Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2005, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2005 Fréttir DV Kamerúnsk kona með falskan passa Landamæralögreglan á Keflavlkurflugvelli handtók í fyrradag tæplega þrítuga konu frá Kamerún þar sem hún reyndi að komast ffá Stokkhólmi til Bandaríkj- anna á fölsuðu vegabréfí. Við rannsókn kom í ljós að vegabréfið var í eigu franskrar konu sem var nokkuð sviplík þeirri frá Kamerún. Hún var ein á ferð og verður leidd fyrir dómara í dag þar sem Eyjólfur Kristjánsson full- trúi sýslumanns vonast til að verða búinn að gefa út ákæru á hana. Gjaldfyrir enga þjónustu Raimund Bernhard Brockmeyer- Urbschat á Lida-Búrfelli í Svínavatns- hreppi fær felld niður sorp- hirðugjöld sem Blönduós- bær lagði á hann vegna íbúðar hans að Hnjúka- byggð 4 á Blönduósi. Úr- skurðarnefnd um hollustu- vemd og mengunarvarnir tók undir það sjónarmið Brockmeyer-Urbschats að þar sem enginn hefði búið í íbúðinni hefði sveitarfélag- ið ekki haft kostnað af sorphirðu þar og hefði enga heimild til að rukka fyrir þjónustu sem ekki hefði verið veitt. Dæma móður á Hagamel HildurÁrdís Sigurðardóttir mun í dag hlýða á dómsupp- kvaðningu í máli gegn henni fyrir manndráp. Hild- ur hefur viður- kennt að hafa stungið 11 ára gamla dóttur sína með hnífi í byrjun maí í fyrra. Sonur Hildar fékk einnig áverka en komst undan og náði að láta vita af sér. Systir hans var ládn þegar lögregla kom á vettvang. Hildur sem á við geðræn vandamál að stríða hefur dvalist á réttargeðdeildinni að Sogni frá því stuttu eftir að atburðurinn varð. Dóttir konunnar hefði orðið 12 ára í lok desember. DV hefur undir höndum listann fræga sem hefur að geyma nöfn fjörutíu kvenna sem flestum að óvörum skráðu sig í kvenfélag Framsóknar, Freyju, í Kópavogi síðastliðinn fimmtudag. Meirihluti þeirra sem á listanum eru tengjast annað hvort Árna og Páli Magnússonum eða samherjum þeirra flölskylduböndum. Ætlarmót Magnússona og vina á Freyjufundi Fundurinn umdeildi er sem olíuskvetta á bál átaka innan Framsóknarflokksins. Lítið félag kvenna í Kópavoginum varð miðpunktur deilnanna þegar eiginkonur Árna Magnússonar félagsmálaráðherra og Páls Magnússonar, aðstoðarmanns iðnaðarráðherra, mættu óvænt til fundarins með hóp nýrra félaga sem kusu nýja stjórn. Siv Friðleifsdóttir lýstí fundinum með eftirfarandi orðum: „Hann var merkilegur fyrir þær sakir að í upp- hafi fundar var borin fram tillaga um 43 konur til skráningar í félagið sem Aðalheiður Sigursveinsdóttír, kona Páls Magnússonar aðstoðarmanns iðnaðarráðherra, hafði komið með á lista á flokksskrifstofuna um miðjan dag í dag, sama dag og aðalfundur er haldinn.“ Bræður og systur upp á dekk DV komst yfir lístann sem að sögn heimild- armanna hefur gengið milli framsóknar- manna á netinu í nokkra daga. Búið er að merkja inn tengsl nýju félaganna við þá bræður Árna og Pál auk yfirlýstra samherja þeirra. Raunar er það fullyrt í tölvupóstinum að 24 af 43 konum á listan- um séu nátengdar bræðrun- eða nánustu samherjum þeirra. Þannig má sjá nöfn eiginkvenna beggja bræðranna, systur þeirra, dótturÁma, nöfn tveggja mágkvenna Áma líkt og eiginkonu, mágkonu, tveggja systra og móður Sigurjóns Þórssonar, aðstoðarmanns Áma Magnússonar. Ennffemur em á Ustanum þrjár systurdætur Eddu Hákonardóttur, eiginkonu Áma, líkt og nafii systur Eddu. Þrettán af rúmlega fjörutíu á list- anum em þannig annað hvort tengd bræðrunum fjöl- skylduböndum eða að- stoðarmanni Árna, Sig- urjóni Þórssyni. I Kjördæmi I Arna að p færast í * Kópa- vog? Fleiri nöfn vekja athygli á list- anum, og þá ekki síst um Reddaði nokkrum Sigurjón Þórsson, aðstoðarmaður félags- málaráðherra, reddaði fimm kon- um f Freyjufélagið fyrirsinn mann. Reddaði líka Guðjón Úlafur Jónsson, varamaður Árna. Full- yrt er að þrjár kvennannaá listanum tengist honum eða bróður hans Einari Kristjáni. Eiga góða að Fullyrt er að með smölun ætt- mgja, vma og kunningja Istjórn framsóknar- kvennafélagsins Freyju