24 stundir - 05.02.2008, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 24stundir
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Breyttu heiminum,
hann þarfnast þess.
Bertolt Brecht
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir
sýning á verkum Sámals Joensen
Mikines, frægasta listmálara Fær-
eyja. Sýnd eru um 50 málverk sem
spanna hálfrar aldar feril lista-
mannsins en Mikines sótti inn-
blástur sinn í náttúru og lifnaðar-
hætti færeysku þjóðarinnar.
Mikines lést árið 1979 en einka-
sonur hans, Kári Mikines, sem er
læknir, var viðstaddur opnun sýn-
ingarinnar.
Barðist við sjúkdóma
„Ég á mjög góðar minningar um
föður minn,“ segir Kári. „Ég fædd-
ist með klumbufót, gat því lítið far-
ið út að leika mér og var mikið
heima. Pabbi var með vinnustofu á
heimilinu og þar lék ég mér á gólf-
inu. Hann var skapmikill maður og
sveiflukenndur, eina stundina
strangur faðir og hina stundina af-
ar umhyggjusamur.
Hann barðist við ýmsa sjúk-
dóma á ævi sinni. Hann hafði
psoriasis sem gaus oft upp og kost-
aði hann spítalalegur og hann
þjáðist einnig af þunglyndi og
áfengissýki. Árið 1969 vorum við
fjölskyldan í fríi á Borgundar-
hólmi. Hann fór að synda í erfiðu
veðri. Ég stóð á ströndinni og sá
skyndilega að hann gat ekki synt að
landi. Þýskur maður kastaði sér í
sjóinn og bjargaði honum. Pabbi
andaði ekki og fékk líklega hjarta-
stopp. Móðir mín sem var hjúkr-
unarkona gerði á honum lífgunar-
tilraunir. Hann jafnaði sig aldrei
eftir þetta atvik, varð sérstaklega
erfiður með víni og að lokum varð
að leggja hann inn á hjúkrunar-
heimili fyrir fólk með geðsjúk-
dóma. Þar hefði hann ekki átt að
vera því hann var ekki geðveikur.
Hann þjáðist hins vegar af þung-
lyndi og glímdi við áfengisvanda-
mál. En það var ekki hægt að hafa
hann á venjulegu hjúkrunarheimili
og þess vegna var hann settur á
stofnun þar sem vistmenn voru
flestir geðbilaðir. Þar var hann í sex
ár áður en hann lést. Hann málaði
ekkert síðustu árin. Síðastu mynd-
ina sem hann málaði, sem er lítil
vatnslitamynd, gaf hann mér á
átján ára afmæli mínu.“
Hugfangnir listamenn
„Áður en pabbi varð að leggjast
inn lifði hann fyrir myndlistina,“
segir Kári. „Bæði færeyskir lista-
menn og almenningur sjá hann
sem föður nútímamyndlistar í
Færeyjum. Ungir listamenn líta
flestir mjög upp til hans og hafa
sterkar taugar til verka hans þótt
þeir fylgi ekki sömu stefnu í mynd-
list og hann gerði. Eftir sýningu á
verkum hans í Kaupmannahöfn
buðum við kona mín ungum lista-
mönnum heim til okkar og þegar
listamennirnir sáu myndir hans
hanga á veggjum heimilisins urðu
þeir algjörlega hugfangnir. Þessi
hrifning snerti mig djúpt.“
Árvakur/Golli
Lifði fyrir myndlistina
Á Kjarvalsstöðum stend-
ur yfir sýning á verkum
Sámals Joensen Mikines.
Þessi frægasti listmálari
Færeyja barðist við ýmsa
sjúkdóma á ævinni, eins
og Kári, sonur hans, lýsir í
viðtali.
➤ Sámal Joensen Mikines varfyrstur færeyskra málara til
að hafa myndlist að atvinnu
og fyrstur til að hljóta við-
urkenningu fyrir list sína á er-
lendri grund.
➤ Þetta er fyrsta sýning á verk-um Mikines hér á landi síðan
1961 en þá sýndi hann í
Bogasal.
➤ Sýningin stendur til 6. apríl.
MAÐURINN
Sýning á verkum Sámals Joensen Mikines
Kári Mikines „Ungir lista-
menn líta flestir mjög upp
til hans og hafa sterkar
taugar til verka hans þótt
þeir fylgi ekki sömu stefnu í
myndlist og hann gerði.“
Mikines Við dán-
arbeðinn 1940.
Mikið hefur maður fengið að
hlæja að gamalmennum á Nýja
sviði Borgarleikhússins! Nú þegar
hin rammíslenska Rósalind úr
Belgísku Kongó er horfin hafa þrír
aldurhnignir hermenn í Frakklandi
sest í hennar stað og merkilegt
nokk geta íslenskir áhorfendur
speglað sjálfa sig alveg jafnvel í
þeim og þeir gátu í Rósalind forð-
um.
