Heimilisritið - 01.02.1951, Blaðsíða 12
Lúðvík XV. og
Madame de Pompadour
MADAME DE Pompadour
hefur verið talin, og vafalaust
með réttu, einhver umsvifa-
mesta Vinstrihandardrottning
Frakklands. Ekki nóg með að
þessi opinbera hjákona Lúðvíks
XV., Madame de Pompadour,
stjórnaði raunverulega lista- og
samkvæmislífi Frakklands í 19
ár, heldur hafði hún víðtæk á-
hrif og afskipti af stjórnmálalífi
landsins um svipað árabil.
Madame de Pompadour var
fyrsta millistéttarkonan, sem
hlotnaðist sá vafasami heiður að
verða opinber frilla Frakklands-
konungs. Slíkur heiður hafði
þangað til aðeins fallið í skaut
aðalskvenna. Hún var sæmd
markgreifatitli, eins og Madame
de Maintenon (frilla Lúðvíks
XIV.) á undan henni. En þó að
faðir Madame de Maintenon
hafi verið af lágum ættum, var
hún samt aðalsborin, enda þótt
af lágaðli væri. Skírnarnafn Ma-
dame de Pompadour var Jeanne
Antoinette Poisson. Eiginmaður
móður hennar — það er ekki
öruggt að kalla hann föður
hennar — var, alveg eins og
faðir Madame de Maintenon, í
mjög alvarlegri missætt við lög-
in. í raun og veru hafði Monsieur
Poisson verið dæmdur til dauða
fyrir fjárdrátt. Hann komst þó
undan refsingu með því að flýja
land og var landflótta í 15 ár,
eða þar til að áhrif Madame de
Pompadour gerðu honum kleift
að snúa heim aftur.
Undirbúning allan fyrir það
hlutverk, sem Jeanne Poisson
10
HEIMILISRITIÐ