1. maí blaðið - 01.05.1950, Blaðsíða 1
1. MAI-BLAÐIÐ
Hafnarfirði 1. vuií 1950.
Avarp 1. maí-nefndar launþeganna
í Hafnarfirði
1. maí er alþjóðlegur baráttu- og hátíðisdagur verkalýðsins um allan heim, sem milljónir
verkamanna og verkakvenna sameinast um til baráttu fyrir friði og framtíðaröryggi.
íslenzk verkalýðshreyfing treystir samtök sín á þessum degi í öruggri vissu þess og vitund
að grundvöllur allra kjarabóta, allrar sóknar samtakanna byggist á því, að samtökin séu
heilsteypt og sterk. Aldrei fremur en nú hefur verkalýðnum verið þörf sterkra og einhuga
samtaka til varnar gegn sívaxandi árásum auðvaldsins og ríkisstjórnar þess, og þörfin er því
brýnni, sem valdhafnarnir leiða land og þjóð lengra út í ófæru kreppu, með gengislækkun og
stóraukin dýrtíð, sem er afleiðing hennar og óhjákvæmilega hlýtur að koma þyngst niður
á herðar hins vinnandi manns.
Því heitum við á Hafnfirzka launþega að búa sig undir að beita mætti samtakanna
gegn ágengni auðstéttarinnar og miða undirbúning sinn við það, að sú barátta verði sam-
ræmd um land allt, svo að unnt sé að ná sem skjótustum árangri í því að hrinda sókn vald-
hafanna á alþýðuheimilin. Á þessum baráttudegi verkalýðsins mótmælir alþýðan einum
rómi hinum skefjalausu árásum gengislækkunarlaganna á lífskjör hennar, athafnafrelsi sam-
takanna og á atvinnulíf þjóðarinnar.
Hún mótmælir hinni þjóðhættulegu gengislækkunarstefnu, sem hlýtur að leiða kreppu
og hrun yfir atvinnuvegina en hörmungar atvinnuleysis og fátæktar yfir launþegana.
Hún mótmælir hinum gegndarlausu skatta- og tollaálögum, óstjórn í verzlunarmálum,
svarta markaðnum og öngþveiti í skömmtunarmálunum.
Hún mótmælir hinni vaxandi tilhneigingu ríkisvaldsins til að beita verkalýðssamtökin
þvingunarráðstöfunum.
í dag, 1. maí, gerir alþýðan þá skýlausu kröfu, að breytt verði um stefnu í málefnum ís-
lenzku þjóðarinnar.
Fyrst og fremst krefst alþýðan þess, að nú þegar verði gerðar undanbragaðalausar til-
raunir til öflunar nýrra og öruggra markaða fyrir framleiðsluvörur íslendinga, til trygg-
ingar atvinnu og afkomu almennings. Hún krefst þess, að fjölbreytni framleiðslunnar verði
aukin og vöruvöndun bætt. Framleiðslukostnaður lækkaður með lækkun vaxta, aukinni tækni
og bættum vinnuaðferðum. Hinn mikli gróði innflutningsverzlunarinnar verði afnuminn og
skriffinsku og nefndafargan ríkisins skorið niður. Innflutningur á byggingarefni verði aukinn
og hagkvæm lán veitt til verkamannabústaða og samvinnubygginga.
Alþýðan krefst þess, að enginn vinnufær maður þurfi að ganga atvinnulaus. Alþýðan mót-
mælir harðlga innflutningi erlends vinnuafls og krefst þess að erlent verkafólk á Keflavíkur-
flugvelli verði tafarlaust látið víkja úr landi og íslendingar látnir taka við störfum þess.
Alþýðan krefst þess að Flugvallarsamningnum við Bandaríkin verði sagt upp, þegar upp-
sagnarákvæði leyfa og ísland taki við rekstri flugvallarins að fullu og öllu.
Hafnfiizk alþýða!
I dag fylkir þú liði á götum bæjarins, sýnir mátt þinn og vilja undir merkjum samtaka
þinna.
Lifi eining íslenzkrar alþýðu í baráttunni fyrir vinnu, brauði og frelsi, gegn kreppu og
kaupráni, gengislækkun, atvinnuleysi og skerðingu lýðréttinda.
Lifi eining íslenzkrar alþýðu í baráttunni fyrir sjálfstæði ættjarðarinnar
Borgþór Sigfússon,
Kristján Eyfjörð,
Sigurður Einarsson,
Magnús Guðjónsson,
SigríSur Erlendsdóttir.
Guðrún Jónsdóttir,
Kristinn Guðmundsson,
Aðalsteinn Sigurðsson,
Hermann Guðmundsson,
Guðjón Gunnarsson,
Pálmi Jónsson,
Þóroddur. Gissurarson,
Sigurrós, Sveinsdóttir,
Helgi J. Jónsson,
Kristján Benediktsson.
Guðrún Nikulásdóttir
LANDSBÓKASAFN
M 181037
iSLA.MJS