Kosningablað borgaralistans - 17.01.1942, Síða 1

Kosningablað borgaralistans - 17.01.1942, Síða 1
KOSNING ABLAÐ m Avarp. Akureyringar! Bæj arst j órnarkosningar f ar a fram 25. þ .m. Listar með nöfnum bæj arf ulltrúaef na voru fengnir kjöistjórn í hendur þremur vikum fyrir kjördag, eins og lög standa til. Að þessu sinni eru 5 listar í boði hjer í bæ. Dagur var fyrsta blaðið, sem kom út hjer, eftir það að listarnir voru lagðir fram. Efst- ur á lista þeim, er Dagur mælir með, er forstjóri Kaupfjelags Ey- firðinga, annar aðalgjaldkeri sama fjelags, og þriðji skólastjóri Gagn- fræðaskólans, en hann er ekki starísmaður Kaupfjelagsins. Næsta blaðið, sem kom út, var íslendingur. Efstur á þeim lista, sem það blað mælir með, er banka- stjóri Útibús Landsbankans, tveir næstu kaupmenn hjer í bænum, annar hefir raftækjaverzlun og hinn verzlar með kol, er forstjóri hlutafjelags, sem ber hans eigið nafn, er umboðsmaður ýmissa fje- laga, er í rafmagnsnefnd og leigir Rafveitunni húsnæði fyrir skrif- stofur. Síðastliðinn þriðjudag komu svo út hálfbræðurnir: Verkamað- urinn og Alþýðumaðurinn. Verka- maðurinn mælir með lista, sem rit- stjórar blaðsins eru á, annax í fyrsta og hinn í þriðja sæti. Á milli þeirra á listanum er Tryggvi Helgason. Fyrsti maður listans hefir dvalið nokkurt skeið í Rúss- Randi, enda verður blaði þessu tíðrætt um Rússa, bæði fyrr og síðar, og bendir á, að þeir sjeu nú á vesturleið, og sje mönnum því. bezt að hafa sig hæga. Alþýðumað- urinn mælir með lista, sem ábyrgð- armaður blaðsins er efsti maður á, en annar er endurskoðandi bæjar- reikninga, kosinn til þess starfa af ritstjóra Alþm. og Kommúnistum í bæjarstjórn. Þá eru taldir 4 listar, og stendur sitt blaðið og flokkurinn að hverj- um þeirra. Fimmti listinn, E-LISTINN, á ekkert blað og styðzt ekki við neinn sjerstakan stjórnmálaflokk. Enginn ritstjóri er á listanum, eng- inn hlutafjelaga-forstjóri, enginn kaupfjelagsstjóri, enginn piltur, sem hefir verið á námsskeiði í Rússlandi. „íslendingur“ kallar listann „einkafyrirtæki". Það er eins og blaðinu finnist það eitt- hvað fyrirlitlegt, að borgarar í bænum stofni til samtaka um lista til bæjarstjórnarkosninga, án af- skipta og forræðis landsmálaflokk- anna. Þeir, sem standa að Borg- aralistanum (E-listanum), voru svo djarfir að bjóða hann fram, án þess að leita til þess leyfis Axels, Sveins framf.fulltrúa, Indriða, Tómaar Björnssonar etc. En þessir menn geta sjálfum sjer um kennt, að listi þessi er fram kominn, því að fulltrúaráð Sjálfstæðisfjelag- anna áttu kost á samvinnu við þá menn, er stóðu fyrir því, að Borg- aralistinn var boðinn fram, en hafnaSi henni. Veturinn 1938 var hjer í bæ listi í boði við bæjar- stjórnarkosningar, sem nefndist Listi Sjálfstæðisflokksins og óháðra borgara, og kom hann fjór- um að. Að vísu voru vinnubrögð í kosningaundirbúningi af hendi sumra þeirra manna, er stóðu að þeim lista, með endemum, eíns og sýndi sig á kjördegi, en þrátt fyrir það var stofnað til kosningasam- bands milli þeirra 4 fulltrúa, er listinn kom að, og hefir það hald- ist allt kjörtímabilið. Þegar nú dró til kosninga af nýju, var að vísu engin hrifning fyrir hendi í sambandi við þessa samvinnu, en samt sem áður er málefna-ágrein- ingur svo lítill, að rjett þótti að bjóða Sjálfstæðisflokknum, þ. e. fulltrúaráði fjelaga hans hjer í bæ, samvinnu nú, en henni var vísað á bug, þó að alkunnugt sje, að þeir menn, er að því tilboði stóðu og nú standa að Borgaralist- anum, sjeu sumir fjelagsbundnir Sjálfstæðismenn og alls yfir sam- mála um meginatriðin á stefnu- skrá flokksins. Það sætir því undr- um, að svona samvinnutilboði skuli vera neitað af fulltrúaráðinu, og ber sú afstaða ekki vott um mikinn áhuga á eflingu kjörfylgis, undir merkjum flokksins. Það