Morgunn - 01.12.1977, Blaðsíða 69
JÓFRlÐUR G. S. JÓNSDÓTTIR:
„ÞETTA ER BRÓÐIR ÞINN“.
Árið 1939 dreymdi mig lítinn draum, sem veitti mér mikla
ánægju. Ég átti þá heima norður í landi og fjölskyldan, sem
ekki var stór, bjó í einu herbergi og eldhús var í kjallara.
Mig dreymdi, að lítill drengur væri fyrir utan og horfði
hann á mig inn um gluggann. Ég stóð og starði á þetta
barnsandlit, sem mér fannst svo undur fagurt. Þá fannst
mér einhver segja, en þó alveg hljóðlausri röddu. „Þetta er
bróðir þinn.“ Ég hafði misst þrjá bræður, alla unga. En ein-
hvern veginn vissi ég að þetta myndi vera sá þeirra, sem
yngstur var. Ég varð svo óumræðilega glöð, að sjá hann
þarna og ætlaði út að fá hann inn til mín. En þá hvarf hann
og ég vaknaði. 1 marga daga á eftir var ég með óvenjulega
fagnaðartilfinningu í sálinni. Og einhvern daginn varð þetta
litla ljóð til.
DRAUMStN
Oft hef ég angritö verið
°g yfir því hrygg og sár,
að eiga hér engan bróður,
öll þessi löngu ár.
Víst er þó vitund betra
«0 vita um brœÖur þrjá,
sem á ég í öÖrum heimi
englum og GuSi hjá.