Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 24
24 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR S etustofan á Aragötu 2. Vigdís situr í gömlum, fal- legum hægindastól; ætt- ardjásni úr Sauðlauksdal við Patreksfjörð, þar sem föðurfjölskylda hennar bjó. Í sófan- um gegnt henni situr Páll Valsson, höfundur nýútkominnar ævisögu Vigdísar – kona verður forseti. „Það er alltaf erfitt að lesa um sjálfan sig,“ svarar Vigdís, spurð hvernig henni líki bókin, enda langt því frá um eintóna lofgjörð að ræða af hálfu höfundarins. „En ég ber svo mikla virðingu fyrir verk- inu og sé hversu haganlega það er skrifað. Eigum við ekki að orða það þannig að ég láti mig hafa það.“ Það var alls ekki sjálfgefin niðurstaða að Vigdís myndi taka þátt í ritun ævisögu sinnar. Í for- setatíð sinni var Vigdís þekkt fyrir að blanda ekki einkalífi sínu saman við hina opinberu hlið, hélt sínu fyrir sig. En hvað kom til að hún lét til leiðast? „Árin líða og lífshlaupið gengur áfram. Ég gerði mér mjög vel grein fyrir því að þessi saga yrði skrifuð fyrr eða síðar. Þetta var svo sögu- legur atburður sem gerðist hérna árið 1980. Ég segi það alltaf að ég er svo hreykin af því að Íslending- ar skyldu þora þetta – þetta sner- ist ekki um mig, heldur Íslendinga sem þorðu. Ég vissi að til voru menn sem voru þegar farnir að safna heim- ildum og áttaði mig á að þessi saga yrði að koma út áður en ég yfir- gæfi þessa jörð. Ef þessi bók hefði verið skrifuð eftir að mínu lífs- hlaupi lýkur hefði hún eingöngu byggst á óbeinum heimildum og blaðagreinum og ég óttast að það hefði getað endað sem kjaftasögu- bók og slúður. Svo er ég svo heppin að Páll var viljugur til að taka þetta verkefni að sér og hefur leyst það með mikl- um sóma. Sagan er sögð eins og hann sér hana. Mér finnst til dæmis mjög skemmtilegt hvað hann fer langt aftur í tímann, langt fyrir mína tíð, eins og var gert í Íslend- ingasögunum. Þetta er nákvæm- lega það sem við gleymdum þegar allt fór í vaskinn. Við gleymdum að hugsa um tímann á undan.“ Átak að lifa lífinu tvisvar Það var einmitt þegar allt fór í vaskinn sem ritun bókarinnar hófst. „Við hittumst reglulega, að minnsta kosti einu sinni í viku, til að fara yfir málin,“ segir Páll. „Um svipað leyti gerðist það að þjóðfélagið hrundi. Það var því um nóg að tala og Vigdís hafði mikinn áhuga á að ræða atburði líðandi stundar. Ég var því iðulega með smá móral yfir því að þurfa allt- af að draga hana hálfa öld aftur í tímann og þýfga hana um tilveruna þá. Annars sat ég bara í mínu horni í rannsóknum og reyndi að púsla þessu saman; talaði við fjölda manns og fékk aðgang að gögnum og bréfum Vigdísar …“ „Sem ég hafði aldrei lesið …“ skýtur Vigdís inn í. „Já, það var ansi gaman að stundum var eins og ég væri að færa henni ný tíðindi þegar ég var að sýna henni hvað hún hefði eitt sinn verið að skrifa og hugsa. Það kom aldrei til greina af minni hálfu að skrifa einfalda samtalsbók, held- ur alvöru ævisögu byggða á heim- ildum. Bókin er skrifuð í þriðju persónu, en ég vildi líka reyna að skapa nálægð við viðfangsefnið og láta rödd Vigdísar koma fram og geri það með innskotsköflum í fyrstu persónu. Þar bregst hún beint við tilteknum spurningum eða atburðum. Hugmyndin var að reyna að ná þannig jafnvægi í frásögnina, skapa bæði fjarlægð og nálægð við viðfangsefnið og nýta það að Vigdís er enn meðal okkar.“ Vigdís tekur þó fram að oft og tíðum hafi verið erfitt að horfa til baka. „Það er mikið átak að lifa lífinu tvisvar og rifja upp fortíðina því ég dvel ekki mikið við hið liðna – ég vil frekar horfa fram á við.