Tíminn - 21.03.1942, Blaðsíða 4
80
21. Mað
TÍMIM, lawgardaglim 21. marz 1942
ÚB BÆNUM
TÍMINN kemur ekki út á
sunnudaginn, af sérstökum j
ástæðum.
Skotiff á tvo íslendinga
á Skerjafirði.
Setuliðsmenn, sem hafa herstöðvar í
grennd við Skerjafjörð, skutu á tvo
smábáta, sem voru á firðinum, síðast-
liðinn miðvikudag og fimmtudag.
Annar þessara manna var Sigurður
Jónsson útvegsbóndi í Görðum. Var
hann að leggja hrognkellsnet á firð-
inum. Vissi hann eigi fyrri en skot-
hrið dundi allt í kringum bátinn.
Hraðaði Sigurður sér til lands. Er að
landi kom, hitti Sigurður fyrir þrjá
ameríska hermenn og tjáðu þeir hon-
um að óheimilt væri að vera á ferli
á firðinum, nema með sérstöku leyfi.
Sigurður innti hermennina eftir hverj-
ir gæfu slíkt leyfi, en þeir voru ó-
fróðir um þá hluti og skildi Sigurður
við þá að svo búnu máli. Sigurður
mun hafa snúið sér til íslenzku yfir-
valdanna og beðið þau að ganga í
þetta mál. Ennfremur var maður að
nafni Jón Eyjólfsson að fara frá
Shellstöðinni að Grímstaðaholti á mið-
vikudagskvöldið. Er hann var kominn
kippkorn frá landi, riðu skotin yfir
og allt í kring um bátinn. Sneri Jón
hið bráðasta til lands. Voru þar fyrir
hermenn, sem Jón mun hafa átt ein-
hver orðaskipti við.
Háskólafyrirlestrar.
Síðasti fyrirlestur dr. Einars Ól.
Sveinssonar, um Njálu, verður á morg-
im í I. kennslustofu háskólans kl. 5,15
e. h. Öllum er heimill aðgangur.
Frá Búnaðarpíngi
Tillaga varðandi
sauðijársjúkdóm-
ana o. il.
Á fundi búnaSarþings á
fimmtudaginn voru afgreidd
þessi mál m. a.:
Tillaga til þingsályktunar frá
sauðf jársjúkdómanefnd, varð-
andi sauðfjársjúkdómana.
Búnaðarþing skorar á sauð-
fjársjúkdómanefnd að legga á-
herzlu á eftirgreind atriði og
væntir þess, að Alþingi og rík-
isstjórn heimili aukafjárveit-
ingu til tilraunanna, ef þörf
krefur.
1. Að fram fari ítarleg rann-
sókn á útbreiðslu þingeysku
mæðiveikinnar utan Þingeyj -
arsýslu og tilraunir til lækn-
inga á henni.
2. Að hraðað verði svo sem
föng eru á nauðsynlegum til-
raunum til að framleiða efni
til rannsókna, er skeri úr um
hvort kindur séu sýktar af
garnaveiki, og að rannsóknar-
stofunni verði jafnframt tryggð
sú aðstaða, að slíkar rannsóknir
geti orðið ábyggilegar.
3. Að haldið verði áfram
rannsóknum á viðnámsþrótti
fjárstofna gegn mæðiveikinni
og skýrslur birtar jafnóðum um
árangurinn.
4. Að hindra alla fjárflutn-
inga til lífs yfir þær varðlínur
er lögin ákveða og hafa þegar
verið settar.
5. Að vinna að því að komið
verði upp nýjum sláturstöðvum,
þar sem nú hagar svo til, að
ekki verður hjá þvi komizt að
flytja eða reka sýkt eða grunað
fé til slátrunar yfir sveitir eða til
sláturstaða, þar sem féð er tal-
ið ósýkt af þeim sauðfjársjúk-
dómi.
í greinargerð, sem fylgir til-
lögunni, segir svo:
Talið hefir verið, að Þing-
eyska mæðiveikin væri ein-
göngu í Þingeyjarsýslu og staf-
aði frá karakúlhrút, er þar var.
