tónleikum í Egilsstaðakirkju, sem haldnir voru til styrktar mannréttindabaráttu Amnesty.
Hugleiðing um mannrétt-
indi í Egilsstaðakirkju
Egilsstöðum. Morgunblaðið.