Kosningablað borgaralistans - 17.01.1942, Blaðsíða 3
KOSNINGABLAÐ BORGABALISTANS
3
E-1 i s t i n n
boðar til almenns fundar í Samkomuhúsi bæjarins (stóra salnum)
fimmtud. 22.jan., kl. 8,22e.h.
Húsið opnað kl. 8. — Allir stuðningsmenn E-listans og aðrir
borgarar velkomnir á fundinn, meðan húsrúm leyfir.
Þremur efsfu möqnum C-lisfans
sjersfaklega boðið á fundinn.
Rætt verður um bæjarmál í sambandi við
bæjarstjórnarkosningarnar.
E-l i s t i n n.
prýði og sóma, líkt og Austurvöll-
ur í Reykjavík, að sölustöð fyrir
benzín qg olíur, eða geymslustað
fyrir nokkra bílskrjóða. Við vilj-
um stuðla að því, að Ráðhústorgið
verði fegrað og prýtt og gert að
griðarstað bæjarbúa, en þeim at-
vinnurekstri, sem þar er nú, fengið
annað hentugt svæði til afnota.
Skal hér látið staðar numið að
sinni, en síðar mun vikið frekar að
áhugamálum Borgaralistans, er
tími vinnst til.
Við, sem að lista þessum stönd-
um, treystum því, að bæjarbúar
sjái í gegnum kolaryk það, sem nú
forpestar andrúmsloft bæjarins og
minnist þess, að kjósa á fulltrúa til
að standa fast á hag bæjarfélagsins
í heild, en ekki til að reka einkaer-
indi sín eða annarra á kostnað
heildarinnar.
Sv. G.
Hvað veldur?
„íslendingur“, sem kom út í
gær, helgar fjelaginu ,Skjaldborg‘
og E-listanum rúma 7 dálka í
blaðinu. Framsóknarlistanum Vz
dálk og kommúnistum V\ úr
dálki.
Segir þó í blaðinu, að lífið í
„Skjaldborg" hafi farið dvínandi
undanfarið, og svo bætir blaðið
við: „Og nú í vetur gekk hópur
Sjálfstæðismanna úr fjelaginu.“
En þrátt fyrir það, að þessi hópur
sagði sig úr fjelaginu, þykir blað-
inu svo mikils við þurfa, að eyða
meira en helmingi af rúmi sínu
til þess að reyna að hnekkja
trausti fjelagsins og E-listans.
Nú er svo komið iyrir aum-
ingja „íslendingi", að hann ræðst
mest á Sjálístæðismenn og banda-
menn þeirra, en að E-listanum
standa einmitt slíkir menn. —
Hvaðan kennir þef þennan? Frá
þeirri fámennu klíku, sem bjó til
C-listann og er fýld yfir því, að
margir Sjálfstæðismenn í bænum
og bandamenn þeirra trúa öðrum
betur til að fara með umboð sitt
í bæjarstjóm en mági forstjóra
K. E. A. og Indriða, hvað þá
Axel.
Einræði og lýðræði.
Varaðu þig á peninga- og sjer-
hagsmuna-einræðinu, sem varpar
yfir sig skikkju lýðræðisins!
Skrifstofa E-listans
er á Hótel Akureyri, herbergi
nr. 2, sími 71, opin alla daga 2
—6 og 8V2—11 síðd.
Stuðningsmenn listans eru
hvattir til að hafa sem bezt sam-
band við skrifstofuna.
Kjósið E-listann!
Lög félagsins JSkjaldborg
era birt í „ísl.“ í gær. Jeg er
þakklátur fyrir birtinguna. Til
þess að lesendur þessa blaðs sjái,
hver er tilgangur fjelagsins, skal
hjer tekin upp úr lögunum sú
grein, er fjallar um hann (2. gr.):
„Fjelagið starfar að vakningu
þjóðarinnar á þjóðlegum og
kristilegum grandvelli, til sam-
stilltra átaka um andlega og fjár-
hagslega viðreisn einstaklinga,
sveita- og bæjafjelaga og ríkis.
Fjelagið leitast við að glæða á-
byrgðartilfinnungu fjelagsmanna
og brýna fyrir þeim skyldur
þeirra sem þjóðrækinna borgara.
Fjelagið berst gegn Marxisma,
gegn sjerrjettindum einstaklinga,
stofnana, fjelaga og flokka í þjóð-
fjelaginu og annarri spillingu,
sem þróast í skjóli þingræðis og
flokkræðis.
