Úlfur - 06.02.1906, Blaðsíða 1
MÁLGAGN
sannleiksásíar og
hreinskiini.
ÚLFUR
Ábyrgðar og útsölumaður Eggert Einarsson..
Kemur út þegar
nauðsyn krefur.
Kosíar 10 aura
númerið.
Nr. 1.
Akureyri, 6. febrúar.
1906.
Um bæjarmál.
Inngangsorð nokkur
þykir hlýða að láta »Ulf« flytja lesendum
sínum, um leið og hann byrjar göngu sína
hér í veröldinni. Er það sérstaklega til að
skýra stefnu hans og ætlunarverk.
Engum sem þekkir verulega til bæjar-
lífsins hér í bænum, mun dyljast, að sjaldan
hafi verið meiri þörf á verulega góðu, ein-
örðu og sjálfstæðu blaði en einmitt nú.
»Síefnir« og »Gjallarhorn« eru nærri komin
undir pottinn eins og Sigurðar segir. »Norð-
urland« er undir læknahöndum, eins og
allir vita, og »Norðri« er hvítvoð-
ungur enn. Blað fyrir bæinn er því bráð-
nauðsynlegt, og vill Ulfur bæta úr þeirri
þörf. Mun hann verða alleinarður hver
sem í hlut á, en ekki ljúga lýtum og skömm-
um upp á saklausa menn. Vonast hann
því eftir vinfengi allra viturra manna og
réttsýnna, en mun varast allan kunnleik við
þorskhöfuð og þöngulhausa.
*
* #
Nokkrir kunningjar ritstjórans hafa hreyft
því við hann, að starf hans yrði örðugt,
þar sem hann hefir lítt við ritstörf fengist
til þessa. Er því og sízt að neita, að al-
úð mikla þarf til að stjórna svo vel sé slíku
blaði, sem Úlfur á að verða. En »fáir eru
smiðir í fyrsta sinn«, og vonar ritstjórinn
að menn hafi það í huga þegar þeir dæma
það starf hans.
Útgefendurnir.
Fyrir því að látið er drýgindalega _ yfir
því í innganginum hér að framan, að Úlfur
ætli sér að verða bæjarblað, mun eigi úr
vegi að hann þegar í fyrsía blaði sínu hefji
umræður um einhver bæjarmál, og hefir því
ritstj. í samráði við einn eða tvo óheimska
bæjarbúa hugsað sér að byrja umræðurnar
á því að fara nokkrum orðum um lóðasölu
bæjarstjórnar fyr og síðar, og um húsaút-
mælingar byggingarnefndar, og hve lítið virð-
ist greitt fyrir því frá bæjarfélagsins hlið að
fátækir fjöískyldumenn komi upp húskofa yfir
höfið á sér.
Wí verður eigi neitað, að þaö eitt með
öðru stuðlar til þess að bær þessi siækki,
að íbúar hans eða þeir sem "hingao vilja
flytja geti bygt sér hús oían yfir höfuðið
sem fyrirhafnarminst. Og væri stjórn ein-
hvers bæjar t. d. Akureyrar nokkuð um það
hugarað fólkinu fjölgaði f bænum,sem gæti
eignast heimili, sem það yndi við og þætti
vænt um, ætti hún að hlynna að því að
menn gætu stofnsett slíkt heimili á lóö kaup-
staðarins og leggja sem minstar tálmanir á
menn í því efni.
Bæjarstjórnin á Akureyri hefir stundum
verið mjög liðug í því að láta menn fá
byggingarlóðir með góðum kjörum, en stund-
um aftur styrð og treg í þessum efnum og
um mörg ár algjörlega vanmáttug í þeim
efnum.
Pegar bæjarstjórnin hefir sýntsig hjálp-
sama og liðuga, hefir ætið verið meira bygt
á bæjarlandinu, heldur en þegar hún hefir
verið dýr og stirð.
Upphaflega gaf konungur, sem kunnugt
er, Iandsspildu nokkra úr Naustalandi til
kaupstaðar, þessari spildu skiptu svo ráð-
andi menn í bænum fljótlega niður í bygg-
ingarlóðir, og afhentu þær til byggingar og
ræktunar fyrir ekki neitt. Petta voru stór