Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Blaðsíða 28

Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Blaðsíða 28
Einfríður María Guðjdnsdottir F. 20. apríl 1888. C. 24. júní 1971. Hún fæddist að Bjargi á Gríms- staðaholti, dóttir hjónanna Helgu Sigríðar Auðunsdóttur og Guðjóns Einarssonar, útvegsbónda. Einfríður missti föður sinn 3ja vikna gömul og stóð þá móðir hennar ein uppi með 3 börn. Einfríður byrjaði að vinna á bókbandsstofu ísafoldar 4. okt. 1904, þá 16 ára gömul. Fyrst fram- an af vann hún við ílagningu í pressu, en síðar við bókband sem fullgildur sveinn og við það vann hún síðan í nær 60 ár og alltaf á sama stað. Hún var mjög rösk og dugleg við vinnu og húsbónda- holl var hún, enda voru húsbænd- ur hennar mjög rausnarlegir viS um, gat dulizt, að undir bjó hlýr hugur. Skap hans var ríkt en hann kunni öðrum betur að stjórna því. Hann var fyrst og fremst bóndi alla sína ævi, en fylgdist vel með þjóðmálum og unni sveit sinni, landi og þjóð. Hann var búinn mörgum beztu kostum íslenzka bóndans og mér finnst auðara eft- ir að hann er farinn. En ég á margar góðar minningar um Jó- hann a Hamarsheiði og þakka hon um fjörutíu ára vináttu, opinskáa gagnrýni hans, sem stundum sveið dálítið undan í bili, en hjaðnaði jafnharðan, er ég fann velvild hans og hlýju. Á Hamarsheiði eru viðlend beit- arlönd og ég mun minnast hans, er hann smalaði fé sínu austan við ána, fram Snasir og Brúnir. ríð- andj á röskum hesti, og fór geyst, þegar honum þót.ti við þurfa. Ég óska honum fararheilla í hans síð- ustu för. Haraldur Bjarnason. hana eftir að hún hætti störfum og skal það þakkað hér. Alsystkini hennar voru þau Sig- urður bakarameistari á Siglufirði og Guðrún, gift Theódór Anton- sen, mætum manni. Mörgum árum síðar eignaðist móðir hennar son, Karl A. Jónasson, vélsetjara, sem vann alltaf hjá Morgunblað- inu. Hann missti ungur föður sinn og aðstoðaði Einfríður móður sína við uppeldi hans. Enda átti hún alltaf skjól á heimili hans alla tíð, eftir að hann kvæntist og stofnaði heimili. Sem dóttir hans á ég marg ar góðar minningar um Fríðu frænku og alltaf átti maður hauk í horni þar sem hún var. Hún kom alltaf færandi hendi og var ávallt rausnarleg. Sama sagan endurtók sig eftir að ég giftist og eignaðist börn, alltaf var Fríða að koma og gleðja börnin mín með gotti í poka eða einhverju öðru. Þau vissu, að Fríða' frænka var alltaf með eitthvað í töskunni sinni. Einfríður giftist aldrei, en ól upp 2 systurdætur sínar, Sigríði og Fríðu, sem dóu báðar úr berkl- um fyrir mörgum árun, og olli það henni mikilli sorg. Systkini hennar svo og hálfbróð- ir eru nú öll látin. Hún reyndist systkinabörnum sinum og þeirra börnum ákaflega vel. Fríða frænka var mikil hann- yrðakona og falleg var vinnan hennar, og munu þeir fáir ættingj- ar hennar, sem ekki eiga eitthvað af handavinnunni hennar. Rétt fyrir jólin árið 1968, er Fríða var á 81. aldursári, varð hún fyrir því óhappi að lærbrotna og dvaldist hún allt árið 1969 á sjúkra húsum, en á fætur komst hún, því að hún var viljasterk og ósérhiíf- in. í ársbyrjun 1970 fór hún svo á Elliheimilið Grund og þar lézt hún, eftir stutta legu. Elsku frænka mín. Þessi kveðja á að vera þakklætis- og minningar- kveðja til þín. Ég veit ekki hvort þú hefðir viljað að ég skrifaði þetta, en vegna mín og barna minna, get ég ekki látið það vera, þvílíkan kærleika og velvild sem þú sýndir okkur ávallt. Blessuð sé minning þín, kæra frænka. Elín Karlsdóttir. 28 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.