Tíminn - 09.10.1993, Blaðsíða 18

Tíminn - 09.10.1993, Blaðsíða 18
18 Tíminn Laugardagur 9. október 1993 Innilegustu þakkir til allra sem glöddu mig með margvíslegum hætti á 90 ára afmœli mínu 23. september sl. Guðrún Auðunsdóttir frá Stóru-Mörk tækniskóli t íslands Háskóli og framhaldsskóli Höfðabakka 9,112 Reykjavik simi 91-814933 minnir á að umsóknarfrestur fýrir þá, sem hyggjast hefja nám í Frumgreinadeild og Rekstrardeiid í janúar 1994, rennur út 15. október. Rektor Laust lyfsöluleyfi, sem forseti íslands veitir Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi á Akranesi (Akraness apótek). Fráfarandi lyfsali gerir kröfu til þess, í samræmi við 11. gr. laga nr. 76/1982 um lyfladreifingu, að viðtak- andi lyfsöluleyfishafi kaupi allan búnað apóteksins og inn- réttingar þess. Ennfremur kaupi viðtakandi leyfishafi fast- eign apóteksins, ásamt íbúð lyfsalans að Suðurgötu 32, Akranesi. Viðtakandi lyfsali skal hefja reksturfrá og með 1. janúar 1994. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um lyfjafræði- menntun og lyfjafræðistörf, sendist ráðuneytinu fyrir 1. nóvember 1993. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 5. október 1993. UTBOÐ Djúpvegur (61) um Oshlíð Vegagerö rikisins óskar eftir tilboöum i byggingu vegskála I Ófæru meö stiga 1994. Helstu magntölun Lengd skála 55 m, mótafletir 2.300 m2, steypustyrktarjárn 901 og steinsteypa 920 m3. Verki skal lokið 1. september 1994. Útboösgögn veröa afhent hjá Vegagerö ríkisins á Isafiröi og I Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjald- kera), ffá og meö 11. þ.m. Skila skal tilboöum á sömu stööum fyrir kl. 14.00 þann 25. október 1993. Vegamálastjóri BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚNI 3 . 105 REYKJAVÍK. SÍMI 632340 . MYNDSENDIR 628219 Kirkjutún — ný íbúðarbyggð Á Borgarskipulagi, Borgartúni 3 á 3. hæð, er tii sýnis tillaga að ibúöarbyggð á lóðinni Borgartúni 30, lóð Eimskipafélagsís- lands. Tillagan verður til sýnis alla virka daga frá kl. 8.30 til 16.00 frá 13. október til 3. nóvember. Ábendingum skal skilaö inn til Borgarskipulags fýrir lok kynningartíma. Borgarskipulag Reykjavíkur, Borgartúni 3,-105 Reykjavík Atvinnuhúsnæði 125 fm. með innkeyrsludyrum til leigu eða sölu við Grensásveg. Mjög gott húsnæði fyrir ýmsa starfsemi. Upplýsingar í síma 30649. Hermann Benediktsson Fæddur 6. mars 1904 Dáinn 17. september 1993 Mánudaginn 27. september sl. andað- ist móðurbróðir minn, Hermann Bene- diktsson, f Sjúkrahúsi Húsavíkur. Enda þótt hann hefði þá dvalið að mestu á sjúkrahúsum síðasta árið sem hann lifði, er ekki hægt að segja að veikinda- stríðið hafi verið langt. Þegar frá er tal- inn missir sjónarinnar, hélt hann að mestu bæði líkamlegum og andlegum styrk allt til síðasta dags. Hermann fæddist á Hlíðarenda í Bárð- ardal á fyrsta áratug aldarinnar, elsti sonur hjónanna Steinunnar Guðrúnar Jóhannesdóttur og Benedikts Kristjáns- sonar. Systkini hans eru Laufey fyrrum húsfreyja á Eiði á Langanesi og síðar búsett á Húsavík, dáin 1992, Guðrún Anna húsfreyja í Svartárkoti í Bárðar- dal, sem nú dvelur að Hvammi á Húsa- vík, Þórir og Steingrímur, sem báðir eru búsettir í Reykjavík. Á