Tímarit lögfræðinga - 01.06.1965, Blaðsíða 3
TIMARIT LOGFRÆÐINGA
2. hefti 1965
^ónatan j^ón
Afbrotafræði — hjálpargrein
refsiréttar')
Þróun refsiréttar.
Nútímarefsiréttur er árangur langrar þróunar, og
margs konar ólík sjónarmið og slefnur hafa lagt sitt af
mörkum við mótun hans. Það skyldi því enginn ætla,
að á þessu sviði rétlarkerfisins, fremur en öðrum, sé
að finna samstæða og samræmda réttarheild. í refsi-
rétti ægir saman hinum ólíkustu sjónarmiðum frá ýms-
um tímum. Til nánari glöggvunar mætti greina sundur
þrjá höfuðflokka slíkra sjónarmiða, er sett hafa mark
sitt á refsilöggjöf og refsirétt:
1) Þjóðfélagsaðstæður. Þetta er víðtækt orð, sem
táknar nánast þverskurð af þjóðfélaginu, eins og það
raunverulega er á hverjum tíma. Meðal slíkra aðstæðna
mætti nefna efnaliag, atvinnuhætti, tækni og menning-
arstig. Aðstæðurnar breytast frá einum tíma til ann-
ars, og refsilöggjöfin er furðugóð spegilmynd af aðstæð-
unum á hverjum tíma. Þær ráða miklu um það, hverja
i) Greinarkorn það, er hér birtist, er að mestu óbreytt frá
erindi, sem ég hélt i Orator, félagi laganema, hinn 20. okt. 1966
og því fyrst og fremst ætlað laganemum sem stutt yfirlit yfir sögu
og rannsóknarviðhorf afbrotafræðinnar. — Höf.