Tíminn - 04.12.1941, Page 1

Tíminn - 04.12.1941, Page 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON ÚTGEFANDI: PRAMSÓKNARFLOKKURINN. RITSTJÓRN ARSKRIFSTOFUR : EDDUHtJSI, Lindargötu 9 A. Símar 2353 og 4373. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÍJSI, Lindargötu 9 A. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA hj. Símar 3948 og 3720. 25. ár. Rcykjavík, fimmtudagiim 4. des. 1941 125. blað .Frjálsa leiðin* knýr fram hækkun á útsöluverði miólkurinnar Mjólkursamsalan heiir orðið að hækka kaup ílestra starfsmanna sinna Tarnar§tríð Finna Frásögn Ryti forseta um {sambúð Rússa og Finna eitir iriðarsamningana í marz 1940. Attatíu ára afmæli Hannesar Hafsteín Ef íslenzkum stjórnmála- mönnum entist æska og heilsa jafn vel og stéttarbræðrum þeirra í Englandi, mundi Hann- es Hafstein ennþá vera á landi þelrra, sem lifa og taka þátt í afmælisfagnaði sínum í dag. Saga hans er með allt öðrum hætti. Þar er sagt frá dáðrik- ari æsku, stuttu en glæsilegu starfstímabili, og ótímabærum dauða. Hannes Hafstein virtist fædd- ur undir hamingjustjörnu. Pað- ir hans var amtmaður fyrir norðan. Móðir hans var systir Tryggva Gunnarssonar og gædd mörgum þeim eiginleikum, sem fremst mega prýða konu. Sveinninn þótti þegar á barns- aldri bera af sínum jafnöldrum um góðar gáfur, fríðleika, hreysti og dirfsku í mannraun- um. Hann var ungur settur til náms og hafði snemma lokið embættisprófi í lögum við há- skólann í Kaupmannahöfn. Magnús Stephensen landshöfð- íngi gerði Hannes að trúnaðar- manni sínum við landshöfð- ingjadæmið og síðan að sýslu- manni í ísafjarðarsýslu. Laust eftir aldamótin fluttist stjórn íslenzkra mála frá Kaup- mannahöfn til Reykjavíkur. Hannes Hafstein varð fyrsti ráðherrann og stjórnaði málum þjóðar sinnar með mikilli rausn og skörungsskap frá 1904—1908. Þá 'beið hann mikinn kosn- ingaósigur, þann mesta, sem hermt er frá í íslenzkum ann- álum. Gæfusól Hannesar seig þá í ægi. Hann bar aldrei sitt bar eftir þennan atburð. Að vísu tók hann um nokkur ár allmikinn þátt í stjórnmálum, en hann naut sín ekki sem fyr. Síðasta ár æfinnar átti hann við að búa þrálátt heilsuleysi. Hann var raunverulega dáinn allmörgum árum fyrir andlát sitt. Hannes Hafstein var gæddur óvenjulega mörgum hæfileikum til að vera foringi í lýðræðis- landi. Hann var mikill vexti, í einu fríður og karlmannlegur. Hann var gott skáld, snjall ræðumaður og fyrirmannlegur en þó ljúfur í framkomu. Hann kunni manna bezt að taka á móti gestum á virðulegan en þó ánægjulegan hátt. Hann var skapmaður en þó stilltur vel, hugsjónamaður en þó varfær- inn í aðferðum. Fáir menn í litlu landi þiggja svo marg- þættar vöggugjafir. Hin varanlega frægð Hann- esar Hafstein hvílír á ljóðum hans og hinum skammvinna valdatíma. Hann byrjaði að (Framh. á 4. síðu) „Frjálsa leiðin“ hefir þeg- ar haft þær afleiðingar, að ekki virðist hjá því komizt að hækka útsöluverð mjólk- ur hér í bænum allverulega frá því, sem nú er. Síðan ljóst varð, að lögfest- ingaleiðin yrði ekki farin að þessu sinni, hafa borizt kaup- kröfur úr ýmsum áttum, og eiga atvinnurekndur erfitt að standa gegn þeim, sökum Breta- vinnunnar. En það var eitt grundvallaratriði lögfestingar- leiðarinnar, að samið yrði við Breta um að þeir takmörkuðu eftirspurn sína eftir ísl. vinnu- afli. Tók viðskiptamálaráðherra þetta skýrt fram, þegar hann fylgdi dýrtíðarfrv. úr hlaði, og einnig flutti Framsóknarflokk- urinn þingsályktunartillögu