NT - 13.04.1985, Blaðsíða 5

NT - 13.04.1985, Blaðsíða 5
FÍM: Vorsýning í stað haust- sýningarinnar ■ Félag íslenskra myndlistarmanna heldur vorsýningu í ár í stað hinnar árlegu haustsýn- ingar. Sýningin verður opnuö á Kjarvals- stöðum í dag kl. 14.00 og verður opin daglega Jd. 14.00-22.00. Á sýningunni sýna 30 félagar FÍM 111 verk, þar af sýna 5 félagar sem mynda kjarna sýningarinnar að þessu sinni 39 verk. Aö "þessu sinni á enginn utanfélagsmaður verk á sýningunni svo sem oft hefur verið áður. Þeir 5 myndlistarmenn sem valdir hafa verið út sem með verk sem mynda sérstakan kjarna eru Jóhann Briem. Magnús Kjartans- son, Valgerður Bergsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir og Sigurður Sigurðsson. Vönduð sýningarskrá hefur verið gefin út og hefur Hrafnhildur Schram listfræðingur skrifað texta hennar, en umsjónarmaður er Jóhanna Þórðardóttir formaður sýningarnefndar. ■ Eitt verkanna á sýningu IMynd höggvarafélags íslands, sem haldin er á Kjarvalsstöðum. NT-mynd: Ari. „Það er blómaskeið í höggmyndalistinni“ ■ „Við viljum koma fram og sýna hvar við stöndum," sagði Ragnar Kjartansson mynd- höggvari er NT ræddi við hann á Kjarvals- stöðum þar sem verið er að setja upp sýningu Myndhöggvarafélags íslands. Sýningin verð- ur opnuð í dag. Sýningin nú er ein sú stærsta og fjölbreytt- asta sinnar tegundar, sem haldin hefur verið. „Við byrjuðum með útisýningar á Skóla- vörðuholti fyrir mörgum árunr og þær sýn- ingar vöktu mikla athygli. Hins vegar feng- um við aldrei frið fyrir skemmdarvörgum og fluttum okkur þá niður á Lækjartorg og héldum okkur óhultari þar, en þá versnaði ástandið um alian helming. Þá fluttum við okkur í Ásmundarsal á Freyjugötu og sýnd- um þar og á suðursvölum á húsinu. En þegar við fengum aðstöðuna á Korpúlfsstöðum, þá byrjaði að birta til hjá okkur," sagði Ragnar. „Að mínu viti er nú runnið upp blómaskeið í íslenskri höggmyndalist." 20 félagar af 31 í Myndhöggvarafélaginu eiga verk á sýningunni, sem er í vestursal Kjarvalsstaða og úti á flötinni. Þar kennir margra grasa, verk unnin úr ýmsum efnum og undir ýmsum merkjum, klassíkur, popp- listar, naívisma o.s.frv. Sýingarskráin er myndarleg bók, yfirlitsrit yfir íslenska högg- myndalist dagsins í dag, sem Níels Hafstein hefur haft umsjón með. Menningarsjóður Lista- miðstöðvarinnar: Umsóknarfrestur til tíunda maí ■ Menningarsjóður Listamiðstöðvarinnar, sem greint var frá í fréttum fyrir skömmu að væri í burðarliðnum, er nú orðinn að veru- leika. „Sjóðurinn hefur fengið mjög góðar viðtökur og umsóknarfrestur um fyrstu starfslaunin úr honum hefur verið auglýstur til 10. maí,“ sagði Jóhann G. Jóhannsson framkvæmdastjóri Listamiðstöðvarinnar í samtali við NT í gær. Menningarsjóðurinn er fjármagnaður á þann hátt að fyrirtæki og einstaklingar sem gerast aðilar að honum leggja fram ákveðna upphæð, 10 þúsund krónur hið minnsta. Listamönnum eru síðan veitt starfslaun í 3-6 mánuði og þegar þeir opna sýningar eiga aðilar að sjóðnum forkaupsrétt að verkun- um. „Þetta eru því ekki beinir styrkir eða gjafir, heldur viðskipti," sagði Jóhann G. Jóhannsson. Þegar hafa 30 fyrirtæki og einstaklingar gerst aðilar að sjóðnum, og búist er við að allmargir bætist við í viðbót. Sjóðurinn er opinn öllum sem vilja gerast meðlimir. Félagar í FÍM við eitt verkanna á sýningunni. NT-mynd: Ari. . Byrjaðu strax í nýju SL-ferðaveltunni og tryggðu þér: Utanlandsferð áótrúlegum kförum! Nýja SL-ferðaveltan er einlæg áskorun Samvinnu- ferða-Landsýnar til allra ferðalanga um að sýna fyrirhyggju í ferðamálum og auðvelda sér til muna sumarferðina. Þú leggur ákveðna upphæð mánaðarlega inn á ferðaveltureikning og þegar sparnaðartímabilinu lýkur hefurðu fé þitt til ráðstöfunar og auk þess lán sem er 150% -170% hærra en sparnaðarupp- hæðin. Greiðslutíminn er tveimur mánuðum lengri en sparnaðartímabilið og hver mánaðargreiðsla því léttari en þú átt að venjast í hefðbundinni spariveltu. DÆMI: Þú leggur 5 þúsund kr. inn á reikninginn í 4 mánuði. Þá hefurðu sparnaðinn til ráðstöfunar (20 þús.) og lánið, eða samtals kr. 50.277 með vöxtum. Afborgunin er síðan aðeins kr. 5.495 í 6 mánuði. NÝJA SL-FERÐAVELTAN: FJÖLBREYTTIR LÁNAMÖGULEIKAR Lánshlutfatl 150% Lánshlutfall 175% Sparnaöar- timabíl Mánaðarl. sparnaður Sparnaður í loktímabils Lán Rá&stöfunarfé með vöxtum Mánaðarl. endurgreiðslur Endurgreiðslu- timi 3 mánuöir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 9.000,00 15.000,00 24.000,00 13.500,00 22.500,00 36.000,00 22.379,00 37.442,00 60.044,00 2.938,00 4.883,70 7.802,30 5 mánuðir 4 mánuðir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 12.000,00 20.000,00 32.000,00 18.000,00 30.000,00 48.000,00 30.053,00 50.227,00 80.488,00 3.304,00 5.493,70 8.778,20 6 mánuðir 5 mánuöir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 15.000,00 25.000,00 40.000,00 22.500,00 37.500,00 60.000,00 37.779.50 63.109.50 101.112,00 3.583,60 5,959,70 9.523,90 7 mánuðir 6 mánuðir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 18.000,00 30.000,00 48.000,00 27.000,00 45.000,00 72.000,00 45.588.50 76.119.50 121.916,00 3.809,50 6.336,20 10.126,20 8 mánuðir 7 mánuðir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 21.000,00 35.000,00 56.000,00 36.750,00 61.250,00 98.000,00 58.583,00 97.772,00 156.578,00 4.663,10 7.758,80 12.402,40 9 mánuðir 8 mánuðir 3.000,00 5.000,00 8.000,00 24.000,00 42.000,00 40.000,00 í 70.000,00 64.000,00 | 112.000,00 67.256,00 112.232,00 179.696,00 4.856,10 8.080,40 12.917,00 10mánuðir Allar nánari upplýsíngar veitir sölufólk Samvinnuferða-Landsýnar. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.