“ Fullkomnunarárátta og vanmeta- kennd Í bókinni birtist allt önnur mynd af Vigdísi en sjálfsagt flestir hafa gert sér í hugarlund fram að þessu, sérstaklega þeir sem ólust upp í forsetatíð hennar; hugsjónin um jafnréttið og mátt kvenna hefur verið samofin ímynd hennar allt frá því hún varð þjóðkjörinn for- seti fyrst kvenna í heiminum. Það kemur því óneitanlega á óvart að ævisaga Vigdísar er saga konu sem í hafa togast á fullkomunar- árátta og vanmetakennd. Í fyrsta lagi helgast það af uppeldi; Vigdís hlaut ástríkt en strangt uppeldi og leitaðist ávallt við að rísa undir væntingum foreldra sinna en þótti ævinlega herslumuninn vanta. „Bæði þegar hún sótti um sem leikhússtjóri hjá Leikfélagi Reykja- víkur og bauð sig fram til forseta voru það aðrir sem ýttu henni af stað,“ bendir Páll á. Og í bæði skiptin gerðist þetta allt á síðustu stundu; hún var til dæmis hárs- breidd frá því að hætta við forseta- framboðið. „Það voru aðrir sem sáu eitthvað í mér sem ég sá ekki sjálf,“ segir Vigdís. „Ég hef hins vegar reynt að gera allt vel sem ég tek að mér. Allt frá því ég var ung stúlka og var að fara út í lönd, sá ég sjálfa mig eins og ég veit að for- eldrar mínir vildu hafa mig. Og ég geri það enn þann dag í dag.“ Í öðru lagi segir hún vanmeta- kenndina hafa verið hlutskipti kvenna á Íslandi. „Kvenfrelsi hefði auðvitað orðið að raunveruleika á Íslandi miklu fyrr ef konur hefðu ekki verið með þessa miklu van- metakennd fram eftir allri síðustu öld. Þær eru jafnvel haldnar henni enn þá en það er aftur á móti auð- veldara að ýta henni frá sér núna vegna menntunar. Það er hins full- komlega hlægilegt að hugsa til þess núna hvernig konur vanmátu sjálf- ar sig; þær voru drifkraftur heimil- isins, þungamiðja samfélagsins. Þessu áttuðu sjómenn sig þó á; þeir vissu að á heimilinu var konan bæði fjármálaráðherra og mennta- málaráðherra og hélt öllu gangandi á meðan þeir voru úti á sjó. Þannig hef ég að minnsta kosti skýrt það hvers vegna sjómenn hvöttu mig í framboð árið 1980 og það var ekki síst fyrir þá áeggjan að ég lét slag standa.“ Ekki víst að ég hefði kosið mig sjálf Saga Vigdísar er þó vissulega öðrum þræði saga um kjark. Að kona skyldi bjóða sig fram til forseta 1980 var sannarlega vogað, en enn vogaðra í ljósi þess að hún var einstæð móðir – fyrsta ein- hleypa konan til að fá að ættleiða barn á Íslandi – og hafði einn- ig barist við krabbamein. Marg- ir hefðu eflaust látið hvatningar- orð um forsetaframboð sem vind um eyru þjóta við þær aðstæð- ur. „Ég held ég hafi tekið þessu sem ákveðinni ögrun og eftir á að hyggja þurfti gríðarlegan kjark til að takast á við þetta; að líta aldrei til baka heldur alltaf fram á veginn. Ég held að þessi bakgrunn- ur minn hafi kannski líka hjálpað öðrum að sjá sjálfa sig í nýju ljósi, hverju þeir gætu afrekað. Allt sem gerist í bókinni getur komið fyrir allar stelpur í landinu, þær eiga að geta samsamað sig með öllu, nema mögulega að verða forseti.“ „Það er líka ein hugmyndin á bakvið titilinn – Kona verður for- seti,“ segir Páll. Sú lína er hugsuð almennt.“ Hann snýr sér að Vigdísi: „Þú sagðir einhvern tímann þegar við vorum að rifja þetta upp, og það kom alveg beint frá hjartanu: „Þetta var hrein fífldirfska að fara í þetta framboð. Ég hreinlega veit ekki af hverju ég lét til leiðast.“ Ég held að það sé rétt. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér grein fyrir því eftir á, þegar allt horfir öðruvísi við og svo margt hefur breyst, hvað þetta var fífldjarft.“ „Stundum gerðist það, eftir að ég var kjörin, að fólk vék sér að mér og bað mig afsökunar á því að hafa ekki kosið mig,“ segir Vigdís. „Ég bað fólk iðulega að taka það ekki nærri sér, ég væri alls ekki viss um að ég hefði kosið mig sjálf.