Vísir - 01.08.1915, Blaðsíða 1
Utgefaadi:
hlutafelag.
"'tstj. jakob möller
SÍMI 400.
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel Island.
SIMI 400.
GAMLABIO
1
Ofriðarmyndír.
—o—
Indíánamyndir.
—o—
2 gamanmyndir
mjög hlægilegar.
Frá alþingi.
Neðrí deild í gœr.
1 . m á 1: Br. á 1. um bæjarstj.
á ísaf. — sþ. og afgr. tii e. d.
2 . m á I: Ógilding viðsk.bréfa,
sömul. sþ. og afgr. sem lög frá al-
þingi, og eru það fyrstu lögin í ár.
3 . m á I: Frv. um póstsparisjóði,
1. umr. — G. H. ætlaði að mæla
nieð málinu í öllu »skikkelsi« til 2,
umr., en þá reis upp hver af öðr-
um og varð einn hinn leiðasti elg-
ur um formlega meðferð málsins.
— Það gekk þó til 2. umr.
4. m á 1: Frv. um stofnun
brunab.fél. íslands, 1. umr. —Flm.,
M. Kr., talaði um, að tilraunin frá
1907 hefði strandað á því, að útl.
félögin hefðu haft tögl og hagldir
vegna endurtryggingarinnar. Benti
á, hve margt hefði breytst til batn-
®ðar síðan. — Nefnd: S. Egg., M.
^r., E. P., Pór. B. og Sv. B.
5. mál: Heimild'til sölu á
Skarfsstöðum í Dalas. — B. J. kvað
ábúanda tvisvar hafa verið ranglega
synjað kaups á jörðinni. — Málinu
vísað til búnaðarn.
6 . m á 1: Þ.ál.tili. um takmörk-
un á eignar- og afnotarétti útlend-
inga yfir fasteignum á ísl., ein umr.
Till. var samþ. og afgr. til ráðh.
Hún er frá landbúnaðarn. og hljóð-
ar svo:
Neðri deild alþingis ályktar að
skora á stjórnina að leggja fyrir
næsfa alþing frv. uni takmörkun á
eignar- og afnotarétt’ útlendinga
yfir jörðum, jarðarítökum og veiði-
ám á íslandi.
Efrí deild í gœr.
1 . m á 1: Br. á 1. um stýrim.-
sk., 3. umr. — Sþ. og sent n. d.
2 . m á I: Viðaukar og br. á
aðfl.bannsl. — Flm., B. Þorl., kvað
lögin aldrei hafa verið í því horfi,
sem þau ættu ?ð vera, en nú þyrfti
að koma þeim það. — M. P. kvaðst
ekki ljá frv. atkv. sitt til 2. umr.
vegna þess, að hann væri því samþ.,
lieldur ælluði hann að koma sjálfur
með breytingar. — Þá reis upp Sig.
Stef. og kvaðst ætla að nota tækif.
til að leysa ofan af skjóðunni um
bannmálið í heild. Rakti síðan sögu
málsins, þá hina fögru hugsjón, sem
til grundvallar hefði legið og and-
róðurinn. Kvaðst hafa greitt atkv.
sitt með banninu til þess að iáta
reynsluna skera úr, eins og komið
var. En nú hat'i sú ólýgna reynsla
gefiö öllum hrakspám bannfénda
byr undir báða vængi. — Till. hafi
komið fram í sínu kjörd. um að
skerpa refsingar við banniagabrot-
um, en verið feld, og því sé hann
samþykkur. Að vísu sé reynslan
ekki orðin löng, og því vilji hann
enn ekki ganga milli bols og höf- >
uðs á lögunum, en sorgleg sé þó ■
uppskeran, eða dirfist nokkur að |
mótmæla því, að þeir, sem uppvíst ]
!
hefir orðið um, séu að eins örlítið ,
brot af öllum grúanum, sem brot
hafa framið ? Og auk þess hafi
lögin skapað glæpi og byrlun á
verra áfengiseitri, en hér hafi þekst
áður. Það eina, seni nú sé nokk-
ur vegur að gera, sé að bíða og
vita, hvort ekki rofi til. Vitiausast
af öllu sé að vera nú enn að grauta
í málinu. Eða halda menn virki-
lega, að Stóri dómur hafi bætt sið-
ferði hér á Jandi ? — Stgr. J. kvaðst
hafa búist við, að bannmenn vildu
reyna að lappa upp á lögin, heist
á þann hátt, að reyna að gera stjórn
og lögr.valdi á einhvern hátt mögu-
legt að framkvæma þau að einhverju
leyti og sníða ómannúðlegustu agnú-
ana af lögunum. En ekkert slíkt
sé reynt hér. Þvert á móti eigi nú
aö ganga enn nær persónufrelsi
manna en áður. Kvað frv. þó geta
lagast í nefnd.