Hlíðarenda mun þeim afa og ömmu hafa búnast nokkuð vel, en þau áttu ekki jörðina og urðu að víkja af henni árið 1915. Fluttu þau þá að Stórási í Bárðardal, sem var eitt af heiðarbýlun- um milli Mývatnssveitar og Bárðardals, sem byggðust upp á sl. öld í kjölfar landþrengsla í dalabyggðum. Sjálfsagt hafa húsakynni á Hlíðarenda ekki verið til sérstakrar fyrirmyndar á þessum árum. Samt sem áður er ekki að efa að flutningurinn þaðan að Stór- ási hefúr boðað mikil viðbrigði til hins verra fyrir fjölskylduna. Á Hlíðarenda var tvímælaJaust gott að búa, jörðin staðsett miðsvæðis í Bárðardal, sléttar grundir og móar milli Skjálfandafljóts og skógi vaxinnar vesturhlíðar dalsins, byggð til beggja handa og beggja vegna „Fljótsins". Aftur á móti var Stórás eitt af afskekktustu heiðarbýlunum f sveit- inni, úr sjónmáli við alla mannabyggð og húsakynni vægast sagt léleg. En kostir Ieiguliðans voru ekki margir og því var stefnan tekin á heiðina, þegar ekki fékkst húsnæði f dalnum. Á Stórási bjuggu þau hjónin sfðan til 1930, er jörðin fór í eyði, og þar áttu systkinin sín uppvaxtarár. Enda þótt búskapur afa og ömmu í Stórási einkenndist af hvíldarlitlu brauðstriti, sem bömin urðu að taka fullan þátt í svo fljótt sem þau voru þess megnug, fer ekki á milli mála, að marg- ar góðar minningar voru tengdar ver- unni þar. Þar áttu þau góða nágranna sem deildu með þeim blíðu og stríðu. Á „Heiðinni" ríkir mikil sumarfegurð og öll náttúran iðar af lífi fugla og ferfæt- linga, bæði villtra og taminna. Um það get ég borið, sem eytt hef margri vor- nóttinni á þessum slóðum í viðureign við lágfótu. Stórás var heimili Hermanns allt til ársins 1930, er fjölskyldan flutti að Svartárkoti í Bárðardal. Þar var Her- mann skrifaður fyrir búi næstu þijú ár- in. Á þeim árum dó Steinunn amma og skömmu seinna lauk sjálfstæðum bú- skap fjölskyldunnar. Á árunum 1934 til 1952 taldist Hermann heimilisfastur á Stöng í Mývatnssveit, enda þótt hann dveldist raunar langdvölum að Sigurð- arstöðum í Bárðardal og víðar. Árið 1952 flytur hann síðan til systur sinnar að Svartárkoti, þar sem hann taldi sér heimili upp frá því. Þar hafði hann lengstum sínar eigin skepnur og var sinn eigin húsbóndi á Svartárkotsheim- ilinu. Árið 1985 flutti hann sig svo um set að Álftagerði í Mývatnssveit, þar sem hann dvaldi á heimili Amfríðar Aðalgeirs- dóttur og Jóhanns sonar hennar. Var hann þá orðinn næstum því blindur, en naut kærleiksríkrar umönnunar þeirra mæðginanna allt þar til hann fékk inni á Hvammi, dvalarheimili aldraðra á Húsavík, haustið 1988. Þar hafði hann sitt eigið herbergi í fjögur ár, en síðasta árið var hann á Sjúkrahúsi Húsavíkur. Það var hlutskipti Hermanns allt frá unglingsárunum og þar til hann kom í Svartárkot að hjálpa þeim sem á einn eða annan hátt áttu um sárt að binda. Hann var allt frá fýrstu tíð reiðubúinn að koma til starfa þar sem hjálpar var þörf, t.d. þar sem slysfarir eða óvænt dauðsföll höfðu raskað heimilishögum. Starfsvettvangur hans var því sem næst eingöngu bundinn við sveitimar tvær, Bárðardal og Mývatnssveit, enda þótt leiðir lægju lengra burt um tíma. Fyrsta ferðin í annan landshluta mun hafa legið vestur að