vaki fyrir bræðrunum Arna og Páli Magnússonum að styrkja stöðu slna enn frekarinnan flokksins. tenging þeirra við samherja Árna og Páls. Þannig fer mikið fyrir konum tengdum ffáfarandi formanni ungra framsóknarmanna í Kópavogi og íyrmm einkabflstjóra Finns Ingólfs- sonar, Einars Kristjáns Jónssonar. En nafn móður Einars er þar lflct og sambýliskonu hans og tveggja kvenna sem sagðar em vinkonur hennar. Einar Kristján er ennfremur bróðir Guðjóns Ölafs lónssonar, lögmanns og varaþingmanns Árna Magnússonar félagsmálaráðherra. Einnig em á listanum nöfn Sigur- bjargar Vilmundardóttur, bæjarfull- trúa í Kópavogi, og tveggja kvenna sem fullyrt er að tengist henni fjöl- skylduböndum. Sigurbjörg mun standa nær Páli Magnússyni í meintri sókn hans í sæti oddvita Framsóknar í Kópavogi en Hansínu Ástu Björgvinsdóttur, núverandi bæjarstjóra. Ennfremur vekur athygli að á list- anum em tvær konur sem sagðar eru nátengdar Gesti Kr. Gestssyni, stjórnar- manni í Framsóknar- félaginu í kjördæmi Árna sem og tvær aðrar konur sem sagðar em ná- tengdar Þorláki Björnssyni, for- manni í sama fé- lagi. Gegn Siv Framsóknarmenn sem DV ræddi við töldu einsýnt áð með þessum gjörningi bræðranna væri formlega hafin sókn beggja bræðra til ffekari ffama innan flokksins. Þannig telja margir að Árni sé með áhlaupinu á kvenfélagið að styrkja stöðu sína gagnvart Siv Friðleifsdóttur í von um þingsæti hennar og að Páll sé hægt en ömgglega að plægja jarðveginn fyrir frama innan bæjarstjórnar- flokksins í Kópavogi. Sem dæmi má taka að Guðjón Ólafur Jónsson, sem sagður er ná- tengdur að minnsta kosti tveimur kvennanna á hstanum, hefur verið duglegur við að bakka upp tríó Hall- dórs, eins og Árni, Páll og Bjöm Ingi Hrafnsson hafa verið nefndir, en Guðjón Ólafur vakti óskipta athygli þegar hann lýsti því yflr ári áður en Siv Friðleifs- dóttír vék úr rfk- isstjórn að hún ætti að fara frem- ur en til dæmis Árni. helgi@dv.is Félagsverur á sveimi Það mætti halda að úrvalið af skemmtilegum innihobbíum hér á höfuðborgarsvæðinu væri minna en ekki neitt. Séu einhvers staðar opn- aðar dyr í vetrarhlákunni fyllast salir undir eins af fólki. Þannig er það í Kópavogi. Nú er Svarthöfði sjálfur ekki í neinu sérstöku félagi eftir því sem hann best veit. Margt annað fólk unir sér aftur á móti hvergi betur en í félagi. Að vera í sambandi við ann- að fólk er því lífsnauðsyn, eins og eitt skáldið benti á. Og það er félags- hyggjumaður eins og afi sinn. Málið er nefnilega það að áhugi fyrir félögum virðist ganga í erfðir. Jafiivel í mægðir. Þannig er það alla- vega í Kópavogi. Á meðan Svarthöfði eyðir tíman- um út í bláinn í heimahúsi í Bústaða- hverfinu fara félagsverurnar á kreik hinum megin í Fossvogsdalnum. Þar er aðsókn svo mikil á fundum að skipta þarf liðinu niður í fýlkingar svo húsin springi ekki utan af því. Þar em til dæmis kvenfélög og félög fyrir unga menn á uppleið. Jafnvel félög fyrir framliðið fólk segja sumir. Hvernig hefur þú það? „Ég hefþað bara flnt," segir Hugi Halldórsson umsjónarmaður Jing Jang á Popp- tívi.„Það er nóg að gera við að koma nýjum þætti afstað. Þetta er átta til mið- nættis vinna og ég geri eiginlega ekkert nema þetta. Vinn bara og horfi á sjón- varpið en stelst stundum í bíó með Auðunni Blöndal, félaga mínum til margra ára. Við erum með okkar eigin bíóktúbb og reynum að sjá allt sem kemur. “ Stundum verður aðsóknin svo mikil að færri komast að en vilja. Þá hætta þeir að mæta sem ekki vilja troðast undir. Ekki bregst að þá tek- ur að líða að því að það spyrjist út að það séu laus sæti á félagsfundum í Kópavogi. Þar sem eftirsóttustu fé- lögin em. Skiptir þá miklu að hæfir meðhmir veljist í hvert rúm. Það er ekkert gaman að vera í félagi með fólki sem skilur mann ekki og er bókstaflega úti á þekju. Þannig gerist það að félögin í Kópavogi fyUast smátt og smátt af nýju af fólki sem er sammála og líður vel saman. í faðmi fjölskyldunnar. Svaithöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.