1. maí - Akureyri - 01.05.1929, Blaðsíða 1
+ • •#■+ • •
• •■•■••-•■•-
Akureyri. Miðvikudaglnn 1. Maí 1929.
• ♦ « •
•-•-• ••••
• • ♦•• •• • •-••-•• •••••••••••• • ♦-•-
/. Maí-
1. Maí.
Verklýðsfélögin á Akureyri efna til samkomu í
kvöld, í stóra sal Samkomuhússins.
FER ÞAR FRAM:
Ræðuhöld, Söngur, Upplestur.
Allir þeir, sem verklýðsmálum unna, eru velkomnir
á samkomuna. Sérstaklega er skorað á meðlimi
verklýðsfélaganna að mæta. Aðgangur er ókeypis,
en rauðu merkin fást við innganginn eins og
vant er. — Samkoman byrjar kl. S1^ e. h.
stundvíslega. — Minnumst öll hátíðisdags verka-
lýðsins um gervallan heim. — Mætum öll!
Forstöðunefndin.
I.
1 dag er hátíðisdagur verkalýðs-
ins um allan heim.
f dag ganga herskarar öreig-
anna fylktu liði gegnum stórborg-
irnar, til að bera fram kröfur sín-
ar um aukin réttindi, bætt lífs-
kjör — jafnrétti við önnur jarð-
arinnar börn.
í dag réttir verkalýðurinn úr
sér að fullu. — Einn einasta dag
á árinu, og gefur til kynna á sýni-
legan hátt, að hann viti að hann
sé fæddur til sömu réttinda og
aðrar stéttir þjóðfélagsins, og að
hann ætli sér að taka þann rétt,
sem frá honum hefir verið rænt.
í dag flytja jafnaðarmannafor-
ingjarnir eldiþrungnar ræður til
verkalýðsins. Ræður sem kynda
bál í augum æskulýðsins og fæða
af sér stór heit í sálum þúsund-
anna. Og frá munnum þúsund-
anna stígur alheimsfriðarsöngur
jafnaðarmanna — Internationale
— brimómur samstiltra sálna
þess lýðs, sem finnur og veit að
framtíðin er hans.
í dag fara kvalakippir um
sjúkan líkama yfirstéttanna. Þær
finna að jörðin kvikar undir fót-
um þeirra. Hallirnar háreistu,
sem bygðar eru á bognum bökum
öreiganna, skjálfa frá grunni. Og
hugur þeirra hvarflar til fall-
byssukjaftanna, til eiturgassins,
til herskaranna með byssusting-
ina á lofti — þessara einu tækja,
sem hugvit síðustu »menningai'«-
tíma hefir gefið þeim í hönd, til
að viðhalda óréttlæti, kúgim og
kvöl í heiminum.
Sumstaðar fær verkalýðurinn
að vera í friði með hátíðahald
dagsins. Yfirstéttirnar halda sig
fjærri, annaðhvort af kænsku eða
hræðslu. Annarstaðar er lögregl-
an eða herinn látinn skjóta á
múginn, foringjarnir handsamað-
ir og hneptir í fangelsi. Á nokkr-
um stöðum er verkalýðnum bann-
að að sýna sig úti þenna dag.