NT - 13.04.1985, Blaðsíða 5
FÍM:
Vorsýning
í stað haust-
sýningarinnar
■ Félag íslenskra myndlistarmanna heldur
vorsýningu í ár í stað hinnar árlegu haustsýn-
ingar. Sýningin verður opnuö á Kjarvals-
stöðum í dag kl. 14.00 og verður opin
daglega Jd. 14.00-22.00. Á sýningunni sýna
30 félagar FÍM 111 verk, þar af sýna 5 félagar
sem mynda kjarna sýningarinnar að þessu
sinni 39 verk. Aö "þessu sinni á enginn
utanfélagsmaður verk á sýningunni svo sem
oft hefur verið áður.
Þeir 5 myndlistarmenn sem valdir hafa
verið út sem með verk sem mynda sérstakan
kjarna eru Jóhann Briem. Magnús Kjartans-
son, Valgerður Bergsdóttir, Ragnheiður
Jónsdóttir og Sigurður Sigurðsson. Vönduð
sýningarskrá hefur verið gefin út og hefur
Hrafnhildur Schram listfræðingur skrifað
texta hennar, en umsjónarmaður er Jóhanna
Þórðardóttir formaður sýningarnefndar.
■ Eitt verkanna á sýningu IMynd
höggvarafélags íslands, sem haldin er á
Kjarvalsstöðum. NT-mynd: Ari.
„Það er blómaskeið í
höggmyndalistinni“
■ „Við viljum koma fram og sýna hvar við
stöndum," sagði Ragnar Kjartansson mynd-
höggvari er NT ræddi við hann á Kjarvals-
stöðum þar sem verið er að setja upp sýningu
Myndhöggvarafélags íslands. Sýningin verð-
ur opnuð í dag.
Sýningin nú er ein sú stærsta og fjölbreytt-
asta sinnar tegundar, sem haldin hefur verið.
„Við byrjuðum með útisýningar á Skóla-
vörðuholti fyrir mörgum árunr og þær sýn-
ingar vöktu mikla athygli. Hins vegar feng-
um við aldrei frið fyrir skemmdarvörgum og
fluttum okkur þá niður á Lækjartorg og
héldum okkur óhultari þar, en þá versnaði
ástandið um alian helming. Þá fluttum við
okkur í Ásmundarsal á Freyjugötu og sýnd-
um þar og á suðursvölum á húsinu. En þegar
við fengum aðstöðuna á Korpúlfsstöðum, þá
byrjaði að birta til hjá okkur," sagði Ragnar.
„Að mínu viti er nú runnið upp blómaskeið
í íslenskri höggmyndalist."
20 félagar af 31 í Myndhöggvarafélaginu
eiga verk á sýningunni, sem er í vestursal
Kjarvalsstaða og úti á flötinni. Þar kennir
margra grasa, verk unnin úr ýmsum efnum
og undir ýmsum merkjum, klassíkur, popp-
listar, naívisma o.s.frv. Sýingarskráin er
myndarleg bók, yfirlitsrit yfir íslenska högg-
myndalist dagsins í dag, sem Níels Hafstein
hefur haft umsjón með.
Menningarsjóður Lista-
miðstöðvarinnar:
Umsóknarfrestur
til tíunda maí
■ Menningarsjóður Listamiðstöðvarinnar,
sem greint var frá í fréttum fyrir skömmu að
væri í burðarliðnum, er nú orðinn að veru-
leika. „Sjóðurinn hefur fengið mjög góðar
viðtökur og umsóknarfrestur um fyrstu
starfslaunin úr honum hefur verið auglýstur
til 10. maí,“ sagði Jóhann G. Jóhannsson
framkvæmdastjóri Listamiðstöðvarinnar í
samtali við NT í gær.
Menningarsjóðurinn er fjármagnaður á
þann hátt að fyrirtæki og einstaklingar sem
gerast aðilar að honum leggja fram ákveðna
upphæð, 10 þúsund krónur hið minnsta.
Listamönnum eru síðan veitt starfslaun í 3-6
mánuði og þegar þeir opna sýningar eiga
aðilar að sjóðnum forkaupsrétt að verkun-
um. „Þetta eru því ekki beinir styrkir eða
gjafir, heldur viðskipti," sagði Jóhann G.
Jóhannsson.
Þegar hafa 30 fyrirtæki og einstaklingar
gerst aðilar að sjóðnum, og búist er við að
allmargir bætist við í viðbót. Sjóðurinn er
opinn öllum sem vilja gerast meðlimir.
Félagar í FÍM við eitt verkanna á sýningunni.
NT-mynd: Ari.
.
Byrjaðu strax í nýju SL-ferðaveltunni og tryggðu þér:
Utanlandsferð
áótrúlegum
kförum!
Nýja SL-ferðaveltan er einlæg áskorun Samvinnu-
ferða-Landsýnar til allra ferðalanga um að sýna
fyrirhyggju í ferðamálum og auðvelda sér til
muna sumarferðina.
Þú leggur ákveðna upphæð mánaðarlega inn á
ferðaveltureikning og þegar sparnaðartímabilinu
lýkur hefurðu fé þitt til ráðstöfunar og auk þess
lán sem er 150% -170% hærra en sparnaðarupp-
hæðin.
Greiðslutíminn er tveimur mánuðum lengri en
sparnaðartímabilið og hver mánaðargreiðsla því
léttari en þú átt að venjast í hefðbundinni
spariveltu.
DÆMI:
Þú leggur 5 þúsund kr. inn á reikninginn í 4
mánuði. Þá hefurðu sparnaðinn til ráðstöfunar
(20 þús.) og lánið, eða samtals kr. 50.277 með
vöxtum. Afborgunin er síðan aðeins kr. 5.495 í
6 mánuði.
NÝJA SL-FERÐAVELTAN: FJÖLBREYTTIR LÁNAMÖGULEIKAR
Lánshlutfatl
150%
Lánshlutfall
175%
Sparnaöar- timabíl Mánaðarl. sparnaður Sparnaður í loktímabils Lán Rá&stöfunarfé með vöxtum Mánaðarl. endurgreiðslur Endurgreiðslu- timi
3 mánuöir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 9.000,00 15.000,00 24.000,00 13.500,00 22.500,00 36.000,00 22.379,00 37.442,00 60.044,00 2.938,00 4.883,70 7.802,30 5 mánuðir
4 mánuðir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 12.000,00 20.000,00 32.000,00 18.000,00 30.000,00 48.000,00 30.053,00 50.227,00 80.488,00 3.304,00 5.493,70 8.778,20 6 mánuðir
5 mánuöir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 15.000,00 25.000,00 40.000,00 22.500,00 37.500,00 60.000,00 37.779.50 63.109.50 101.112,00 3.583,60 5,959,70 9.523,90 7 mánuðir
6 mánuðir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 18.000,00 30.000,00 48.000,00 27.000,00 45.000,00 72.000,00 45.588.50 76.119.50 121.916,00 3.809,50 6.336,20 10.126,20 8 mánuðir
7 mánuðir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 21.000,00 35.000,00 56.000,00 36.750,00 61.250,00 98.000,00 58.583,00 97.772,00 156.578,00 4.663,10 7.758,80 12.402,40 9 mánuðir
8 mánuðir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 24.000,00 42.000,00 40.000,00 í 70.000,00 64.000,00 | 112.000,00 67.256,00 112.232,00 179.696,00 4.856,10 8.080,40 12.917,00 10mánuðir
Allar nánari upplýsíngar veitir sölufólk Samvinnuferða-Landsýnar.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727