Fjelagið heimtar jafnan rjett
og jafnar skyldur til handa öllum
borgurum þjóðfjelagsins, jafn-
rjetti milli stjetta og fulla virð-
ingu fyrir hverju nauðsynlegu
starfi, sem leyst er af hendi í
þjóðfjelaginu, andlegu og líkam-
legu, og telur fjelagið það æðstu
skyldu hvers borgara að vinna
líkamlega og andlega að heill
þ j óðarheildarinnar.“
Er „fsl.“ andvígur þjóðlegri og
kristilegri vakningu meðal þjóð-
arinnar? Er „ísl.“ á móti því að
glæða ábyrgðartilfinningu íslend-
inga? Er „fsl.“ hneykslaður á
andstöðu fjel. við Marxismann
(kommúnismann)? Kýs „ísl.“
heldur sjerrjettindi einstaklinga,
stofnana, fjelaga og flokka og
aðra spillingu í þjóðfjel., heldur
en jafnrjetti borgaranna og milli
stjetta? Ef ekki, — hvað er þá
orðið úr vígorðinu „Stjett með
stjett“? Telur hann ekki misrjett-
ið í þjóðfjelaginu að lögum vaxið
upp í skjóli þingræðis og flokks-
ræðis? Hefir ekki þetta blað ver-
ið öðru hvora að klifa á þessu
misrjetti? En nú? Er allt orðið
í stakasta lagi allt í einu? Undir
þessa grein í lögum „Skjaldborg-
ar“ getur tekið hver einastí sann-
ur Sjálfstæðismaður á íslandi. Ef
hann gerir það ekki, siglir hann
undir fölsku flaggi.
Ólund og vandræðafálm „ísl.“
útaf meginkjarnanum í lögum og
stefnu „Skjaldborgar“, er felst i
umræddri 2. gr., bendir á vonda
samvizku. Hver góður íslending-
ur, frjáls og fullvita, hlýtur að
fagna slíkri stefnuskrá sem þess-
ari. — Jakob Pjetursson er of
góður drengur til þess að láta
hafa sig til að ráðast á slíka
stefnuskrá, enda sýnir grein hans,
að honum hefir ekki verið það
ljúft B, T-
Atvinnu-kúgunin.
Sú svívirðing viðgengst, að
sumir atvinnurekendur krefjast
þess af verkamönnum sínum, að
þeir afhendi sjer sannfæringu
sína um leið og þeir ganga í þjón-
ustu þeirra. Annars mega þeir
eiga von á því, að afkoma þeirra
sje í veði. Þessir menn meðhöndla
starfsfólk sitt eins og skepnur.
Þegar kemur til kosninga, kasta
þeir tölu á það og reikna sjer
jafnmörg atkvæði og starfsmenn-
irnir eru (eins og þeir væri kýr
eða sauðir). Þessa skoðana- og
atvinnukúgun þarf að kveða
niður. Þetta skapar þýlyndi og ó-
hreinskilni. En svona brögðum
beita aðeins smámenni, sem hafa
yfir peningum og atvinnu að
ráða, en skortir andans afl og gáf-
ur. Beitum andans bjarta brandi,
en ekki svívirðilegum maura-
mætti við samlanda vora, þá sem
bera uppi framleiðsluna, og með
mætti sinna handa skapa þjóðar-
auð og einstaklinga.
Svei atvinnukúgurunum!
Hver eru áhugamálin?
„ísl.“ í gær ræðir um bæjar-
stjórnarkosningar, en minnist ekki
á eitt einasta mál, sem þeir fje-
lagar á C-listanum ætli að beit-
ast fyrir í bæjarstjórn. Hvílík
eymd og volæði!
Hvernig stendur á því, að Axel
segir ekki frá því áhugamáli sínu,
að fá að stofna bíó í bænum.
Hann hefir sótt um leyfi til þess
til bæjarstjórnar, og það verður
væntanlega veitt honum á þriðju-
daginn kemur. Er ekki nýtt bíó
í bænum einmitt það, sem mest
reið á núna fyrir æskulýðinn í
bænum? Aldrei fór það svo, að
Axel ætti ekki áhugamál!
IfitiælislasiiÉr
Knattspynuíélags
Akureyrar
verður haldinn í Gildaskála K
E. A. laugardaginn 17. þ. m.,
og hefst með sameiginlegri
kaffidrykkju kl. 9 síðd. stund-
víslega. Aðgöngumiðar seldir í
Skóverzlun M. H. Lyngdal &
Co. eftir kl. 2 í dag.
Sljórnin.
„Saa faar du ingen
grautur.“
Erlingur er búinn að vera í bæj-
arstjórninni um 20 ár; hann hefði
því mátt vita hvað bænum er fyrir
beztu. Eigi að síður virðist hann
ekki hafa skilið, að hressingarskáli
og nýtt gistihús er einmitt það, sem
bærinn þarf öðru fremur.
Þó bætir hann gráu ofan á svart,
að láta þessa skoðun sína í Ijósi rétt
fyrir bæj arstj órnarkosningarnar.
Hér er of langt gengið, og þó að í
K. E. A. séu tómir skapstillingar-
menn, eins og vera ber í samvinnu-
fyrirtæki, þá geta þeir ekki þolað
þessa móðgun og skilningsleysi á
menningarstarfsemi félagsins.
Það er því margra skoðun, að
K.E.A. hafi einmitt hitt naglann á
höfuðið, er þeir byrjuðu kosninga-
baráttuna með því að gefa út auka-
blað af Degi, sem eingöngu er
helgað Erlingi og hans skaðlegu
hugmyndum um gistihús og
greiðasölu.
Erlingur! Ef þú ert með svona
kenjar, „saa for du ingen graut-
ur“, en verður kastað beint úr
bæjarstjórninni.
Kjósið E-listann!
Prentverk Odds Björnssonar.