um þetta efni. Flokkurinn hefir reynt að hraða þessu máli í rík- isstjórninni, en mætt þar hálf- velgju hinna flokkanna. Afleiðingarnar af þessu hvort tveggja hafa orðið þær, að verulegar hækkanir hafa átt sér stað. Bílstjórar hafa fengið verulega hækkun og ýmsir iðn- rekendur hafa hækkað kaup hjá starfsfólki sínu. Mjólkur- samsalan gat því ekki komizt hjá því að hækka kaup hlið- stæðra starfsmanna sinna, bíl- stjóra og mjólkursölustúlkna. Hefir þetta starfsfólk því ný- lega fengið talsverða kaupupp- bót. Sömuleiðis hefir líka hækk- að kaup bílstjóranna, sem ann- ast mjólkurflutningana til bæj- arins. Þetta hefir eðlilega þær af- leiðingar, að kostnaðurinn við mjólkursöluna eykst verulega. Að Laugarvatni var að venju efnt til samkomu að kvöldi hins 1. desem- ber. Var hún ákaflega fjölsótt. Komu þangað til dæmis um 90 bifreiðar þetta kvöld, margar þeirra stórar. Alls er tal- ið,að 900—1000 manns hafi verið á sam- komunni og hefir sjaldan eða aldrei slíkur mannfjöldi verið þar saman- kominn. Var þar því þröng mikil, þótt húsakynni séu stór og rúmgóð að Laugarvatni. Veður var gott um kvöld- ið og nóttina, og gat því fólkið einnig verið úti við að vild. Bjarni Bjarna- son skólastjóri setti samkomuna með stuttri ræðu, en síðan héldu tveir nemendur úr skólanum ræður. Skóla- kór, við stjórn söngkennarans, Þórðar Ki'istleifssonar, söng nokkur lög við ágætan orðstír, og piltar og stúlkur sýndu leikfimi við stjórn Björns Jak- obssonar íþróttakennara. Hefir söng- kennsla ávallt verið með ágætum áð Laugarvatni, og kom árangur þess í ljós þetta kvöld sem jafnan á hátíðum og útvarpskvöldum skólans. Það vakti athygli þeirra, er vissu, að meðal stúlknanna, sem sýndu leikfimi, voru mjög margar úr yngri deild skólans. Var imdravert hversu mikla leikni og samstillingu þær höfðu öðlazt, svo skamman tíma, sem þær hafa haft til þjálfunar. Að fimleikasýningunni lok- inni hófst dans í salarkynnum skól- ans, og var þar dansað til morguns, þótt ærið væri þröngt á þingi. Veit- ingar voru í matsal skólans. Samkom- an fór að öllu leyti vel fram og Vísitalan hefir einnig hækk- að síðan mjólkurverðið var seinast ákveðið. Hækkar það dýrtíðaruppbæturnar, sem mjólkursamsalan þarf að greiða. Ekkert réttlæti mælir með því að láta þennan aukna kostnað við mj ólkursöluna bitna á bændum með því að lækka verðið, sem þeir fá fyrir mjólk- ina. Eiga þeir nógu örðugt með að halda starfsfólk, þótt þetta verð sé ekki lækkað. Hjá því verður því ekki komizt, að hækka söluverð mjólkurinnar. Ef tafarlaust hefði verið fall- izt á tillögur Framsóknarflokks- ins um lögfestingu og samn- inga við Breta, myndi ekki hafa komið til þessara hækkana, hvorki á kaupi eða afurðaverði. En þetta eru ekki síðustu hækk- anirnar, sem verða afleiðing „frjálsu leiðarinnar." Danir ó'tast aukna íhlutun Þjóðverja Danmörk hefir gerzt aðili að andkommúnistiska sáttmálan- um. Fór Scavenius utanríkis- málaráðherra til Berlínar til að undirrita yfirlýsingu þessa efnis. í tilefni af þessu kom til magnaðra óeirða í Kaupmanna- höfn síðastl. þriðjudag og tals- vert- hefir borið á óeirðum síð- an. Margt manna hefir verið handtekið. Virðast Danir ótt- ast að Þjóðverjar ætli að fara að þröngva þeim meira en hing- að til og sé undirritun sáttmál- ans eitt merki þess. Talið er að danska stjórnin hafi fallizt undirritunina vegna mjög á- kveðinna hótana Þjóðverja. (Framh. á 4. síðu) ánægjulega, og vln mun vart nokkur maður hafa