Morgunblaðið - 02.12.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.12.2007, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Kristinn Hátíð Háskólatorg Háskóla Íslands var vígt með hátíðarbrag í gær. Um er að ræða stórbætta aðstöðu fyrir nemendur og kennara skólans. | 4 Háskólatorg tekið í notkun Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sigridurv@mbl.is „HÉRNA í kring var fullt af nágrönnum og neðar í götunni var skóli. Í hverfinu var slökkvistöð og strætó stoppaði á horninu. Og núna? Ekkert.“ Mercedes Davis Turner stendur fyrir fram- an hús sitt í níunda hverfi í New Orleans og bendir á auðar lóðir og garða í órækt. Fyrir rúmum tveimur árum lögðu flóðin í kjölfar fellibylsins Katrínu þetta hverfi í rúst. Verið er að endurbyggja hús Mercedes en það er hálfeinmana í hverfinu – fá önnur hús hafa verið lagfærð. Sjálf veltir Mercedes fyrir sér hvernig hægt verði að snúa aftur þegar nánast engin þjónusta er til staðar á svæðinu. Og hún veltir fyrir sér hvað varð um nágrann- ana. „Það skrýtna er að ég veit ekki hver afdrif þeirra urðu. Hvað varð um allt fólkið?“ Faðir hennar, hinn 98 ára gamli Wadsworth Alcott Davis, muldrar að hann sé farinn að hálfefast um að New Orleans endurheimti fyrri íbúafjölda sinn. Fjöldi borgarbúa er í dag 70% af því sem áður var. Enn vantar um 150.000 manns. „Fullkomin stöðnun“ Fellibylurinn Katrína olli gríðarlegum skemmdum í New Orleans og mikið uppbygg- ingarstarf er enn eftir. Í dag hafa um 60% al- menningsskóla verið opnuð á nýjan leik en hvað aðra grunnþætti samfélagsins varðar rík- ir að mati Brookings Institution „fullkomin stöðnun“ þessa mánuðina. 10 af 23 sjúkrastofnunum í New Orleans eru lokaðar og aðallögreglustöð borgarinnar er enn í tímabundnu húsnæði í húsvögnum. Ein- ungis 19% af almenningsvögnum eru í notkun. Sporvagnaleiðin á St. Charles Avenue sem er frá 1835 og er sú leið sem lengst hefur verið í notkun í öllum heiminum var fyrst opnuð aftur í síðasta mánuði. „Hvað varð um allt fólkið?“  Fellibylurinn Katrína veldur enn vandræðum í New Orleans  Heilu hverfin eru hálftóm og fjöldi húsa yfirgefinn  Rúmum tveimur árum eftir flóðin hafast þúsundir enn við í húsvögnum Í HNOTSKURN » Fellibylurinn Katrína gekk á landnærri New Orleans 29. ágúst 2005. » Hann ruddi með sér miklu af sjó og íkjölfarið brustu varnargarðarnir í kringum borgina. » Vatn flæddi yfir 80% hennar.  Hver vill búa í yfirgefnu hverfi? | 10 Draugalegt í New Orleans VEFVARP mbl.is ÞEGAR hún fæddist var henni vart hugað líf. Svo var talað um daga og síðan einhver ár. En Freyja Haraldsdóttir ákvað að láta allar hrakspár lönd og leið og hellti sér út í líf- ið, þrátt fyrir al- varlega fötlun. Hún varð stúd- ent með hæstu einkunn, starf- aði á sumrin á leikskóla, setti saman fyrirlest- urinn Það eru forréttindi að lifa með fötlun, sem hún hefur flutt í framhalds- skólum og víðar, og nú stundar hún háskólanám í þroskaþjálfa- fræðum. Freyja segist vera uppfull af há- leitum markmiðum, þar sem efst á blaði er að klára háskólanámið, flytja að heiman, stofna fjölskyldu og ferðast um heiminn. | 30 Uppfull af markmiðum Vill svipta hulunni af öllum tabúunum Freyja Haraldsdóttir Í kvikmyndinni Bandaríski glæpa- maðurinn elduðu lögreglumað- urinn Roberts og glæpamaðurinn Lucas grátt silfur saman. Þeir eru núna ágætis vinir. Löggan og bófinn urðu vinir Knattspyrnustjóri Liverpool, Rafa Benítez, var næstum settur út af sakramentinu vegna deilu hans og hinna bandarísku eigenda félags- ins, auðkýfinganna Hicks og Gillett. Öldurót í rauðu vígi Bítlaborgar Úrskurður spænsks dómstóls um sektir vegna birtingar skopmyndar af krónprinsi Spánar hefur vakið umræður um brothætt frelsi fjöl- miðla í Evrópu. Ásakanir um rit- skoðun á Spáni VIKUSPEGILL Leikhúsin í landinu Láttu leikhúsið hreyfa við þér >> 68 Opið 13–17 í dag og hefjum pakkasöfnun Tendrum jólatréð kl. 14 SUNNUDAGUR SAMRÆÐUR VIÐ SKÁLD TIL FUNDAR VIÐ HALLDÓR LAXNESS ÚR BÓK ÓLAFS RAGNARSSONAR >> 32 ELVIS ÍSLANDS BO HALLDÓRSSON ALDREI VINSÆLLI FULLUR ÞAKKLÆTIS >> 66 STOFNAÐ 1913 329. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.