Tíminn - 08.09.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.09.1988, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 8. september 1988 Tíminn 3 Klofningur ASI lá « loftinu á miðstjórnarfundi um samráðið: Guðmundur J. vildi tillögu um að færa niður vexti og verð Atburðir síðustu daga í kringum ótímabær viðræðuslit ríkisstjórn- arinnar og ASÍ hafa leitt í Ijós nokkra sundurþykkju innan ASÍ. A miðstjórnarfundi ASÍ eftir að viðræðurnar runnu út í sandinn, var samþykkt ályktun um að setja það skilyrði að áframhaldandi viðræður snerust ekki um lækkun launa, heldur um að Ieita leiða til að Iækka vexti og verðlag og tryggja afkomu útflutningsgreina. Nokkrar umræður urðu um ályktunina áður en hún var borin undir atkvæði en að lokum var hún samþykkt samhljóða en einn sat hjá við atkvæðagreiðsluna; Guðmundur J. Guðmundsson. Afstaða Guðmundar J. Guðmundur hafði það að athuga við ályktunina að ætíð hafi verið regla að tala við allar ríkisstjórnir, óháð því hvaða flokksliti þær bæru og að kjarni ályktunarinnar hefði verið settur fram af „vissum hópi“ innan ASÍ til þess eins að slíta viðræðunum. Tíminn hafði í gær samband við allmarga miðstjórnarmenn sem fundinn sátu og sögðu allir það rangt sem fram kom í DV í fyrradag, að alþýðubandalagsmenn í miðstjórn ASÍ hefðu viljað hafna öllu samráði við ríkisstjórnina og gengju út, sam- þykkti miðstjórnin ekki þessa kröfu þeirra og þar með yrði úr sögunni sú samstaða, sem ríkt hefur innan ASí það sem af er þessum áratug. Hvað segja Allaballar? Hansína Stefánsdóttir formaður Verslunarmannafélags Árnessýslu sagði við Tímann að á miðstjórnar- fundi 29. ágúst s.l. hefðu menn ekki verið á eitt sáttir um hvort, eða hvaða skilyrði skyldi setja fyrir við- ræðum við ríkisstjórnina. Rangt væri að þau alþýðubandalagsfólk hefðu reynt að kljúfa ASÍ. Hins vegar hefði það komið jafn flatt upp á alla í miðstjórninni að forsætisráðherra var, þegar til stykkisins kom, ekki til viðræðu um annað en launalækkun- ina eina og hefðu þeir þá snarlega sameinast um ályktunina margum- ræddu. Af hverju? Þórður Ólafsson í Þorlákshöfn tók í sama streng en sagði jafnframt að eins og Þorsteinn Pálsson lagði málin fyrir á samráðsfundinum, þá hefði hann gert ráð fyrir lækkun launa en í kjölfar þeirra myndu síðan vextir lækka af sjálfu sér. Slíkt væri auðvitað álíka fráleitt og að lækka vextina og við það lækkuðu launin af sjálfu sér. Þórður sagði að þrátt fyrir stór orð margra um forstjóraplaggið og niðurfærsluleiðina undanfarið, þá hefði verið samstaða innan verka- lýðshreyfingarinnar um að taka upp viðræður við ríkisstjórnina um hana, einkum hvað varðaði leiðir til að lækka vexti og tryggja afkomu út- flutningsgreina, en vandi þeirra er fólginn í gríðarlegum fjármagns- kostnaði, ekki launakostnaði. Það vissu allir sem vildu vita. Frjálshyggjugengið vill stjórnarslit Heimildamenn innan Sjálfstæðis- flokksins segja Tímanum að Þor- steinn Pálsson hafi komið lítt undir- búinn til viðræðnanna við ASÍ um annað en niðurfærslu launa vegna pressu frá frjálshyggjugenginu í eig- in flokki, sem ekki vilji heyra nefnt að neins konar böndum verði komið á fjármálaheiminn. Leikfléttan hafi átt að vera sú að þegar ASÍ hefði lýst yfir að það væri ekki til viðræðu um lækkun launa eingöngu, hefði átt að nota viðræðuslitin sem ástæðu til að rifta stjórnarsamstarfinu. En hver er hann þá þessi „vissi hópur", eða „vissi kjarni” innan miðstjórnar ASÍ sem Guðmundur nefnir svo, sem þannig er genginn til samstarfs við frjálshyggjugengið í Sjálfstæðisflokki um að kollvarpa ríkisstjórninni? Guðmundur J. gegn Allaböllum Hvað segir Guðmundur J. Guð- mundsson sjálfur. Er hann að að reyna að