Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 43
10 ■■■■ { tækniblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Framleiðendur vilja nýta sér vin-
sældir MP3-spilaranna frá Apple og
nú hafa verið hönnuð hljómtæki sem
beinlínis eru hönnuð og framleidd til
notkunar með iPod og kallast i-deck.
Hljómtækin er með stílhreina hönn-
un, auðveld í notkun og hafa góðan
hljómgrunn. Framleiðandi i-deck er
breski hátalaraframleiðandinn
Monitor Audio. i-deck samanstendur
af magnara, tveimur hátölurum og
fjarstýringu sem er lítið stærri en
greiðslukort. Framan á magnaranum
er sæti fyrir iPodinn með öllum
nauðsynlegum tengingum þannig að
einungis þarf að „setja í og spila“. i-
deck má einnig tengja við tölvu.
i-deck hleður einnig iPodinn
meðan hann er í spilun og hljómur-
inn er jafn góður óháð því hve hátt
er spilað. Hátalarana má staðsetja
eftir hentugleika og öllu er stjórnað
með fjarstýringunni.
Með i-deck verður iPod spilarinn
hluti af velhljómandi hljómtækjum
án nokkurra snúra eða annarra flók-
inna ráðstafana. i-deck hljómtækin
fást í Hljómsýn og Apple búðinni.
Vinsældir iPod hafa hrint af stað þróunarvinnu meðal
tækjaframleiðenda. i-deck frá Monitor Audio eru hljóm-
tæki sem eru sérstaklega hönnuð utan um iPod spilara.
Hljómtæki hönnuð fyrir iPod spilarann
Tónlistarsími
með myndavél
SONY ERICSSON W800 WALK-
MAN
Einn fyrsti síminn sem er hannaður
sérstaklega með tónlistarspilun í
huga. Með símanum fylgir 512 MB
minniskort en hægt er að fá 1 GB
m i n n i s k o r t .
Hann er líka
með FM út-
varpi. Sérstak-
lega góð
myndavél er
innbyggð í
símann en hún
er 2 megapixel.
Þægilegt er að
tengja símann
við tölvuna í
gegnum USB
en auk þess
hefur hann
Bluetooth og
innrautt tengi.
Síminn styður
Java, GPRS og
MMS. End-
ingartími raf-
hlöðu símans í
tali er níu
klukkustundir.
Stór og þægi-
legur skjár
NOKIA 6630
Um er að ræða farsíma með 1,3
megapixla myndavél, Bluetooth, 64
MB minniskorti og möguleika til
þess að spila MP3. Þá er hægt að
spila vídeó í símanum. Nokia 6630
hentar vel til þess að spila mörkin
úr ensku úrvalsdeildinni og Meist-
aradeild Evrópu enda
síminn með mjög
góðum skjá. Hann
styður GPRS, Java og
MMS. Hann vegur um
123 grömm og raf-
hlöðu ending er 3-5
klukkustundir í tali.
Sérstak-
lega flott
hönnun
Motorola V3 RAZR
Einstaklega þunnur og flottur
sími. Lyklaborðið er gert úr
laserskornufjaðrastáli. Skjárinn
er mjög stór og gefur góðan
skarpleika. Innbyggð myndavél
er í símanum en hann hefur þó
aðeins 5 MB innraminni. Síminn
getur spilað bæði vídeó og MP3.
Bluetooth-tengi er á símanum
og líka USB-tengi. Síminn styð-
ur bæði GPRS og MMS. Raf-
hlaðan er sérstaklega endingar-
góð en hún getur enst allt að 7
klukkustundir í tali. Síminn
kemur í tveimur litum, gráum
og svörtum.
10-11 tækni lesið 27.10.2005 15:39 Page 2