í nefnd voru kosnir: B. Þ., Jósef,
G. B., K, E. og M. P.
3 . m á I: Bann gegn tilb. á-
fengra drykkja. B. Þ. mælti með
þvi, og var því svo vísað til sömu
nefndar.
4. ,nál: Verðlagsn., 1. umr.
Gekk til 2. umr.
5 . m á I: Br. á landhelgissj.l.,
1. umr. — Nefnd: K. F., Kr. D.
og Sig. St.
6 . m á I: Gullforði ísl.b. o. fl.,
1. umr. — Nefnd : Kr. D., K. F.
og E. Br.
Ókeypls nafna-
skrá.
Lykill að verslunar=
samböndum
Bretlands og Norðurlanda.
(Key to Scándiavian &. British trade).
Bók með þessu nafni er gert
ráð fyrir að komi út með haust-
inu og hefir inni að halda nöfn
og heimili hinna stærri verslun-
arhúsa í ofangreindum löttdum,
og þar á meðal ÍSLANDI,
Bókaverslun W. M. S m i t h
London, gefur bókina út og hef-
ir Matthías Þórðarson, erindreki
Fiskifélagsins heitið aðstoð sinni
við röðun og niðurskipun á ís-
lenskum framleiðendum og versl-
unarhúsum, er kunna að óska
upptöku í bók þessa.
Félög, verslunarhús, eða ein-
stakir íslenskir menn, er óska að
fá nafn sitt og atvinnurekstur
prentað í bókinni greiði kr. 1,50
ef prentað er með smáletri, en
1 kr. að auki, ef stærra letur er
umbeðið.
Bók þessi inniheldur, auk þess
sem að ofan er talið, stutt yfir-
lit yfir hið helsta er snertir versl-
un hvers lands fyrir sig. — Bókin
er send ókeypis til allra er hafa
skráð nafn sitt i hana.
Gert er ráð fyrir að útgáfan
verði 50—75000 Ex. og verður
send til allra þeirra landa er að
ofan greinir og einnig til Ameríku.
Auglýsingar verða líka tekn-
ar í bóklna.
Sendið hið fyrsta nafn ykkar,
heimili og atvinnu til
Stefáns Stefánssonar,
Hverfisgötu 32 B, Reykjavík,
er einnig veitir allar frekari
upplýsingar.
Gassuðuvélar
fást hjá
Jónasi Guðmundssyni,
Laugaveg 33. Sími 342.
232. tbl.
NYJA BSO
Ástar-kenjar.
Sögulegur sjónleikur í 3
þáttum, 60 atriðum.
Gerist i Frakklandi nú á dögum.
Aðalhlutv. leikur hin franska
leikkona Suzanne Grandais,
sem annáluð er um allan heim
fyrir leiklist sína
Húsabyggingar.
Hús eru ótrúlega mörg í smíðum
hér í bænum í suniar..
f vetur og vor var hljóðið mjög
dauft í húsagerðarmönnum, þeir
bjuggust ekki við mikilli atvinnu
þetta árið. »Nú er stríð og nú er
dýrt að lifa — því nær ógerning-
ur að kaupa byggingarefni«, sögðu
menn. Þegar brann þá vænkaðist
ráðið, þá varð belra útlit um vit’.nu
því öll þarf að byggja upp aftur
húsin sem brunnu, hvað sem það
kostar, eða svo er mælt, að bruna-
bótafélögin heimti.
Nú virðist hafa rætst all-vel úr
fyrir iðnaðarm. því svo er Iíka að
sjá sem ali-margir hafi kjark til að
ráðast í húsabyggingar hér í bæ í
ár. Þótt ekki sé farið að reisa brendu
húsin úr rústunum — að undan-
skyldu einu — húsi Gunnars kaup-
manns Gunnarssonar sem byrjað er
á og fyrir utan viðgerðina á Ing-
ólfshvoli, sem nú er langt komin
að utan, sjást þó allmörg hús rísa
upp nú þegar. Hingað hafa kornið
í sumar nokkur skip með ceinent,
og af því að seglskip hafa verið
notuð til að flytja byggingarefnið,
verður það líklega ekki eins dýrt og
af var látið í fyrstu.
Ttl þess að nefna mönnum dæmi
um nýju húsin má minnast á hús
Jóns Þorlákssonar á horninu fræga
— þríiyft með stóru risi, H. Haf-
stein byggir á horninu á Grundar-
stíg og Skálholtsgötu, hálf tvílyft.
Forberg símastjóri er byrjaður að
byggja á horninu við Laufásveg og
Fríkirkjustíg; við Skólastræti er ver-
ið að byggja tvö hús, á H. Peter-
sen annað. Pétur Ólafsson byggir
suður á melum fyrir innan virkið
milda; Guðm. Sveinbjörnsson er
að fara af stað með eitt hús við
Túngötu o. fl. Alt þetta eru steypt
hús og munu fleiri slík á eftir fara,
því að líkiega rísa ekki timburhjallar
upp úr rústunum í miðbænum þeg-
ar hafist verður handa þar.