haft um hönd, þrátt fyrir allt fjölmennið, er svo víða var að komið. t t t Svohljóðandi skeyti barst í gær frá fréttaritara blaðsins á Patreksfirði: Þeir alvarlegu atburðir gerðust hér í nótt á fjölsóttri skemmtun í sam- komuhúsinu, að til óeirða kom á milli íslendinga og erlendra manna, sem eru á flutningaskipi, sem liggur á höfninni. Útlendingarnir óðu uppi með illindum óg beittu hnifum í bar- daganum. í þessari viðureign særðust tveir íslendingar, annar mjög hættu- lega. t t t Fréttaritari blaðsins á Akranesi skrifar: Eins og áður var getið um i Tímanum er verið að gera vatnsveitu hér um þessar mundir. Lokið er við að steypa aðalvatnsgeyminn, sem stendur uppi undir Akrafjalli um 5 km. frá kaupstaðnum. Fyrirhugað er að leiða vatnið úr þessum geymi í trépipum niður aö Akranesi og er búið að grafa skurðinn, og meiriiilutinn af pípunum kominn til Akraness. Pípurnar eru smíðaðar í Reykjavík. Innanbæjar verður vatnið leitt í asbest-sements- pípum. Þessar pípur eru Englandi. Er nokkur hluti þeirra kominn, en þó vantar hnérör og millistykki og stöðv- ast vinna við vatnsveituna um ófyi-ir- sjáanlegan tíma af þeim orsökum. Þá er jafnframt í ráði að leggja skólp- Rússar hafa farið þess á leit við Breta, að þeir segðu Finn- um stríð á hendur. Enn hafa Bretar ekki orðið við þessum til- mælum, enda væri það ekki í samræmi við fyrri afstöðu þeirra til málefna Finna og Rússa. Finnska stjórnin hefir líka lýst yfir því, að hún æski góðrar samvinnu við Breta og treysti þeim til að skilja af- stöðu smáþjóðar, sem stuðlar að því að hnekkja ógnarvaldi, er hefir beitt hana kúgun og grimmd öldum saman. Til frekari skilningsauka á afstöðu Finna þykir rétt að geta hér nokkurra merkilegra heimilda um sambúð Finna og Rússa frá því fyrri styrjöldinni lauk og seinni styrjöldin hófst. Fyrst verða rakin aðalatriðin í ræðu Ryti forseta, er hann tilkynnti, að styrjöldin milli Rússa og Finna væri hafin: — Eftir að hafa notið friðar í rúma 19 mánuði hefir land vort á ný orðið fyrir árásum rússnesks flughers og landhers. Vér höfðum ætlað okkur að vera hlutlausir, en þessar árás- ir neyða okkur til að grípa til vopnanna á ný. Friðarsamningurinn 13. marz 1940 sýndi oss glögglega fyrir- ætlan Rússa. Landamærin voru sett þannig, að Vér vorum svipt- ir náttúrlegum varnarskilyrð- um. Með samningunum tryggðu Rússar sér hina ákjósanlegustu aðstöðu til nýrrar árásar. Við- búnaður þeirra á Hangöskag- anum sýndi líka, að þeir voru ekki fyrst og fremst að búast þar um til að verja Leningrad gegn flotaárás, en í þeim til- gangi þóttust þeir þurfa Hangö- skagann, — heldur voru þeir að undirbúa sókn á landi. Krafa þeirra um járnbraut yfir Mið- Finnland til Svíþjóðar hafði eingöngu hernaðarlegan til- gang. Með því að ráða yfir henni gátu þeir tvískipt Finn- landi og nálgast Svíþjóð á stutt- um tíma. Rússar sögðu, að með friðar- samningunum væri öllum ósk- rennur í sömu skurði og vatnsleiðslu- pípurnar liggja í innanbæjar. Tölu- vert hefir verið unnið að gatnagerð undanfarið, og byggingu íþróttahússins er að verða lokið. Er talið líklegt, að það taki til starfa um- árainót, t t t Fréttaritari Tímans í Vestmanna- eyjum hefir skýrt blaðinu frá því, að Þorvaldur Guðjónsson skipstjóri, þekktur aflamaöur í Vestm.eyjum og kunnur maður úr Grænlandsför Gottu, hafi fest kaup á línuveiðaskipinu „Málmey". Átti það áður Óskar Hall- dórsson. „Málmey“ er 74 smálestir að stærð. Bætist þar álitlegt skip við