Morgunblaðið - 31.01.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.01.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 15 SÝNING þeirra Freyju Önundar- dóttur og Sigríðar Helgu Olgeirs- dóttur í Orkuveituhúsinu ber tit- ilinn Kraftbirting. Þema sýning- arinnar er vatnið, sjálf undirstaða lífs á jörðunni. Þótt vatn sé hvers- dagslegur og sjálfsagður þáttur í tilveru okkar erum við ekki óvön því að sjá það í upphöfnu og trúar- legu ljósi enda mikilvægt minni í menningarsögunni frá örófi alda. Á sýningunni er fléttað saman á fágaðan hátt bláleitum, flæðis- kenndum málverkum Freyju og hvítum hluta – eða hálfkúlulaga skúlptúrum og skálum Sigríðar Helgu sem oft innihalda vatnið sjálft kristaltært. Veggskúlptúr með mörgum bátalaga skálum þar sem vatn rennur úr einni í aðra skapar mikilvægan hljóðbakgrunn fyrir sýninguna. Hvítar skálarnar eru festar á ryðgaða járnplötu og mýrarrauðinn skilur eftir lífræn ummerki á þeim í rennslisferlinu. Málverkin eru aðallega unnin með þeirri tækni að láta þunnan ol- íulit flæða á striganum þar sem að- allega smá en stundum stór dropa- laga hringform hafa myndast í ferlinu. Þannig virka verkin oft sjálfsprottin en þessi tækni er áberandi í samtímamálverkum samtímans. Í sumum myndanna má sjá einhverja pensilskrift og virkar það þá meira eins og trufl- un, sérstaklega ef bygging mynd- flatarins er í flóknari kantinum. Áhrifaríkast er stórt fossaverk þar sem tekist hefur að ná fram gegn- sæjum úða sem minnir á slæðu, þar sem sameinast hreyfing, kraft- ur og kyrrð. Sýningin er dæmd til að virðast svolítið klisjuleg vegna efnistak- anna sem virðast ákveðið tískufyr- irbrigði í myndlistinni. Efnistök eru þó ekki háð neinum einkaleyf- um og marktæk framtíð listamann- anna gæti mögulega legið í því að vinna markvissar með þá sjónrænu og andlegu eiginleika sem best heppnuðust í tilraunaferlinu. Vatn, samnefnari orku og kyrrðar Þóra Þórisdóttir MYNDLIST 100° gallery Orkuveituhúsinu Sýningin stendur fram í miðjan febrúar. Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 10– 16 . Aðgangur ókeypis. Freyja Önundardóttir og Sigríður Helga Olgeirsdóttir – Kraftbirting Árvakur/Valdís Thor Kraftbirting „Þema sýningarinnar er vatnið, sjálf undirstaða lífs á jörðunni,“ segir í umfjöllun. „MUSIC for a while“ var yf- irskrift Tíbrártónleika hins nafn- lausa kvennakvartetts í Salnum á sunnudagskvöld og vísaði til upp- hafsatriðisins, þrábassalags („gro- und“) eftir Purcell er góðkunnugt mun meðal forntónkera. Eftir hóf- legri aðsókn að dæma gætu þeir verið álíka stór hópur og fylgj- endur framúrstefnu, og gegnir eiginlega furðu ef væru ekki fleiri, því margt sem heillar í sönglögum Schuberts og Schumanns má þeg- ar finna í tónlist síðendurreisnar laust fyrir 1600. Ekki sízt hjá Bretum sem höfðu sérstakt vald á heiðtærum léttleika – fyrir nú ut- an hvað löngu hnattvædd tunga söngtextanna auðveldar almenna meðtöku. Sautján verka dagskráin var al- brezk og spannaði tímabilið frá um 1580 til 1720, allt frá reness- ansmadrígalistunum Morley, Dowland, Weelkes og Gibbons um snemmbarokkmennina Hume og Lawes í mið- og síðbarokk Blows, Purcells og Eccles. Meirihluti hinna 17 samsetningarmöguleika fereykisins var nýttur og bauð, ásamt ólíkum tilfinningalitum allt frá depurðardróma í dillandi ást- arglens, upp á mikla fjölbreytni. Einkenndist allt af fyrirhafn- arlausri mýkt, hvort heldur í söng eða spili, og myndaði notalega andstæðu við jafnt óblíða veð- urhæð úti fyrir sem grjóthart neyzlusamfélag og vandfirrt há- vaðarokk nútímans. Meðal einleiksatriða Guðrúnar Óskarsdóttur bar af þríþætt Svíta Purcells í d fyrir syngjandi tær- leika, er átti reyndar einnig við gömbusóló Ólafar eftir Hume og fiðlueinleik Hildigunnar í frægum fimmradda Silfursvan Gibbons (umritara ekki getið). Bráðfalleg altrödd Jóhönnu Halldórsdóttur bar uppi söngnúmerin tólf með fífuþýðum sjarma, að viðbættri heillandi inntakstúlkun er naut sín einna bezt í kankvísu meðferðinni á hjarðsælu ástarlögunum. En – eins og Frakkar segja – noblesse oblige! Svona rödd þarf að fara fullkomlega með. Þó að tjáningin uppfyllti flestar væntingar með óþvinguðum glans, hefði að ósekju mátt gefa ögn meira í veikustu niðurlög, skerpa á textasam- hljóðum og tónstöðu – einkum í hniggjörnustu hendingalokum og víbratóköflum. Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Salurinn Ensk tónlist frá 16. & 17. öld. Jóhanna Halldórsdóttir alt, Guðrún Óskarsdóttir semball, Hildigunnur Halldórsdóttir ba- rollfiðla og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir gamba. Sunnudaginn 27. janúar kl. 20. Kammertónleikarbbbmn Dúnmjúk og dillandi forntónlist ÞÓRUNN Elísabet Sveinsdóttir hefur fengist við búningahönnun fyrir kvikmyndir og leikhús við góðan orðstír. En Þórunn er ekki síður kunn fyrir teppasaum og þessa dagana stendur yfir sýning á verkum hennar í Gallerí Boxi á Ak- ureyri undir yfirskriftinni Blíð- lyndi. Í svartmáluðu boxinu hanga fimm verk úr svörtu efni. Fjögur þeirra sýna upphleypt Valentínus- arhjörtu samsett úr textílefni, títu- prjónum og tölum, og vísa ýmist til frágangs eða undirbúnings á sniði. Fimmta verkið er svo svartflúrað bútasaumsteppi sem á stendur orð- ið „Ást“. Fyrir utan boxið hanga önnur tvö litrík teppi og aftur er Valent- ínusarhjartað í aðalhlutverki. Að þessu sinni í hjartastað, anatómískt séð. Efnisnotkun Þórunnar er ríku- leg; blúndur, útsaumur og sitthvað fleira. Og öllu ægir saman í vand- legri myndbyggingu svo til verður undarleg blanda af rókókó og ab- strakt geometrískri komposisjón. Svartmáluð „innsetningin“ dempar dekorið eilítið en bætir að sama skapi við einhverskonar „neo- gothik“ stemningu sem er létt dramatísk (ég sé fyrir mér Johnny Depp í hlutverki Sweeney Todd). Líður sýningin fyrir kaótískt um- hverfið og vafasamt að færa hana þetta langt inn í vinnustofur lista- manna án þess að vinna beinlínis með það umhverfi. Textíllinn stendur þó fyrir sínu og fer Þórunni vel að vera sem yf- irgengilegust í skrautinu. Hæstum hæðum nær hún í verkunum, „Ást“ og „Í hjartastað“ sem eru hræði- lega falleg. Hræðilega fallegur textíll MYNDLIST Gallerí Box Opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 14–17. Sýningu lýkur 3. febrúar. Aðgangur ókeypis. Þórunn E. Sveinsdóttir bbbnn Litrík teppi „Efnisnotkun Þór- unnar er ríkuleg, blúndur, útsaum- ur og sitthvað fleira.“ Jón B.K. Ransu Á SÝNINGU Ingarafns í D-sal Hafnarhússins er áherslan lögð á að sýna ferlið sjálft við sköpun listarinnar sem inntak verksins. Ferlið hefur þannig enn ríkari fagurfræðilegar skírskotanir en útkoman sjálf. Ingirafn notar vetni til að búa til alla vega litaðar sápukúlur í til þess gerðum sápu- kúluvélum. Lífrænt óhlutbundið málverk verður til í rýminu sem staðfesting um leið og ferlið sjálft við gerð þess verður aðalsjónar- spilið. Það breytir í raun litlu þótt sápukúluvélarnar séu ekki í gangi því ímyndað sjónarspil þess dugar til að skapa mynd í hugum áhorf- enda. Litaðar sápukúlur fela í sér hugmynd um hreinsun með litum, ekki ósvipað og hugmyndin um þvottabláma hér áður. Ferlið vísar einnig í vinsælar aðferðir við gerð málverka og landslagsstemma í samtímanum þar sem stýrðar fag- urfræðilegar tilviljanir leika stórt hlutverk. Á sýningunni er einnig sýnt myndband þar sem tekin er yfir ímynd húss sem hústökufólk hefur Lituð sápa og bletta- tækni Þóra Þórisdóttir MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur 0 Hafnarhús, Dsalur Opið alla daga frá kl. 10–17. Sýningin stendur til 2.mars. Aðgangur ókeypis Ingirafn Steinarsson Árvakur/Valdís Thor Lífrænt óhlutbundið málverk Ingirafn notar vetni til að búa til alla vega litaðar sápukúlur í til þess gerðum sápukúluvélum. hertekið. Listamaðurinn hefur sett sínar eigin myndir á húsið og fylg- ist með því í gegnum myndbands- myndavélaraugað og slær þannig á það ákveðnu eignarhaldi um stund. Ferlið sem verkið er ekki nýtt af nálinni en framkvæmdin er skemmtileg og ekki laust við að áhorfandinn skynji að hann og hans viðbrögð eru hluti af verkinu. Sá sem heldur að hann sé að taka, horfa, er óvart orðinn litaður af eignarrétti listamannsins eins og sápukúlurnar. Ekki lengur litlaus, ósýnilegur eða passívur, heldur litaður af ásetningi listamannsins. Skemmtileg nálgun og í takt við listheimspekilegar umræður síð- asta áratugar. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Þvottavél verð frá kr.: 104.500 vi lb or ga @ ce nt ru m .is Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 www.eirvik.is Íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar Stórt hurðarop 20 ára ending Gerð Listaverð TILBOÐ Þvottavél W1514 149.285 104.500 1400sn/mín/5 kg Þvottavél W1714 179.600 134.700 1400sn/mín/6 kg Þurrkari T7644C 142.144 99.500 rakaþéttir/6 kg Eirvík kynnir sportlínuna frá Miele Miele gæði TILBOÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.