Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 5

Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 5
20. norræna skólamótið „Nordisk skola í utveckling" Liðlega 1000 skólamenn tóku þátt í skólamótinu í Stokkhólmi 4.—7. ágúst s.l., þar sem 50 menntafrömuðir víðs vegar að af Norðurlöndum fjölluðu um þróun norrænna skólamála í 28 erindum og á 4 umræðufundum Hans Hellers setur mótið. 4. ágúst. Hans Hellers, formaður sænsku undirbúnings- nefndarinnar, setti mótið í hinum rúmgóða og tæknilega vel útbúna fundarsal í Folkets lius. Hann kvað 100 ár liðin, síðan lyrsta norræna skólamótið var haldið í Gautaborg. Á þessu afmæli yrði þó ekki litið til baka, heldur horft frarn á veginn og reynt að skilgreina verkefni skólans í samfélagsþróuninni. Umræðurnar yrðu ekki einskorðaðar við skólann sem þjóðlega eða norræna stofnun, heldur kannað hlutverk lians og staða í heiminum. Þess vegna mætti líta á þetta norræna skólamót sem lið í alþjóða mennta- ári Sameinuðu þjóðanna. — Uppeldi til heimsþegnréttar leiðir til skiln- ings og eindrægni þjóða á milli, sagði Hans Hellers. Ingvar Carlsson, menntamálaráðherra Svía, fluti inngangserindi mótsins, en að Jm loknu ávörpuðu menntamálaráðherrar Dana, íslend- inga, Finna og Norðmanna þingheim. Eftir matarhlé talaði Johan Björge, ráðuneytis- stjóri, frá Noregi um sameiginlega drœtti i endurþótaviðleitni skólanna á Norðurlöndum, og Carl-Axel Axelsson, námsstjóri, frá Svíþjóð hafði framsögu urn kennaramenntunina á Norð- urlöndum og samvinnumöguleika þjóðanna á MENNTAMÁL 119

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.