ISLANDSKORT A NETINU_______________________________________________________________________RITMENNT hvert kort í töflunum eru nafn höfundar og korts, útgáfustaður, útgáfuár og stærð. I öðru lagi er hægt að finna ákveðið kort með leit þar sem slegið er inn efnisorð eins og nafn kortagerðarmanns eða útgefanda og geta notendur þrengt leit eftir ákveðnu tímabili eða útgáfulandi. Þegar mynd af korti er komin á skjáinn er hægt að stækka einstaka hluta hennar. Slóð verkefnisins á Netinu er http://www.bok.hi.is/kort. Það er ljóst að Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn á ekki öll kort sem gerð hafa verið af Islandi fyrir 1900. Það er hins vegar ósk safnsins að geta veitt aðgang að sem flestum þeirra og það hefur því áhuga á að komast í samband við þá sem eiga kort sem ekki eru birt sem hluti af þessu verkefni. Um frekara fram- hald er það að segja að næst liggur fyrir að athuga möguleikann á því að færa yfir á stafrænt form herforingjaráðskortin svoköll- uðu, þ.e. kort sem danskir landmælingamenn gerðu af landinu á fyrri hluta aldarinnar. Samstarfsaðili Landsbókasafnsins í Mo i Rana hefur mikinn áhuga á að kanna vilja hinna Norðurland- anna til samvinnu um að færa söguleg kort þeirra í stafrænt form. Ef af því verður mun þetta verkefni verða undirstaða þess. Af hálfu Landsbókasafns unnu eftirtaldir starfsmenn að verk- efninu: Björn L. Þórðarson, Helgi Bragason, Jökull Sævarsson, Kristín Bragadóttir, Sigrún Hauksdóttir og Þorsteinn Hallgríms- son. Af hálfu samstarfsaðilans í Noregi komu helst við sögu þau Svein Arne Brygfjeld, Solveig Seines og Svein Arne Solbakk. Sumarið 1996 hlaut verkefnið styrk úr Nýsköpunarsjóði náms- manna. Jökull Sævarsson Eistnesk bóksaga1 Þrátt fyrir að fjarlægðin mæld í kílómetrum milli Norðurland- anna og Eystrasaltsríkjanna sé lítil hafa samskipti þessara þjóða verið í lágmarki og ýmsum erfiðleikum háð um meira en hálfr- 1 Den estniska boken genom seklerna. Bokhistoriska uppsatser utgivna av Endel Annus och Esko Hakli. Helsingfors: Helsingfors universitetshibliotek, 1995. 199 bls., myndir. (Helsingfors universitetsbiblioteks skrifter, 57.) ISBN 951-45-7132-0 (ISSN 0355-1350). 152