Verkið er ekki hefðbundið styrj-
aldarverk, það gæti átt sér stað á
næstum því hvaða elliheimili sem
er. Menn þurfa ekki að hafa kúrt í
skotgröfum til þess að fyrirverða
sig fyrir hjálparleysið sem fylgir
efri árunum. Og raunar þarf mað-
ur ekki að vera mjög gamall til þess
að bera kennsl á þær tilfinningar
sem vakna til lífs á sviðinu.
Eftir leikár sem hefur kannski
öðru fremur einkennst af verkum
sem fjalla um samskipti kynjanna
er skemmtilegt að fá að sökkva
tönnunum í verk um flókin mann-
leg samskipti þar sem rómantísk
ástarsambönd koma hvergi við
sögu. Hljóðmyndin var góð viðbót
við sýninguna, sem og leikmyndin.
Svona verk verður aldrei sterk-
ara en leikararnir sem leika það.
Þremenningarnir sem standa á
Nýja sviðinu hafa greinilega allir
unnið að sýningunni af mikilli al-
úð og eru þeir hver öðrum betri.
Guðmundur Ólafsson leikur Hin-
rik, þann sem lengst hefur dvalið á
hælinu, glaðlyndan náunga sem
hinir tveir treysta báðir á og dregur
hann upp fallega mynd af manni
sem hefur sæst við aðstæður sínar.
Í tíu ár hafa þeir Ferdinand, sem er
túlkaður af Theodóri Júlíussyni,
verið bestu vinir. Ferdinand er sá
félaganna sem varð fyrir verstum
líkamlegum skaða í stríðinu og er
jafnframt farið að hraka andlega.
Fyrir hálfu ári bættist Gústaf í hóp-
inn og hann leikur Sigurður Skúla-
son af mikilli list. Gústaf er dásam-
lega fúllynt gamalmenni og það er
bersýnilegt að Sigurður hefur lagt
mikla alúð við hlutverkið – sér-
staklega er eftirtektarvert hvað lík-
amstjáningin er vel unnin.
Þessi þriggja manna fjölskylda
aldraðra hermanna birtist full-
sköpuð á sviðinu, með öllum þeim
marglaga tilfinningum sem fjöl-
skyldulífi fylgja. Þetta er sýning
sem manni líður vel eftir að hafa
séð.
Í HNOTSKURN
Bráðfyndið og einlægt verk sem
er fantavel leikið.
Fjölskylda einstæðinga
Leikið af list Miklum tilfinningum
miðlað án láta en með mikilli kímni.
Höfundur: Gerard Sibleyras.
Þýðandi: Pétur Gunnarsson.
Leikstjóri: Hafliði Arngrímsson.
Leikmynd og búningar:
Jürgen Höth og Brit Daldrop.
Lýsing: Kári Gísla
son. Hljóð: Ólafur Örn
Thoroddsen. Leikarar:
Guðmundur Ólafs
son, Sigurður Skúla-
son og Theodór
Júlíusson
Hetjur
í Borgarhúsinu
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@24stundir.is
LEIKLIST
Inngangur að miðöldum er
inngangsbindi að fræðilegu
yfirlitsriti um íslenska mið-
aldasögu eftir Gunnar Karls-
son
sagn-
fræð-
ing
sem
Há-
skóla-
útgáf-
an gef-
ur út.
Hér er
vísað á
leiðir
til að finna rit um viðfangs-
efnið, skrifað yfirlit um mið-
aldahugtakið ásamt fleiri hug-
tökum um tímabil í
Íslandssögu miðalda, farið er
yfir rannsóknarsögu og birt
stutt yfirlit yfir evrópska mið-
aldasögu. Lengsti hluti bók-
arinnar er svo yfirlit um heim-
ildir íslenskrar miðaldasögu –
fornleifar, sögur, lög, skjöl og
annála. Loks er gerð grein fyr-
ir mælieiningum og tímatali
miðaldafólks.
Handbók í
miðaldasögu
Ljóðalög eftir Jón Hlöðver Ás-
kelsson verða flutt á tón-
leikum á tónlistarhátíðinni
Myrkir músíkdagar í Norræna
húsinu í kvöld, þriðjudaginn
5. febrúar kl. 12:15. Margrét
Bóasdóttir sópransöngkona,
og Daníel Þorsteinsson píanó-
leikari flytja, ljóðin les Krist-
ján Valur Ingólfsson.
Myrkir
músíkdagar
AFMÆLI
William Burroughs
rithöfundur, 1914
Charlotte Rampling
leikkona, 1946