klekkja á sínum gömlu flokksfélögum í Alþýðubandalaginu eða þeir á honum? Er meiriháttar valdabarátta í uppsiglingu? Verður uppgjör á ASÍ þinginu í nóvember n.k.? „Ég læt engan, hvorki forseta ASÍ né aðra, stilla mér upp við vegg með því að spyrja; ertu með eða móti kauplækkun. Flokksleg sjónarmið eru allsráðandi hjá alþýðubanda- lagsmönnum og þeir vildu óðir og uppvægir setja óaðgengileg skilyrði fyrir áframhaldandi viðræðum við ríkisstjórnina, enda var augsýnilegur vilji þeirra til að rifta þeim. Það þarf enginn að búast við því að menn verði sammála á fyrsta fundi og ég er sannfærður um að meirihluti miðstjórnarmanna var því hlynntur að viðræður héldu áfram þar til fær leið fyndist," sagði Guðmundur J. Guðmundsson. Ræða málin í botn Ég átti ekki von á þessum leik alþýðubandalagsmannanna þannig að ég var ekki með tilbúna tillögu til að mæta slíkum atvikum sem þar'na urðu. Ég hefði viljað að miðstjórnin Stórmeistaramótið í Tilburg Jóhann og Karpov gerðu jafntefli Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson og Anatoly Karpov sömdu um jafntefli í fyrstu um- ferð stórmeistaraskákmóts sem fram fer í Tilburg í Hollandi. Jóhann hafði hvítt í viðureigninni við fyrrum heimsmeistara. Upp kom drottningarbragð og tefldu stórmeistararnir eftir bókinni. Jóhann bauð jafntefli eftir 23. leik sem Karpov hafnaði. Það var svo eftir að leiknir höfðu verið níu leikir til viðbótar að þeir sömdu um jafntefli. í dag verður tefld önnur um- ferð í Tilburg og mætir Jóhann þá Timman frá Hollandi og stýrir Jóhann hvítu mönnunum. -ES Grettir sökk Dýpkunarskipið Grettir, í eigu Dýpkunarfélagsins hf. á Siglufirði, sökk aöfaranótt miðvikudags u.þ.b. 2 sjómílur vestur af Dritvíkur- töngum á Snæfellsnesi. Björgunarskipið Goðinn var að draga skipið frá Bíldudal til Sandgerðis þar sem næsta verkefni skipsins beið. Enginn var um borð þegar óhappið varð. Sjópróf hófust kl. 4 í gær en ekki er Ijóst hvað olli atvikinu. Veður var gott og allt virtist í lagi. Grettir þessi er systurskip Grettis eldri sem sökk í Faxaflóa í marsbyrjun 1983. „Þetta er heljarinnar mikið tjón fyrir Dýpkunarfélagið," sagði Jó- hannes Lárusson, framkvæmdastjóri félagsins, í samtali við Tímann í gær. „Nýsmíði af þessari gerð kostar samtals um 110-120 milljónir króna, en fyrir svona notuð tæki er tjónið á milli 60-70 milljónir." Skipið \hefur ekki jafnmikinn stöðugleika' og venjuleg skip og því er gott veður skilyrði fyrir því að hægt sé að flytja það. „Þetta er fleki, 30 metra langur og 10 metra breiður og það er grafa ofan á honum og háir staurar, þannig að það hefur ekki mikla sjóhæfni," sagði Jóhannes. Félagið festi kaup á skipinu í ágúst í fyrra og hefur haft nóg að starfa síðan og biðu fjöldamörg verkefni skipsins. „Við ætlum að kanna hvort það sé möguleiki og hvort það borgi sig að ná skipinu upp. Ef ekki þá verðum við að fá okkur annað,“ sagði Jóhannes. JIH hefði lýst því yfir að hún væri reiðubúin að halda áfram viðræðum við ríkisstjórnina um lækkun vaxta og verðlags og að tryggja rekstur útflutningsatvinnuveganna, enda er vandi sá sem steðjar að, ekki til kominn vegna hárra launa hjá al- mennu verkafólki. Þetta fólk er þolendur verðbólgu, ekki orsaka- valdur." Ég vil að málin séu rædd í botn, teflt úr stöðunni. Á það vant- aði mikiði" sagði Guðmundur J. Guðmundsson. -sá Guðmundur J. Guðmundsson: „Ég er sannfærður um að meirihluti miðstjórnarmanna var því hlynntur að viðræður héldu áfram þar til fær leið fyndist." KOSTUR FYRIR ÞIG ======^^==KB-''.290-- lEð0BSK6B 3°- [ ao 35-39 TB\^^SK 665.- 40 -46 27 VCB. A90- babbaskób ai- 53Q 28-34 KAUPFELOGIN UM LAND ALLT! / i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.