skipastól Vestmannaeyinga. Er mikill hugur í Eyjamönnum, að verja fé því, er þeim berst nú í hendur, umfram það er gerist í venjulegu árferði, til þess að auka og efla atvinnurekstur í bæ sínum, fjölga atvinnutækjunum og, bæta þau og búa í haginn fyrir fram- tíðina. t t t Fréttaritari biaðsins í Kópaskeri skýrði blaðinu svo frá 1 símtali í gær: í morgun fór bifreið héðan vest- ur yfir Reykjaheiði og önnur kom að vestan hingað i sýsluna um sama leyti. Mun það vera einsdæmi, að heiðin sé fær bifreiðum á þessum tíma ársins. Sauðfé gengur sjálfala að mestu leyti. Á einstaka heimilum er farið að taka lömb í hús. í morgun gránaði í fjöll, en nú er aftur komið þurrviðri. (Framh. á 4. síðu) um þeirra fullnægt. En skömmu síðar fóru þeir að skipta sér af utanríkismálum Finnlands og hótuðu öllu illu, ef Finnland og Sviþjóð gengu í hernaðarbanda- lag. Finnar féllu því frá þeirri hugmynd. í fyrrahaust heimt- uðu þeir afvopnun Álandseyja, enda þótt hún væri heimil samkv. friðarsamningunum. Finnar urðu einnig við þessari ósk. Jafnframt gerðu þeir stöð- ugt nýjar og nýjar kröfur í fjár- hagslegum efnum. Þeir heimt- uðu, að við endurgreiddum bú- pening, húsmuni og vélar, sem íbúar hinna hernumdu héraða fluttu brott með sér. Meira að segja, heimtuðu þeir vélar end- urgreiddar, sem höfðu verið fluttar af þessum slóðum mörg- um árum áður en styrjöldin hófst. Við reyndum eftir megni að fullnægja þessum kröfum Rússa, þótt fjárhagur okkar þyldi illa auknar byrðar. Fyrirætlanir Rússa komu og berlega í ljós, þegar Molotoff krafðist þess í Berlínarför sinni í nóvember í fyrra, að Þjóð- verjar létu Rússa fá frjálsar hendur í Finnlandi. Rússar stórjuku undirróður sinn í Finnlandi eftir friðar- samningana. Njósnir þeirra voru víðtækar og starfsmenn rússneska utanríkismálaráðu- neytisins í Finnlandi voru ó- spart notaðir í þeim efnum. Þessir starfsmenn voru líka talsvert á þriðja hundrað, er styrjöldin hófst og var stöðugt verið að fjölga þeim. „Finnsk- rússneska félagið“ var stöðugt eflt til meiri áhrifa, en neitað var samvinnu við finnska menntamálaráðuneytið um finnsk-rússnesk menningarmál. Leynistarfsemi finnskra kom- múnista var studd á allan mögulegan hátt. Vér Fipnar höfum í einu og öllu haldið friðarsamningana og raunar gengið miklu lengra til samkomulags. En þegar reynslan sýnir okkur, að Rúss- ar stefna að því í hvívetna, að undiroka finnsku þjóðina í stað þess að halda samningana og byrja á ný styrjöld gegn henni á landi og úr lofti, þá getum vér ekki lengur setið hjá, heldur verðum að snúast (Framh. á 4. síðu) Erlendar fréttir Þýzki herinn í Libyu hefir aftur náð Sidi Rezegh á vald sitt og rofið þannig sambandið, sem aðalher Breta hafði náð við setuliðið í Tobruk. Þýzk-ítalski herinn hefir landamærabæina Sollum og Sidi Omar enn á valdi sínu og einnig Bardia. Hlé virð- ist nú á orustum. Bretar telja sér sigur vísan á þessum slóðum og segja, að missi Sidi Rezegh muni aðeins tefja fyrir sigri þeirra í nokkra daga. — Þjóð- verjar segjast vera búnir að eyðileggja 800 skriðdreka fyrir Bretum í Libyu síðan sókn þeirra hófst. Flótti Þjóðverja frá Rostov heldur áfram og hefir undan- farið verið barizt í Taganrog, 65 km. frá Rostov, en talið er víst, að Þjóðverjar verði að hörfa til Mariupol. Þjóðverjar hafa misst mikið af hergögnum á undanhaldinu. Á Moskvavíg- stöðvunum heldur sókn Þjóð- verja enn áfram, en gengur mjög hægt. — Rússar skýra frá miklu hergagnatjóni Þjóðverja