Morgunblaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 39
F lugan er kaffihúsafíkill og sinnir gjarnan þeirri nautn sinni snemma á morgnana eins og aðrir borgarbúar sem undirbúa vinnu- daginn með einum stórum latte og blaða- lestri. Það gerði rithöfundurinn Hallgrímur Helgason í vikunni, mættur með hattinn og hvöss þjóð- félagsrýniaugun á Segafredo á Lækjartorgi. Hallgrímur var reyndar líka bæði gestur og ræðumaður á NASA á föstudagskvöldið þegar bróðir hans í pólitíkinni, alþing- ismaðurinn Helgi Hjörvar, hélt boð í tilefni af prófkjöri Samfylkingarinnar. Þegar Fluga kom í hús voru Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson að „performera“ fyrir viðstadda eins og Dag B. Eggertsson „betriborg- arbaráttumann“ og Jóhönnu Sigurðardóttur alþing- ismann sem var í félagsskap vinkonu sinnar Önnu Agn- arsdóttur framkvæmdakonu. Þrátt fyrir monsúnrigningu á laugardaginn var múgur og marg- menni í bænum auk þess sem hundar trítluðu stoltir í skrúðgöngu niður Laugaveginn, flestir í flottari regn- fatnaði en tvífættir, og rauð regnhlíf rækilega merkt Glitni hélt verndarhendi yfir hárgreiðslu ótískuþenkjandi frúar í göngunni. Skaust hundblaut inn í Fríðu frænku á Vesturgötunni í leit að öðruvísi gjöf og sló í gegn í veislu um kvöldið með mjólkurkönnu úr mávastellinu og klunnalegan borðkveikjara úr ónix. Var reyndar næstum fallin fyrir gömlum vindlakassa stútfullum af snjáðum biblíumyndum. Greinilegt að hvorki markaðssetningin né dreifikerfið í sunnudagaskólanum hefur verið öflugt. Að öllu jöfnu er Flugu meinilla við ketti en ,,second hand“ fatabúllan Gyllti kötturinn í Austurstræti er alltaf malandi og vinaleg og því var kíkt í eins árs afmæli glam- úrkisunnar á laugardaginn þar sem konur á öllum aldri voru æstar að skoða pelsa og glitrandi jólakjóla, sumar hverjar hvæsandi og klórandi. Myndlistarmaðurinn Georg Guðni opnaði sýningu með sérstæðum landslagsmálverkum sínum í Gallery Tur- pentine í Ingólfsstræti á föstudaginn og tók vel á móti listunnendum eins og borgarbarninu Hans Kristjáni Ár- nassyni og Sævari Karli og frú hans, Erlu Þórarins- dóttur, en hún hafði orð á að skrýtið væri að engin gesta- bók væri á svæðinu. En það vantaði sko ekki gestabókina daginn eftir í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti þegar rithöfundurinn Þráinn Bertelsson bauð alla frambjóð- endur (og annað fólk) velkomna á málverkasýningu sína. Listamaðurinn var listavel klæddur í ljósum fötum og á glænýjum skóm, líklega hefur Sævar sjálfur tekið að sér stílistahlutverkið. Árni Bergmann fræðimaður og Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, poppuðu inn ásamt mýgrút af öðrum áhugasömum sem heiðruðu hinn fjöl- hæfa meistara; sköpunarÞráin … | flugan@mbl.is ,,Betriborgarbaráttu- menn og Glitnisregnhlíf“ Sigríður Klingenberg og Sigrún Klingenberg Hrefna Ósk Ben og Rósa Guðbjartsdóttir Brynjar Úlfur, Brynja Gunanrs- dóttir og Kristján Sævarsson Eva Dís Þórðardóttir og Guðbjörg Hjálmarsdóttir Halla Jóhannesdóttir og Guðný Elíasdóttir Margrét Rós Einarsdóttir og Inger Rós Ólafsdóttir Unnur Ósk Ármannsdóttir, Arna Sæmundsdóttir, Jón- ína Magnúsdóttir og Auður Ólafsdóttir Nína Magnúsdóttir, Úa Magn- úsdóttir og Andrea Maack Morgunblaðið/Eggert Hafþór Ingvarsson, Gunnar B. Kvaran, Ólafur