Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Blaðsíða 9

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Blaðsíða 9
AXEL EINARSSON Axel Einarsson, hæstaréttarlögmaður, and- aðist í Reykjavík 19. desember 1986, rúmlega 55 ára að aldri. Hann hafði um nokkurt skeið kennt sjúkdóms þess, er dró hann til dauða, en virtist hafa náð sér og kom því andlát hans kunningjum og vinum algjörlega á óvart. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Ingvars- dóttir og Einar Baldvin Guðmundsson hrl., sem var einn virtasti lögfræðingur landsins um langt árabil. Axel var elstur barna þeirra hjóna, en eftir lifa systur hans, Jóhanna Jórunn og Kristín Klara. Axel útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykja- vlk vorið 1951 með 1. einkunn. Hann stundaði laganám að því loknu og lauk prófi frá laga- deild Háskóla íslands 23. maí 1956 með 1. einkunn. Eftir lagapróf stundaði hann nám í sjórétti við Lundúnaháskóla um eins árs skeið, 1956-1957, en hóf að því loknu störf sem fulltrúi á Málflutnings- skrifstofu Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar og Guðmundar Péturssonar. Gerðist hann meðeigandi þeirrar skrifstofu árið 1968. Árið 1974 létust samstarfsmennirnir Einar Baldvin Guðmundsson og Guð- laugur Þorláksson og tók þá Axel við hlut föður síns í skrifstofunni, sem eftir það var rekin undir nafninu Málflutningsskrifstofa Guðmundar Péturs- sonar og Axels Einarssonar, fram til ársloka 1985, en í ársbyrjun 1986 bættist Pétur Guðmundarson hrl. við sem meðeigandi. Eftir að Axel varð hæstaréttarlögmaður á árinu 1965 tók hann æ ríkari þátt í ráðgefandi lögfræðistörfum hjá þeim fyrirtækjum, sem skrifstofa okkar starf- aði fyrir, og eftir að faðir hans andaðist fetaði hann að verulegu leyti í fótspor hans í þeim efnum. Hann aflaði sér fljótt vinsælda í störfum og af því leiddi aftur, að hann var kosinn í stjórn ýmissa fyrirtækja, t.d. Ferðaskrifstofunnar Úrvals á árinu 1970 og var lengi stjórnarformaður þess félags. í stjórn H/F Eimskipafélags íslands var hann kosinn 1974 og sat þar meðan hann lifði. Hann starfaði einnig sem lögmaður Flugfélags íslands og síðar Flugleiða, eftir sameiningu flugfélaganna. Það er örugglega ekki ofmælt, að Axel hafi notið mikils trausts sem lögmaður hjá öllum þeim, sem hann starfaði fyrir og með. Innan lögmannastéttarinnar var hann mikils metinn og sat í stjórn Lög- mannafélagsins um árabil. Axel var prýðilegum gáfum gæddur og fékk i vöggugjöf marga bestu kosti foreldra sinna, rökfastur, stuttorður og gagnorður, og áberandi þáttur í fari hans var viss glaðværð og hlýleiki ( framkomu. Hann líktist mjög föður sínum, sem eldri lögmenn og dómarar minnast með sérstakri virðingu. 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.