Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 26
Þ að verður enginn ríkur af fim- leikum. Í það minnsta ekki ég,“ segir Csollány og hlær. Við sitjum í þriggja herbergja íbúð á sjöttu hæð á Austurströnd sem hann leigir. Hann bíður eftir fjölskyld- unni sinni, konu og tveimur dætrum, sem kemur til hans í lok mánaðarins. Og hann viðurkennir að lífið geti verið einmanalegt á kvöldin og morganana þegar hann er ekki að þjálfa. Csollány, sem er 41 árs Ungverji, var á sínum tíma einn af bestu fimleikamönnum heims. Ferillinn hófst þegar hann var fimm ára í leikskóla í bænum Sopron og endaði þegar hann varð heimsmeistari í hringjum á heimavelli í Búdapest árið 2002. Í milli- tíðinni hafði hann náð í silfur í hringjum á Ólympíuleikunum í Atlanta árið 1996 og síðan gull á Ólympíuleikunum í Sydney fjórum árum síðar. „Besta tilfinningin var þegar ég kláraði æfinguna í Sydney. Ég vissi að ég hafði gert allt sem ég gat – að æfingarnar gengu nákvæmlega eins og þær áttu að ganga. Næstbesta tilfinningin var að sjá einkunnina en þegar ég stóð á verðlaunapallinum með ólympíugullið um hálsinn og hlustaði á þjóð- sönginn þá hugsaði ég aðallega um að mig langaði til að borða – ég var svangur,“ segir Csollány og brosir. Og menn verða ekki ólympíumeistarar fyrir tilviljun eina saman. Að baki slíkum árangri liggja þrotlausar æfingar frá unga aldri og Csollány er engin undantekning. Hann byrjaði að æfa fimleika fimm ára og hefur helgað þeim líf sitt síðan. „Þetta byrjaði allt þegar ég var fimm ára. Þá kom maður í leikskólann minn og hélt próf til að finna þá bestu. Ég hafði alltaf verið góður í fimleikum og gat gert hluti sem aðrir gátu ekki. Við byrj- uðum sextíu að æfa en eftir tvö ár vorum við orðnir fimmtán. Við æfðum fimm til sex sinnum í viku, þrjá klukkutíma í senn. Og af því að ég var sterkur frá náttúrunnar hendi þurfti ég ekki að hafa jafn mikið fyrir þessu og margir aðrir. Ég lærði hraðar og var búinn að vinna minn fyrsta meistaratitil þegar ég var níu ára. Það var gríðarlega mikil- vægt fyrir mig og gerði það að verkum að ég fór beint aftur í salinn til að æfa meira,“ segir Csollány. Og hann æfði meira. Á næstu árum æfði hann fimmtíu vikur ári; fékk aðeins frí eina viku á sumrin og aðra um jólin. Honum telst til að hann hafi æft þrjátíu tíma á viku nær allan sinn feril og sér ekki eftir einni einustu mínútu af þeim tíma. „Fimleikar voru lífið. Ég ákvað snemma að verða bestur í heimi og vissi að ég þyrfti að fórna ýmsu til þess. Það versta var að fimleikum fylgja mikil ferðalög, á mót og í æfingabúðir, og það bitnar á fjölskyldulífinu. Ég á fimmtán ára dóttur frá fyrra hjónabandi og ég sá hvorki hana né fyrrverandi konu mína mikið. Hún fæddist árið 1996, þegar ég var að nálgast hápunkt ferilsins, og ég var nánast aldrei heima. Það er það neikvæða við fimleikana en ég lifði eftir því að ég þurfti sífellt að sanna hvað ég var góður. Því fylgdu fórnir en sem betur fer uppskar ég árangur erfiðisins,“ segir Csollány. Og nú er hann kominn til Ís- lands; ólympíumeistarinn að kenna íslenskum drengjum galdra fimleikanna. Csollány segir að hann hafi fyrst komið til Íslands í apríl á þessu ári í tengslum við vinnubúðir í nýrri íþrótt, Fit Kid, sem er að ryðja sér til rúms víðs vegar um heim- inn. „Ég kom hérna í gegnum vinkonu mína, Krisztinu, sem kennir Fit Kid. Það eru fyrir þrír ungverskir fimleikaþjálfarar hjá Gróttu og einhvern veginn æxl- aðist það