Kvaran, Daniel Birnbaum og Hans Ulrich Obrist Hulda Stefánsdóttir og Katrín Sigurðardóttir Sigrún Davíðsdóttir og Sverrir Guðjónsson Jóhanna Gunnarsdóttir og Steinunn Valdís Óskarsdóttir Hlaðgerður Íris Björnsdóttir og Aron Reyr Herdís Þorvaldsdóttir og Árni Blandon » Sýningin Bandarísk list á þriðja árþúsundinu var opnuð íListasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. » Í tilefni afopnun nýrrar versl- unar, b-young, í Hafnarfirði var boðið upp á ýmis skemmti- atriði. … listamaðurinn var lista- vel klæddur í ljósum fötum og á glænýjum skóm … MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 39 flugan STUNDUM er engu líkara en skuggar fari á leik í ljóðabókum skálda. Þau eru stödd í myrkraver- öld sem engin leið virðist út úr. Svo er með ljóðabókina Vélgöltinn eftir Bjarna Bernharð. Þar segir frá sturluðum hjörtum, óláni og leið sem vörðuð er fíkn, geðveiki og gjörðum sem erfitt er að fyr- irgefa. Þetta er bók sem lýsir mannlegri rúst sem þó stendur. Eitt kvæði heitir Myrkur og túlk- ar vonleysi og kulda einsemdar og annað nefnist Lostið tré: Mannlífið er einsog tré sem elding hefur lostið. Klofið niður í miðjan bol en stend- ur þrátt fyrir það keikt. En ræturnar munu fúna. Þessi ljóðabók er einhvers konar tilraun til uppgjörs. Ljóðsegjandi fremur óafturkræfan glæp, morð, sem hvílir þungt á sinni hans. Aft- ur og aftur fer hann yfir atburða- rásina og reynir að skilja hvers vegna hann framdi þessa ódáð. Í spilunum er engin fyrirgefning eða syndaaflausn, einungis sá veruleiki fíknar, óláns og tilvistarlegrar nauðar sem leiddi hann þessa leið. Margoft hefur hann reynt að endurlifa þessi augnablik atburðanna og gera sér grein fyrir hvað knúði hann til ódæð- isins. En alltaf gripið í tómt. Stundin þar á eftir er honum þó ljós. Hann var ótta- sleginn sakir þess að hann hafði framið verknað sem var óafturkræfur. Hann leitaði í vitfirringunni eftir röksemdum fyrir glæpnum. Í huga hans hlóðust upp ýmsar tengingar sem réttlætt gátu ger- ræðið. Síðan dofnaði hann upp. Gekk síð- an útí nóttina og fann fyrir vélrænum takti í hreyfingum líkama síns. Annað mikilvægt meginstef bók- arinnar snýr að tilveru ljóðsegj- andans sem utangarðsskálds. Stór hluti verksins er smásaga um þorpsbúa sem fer aðra leið en aðr- ir íbúar þess og er hrakinn að heiman, hrakinn úr samfélagi manna. Skáldinu er umhugað um að lífsreynsla sín sem fíkniefna- neytandi skipti þrátt fyrir allt máli fyrir skáldskap hans. Hann sé kannski ekki skáld vegna hennar en hún hafi kveikt með honum list- rænan þankagang. Öll lífsreynsla skiptir að sönnu máli. En hún tryggir ekki góðan skáldskap. Það gerir starfi skálds- ins. Bjarni Bernharður er óvenju einlægt skáld. Honum tekst best upp þegar hann starfar að mynd- byggingu og segir sögur. Síðri finnst mér þau verk hans þar sem hann rökræðir við lesandann. Myrkrið í gluggalausu húsi er heldur ekki besti efniviður sem völ er á og manni finnst eins og það væri höfundinum gott að koma sér út úr myrkrinu í von um að finna einhverja ljósbera til að lýsa upp veginn framundan. Skáldin skrifa einfaldlega betur við ljós en í myrkri. Myrkrið BÆKUR Ljóðabók Eftir Bjarna Bernharð. Deus 2006. 69 bls. VÉLGÖLTURINN Skafti Þ. Halldórsson Bjarni Bernharður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.