24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 16

24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 16
10. Saffraneldhúsið Yasmin Crowther 9. Sér grefur gröf Yrsa Sigurðardóttir 8. Harry Potter og dauðadjásnin J.K. Rowling 7. Þúsund bjartar sólir Khaled Hosseini 6. Konungsbók Arnaldur Indriðason 5. Lost in Iceland Sigurgeir Sigurjónsson 4. Flugdrekahlauparinn Khaled Hosseini 3. Viltu vinna milljarð? Vikas Swarup 2. Leyndarmálið Rhonda Byrne 1. Harðskafi Arnaldur Indriðason Listinn er gerður út frá sölu dagana 01.01 - 31.12 2007 í Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar. METSÖLULISTI Bækur á íslensku 10. Simple Genius David Baldacci 9. Almost Moon Alice Sebold 8. Icepick: Icelandic Street Art Þórdís Claessen 7. Subtle Knife Philip Pullman 6. Brotherhood of the Holy Shroud Julia Navarro 5. Wintersmith Terry Pratchett 4. Amber Spyglass Philip Pullman 3. Witch of Portobello Paulo Coelho 2. Shopaholic & Baby Sophie Kinsella 1. Mephisto Club Tess Gerritsen Listinn er gerður út frá sölu dagana 25.12.07- 31.12.07 í Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar METSÖLULISTI Erlendar bækur 15. Hnífur Abrahams Óttar M. Norðfjörð 14. Tvíburarnir Tessa de Loo 13. Aska Yrsa Sigurðardóttir 12. Síðasti musterisriddarinn Raymond Khoury 11. Bíbí, sagan um Bíbí Ólafsdóttur Vigdís Grímsdóttir Á þessum degi árið 1965 lést T.S. Eliot í London, 76 ára gamall. Ljóðabálkur hans The Waste Land, sem kom út árið 1922, var tíma- mótaverk. Eliot var Bandaríkjamaður, fæddur 1888 og flutti til Bretlands árið 1914, þá 25 ára gamall. Hann gerðist breskur ríkisborgari árið 1927. Hann var um tíma kennari og bankastarfsmaður en bók- menntirnar áttu hug hans allan. Hann orti ljóð og samdi leikrit og var auk þess afar áhrifamikill gagn- rýnandi. Árið 1939 sendi hann frá sér ljóðabók fyrir börn, Old Poss- um’s Book of Practical Cats. Tón- skáldið Alan Rawsthorne samdi síðan tónverk upp úr ljóðabókinni og það verk varð grunnur að hin- um gríðarlega vinsæla söngleik Cats eftir Andrew Lloyd Webber. Eliot hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1948. MENNINGARMOLINN Eliot deyr 16 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 24stundir KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@24stundir.is a Í morgun fékk ég stór- fenglega hugmynd en mér líkaði hún ekki. Samuel Goldwyn Ævisaga metsöluhöfundarins Harold Robbins er komin út. Höf- undurinn er Andrew Wilson sem áður hefur sent frá sér rómaða ævi- sögu glæpasagnahöfundarins Patriciu Highsmith. Bókin, sem kemur út í tilefni þess að árið 1997 voru tíu ár liðin frá dauða Robbins, hefur hinn sérstæða titil The Man Who Invented Sex, en kynlíf var aðalumfjöllunarefni Robbins í þeim fjölda metsölubóka sem hann skrifaði. Robbins leit aldrei á sig sem bókmenntamann heldur skrif- aði til að verða ríkur og var reiðubúinn að gera næstum hvað sem var til að koma bókum sínum á framfæri. Hemingway spurði Robbins eitt sinn að því í hverju bókmenntalegur metnaður hans fælist og Robbins svaraði: „Í því að verða ríkur.“ Hann átti nokkrar lúxusvillur, fjórtán bíla og lúxus- snekkju. Hann naut þess að lifa hinu ljúfa lífi, átti fjölda ástkvenna og hélt svallveislur þar sem naktar konur skemmtu gestum og sneisa- fullar skálar af kókaíni stóðu öllum sem vildu til boða. Kynlíf og spilling Robbins er höfundur bóka á borð við The Carpetbaggers, The Dream Merchants og The Lonely Lady og bækur hans seldust í 750 milljónum eintaka. Þar er fjallað um villt kynlíf, peninga, spillingu og græðgi og fyrirmyndir að per- sónum hans eru iðulega frægt fólk síns tíma, eins og Howard Hughes, Jean Harlow og Lana Turner. Með- al aðdáenda höfundarins voru Pablo Picasso, Mario Puzo (höf- undur Guðföðurins), Jackie Coll- ins, Sidney Sheldon og Camille Paglia. Gagnrýnendur fóru yfirleitt óblíðum höndum um verk Robb- ins en hann lét sér á sama standa. Þegar hann sendi fyrrverandi út- gáfustjóra sínum, Alfred A. Knopf, bók sína The Carpetbaggers fékk hann hana endursenda með orð- sendingunni: „Takk, en ég les ekki svona rusl.