Breiðfirðingur - 01.04.1946, Blaðsíða 48
38
BREIÐFIRÐINGUR
ÁTTHAGALJDÐ
£fu, Q„t gjf.
tnniion
Enn þýtur í væng og birkihrísla brumar
og bryddir á laukum, er hörku vetrarins þoldu;
enn kviknar líf, til að lifa eitt fagurt sumar
í Ijósi norrænnar sólar og íslenzkri moldu;
enn heyrast hin vorreifu vötn í þrengslum falla
og velta í hylji ísanna þungu byrði.
Og enn fljúga svanir með söng í átt til fjalla.
Og sjá, þú ert aftur heima í Breiðafirði.
Og sjá, þú ert aftur heima, heimanmaður,
í héraði þínu, og Ijós um dali og strendur.
Og hvar, sem þú gengur, er gamall óskastaður,
og gömul æskukynni á báðar hendur.
Og handan um árin leita þín liðnir dagar,
er lékstu i tiini sæll að gullum þínum.
Og samir og áður bíða jnn heimahagar
og heilsa þér aftur og vefja þig örmum sínum.
Og aftur heilsarðu fólkinu í firðinum þínum
og finnur ást þess og tryggð þess, hamingjuglaður.
Og þó er ef til vill einhver horfinn sýnum,
sem eitt sinn var þér góður samferðamaður,
því mennirnir liita einatt daganna dómi
og daganna lög skipa nýrri kynslóð í sæti.
Og enn vex úr grasi breiðfirzkur æskublómi
á björtum dögum í gróandans eftirlæti.