þar. — Rússar hafa yfirgefið Hangöskagann á Finnlandi. Roosevelt hefir fyrirskipað, að Tyrkir skuli fá hjálp samkv. láns- og leigulögunum, því að varnir þeirra séu mikilsverðar fyrir Bandamenn. A víðavangi ÚTÚRSNÚNINGUR MBL. Mbl. getur nú ekki varið flokk sinn í dýrtíðarmálinu öðru vísi en með útúrsnúning- um. — Blaðið segir t. d., að við- skiptamálaráðherra hafi sagt í grein sinni í Tímanum í fyrra- dag, að ekki væri hægt að halda dýrtíðinni niðri með lögfestingu kaupgjaldsins eins.og séu þessi ummæli ráðherans sönnun þess, að ekki hefði verið hægt að halda dýrtíðinni niðri með dýr- tíðarfrv. Þessi útúrsnúningur Mbl. byggist á því, að það slepp- ir öðru aðalatriði frv., verðlags- festingunni. — Mbl. segir, að Framsóknarflokkurinn hafi sannað, að fleiri leiðir væru til en lögfestingarleiðin, með því að setja það skilyrði, að heim- ildir dýrtíðarlaganna yrðu not- aðar til að halda dýrtíðinni í skefjum til næsta þings. Þessi útúrsnúningur byggist á því, að það er sitthvað, að halda dýr- tíðinni þannig niðri í 2—3 mánuði eða til langframa og eftir að kaupgjaldið hefir hækk- að. — Mbl. segir, að Ólafur Thors hafi ekki horfið frá fyrri stefnu sinni vegna tilmæla vissra stétta, heldur hafi hann aðeins leitað álits þessara stétta. í þingræðu, eftir Ólaf, sem Mbl. hefir birt, er skýrt tekið fram, að hann hafi horfið frá lögfestingarleiðinni, sem hann var fylgjandi, vegna til- mæla frá verkalýðsfélögum Sj álfstæðisf lokksins. BLAÐIÐ „SEM FÆSTIR HLUT- IR ERU HÖFÐINGLEGA GEFNIR.“ Mbl. segir um Hannes Haf- stein í stórri fyrirsögn í morg- un: Foringinn, sem flestir hlutir voru höfðinglega gefnir. Það mun óefað hægt að segja um blaðið, sem býr til slíka fyrir- sögn, að því séu fæstir hlutir höfðinglega gefnir. Seinustu ,,þjódheíjornar“ í dag birtir Mbl. mynd af Hannesi Hafstein á aðalsíðu blaðsins. í gær birti það á sömu síðu á talsvert meira áberandi stað myndir af þremur lög- regluþjónum. Virðist blaðið þannig álykta, að þeir séu engu minni þjóðhetjur en Hafstein. Hvað er það, sem hefir gert þessa lögregluþj óna að eins- konar þjóðhetjum í augum Mbl. og annara Reykjavíkurblaða, sem birt hafa myndir þeirra? Ástæðan er sú, að lögreglu- stjóri hefir vikið þessum mönn- um frá störfum, einum fyrir- varalaust, en tveimur með sex mánaða fyrirvara, en annar þeirra hefir aðeins verið til reynslu. — Lögregluþjónarnir tveir, sem höfðu veitingu fyrir störfum sínum, hafa ákveðið að höfða mál og fæst þá úr því skorið, hverjar eru uppsagnar- ástæður lögreglustjóra. En Mbl„ Visir og Alþýðubl. eru ekki að biða eftir því, að þetta mál verði þannig upplýst, þau dæma fyrirfram að brott- vikning lögregluþjónanna hafi verið óréttmæt og áfellast lög- reglustjóra. Lögregluþjónarnir eru sýknir, lögreglustjórinn sekur. Þessi blöð hafa áður áfellzt lögregluna fyrir óreglu og aga- leysi. Meginþorri lögreglunnar hefir að vísu verið saklaus í þessum efnum, en til hafa verið slæmar undantekningar þar eins og annars staðar. Núverandi lögreglustjóri hefir gert sitt til að reyna að bæta úr þessum á- göllum. Það hefir líka aldrei verið meiri þörf en nú fyrir góða lögreglu og góðan aga í lögreglunni. Óhætt mun líka að segja, að lögreglan hafi yfirleitt (Framh. á 4. siðu) A KROSSGÖTTJM Fjölsótt hátíð á Laugarvatni — Óeirðir á Patreksfirði. — Vatnsveitan á Akranesi, — Skipastóll Vestmannaeyinga eykst. — Reykjaheiði bílfær. — Frá ísafirði.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.