“ Um skáldsögu hans The Betsy sagði einn gagnrýnandi: „Þetta verk er ekki skáldsaga frem- ur en skrímsli Frankensteins var mannvera.“ Annar sagði lýsingar hans á konum skelfilegar: „Þessar kjánalegu kvenpersónur eru með hrærð egg í stað heila.“ Sjálfur sagðist Robbins vera femínisti en framkoma hans gagnvart eiginkon- um sínum benti svo sannarlega ekki til þess. Robbins sagði bandaríska og breska gagnrýnendur ósanngjarna í sinn garð. „Þjóðverjum finnst ég frábær. Rússum finnst ég hafa ein- stakt lag á að lýsa bandarískum samtíma og Skandinövum finnst ég vera meistari í sálfræðilegum lýsingum,“ sagði hann. Blygðunarlaus lygi Robbsins spann upp ótal ævin- týralegar sögur um æsku sína og einkalíf, sagðist til dæmis vera munaðarleysingi sem hefði verið skilinn eftir nokkurra mánaða gamall fyrir utan kaþólst munaðar- leysingjahæli þar sem hann hefði alist upp. Ein eftirlætissaga hans var af því þegar hann gegndi her- þjónustu í seinni heimsstyrjöld og var sá eini um borð í herskipi sem komst lífs af með því að synda í land eftir að skipið hafði verið skotið niður af nasistum. Í hinni nýju ævisögu hrekur Wilson þessar sögur sem voru flestar blygðunar- laus lygi höfundarins og þáttur í umfangsmikilli markaðssetningu hans á sjálfum sér. Árið 1982 í brúðkaupi dóttur sinnar fékk Robbins hjartaáfall og næstu ár glímdi hann við heilsu- leysi og var að mestu bundinn við hjólastól. Hann hafði auðgast gríð- arlega á ferli sínum en síðustu árin hafði hann sóað auði sínum og glímdi við fjárhagserfiðleika. Hann lést árið 1997, 81 árs, og skuldaði þá rúmlega milljón doll- ara. Hulunni svipt af Harold Robbins Hið ljúfa líf metsöluhöfundar Harold Robbins var einn vinsælasti rithöfundur 20. aldar. Hann skrifaði til að verða ríkur og lifði hinu ljúfa lífi þar sem konur og kókaín komu mjög við sögu. Nú er komin út ævisaga þessa umdeilda metsöluhöf- undar. Með eiginkonu númer tvö, Grace Þau lifðu í opnu hjónabandi, nokkuð sem Grace sagði eftir skiln- að þeirra að hún myndi ekki vilja endurtaka. ➤ Robbins gekk þrisvar sinnumí hjónaband. Fyrsta hjóna- bandið stóð í 28 ár en á þeim tíma átti Robbins tvö börn ut- an hjónbands. ➤ Robbins var umkringdurfrægu fólki þau ár sem frægð hans var sem mest. Það fólk lét ekki sjá sig við jarðarför hans. ➤ Skáldsögur hans höfðu mikiláhrif á handritshöfunda sápu- ópera á borð við Dallas og Dynasty. MAÐURINN Harold Robbins Hann leit á ritstörf sem auðvelda leið til að verða ríkur. Friðþæging eftir Ian McEwan er komin út í kilju. Það er heitasti dagur sumars- ins 1934 þegar 13 ára strákur, Briony, sér systur sína, Cecili, af- klæðast og baða sig úti í garði á sveitasetri þeirra. Robbie Turner, æskuvinur hennar, stendur og horfir á. Áður en næsti dagur rennur upp hefur líf þeirra þriggja tekið algjöra kollsteypu. Friðþæging er í hópi meistaraverka hins virta breska rithöfundar Ian McEw- ans og hefur sópað til sín margvíslegum viðurkenn- ingum. Þýðandi er Rúnar Helgi Vignisson. Kvikmynd hefur verið gerð eftir þessari stórkostlegu sögu. Meistaraverk eftir McEwan AFMÆLI Í DAG Isaac Newton vísindamaður, 1642 Jacob Grimm ævintýrasafnari, 1785

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.