Tíminn - 01.12.1987, Blaðsíða 3

Tíminn - 01.12.1987, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 1. desember 1987 Tíminn 3 Einkaskattur bókhlöðunnar hvergi laus Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, hefur gert það að tilllögu sinni að sami háttur verði á hafður, og verið hefur á yfirstandandi ári, varðandi það hve mikill hluti af eignarskattsauka þeim er markaður var Pjóðarbók- hlöðu, renni til framkvæmda þar. Stendur nú járn í járn á milli þeirra, Jóns Baldvins og Birgis ísleifs Gunnarssonar, menntamálaráðherra, en Birgir ís- leifur flutti mikla ræðu á laugardag vestur á Melum, þar sem hann lofaði aðstandendum Pjóðarbók- hlöðunnar því, að berjast sem mest hann má fyrir því að hún fái sinn markaða tekjustofn sem allra minnst skertan. „Um Þjóðarbókhlöðuna er það að segja að það eru á fjárlögum 50 milljónir króna í þá framkvæmd. Skuldbindingar vegna verksamn- inga eru um 15 milljónir. Bygging- unni myndi skila vel á veg með þessum 50 milljónum, en ég hef lagt til að það verði hafður sami háttur á og gert var með samkomu- lagi milli fyrrverandi fjármálaráð- herra og menntamálaráherra varð- andi yfirstandandi ár,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármála- ráðherra, í viðtali við Tímann um svör hans við ræðu Birgis ísleifs Gunnarssonar. menntamálaráð- herra, er hann hélt í fokheldu húsi Þjóðarbókhlöðunnar vestur á Mel- um á laugardag. Sagði Jón Baldvin að skýringin á þessu væri einfaldlega sú að hinn markaði tekjuskattsstofn af eignar- skattsauka, skilaði inn meiri pen- ingum en komið væri í lóg með góðu móti miðað við þá miklu þenslu sem við byggjum við um þessar mundir. Aðstæður þær, sem hvatt höfðu þáverandi ráðherra til að leggja ekki nema hluta af tekju- stofni Þjóðarbókhlöðu í fram- kvæmdir þar, hefðu ekkert breyst nema síður væri. „Sú gífurlega þensla sem þá var á byggingar- markaðinum, er enn yfirstandandi og hefur lítið sem ekkert rénað," sagði Jón Baldvin. Það væri megin ástæða þess að hann stæði harður á því að leggja ekki meira til framkvæmda í Þjóðarbókhlöðu, en sem nemur þeim skuldbindingum er þegar hafa verið festar. KB Skipulagsbreyting á starfi borgarlögreglu: Einn varðstjóri yfir öllu svæðinu Um áramót tekur gildi skipu- lagsbreyting á starfi lögreglunnar í Reykjavík sem yfirstjórn hennar hefur þegar samþykkt. Hún felst í því að stjórnun mannafla og búnað- ar lögreglu, svo sem bifreiða, heyrir undir einn varðstjóra, sem staðsett- ur er í lögreglustöðinni. Varðstjór- ar á miðborgarstöð og í Árbæ verða þá aðstoðarvarðstjórar. Enn fremur verður skipaður útivarðstjóri, sem fer á vettvang þegar svo ber við, að stjórnunar hans sé þörf, t.d. við stórbruna. í stuttu máli má segja að breyt- ingin felist í að stjórn færist úr litlu lögreglustöðvunum til aðallögreglu- stöðvar við Hverfisgötu svo lög- gæsla í borginni megi verða virkari. Sem dærni má nefna, að varðstjóra á nýju ári er í lófa lagið að beina mestum þunga löggæslu í Reykja- vík til miðborgarinnar, meðan helg- aruppþotin ganga um garð. Flcira stendur til að bæta, sem of snemmt er að skýra frá, en skipulag lögregiu hefur verið í gagngerri endurskoð- un að undanförnu. þj Nefndarkjör á Alþingi: Byggðastofnun stendur í Sjálfstæðisflokki Páll Pétursson um afstöðu Egils Jónssonar í þriggja manna nefndinni: Hann vildi slá sig til riddara Búist er við löngum og ströngum ríkisstjómarfundi í dag þar sem afgreiðsla fjárlaga verður m.a. til umfjöllunur. Reiknað er með að þar muni veröa rætt um afgreiðslu landbúnaðarkafla þeirra, en um hann hefurstaðið nokkur styr. Eins og kunnugt er em stjórnarliðar ekki á eitt sáttir um afgreiðslu landbún- aðarkafla fjárlaganna. Þriggja manna nefnd, skipuð þcim Páli Péturssyni, Agli Jónssyni og Eiði Guðnasyni klofnaði í sinni afstöðu. Þeir Páll og Eiður hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu, sem Egill getur ekki fallist á. Páll Pétursson segir augljóst að Egill hafi með ummælum sínum í fjölmiðlum síðustu daga, viljað slá sig til riddara í augum bænda og fors- varsmanna þeirra stofnana sem ósk- uðu eftir viðbótarfjármagni. Páll segir að samkomulag þeirra Eiðs geri ráð fyrir 300 milljón kr. hækkun á framlögum til landbúnað- argeirans. Nái tillögurnar fram að ganga hækkar landbúnaðarkafli fjár- laga úr 1644 