Miðhúsum í Reyk- hólasveit undir lok fyrri búskapaiár- anna í Svartárkoti. Þangað hélt hann ásamt Steingrími bróður sínum í mars- mánuði með Lagarfossi til Hólmavíkur. Síðan tók við 8 klst. ganga á skíðum í ófærð frá TVöllatungu um TVöllatungu- heiði að Valshamri í Geiradal. Á Mið- húsum dvöldust þeir bræður til júní- loka og kynntust ólíkum búskaparhátt- um, stunduðu m.a. selveiði og hirtu æðarvarp hjá bóndanum, Tómasi Sig- urgeirssyni frá Stafni f Reykjadal. Seinna lá leið Hermanns aftur að Mið- húsum, varð sú dvöl lengri en hin fyrri. Löngu seinna lá svo leið hans í Þor- móðsdal í Mosfellssveit, þar sem hann annaðist um nokkurra vikna skeið bú fyrir Steingrím bróður sinn meðan þau hjón fóru með dóttur sfna til lækninga í Danmörku. Hermann var tæplega meðalmaður á hæð, þreklega vaxinn en ekki feitur. Hann var mikill göngugarpur og ferð- aðist því gjaman gangandi á milli bæja, enda var honum alla tíð frekar lítið gef- ið um hesta. Gönguþrekið mun hann hafa fengið í Stórási, þar sem hann gekk mikið til ijúpna auk þess sem miklar göngur fylgdu fjárbúskapnum á heiðinni. Hann var mikill dýravinur, eins og giöggt mátti sjá þegar komið var í fjárhúsin hjá honum í Svartárkoti, en kindur hans voru mjög gæfar og mannelskar. Mér er þó ekki síst minnis- stætt hversu miklu ástfóstri hann tók við hundinn Kát, sem ég átti á ung- lingsárunum. Var hann þess fullviss að þessi hundur iylgdi sér eftir að lffi hans lauk, taldi sig hafa fengið sönnun þess hjá skyggnu fólki. Hermann var mikið snyrtimenni, sem Iagði kapp á að laga til í kringum sig hvar sem hann var. Um snyrtimennsk- una vitna t.d. hleðslur í vatnsbakkanum umhverfis Ósinn, þar sem Svartá fellur úr Svartárvatni. Vel var hann lesinn og stálminnugur allt til hinsta dags. Á síð- asta áratug tók hann að missa sjónina. Enda þótt þá tæki fyrir bóklestur, fylgd- ist hann alla tíð vel með útvarpi og því varð missir sjónarinnar ekki til þess að hann einangraðist eða staðnaði. Hann hafði mikinn áhuga á spíritisma og trúði á líf að loknu jarðlífi. Þá er ótalið það áhugamál sem alla tíð mun hafa skipað stærstan sess í huga hans, en það var tónlistin. Fyrsta minning mín af Hermanni frænda er tengd tónlistinni. Þegar hann kom í heimsókn til Guðrúnar systur sinnar í Víðikeri, hafði hann ætið fiðl- una meðferðis. Ég minnist þess hve mér þótti gaman að hlusta á hann spila, en ég hafði ekki áður kynnst þessu hljóðfæri þar á bæ, enda þótt í Víðikeri væri orgel og söngur væri iðkaður á heimilinu. Fyrsta hljóðfærið, sem Hermann eign- aðist, var munnharpa sem hann keypti á Akureyri skömmu eftir fermingu. Hún kostaði fimm krónur, sem á þeim tíma hefur verið nokkurt fé fyrir fátæk- an sveitadreng. Hún var honum og fjöl- skyldunni mikill gleðigjafi í einangrun- inni í Stórási. Það er svo líklega um 1927 sem hann kaupir sér fiðlu á Húsa- vík. Með fiðluna fór hann síðan til Hjálmars Stefánssonar fiðluleikara og bónda í Mývatnssveit og fékk hjá hon- um tveggja daga tilsögn. Var það öll til- sögnin sem hann fékk á hljóðfærið. En nú varð ekki til baka snúið og fyrir mann með jafn glöggt tóneyra og Her- mann nægði þessi tími til að koma hon- um af stað í hljóðfæraleik. Á