Vasabókin - 01.11.1936, Blaðsíða 1
Vasabókin
Síðustu upplýs-
ingar í málinu?
Vasabókin fanst á Skothúsveginum i gœr-
kvöldi kl. rúmlega 7
Hvort hér er um vasabók Eysteins að ræða, skal enn
þá ósagt og skiptir ekki miklu máli, að þessu sinni, enda
komum við líka að því seinna.
»Eigirðu góðan hlut þá týndu honum ekki* og »kaupirðu göðan
hlut þá mnndu hvar ])ú fékst hann»
Þessi tvö spakmæli heimspekingsins á Álafossi höfum við
kunnað frá því við vorum börn og flest okkar hafa reynt að
færa sér spakmælin í nyt á praktiskan hátt i lífinu. T. d.
höfum við karlmennirnir tölur í buxunum til að týna þeim
ekki. Mannlegt hugvit virðist aldrei láta staðar numið með að
reyna að fyrirbyggja týnslu á verðmætum og einnig er alstað.
ar í heiminum lagt mikið kapp á það, að finna þau verðmæti
^era, þrátt fvrir alt; týnast. Hér í okkar fámenna pg fátæka
þjóðfélagi, hefur nú sjaldan mikið týnst sem máli Bkiftir, það
væru þá helst þessi seðlabúnt} sem töpuðust úr útbúi Lands-
bankans fyrir nokkrum árum, — seðlarnir þeir, voru ákveðið
verðmæti, svo og svo margar krónur, — skaðanum var hægt
að gern sér ákveðna grein fyrir.
Það er öðru málí að gegna um vasabók ráðherrans. Þar er
skaðinn svo óákveðinn frá fjárhagslegu sjónarmiði séð,—bók-
in sjálf lítilsvirði, en það sem í hana hefur verið skrifað, ef
tn yiil óútreiknanlegt verðmæti frá kapítalistisku sjónarmiði
séð. Og einmitt af því á það að vera metnaðarmál hvers ein-
asta íslendings, að reyna að finna bókina og koma henni til
skila ef hún finst.
Flestir af þeim er þessar línur lesa, hafa einhverntíma á
æfinni átt vasabók, og hverjum ykkar fyrir sig hefur fundist
mikið til um vasabókina sína, fæstir ykkar hafa þó verið ráð-
herrar þó þið hafið séð ráðherra. Hugsið þið ykkur þann
mikla mun, sem muni vera. á ráðherra-vasabók og ykkar eigin
vasabók, sem ykkur finst þó mikið um og hefur margt að
geyma merkilegt, sem ekki er ætlað annara augum. Þetta er
kanske ekki nógu skýrt framsett til þes‘s að þið gerið ykkur
ljósan þann geisilega mun á Eysteins vasabók og ykkar vasa-
bók, og þið verðið að skilja skelfinguna sem i raun og veru
hefði átt að grípa alla þjóðina, þegar vasabókin er alt í einu
horfin af náttborðinu, úr vestisvasanum, af skrifborðinu, eða
hvaðan sem hún nú hvarf. Og nú er komið að aðabtriðinu:
Tilgangur þessa blaðs er uú fyrst og fremst sá að með því
að birta nokkrar auglýsingar um fundnar vasabækur og sýnis-
horn úr þeim, mætti ef til vill auðnast að finna hina dýrmætu
Eysteins-bók. Þykir oss allar líkur benda til, að ein þeirra
Bem vér höfum undir höndum muni vera sú rétta. Geta þá
hlutaðeigendur vitjað hennar til blaðsins, og verður hún þá
afhent tafarlaust, svo framarlega að hún verði ekki týnd aftur
:n’ á þvi berum vér e ga áby ’'" •
* t
Efni blaðsins:
Vasabðkin tnndin.
Fyriri Gfsia Bjarnasonar.
Vasabækor merkra manna.
Vasaþjúfar
(kvæði oftir þjóðskáld)
Fnndnar vasabækur.
0 tl o fl
Leirhuiib 'I
úr nýrri og ennþá ótýndri vasabók.
Nú höldum við aillr að Eyststeins-bok
sé að eilífu hortin sjónum,
þetta andríka kvcr sem einhver tók
af ótrómum bæjarins dónum.
Og ég sagði það, Eysteinn, og segi þao enn,
og sver það við konuna mína;
að oftast nær græða á því aðrir menn,
sem aumingja klaufarnir týna.
Þá höfum vér einnig ætlað oss að sýna almenningi hvert
er innihald vasabóka svona yfirleitt og birtum því nokkur
sýnishorn.
Og svo síðast en ekki síst, ætlum vér að reyna að sporna
við því, að annar eins hörmungar atburður og þetta vasabók-
arhvarf komi aftur fyrir í þessu þjóðfélagi. Og einnig ef svo
ólíklega skyldi til takast að aftur hyrfi vasabók, þá vill
blaðið, á allan löglegan hátt, aðstoða þá sem það mál hefðu
til meðferðar, en hinsvegar vonast útg. til að blaðið verði
fljótlega með áhrifum sínum, búið að siðfága svo alla þegna
þjóðfélagsins, að allir vasabókarþjófnaðir heyri fortíðinni til.
Þetta er mikið og fagurt hlutverk og heitum vér á alla
vasabókaeigendur að styrkja oss í hinni góðu baráttu.
Skal svo þetta ekki fjölyit frekar.