þannig að ég fékk fyrir- spurn um hvort ég hefði áhuga á að þjálfa á Íslandi. Ég hafði líka kynnst Gróttufólkinu í æfinga- búðum í Ungverjalandi. Mér leist ekkert sérstaklega vel á að koma hingað fyrst. Þegar ég var hérna í apríl var ömurlegt veður en svo ákvað ég að slá til. Ég þurfti að keyra langar vegalengdir til að þjálfa í Ungverjalandi og þetta hljómaði mjög spennandi. Og ég sé ekki eftir því,“ segir Csollány. Þótt hann sé sjálfur af- reksmaður og atvinnu- maður í fim- leikum hefur hann áttað sig á því að það er ekki aðalmarkmiðið að vinna ólympíugull. „Mér líkar afskaplega vel hugarfarið í fimleikum á Íslandi. Aðalatriðið er að búa til umhverfi þar sem börnum finnst gaman og þau fá tækifæri til að hreyfa sig. Nú eru fjögur hundruð krakkar að æfa í Gróttu og það er allt gert til að þeim líði sem best. Tækin eru góð og aðstaðan frábær. Þetta er eina leiðin til að gera þetta: byggja upp eins mörg börn og kostur er og síðan er hægt að velja hina framúrskarandi úr – þá sem hafa getu til að ná langt. Mér finnst magnað að það skuli vera níu þúsund iðkendur í fimleikum á Íslandi á sama tíma og þeir eru aðeins um þúsund í Ungverja- landi þar sem eru þó um tíu milljónir íbúa,“ segir Csollány. Hann kennir drengjum á aldrinum 6 til 15 ára og segist elska að kenna. „Fimleikar eru frábær grunníþrótt fyrir allar aðrar íþróttagreinar. Maður fær styrk, liðleika og jafnvægi í fimleikum sem nýtast vel hvort sem maður er að æfa fótbolta eða eitthvað annað. Það er yndislegt að kenna ungum og áhugasömum drengjum íþróttina og ég vonast til að geta gert það í mörg ár í viðbót,“ segir Csollány. Og þjálfun fimleikadrengja er ekki það eina sem hann gerir. Hann kennir og þjálfar áðurnefnt Fit Kid um helgar og í byrjun nóvember mun hann byrja að þjálfa í World Class á Seltjarnarnesi. „Ég talaði við fólkið þar og því leist mjög vel á mínar hugmyndir. Ég verð með tíma sem eru sambland af gólfæfingum og síðan lyftingum með léttum lóðum. Það verður gaman að sjá hvernig fólk tekur því,“ segir Csollány. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Þegar ég stóð á verðlauna- pallinum með ólympíugullið um hálsinn og hlustaði á þjóð- sönginn hugsaði ég aðallega um að mig langaði til að borða – ég var svangur. Ólympíumeistari á Seltjarnarnesi Ungverjinn Szilveszter Csollány þjálfar unga fimleikadrengi hjá Gróttu. Hann varð ólympíumeistari í hringjum á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu árið 2000 og segir Óskari Hrafni Þorvaldssyni frá því hvernig á því stendur að maður með hans bakgrunn er kominn til Íslands í fimleikaþjálfun. Csollány ásamt ungum fimleikadrengjum í Gróttu. Það vakti mikla athygli meðal drengjanna þegar hann mætti með ólympíugullið á æfingu. Ljósmynd/Hari Szilveszter Csollány á hápunkti ferils- ins í hringjunum í Sydney árið 2000 þar sem hann varð ólympíumeistari. Hvað er Fit Kid? Fit Kid er hvorki fimleikar né sérhæfð þjálfunar- tækni eins og þolfimi, heldur skemmtilegt, alhliða heilsu­ námskeið sem brúar bilið milli ofangreindra íþróttagreina, dans og styrktaræfinga. Fit Kid snýst um heilbrigða, eðlilega krakka í góðu formi og hvatningu til heilsusamlegs lífs án öfga. Nokkur félög á höfuð- borgarsvæðinu standa fyrir Fit Kid­námskeiðunum. Þeirra á meðal eru Björk í Hafnarfirði, Stjarnan í Garðabæ, Fylkir í Árbænum og Grótta á Sel- tjarnarnesi. 26 viðtal Helgin 14.­16. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.