Sjóslys og drukknanir frá 10. maíl 994 tiM.apríl 1995 10. maí 1994 Árla morguns 10. maí 1994 slasaðist Guðni Kristján Sævarsson háseti mjög alvarlega, er hann var við störf á þilfari Dagrúnar IS-9, þegar skipið var að togveiðum á svokölluðu Grálúðutorgi 90 sjm. vestur af Látrabjargi. Við hífingu slóst vír í höfuð Guðna Kristjáns með þeim afieiðingum að hann fékk mikil höfuðmeiðsl. Þyrlan TF-SIF var þegar send á vettvang með lækni og flutti sjúklinginn á Borgarspítalann í Reykjavík þar sem hann lést hinn 18. maí af völdum áverka þeirra er hann hlaut. Guðni Kristján heitinn var fæddur 6.janúar 1957, til heimilis að Traðarlandi 10 Bolungarvík. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. 18. desember 1994 Aðfaranótt 18. desember 1994 drukknaði Theodór Sigurjón Malmquist matsveinn á ms. Hafrafelli IS-222 er lá við togarabryggjuna á Siglufirði. Stórhríðarveður af ANA með mikilli snjókomu og fannfergi gekk þá yfir Norðurland. Theodór heitinn var fæddur 3.júlí 1933, til heimilis að Urðarvegi 18 Isafirði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur börn. Lík hans fannst í höfninni hinn 21. desember eftir mikla leit. 26. febrúar 1995 Aðfaranótt 26. febrúar 1995 fórst Gunnar Ingi Einarsson háseti er hann féll fyrir borð af nótaskipinu Sigurði VE-15, er skipið var að loðnuveiðum um 10 sjm. austur af Vestmannaeyjum. Gunnar Ingi var að störfum í nótakassanum, því verið var að undirbúa að kasta nótinni, þegar slysið átti sér stað. Hann náðist aftur um borð eftir um það bil 10 mínútur og var þá látinn. Lífgunartilraunir báru engan árangur. Gunnar heitinn Ingi var fæddur 29. október 1951 til heimilis að Búhamri 58 í Vestmannaeyjum. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. 1. april 1995 Aðfaranótt 1. apríl 1995 lést Halldór Páll Stefánsson skipverji á nótaskipinu Huginn VE-55, er hann féll á milli skipa í Ólafsvíkurhöfn og klemmdist. Skipin höfðu leitað vars þar í höfninni vegna veðurs, SSV 11 vindstig með éljagangi. Mikill súgur var við Norðurbryggjuna þar sem skipin lágu bundin. Skipverjar náðu félaga sínum um borð í nótaskipið Arnó EA-16 er lá utan á Huginn, en hann var þá látinn. Lífgunartilraunir báru engan árangur. Halldór Páll heitinn var fæddur 11. nóvember 1948 til heimilis að Hásteinsvegi 13 í Vestmannaeyjum. Einhleypur. 66 SJÓMANNADAGSBLA^