er eins og manni detti í hug, að vissir menn í flokknum hjer í bæ vilji gera Sj álfstæðisflokkinn að sínu eigin einkafyrirtæki, og er hjer með að fullu svarað dylgjum „ís- lendings“ um það, að „Borgaralist- inn“' sje einkáfyrirtæki. Þeir fáu menn í Sjálfstæðisflokknum, sem rjeðu C-listanum og vildu ekki samvinnu við okkur, hafa líklega haldið, í einfeldni sinni, að þeir gæti knúið okkur til þess að ganga til fylgis við lista þeirra, með því að hafna samvinnu á frjálsum grundvelli við okkur. En þar brást þeim bogalistin. Það mun sýna sig á kjördegi, á hvorum listanna verður meiri einkafyrirtækisbrag- ur! Það eru því ekki stuðnings- menn E-listans, sem standa nú að klofningi þess liðs, er saman stóð 1938, heldur stuðningsmenn C- listans, sem neitað hafa samvinnu- tilboði voru. • Kjósendur bæjarins segja til um það, hvort þeir treysta betur efstu mönnum E-listans eða C-listans, til þess að vinna að hagsmunum bæjarfjelagsins í heild sinni, óháð- ir einkahagsmunum sínum, og hvorum þeirra þeir trúa til meiri einbeittni, skörungsskapar og þekkingar í viðskiptunum við þau öfl, sem alltaf eru á verði um sjer- hagsmuni fjelaga, flokka og ein- staklinga, án tillits til hagsmuna heildarinnar í bænum. Hvort er -betur trúandi fyrir því að varðveita hagsmuni bæjarfje- lagsins í heild sinni þeim mönnum, sem engra sjei’hagsmuna hafa að gæta íyrir sig eða hagsmunafjelög, eða hinna, sem sí og æ vegna einkahagsmuna og gróðafjelaga reikna út, hvort þetta eða hitt, sem bæjarstjórn á að greiða at- kvæði um,- geti nú ekki skert hag sinn á einhvern hátt? Það þarf framúrskarandi samvizkusama og vandaða menn til þess að falla ekki í freistni, vegna eigin hags, þegar svo stendtir á, að árekstur verður milli hagsmuna bæjarfje- lagsins og þeirra sjálfra eða fjelaga þeirra, sem þeir bera fyrir brjósti. Hver einasti kjósandi, sem leggur þetta mál niður fyrir sjer í alvöru og með einlægni, skilur vandann, sem.slíkir menn lenda í, og lang- hezta ráðið til þéss að firra þá vandanum og bœjarfjelagið hœtt- HverYerður efsti maður C-listans? Blaðið íslendingur 9. þ. m. ræðir um, hvernig fara muni um kosn- ingu herra Sveins Tómassonar, sem er frambjóðandi á tveim list- um, B og C. Ber blaðið hrm. Pétur Magnússon fyrir því, að eigi sé heimilt að færa saman atkvæði,.er sami maður hlýtur á tveimur eða fleiri listum. Hinsvegar s§gir blað- (Framhald á 4. síðu). unni af því, að þeir láti öðru hvoru freistast til að meta meir sjálfa sig og hag sinn en bæjarfjelagsins, er að kjósendur leysi þá undan vandanum og bœjarfjelagið frá hœttunni, sem af þeim stafar, rrteð því að láta þá sitja kyrra í skrif- stofum sínum og þjóna þar „firm- um“ sínum og sjerhagsmunum. Þar kunna þeir líka bezt við sig. E-LISTINN er skipaður mönnum, sem eru utan við sjerhagsmuna- fjelög ,og sjálfir reka þeir enga þá atvinnu, sem freistar þeirra til að loka augunum fyrir hag bæjar- fjelagsins. Þeir standa heldur ekki að stjettafjelagabarningi. Þeir eru skjáldborg um hagsmuni bœjar- fjelagsins. Hver einasti kjósandi, er líta vill skynsamlega og óhlut- drægt á þetta mál, hlýtur að kom- ast að þeirri niðurstöðu, að fulRrú- ar E-listans hafa, aðstöðu sinnar vegna í bæjarfjelaginu, betri skil- yrði en íulltrúar allra hinna list- anna til þess að líta á hag heildar- innar í bænum, og eru þannig bet- ur fallnir til en hinir að gæta hags- muna hennar. Akureyringar! Veitið kjörfylgi þeim lista, sem einn allra er óháð- ur sérhagsmunum flokka, félaga og einstaklinga! Veitið brautar- gengi lista bœjarfjelagsins! Kjósið E-listann! B. T.

x

Kosningablað borgaralistans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kosningablað borgaralistans
https://timarit.is/publication/1901

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.