“ Að endingu standa sig þeir einu sem vanda sig Kjör Vigdísar í embætti forseta markaði tímamót á heimsvísu. Því fór þó fjarri að Vigdís hefði gert sér grein fyrir því á sínum tíma. „Alls ekki, ég hafði ekki hug- mynd um að ég væri fyrsta konan í heiminum til að verða kosin for- seti fyrr en ég fór að fá viðbrögð utan úr heimi. Eitt sinn var mér sýnd fyrirsögn úr kínversku dag- blaði þar sem stóð: Kona kjörin for- seti á Íslandi. Þá hugsaði maður að þetta sætti greinilega tíðindum. En ég hafði ekkert verið að pæla í því fram að þessu og varð satt best að segja svolítið hissa.“ Vigdís tók Kristján Eldjárn sér til fyrirmyndar. Hún lagði fyrst og fremst áherslu á að vera samein- ingartákn þjóðarinnar og forðað- ist að trana sinni persónu fram. En það hlýtur að hafa kostað sitt. „Jú, ég gætti þess rækilega að blanda ekki saman vinnu og einkalífi; hélt mínu striki við að ala upp dóttur mína og rækta vini mína eftir bestu getu. Þetta krafðist gríðarlegrar skipulagningar.“ „Það er líka eftirtektarvert,“ skýtur Páll inn í, „að þegar þær aðstæður komu upp að Vigdís sem persóna hefði mögulega skoðanir á ákveðnum málum varð mikill titr- ingur – það var mjög áberandi að hún hafði sáralítið svigrúm.“ Krefst það fórna, að leggja part af sér og sinni persónu til hliðar í sextán ár? „Ég veit það ekki,“ segir Vigdís. „Ef maður er upptekinn af einhverri vinnu og vill gera vel lítur maður ekki á það sem fórn. Að endingu standa sig þeir einu sem vanda sig, það var mitt leið- arljós. Þegar eitthvað kom upp á hugsaði ég: Hvað hefði Kristján Eldjárn gert nú? Hann var svo far- sæll forseti. Og ég vona að ég hafi verið það líka.“ Hringdu ekki einu sinni í „konu- bjánann“ Í ævisögu Vigdísar kemur fram að hún hafi fundið greinilega fyrir því að stjórnmálamenn treystu forsetanum ekki alltaf til verka. Á köflum fannst henni hreinlega ómaklega að sér vegið, til dæmis í flugfreyjuverkfallinu 1985. Rík- isstjórn Steingríms Hermanns- sonar hugðist setja bráðbirgðalög á flugfreyjur á sjálfan kvennafrí- daginn. Þetta þótti Vigdísi ótækt og óskaði eftir að fá að bíða með að undirrita lögin fram að miðnætti. Því var neitað. Vigdís beið því með að undirrita lögin til klukkan eitt eftir hádegi, til að koma í veg fyrir Þetta getur komið fyrir allar stelpur Vigdís Finnbogadóttir skipar sérstakan sess í sögu og hjarta íslensku þjóðarinnar. Um ævi hennar, sorgir og sigra er fjallað í nýrri bók Páls Valssonar, Vigdís – kona verður forseti. Bergsteinn Sigurðsson gekk á fund Vigdísar og Páls og spurði þau út í verkið og samstarfið. KONAN SEM VARÐ FORSETI „Það er mikið átak að lifa lífinu tvisvar og rifja upp fortíðina,“ segir Vigdís um ritun bókarinnar. „Ég dvel ekki mikið við hið liðna – ég vil frekar horfa fram á við.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FRAMHALD Á SÍÐU 26 Fólk sækist eftir því sem er fyrir andann Leikhúsið og listir hafa lengi skipað stóran sess í lífi Vigdísar og gera enn. „Ég hef hvergi lært jafn mikið um lífið og í leikhúsinu. Það gerði mig að mannþekkjara, held ég. Þegar ég hitti fólk skemmti ég mér enn við að skipa því í hlutverk á sviði í huganum. Það var margt líkt með þeim tímum sem við lifum núna þegar ég var í leikhúsinu. Þetta voru samdráttartímar og maður sá svo greinilega hvernig vel skrifuð, gagnrýnin verk tóku á málunum. Lífið er hvergi betur skilgreint en í leikhús- inu. Það „góða við kreppuna“ er að menningin blómstrar. Ég hef einmitt verið að gleðjast yfir því að það er sneisafullt í leikhúsum og á tónleikum. Fólk sækist eftir því sem er fyrir andann, sem er mjög jákvætt. Út kemur hver bókin á fætur annarri sem er stórkostlegur litteratúr. Menningin færir fólki nýja sýn á hlutina. Og hún getur brotist út í svo mörgu, til dæmis prjónaskap. Það er svo róandi og gefur fólki eitthvað annað en það er að hlaupa eftir í daglegu lífi.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.