Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1999, Blaðsíða 22

Bjarmi - 01.03.1999, Blaðsíða 22
„Fólkið þarfnast hins kristna boðskapar ekkert síður en við“ Rætt við Leif Sigurðsson, nývígðan kristniboða Kirkja sem ekki sinnir krist- niboði verður ekki langlíf og kristniboð sem ekki á sér athvarf og sækir sér ekki næringu í samfélagi kristins safnaðar um orð Guðs og borð dagar uppi," sagði biskup íslands, herra Karl Sigurbjömsson, í prédikun sinni er hann vigði Leif Sigurðsson i Dómkirkj- unni til kristniboðsstarfa í Kenýu 3. janúar síðast liðinn. Hann sagðist enn fremur vona að þessi vigsla boðaði nýja tíma þar sem kristniboðshreyfingin og kirkjan á íslandi vöknuðu til aukinnar vitundar um að standa saman um þessa grundvallarköllun kristinnar kirkju, að stunda kristniboð. Síðasta kristniboðavígsla var árið 1992 er Karl Jónas Gislason og Ragn- heiður Guðmundsdóttir voru vígð til starfa í Eþíópíu. Það var því tími til kominn að nýr liðsmaður bættist í hóp kristniboðanna. Leifur er fæddur í Reykjavík 8. ágúst 1970 en ólst upp á Patreksfirði fram yfir fermingu er hann fluttist með fjölskyldu sinni til Reykja- vikur. Hann lítur á sig sem Vestfirðing. Foreldrar hans eru Fjóla Guðleifsdóttir, hjúkmnarfræðingur og Sigurður Jóns- son, apótekari. Áhrifavaldar Móðir Leifs kenndi honum bænir og gaf honum kristið uppeldi. Hún var í Kristi- legum skólasamtökum á yngri ámm og þekkti til starfs Sambands íslenskra kristniboðsfélaga, SÍK. En lítið var fjall- að um kristniboð í uppvextinum þó að móðursystir hans, Kristín Guðleifsdóttir (d. 1996), og maður hennar, sr. Felix Ólafsson, sem búið hafa um áratuga- skeið í Danmörku, hafi verið fyrstu ís- lensku kristniboðamir í Konsó í Suður- Eþíópíu (fóm þangað árið 1953). Frændi Leifs, sr. Ólafur Felixson, prestur í Hirtshals í Danmörku, var um skeið kristniboði á eyjunni Bahrain í Persaflóa. En þetta fólk bjó of langl i burtu til að hafa mikill áhrif á Leif. Leifur kynntist starfi SÍK eftir að hann fluttist til Reykjavikur. Þá ók hann móður sinni á samkomur samtakanna og var á þeim á meðan hann beið eftir henni. Kristindómur og kristniboð hafði litið gildi fyrir honum á menntaskólaárunum. Þó gekk hann í KFUM. „Ég fór á Biblíuskóla á Fjellhaug i Osló,“ segir Leifur, „að afloknu stúdents- prófí að áeggjan móður minnar. Þar var ég í einn vetur. Sá tími varð mjög afdrifa- ríkur fyrir mig. Ég öðlaðist meiri skilning á kristindómnum og stóð frammi íýrir því að þurfa að taka afstöðu til hans og ákveða hvað ég ætlaði að gera við hann. Á þessum tíma vaknaði trú mín og varð lif- andi. Fram að þvi hafði kristindómurinn bara verið þurr kenning sem hafði lítið gildi fyrir mig þrátt fyrir að ég hafði sótt sunnudagaskóla og verið fermdur þó að án efa hafi fræjum verið sáð þar sem báru nú ávöxt. Það hefur gífurleg áhrif á mann að mæta hinum lifandi, upprisna frelsara, Jesú Kristi. Þetta var mjög gott ár og ég eignaðist marga af mínum bestu vinum." Kristniboðsköllun Á Fjellhaug eru Biblíuskóli og kristni- boðaskóli hlið við hlið. Kennaramir em flestir fyrrverandi kristniboðar og töluðu óhjákvæmilega um kristniboð er þeir miðluðu af lífsreynslu sinni í kennslunni. Kristniboð var samofið þeim krístindómi sem kenndur var á skólanum. „Það hafði þó mest áhrif á mig að sjá og hitta stráka á mínum aldri sem vom á kristniboðaskólanum. Þeir voru ekkert ólíkir mér og hugsuðu ekkert öðm vísi en ég en höfðu fengið köllun til að gerast kristniboðar. Ég talaði oft við marga þeirra. Þetta varð til þess að ég fór að líta á kristniboð sem meira en litskyggnusýn- ingu á kristniboðssamkomu. Ég fann iýr- ir innra kalli Guðs til kristniboðs."

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.