Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Blaðsíða 24

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Blaðsíða 24
Stöðvarhús Fjarðarselsvirkjunar. Húsið stendur i Fjarðarseishvammi, fallegu dalverpi fyrir neðan árgljúfrið. Þarna er nú vinsælt útivistarsvæði Seyðfirðinga. Rafmagn „Það hefur va er fossinn bjó kað fyrir hún til í forsjóninni þessa á" Rafmagnsveitur ríkisins (RARIK) hafa að undanförnu staðið fyrir umfangsmiklum endurbótum á stöðvarhúsi og umhverfi Fjarðarselsvirkjunar í Seyðisfirði. Haldið var upp á 90 ára afmæli þessarar elstu starfandi virkjunar 18. október sl. Fyrirsögn þessarar greinar er fengin úr Ijóðinu Seyöisfjördur eítir Karl Jónasson, sem hann orti í tilefni Rafljósahátíðar á Seyðisfirði haustið 1913. Þá fögnuðu framsæknir Seyðfirðingar því að Fjarð- arselsvirkjun og rafveitan var fullkláruð og tekin í notkun. Það sem vakti fyrir forsjón- inni með því að búa til foss í Fjarðará var að Seyðfirðingar mættu njóta fossins Ijóss, sem lýsa myndi um leið og næturmyrkrið dytti á, „...lýsa stöðugt, bæði úti og inni / og ýmsum skuggaverkum bægja frá...". Gangsetning virkjunarinnar var merkis- viðburður í sögu Seyðisfjarðar og ekki síð- ur í raforkusögu landsmanna. RARIK, sem keypti virkjunina af Seyðisfjarðarbæ árið 1957 og starfrækir hana enn í dag lítið breytta, hefur haldið veglega upp á 90 ára afmæli virkjunarinnar með endurbótum á virkjuninni og sögusýningu sem opnuð var á afmælisdaginn, 18. október sl.Til gamans má geta þess að frétt um vígslu virkjunarinnar var á forsíðu fyrsta tölu- blaðs Morgunblaðsins, 2. nóvember 1913. Merkileg fyrir margra hluta sakir Ekki aðeins er Fjarðarselsvirkjun elsta starfandi virkjun landsins og óræk sönnun um þá framsýni og forystu sem Seyðis- fjörður hefur löngum státað af, heldur markaði hún afgerandi tímamót í tækni- legu tilliti á sínum tíma. Fjarðarselsvirkjun er fyrsta riðstraums- virkjun á landinu og frá henni var lögð fyrsta háspennulínan. Hún var einnig afl- stöð fyrstu bæjarveitunnar á Islandi. Fyrir var vísir að almenningsveitum í Hafnar- firði, á Eskifirði og Siglufirði en þær veitur höfðu mjög takmarkað afl til ráðstöfunar og dugði það engan veginn þessum bæj- arfélögum. Einnig skiptir máli í þessu sam- bandi að Fjarðarselsvirkjun var riðstraums- virkjun en hinar þrjár voru jafnstraums- virkjanir. Það takmarkaði mjög möguleika veitnanna þriggja og getu þeirra til þess að koma orkunni til notenda því í þá tíð var ekki mögulegt að flytja jafnstraum um langan veg - aðeins riðstraum. Riðstraum- stæknin var í raun forsenda þess að hægt var að rafvæða heiminn. Hún gaf mögu- leika á að hækka og lækka á ódýran hátt spennu á veitum og þar með að flytja raf- orku langar vegalengdir. Uppgangstímar Segja má að bygging virkjunarinnar hafi sprottið af þörf sem skapaðist með hröð- um uppgangi á Seyðisfirði í upphafi síð- ustu aldar. íbúum fjölgaði þá ört og upp- gangur var í atvinnulífinu, meðal annars með umsvifum kaupmanna sem höfðu mikil viðskipti við bændur á Héraði en einnig höfðu norskir síldveiðimenn bæki- stöðvar sínar í bænum. Bæjarfélagið var vel sett fjárhagslega og var í fararbroddi sveitarfélaga í ýmsum framfaramálum. Seyðisfjörður hafði fengið kaupstaðarrétt- indi 1895 og meðal framfaraspora í sögu kaupstaðarins næstu tvo áratugina má nefna byggingu sjúkrahúss, kaup á húsi og bryggju Garðarsfélagsins, lagningu fyrstu 24

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.