þessum ár- um var fiðlan mjög útbreitt hljóðfæri í Þingeyjarsýslu og þar fundust nokkuð góðir fiðluleikarar, þótt trúlega hafi enginn jafnast á við Hjálmar Stefáns- son. Eftir það var fiðlan förunautur Her- manns í blíðu og stríðu, sá förunautur sem aldrei brást og ætíð var til staðar. Líklega hefur hann þó aldrei stundað fiðluleikinn eins reglulega og eftir að hann kom að Hvammi og sjónin var að mestu farin. Þar lék hann daglega á fiðl- una og sagði mér að líklega hafi hann aldrei náð eins góðum tökum á hljóð- færinu og þessi síðustu ár. Á Hvammi tók ég myndina, sem (ylgir þessari minningargrein, fyrir þremur árum síðan. Ekki fannst Hermanni að hann gæti tekið fiðiuna með sér á sjúkrahúsið sl. haust Hann var samt ekki reiðubúinn að segja að fullu skilið við hljóðfæra- leik, heldur bað hann mig að kaupa fyr- ir sig munnhörpu, sem ég gerði. Á munnhörpuna Iék hann á sjúkrahúsinu allt þar til yfir lauk. Þar með lauk tón- listarferli hans með munnhörpunni, sama hljóðfærinu og hann byrjaði með. Ekki er mér kunnugt um hvenær Her- mann eigaðist grammófón, en líklega hefur það verið meðan hann átti heima í Stórási. Skömmu eftir að foreldrar mínir fluttu að Svartárkoti, sem var ár- ið 1946, kom hann þangað með grammófóninn sinn og plötur til að lána okkur. Var þetta allstór heimilis- fónn og nokkuð hljómgóður. Lagavalið á gömlu 78 snúninga plötunum var, eins og að líkum lætur, fiðluverk leikin af gömlu snillingunum Kreisler, Hei- fetz og Menuhin, óperuaríur með söng Carusos, Giglis, Björlings, Titos Schipa og fleiri, auk Stefáns Islandi, Erlings Ólafssonar og Maríu Markan. Þá fýlgdu og nokkrar plötur með danstónlist, m.a. norsku danshljómsveitinni Gellin av Bolström. Þessi greiði Hermanns frænda við okk- ur f Svartárkoti varð þess valdandi að við systkinin féllum fýrir tónlistargyðj- unni. Hefur hún síðan stytt okkur stundir, enda þótt hljóðfæravalið væri ekki það sama og hjá Hermanni. Ekki var öll tónlist að skapi Hermanns. Sérstaklega var honum lítið gefið um djass og aðra nútímatónlist. í þessu sambandi minnist ég samtals okkar nokkru eftir að hann kom í Svartárkot, en þar lýsti hann tónlistinni sem tærri lind sem ætti upptök sín hátt upp til fjalla. Eins og lækurinn, sem mengast af hinum og þessum aðskotaefnum á leið sinni til sjávar og endar í sumum tilfellum för sína sem gruggugt fljót, fannst honum sumt það sem nútíminn legði af mörkum til tónlistarinnar menga hana og svipta hreinleika sínum og töframætti. í dag, laugardag, fer útför Hermanns frænda fram frá Lundarbrekkukirkju í Bárðardal, kirkjunni þar sem hann var fermdur árið 1918. Þar kveðjum við ættingjamir frænda okkar og vin og sveitungamir samferðamann, sem ætíð vildi hjálpa þar sem hjálpar var þörf, án þess að spyrja um verkalaunin. Hann kvaddi jarðlífið án þess að eignast maka eða afkomendur, en þar með er ekki sagt að hann hafi ekki skilið eftir sig spor í huga okkar samferðamannanna. Þar spyr hver maður sjálfan sig, en ekki mun vera ágreiningur um að með Her- manni Benediktssyni er góður maður genginn. Blessuð sé minning hans. Haukur Harðarson frá Svartárkoti

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.