milljónum upp í 2074 milljónir. Reiknað er með 145 millj- ónum til riðuniðurskurðar og 63 milljónum til útflutningsbóta. Það scm upp á vantar er ætlað að fari til jarðræktarframlaga sem þegar eru gjaldfallin, afurðartjónsbóta sem áður hefur verið samið um, svo og fleiri þátta. Það hefur komið fram að landbún- aðarráðherra er ekki allskostar sátt- ur við niðurstöðu þeirra Páls og Eiðs. Um þetta segir Páll að hann hafi kynnt þessar tillögur á þing- flokksfundi í síðustu viku og þá hafi enginn lýst sig þcim mótfallinn. „Ráðherra lét að vísu í ljós óánægju með ýmsa bætti tillagnanna en féllst þó á þær. Eg ætla ekki að svara fyrir bakþanka ráðherra, það cr alfarið hans mál,“ sagði Páll. Ljóst er að tíminn er orðinn naum- ur fyrir ríkisstjórnina, ef afgreiða á fjárlög fyrir áramót. „Ég vona að ríkisstjórnin beri gæfu til að fara að ganga frá einhverju. Þeir hafa nóg um að tala. Það er líklega ekki hægt að fresta jólum og áramótum, og fyr- ir fyrsta janúar þarf að vera búið að gera ýmislegt,“ sagði Páll Pétursson. óþh Aðra atlögu átti að gera að kjöri sjö manna stjórnar Byggðastofnun- ar, en eins og í fyrra skiptið fóru sjálfstæðismenn enn fram á frestun. Reynt hafði verið að leysa þennan hnút á þingflokksfundi fyrir þing- fundinn í gær en ekkert gengið. Lokið var kosningu í tvær aðrar nefndir og þriggja yfirskoðunar- manna ríkisreikninga á fundi í sam- einuðu Alþingi í gær. Áfengisvarnarráð: í þetta fjögurra manna ráð voru kosnir af lista stjórn- arliðsins þau Jóhannes Bergsveins- son, Sigrún Sturludóttir og Hörður Zóphaníasson. Af lista stjórnar- andstöðu hlaut kosningu Helgi Seljan. Stjórnarnefnd ríkisspítalanna: I stjórnarnefndina voru kosin af lista stjórnarliðsins þeir Stefán Friðbjarn- arson, Þorsteinn Húnbogason og Kjartan Jóhannsson, en af lista stjórnarandstöðu Svavar Gestsson. Yfirskoðunarmenn ríkisreiknings voru kosnir af lista stjórnarliðsins þeir Geir H. Haarde og Sveinn G. Hálfdanarson og af lista stjórnar- andstöðu Jóhanna Eyjólfsdóttir. ÞÆÓ Jón Baldvin Hannibalsson: MUN EKKIHINDRA KVÓTAFRUMVARPID „Mitt sjónarmið er það að ég vil að þessu máli verði lokið og það afgrcitt í samræmi við það sem í starfsáætlun ríkisstjórnarinnar stendur," sagði Jón Baldvin Hatmi- balsson, fjármálaráðherra og for- maður Alþýðuflokksins, erTíminn spurði hann að því hversu ákveðnir þeir alþýðuflokksmenn ætluðu að verða í afstöðu sinni varðandi af- greiðslu fiskveiðifrumvarps ríkis- stjórnarinnar. Sagði hann að ekki heföi verið gert eins og taiað var um í vor við gerð stjórnarsáttmálans. Ætlunin hafi verið að setja upp nefnd til að cndurskoða einkum fjóra þætti í fiskveiðistefnu ríkisstjómarinnar og rakið var í laugardagsblaði Tímans. Við það hafi ekki verið staðið, þar sem ekki hafi verið gert annað en að leggja fram kvóta- frumvarp Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, með minni- háttar breytingum. „Þessu verki er einfaldlega ekki lokið. Ég vil að mcnn setjist niöur og ræði það hvort þeir ætli að gefast upp á því að Ijúka þessu verki,“ sagði Jón Baldvin. „Ef menn telja að tíminn sé runninn frá okkur, af því að hann var ekki notaöur nægilega í sumar, þá er að taka því. Menn falla stundum í skák á tíma. En þá viljum við h'ka að menn bæti ráð sitt og geri rncö sér samkomulag um það hvernig að þessu skuli unnið héðan í frá ogþegar þessi lög verða tekin til endurskoðunar.“ Sagöi hann jafnframt að þeir vildu beina breytingum í ákveðinn farv- eg án þess að fara fram með neinu offorsi í svo miklum málum. „Það- an að síður hótanir eða munnsöfn- uð eins og framsóknarungviöið á laugardagsfundi sínum.“ Ekki hafði hann trú á að mál þetta yröi lcyst á hasarfundum í desembermánuði eins og hann væri umsetinn og erfiður. Sagðist hann vona að samkomulag næðist um það að vinna áfram að endurskoð- un fiskveiðistefnunnar. Sagðist hann ekki ætla að reyna að skapa neitt neyðarástand í atvinnugrcin- inni með þvf að neita að samþykkja fiskveiðifrumvarpið. Hins vegar lagði hann áherslu á að samkomu- lag yrði gert um það hvernig menn ætla aö taka á málinu til frambúð- ar. „Æskilegast væri að fá fram samkomulagi um það í hvaða farv- eg á að beina þessari endurskoðun, sem fram á að fara eftir tvö ár,“ sagði Jón Baldvin að lokum. KB

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.