Nú er talið, að veikin sé komin
upp í Blöndudal og Svartárdal
og ef til vill víðar. Vegna varn-
anna og allrar afstöðu til veik-
innar, er mikil nauðsyn að fá
sem fyrst úr því skorið, hvar
hún er og hvaða smitunarleið-
um hún hefir komi,. — Lítils-
háttar tilraun hefir verið gerð
með að gefa kindum sýktum af
þingeysku mæðiveikinni, inn
lungnabólgumeðal. Hefir það
gefið nokkrar vonir um að það
geti komið að einhverju gagni.“
Síðustu sendingarnar af
„Johninin“, sem fengnar hafa
verið hingað frá Englandi, til
þess að prófa með hvort garna-
veiki sé í fénu, hafa reynzt mjög
lélegar. Guðmundur Gíslason
læknir er nú að gera tilraunir
með nýtt efni til slíkra hluta,
og er hin mesta nauðsyn að
framleiðslu þess og tilraun-
um með það verði hraðað svo
sem unnt er.
Dr. Halldór Pálsson hefir að
tilhlutun sauðfjársjúkdóma-
nefndar rannsakað fjárdauð-
ann af völdum mæðiveikinnar,
aðallega í 2 sveitum, og styrk-
leika fjárstofnanna gegn veik-
inni. Auk þess hefir nefndin nú
og síðastliðinn vetur látið ald-
ursmerkja og telja yngra féð á
mæðiveikissvæðinu og liggja
fyrir skýrslur um það. — Úr
skýrslum þessum er nauðsyn-
legt að vinna jafnóðum og
birta niðurstöður, sem geta orð-
ið bændum til leiðbeiningar um
ásetning líflamba. Þetta er
mikilsvert rannsóknarefni, því
að á niðurstöðum þessara rann-
sókna veltur, hvað gert verður
síðar meir í mæðiveikimálinu.
Leggja verður allt kapp á að
hindra fjársamgöngur milli
sveita eða héraða til þess að
varna útbreiðslu fjárpestanna,
því þótt meiri hluti sauðfjár-
stofnsins sé grunaður eða sýkt-
ur af einhverri af þessum 3 að-
al fjárpestum er nú geysa, þá
mun flestum þykja full erfitt
að hafa eina þeirra í fé sínu,.
þótt ekki fari þær fleiri sam-
an, sem gæti leitt til landauðn-
ar í sumum sveitum.
Tillaga til þingsályktunar,
varffandi skurðgröfu ríkisins.
„Búnaðarþing felur stjorn
Búnaðarfélags íslands að und-
irbúa í samráði við landbúnað-
arráðuneytið fyrir næsta Bún-
aðarþing tillögur um, hvernig
rekstri og umhirðu skurðgrafa
ríkisins og annarra hliðstæðra
landbúnaðarvéla verði hagan-
legast og bezt fyrir komið. En
bendir á það í þessu sambandi,
að það telur mjög æskilegt að
Búnaðarfélag íslands ráði verk-
færaráðunaut, er leiðbeini
bændum um val, meðferð og
notkun búvéla og gæti umsjá
Auglýsing
frá ríkissftj órmnni.
Þar scm ófriðarhættan hér er nii að áliti
hernaðaryfirvaldanna sízt minni en síðast-
liðið sumar, þykir nauðsynlegt að sem flest-
um hörnum verði komið úr bænum, svipað og
þá var g'ert, jafnskjjótt og fært þykir. Er því
brýnt fyrir öllurn foreldrum, er hug hafa á
þessu, að leitast við að útvega börnum sínum
hið fyrsta dvalarstað í sveit. Þeir, sem eigi
hafa tök á slíku, en vilja hinsvegar koma
böirnum sínum úr bænum, ættu að leita fyrir-
greiðslu sumardvalarnefndar.
Enn er eigi ákveðið hvenær brottflutning-
ur barna hefst, en foreldrum er eindregið ráð-
lagt, að búa börn sín nú þegar til brottfarar-
innar, svo að tafir þurfi eigi að verða af þeirn
sökum.
hinna fyrrnefndu véla verið háð
eftirliti hans.
Ennfremur leggur Búnaðar-
þing til, að til bráðabirgða verði
verkfæranefnd (samanber lög
um rannsóknir og tilraunir í
þágu landbúnaðarins) falin um-
sjá og rekstur vélanna þar til
annarri skipan verður á kom-
ið.“
Þingsályktunartillaga varff-
andi frv. til breytinga á jarff-
ræktarlögnnutm, sem lagt var
fyrir síðasta Alþingi.
Búnaðarþing beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til Alþingis,
að það afgreiði frumvarp það
til breytinga á jarðræktarlög-
unum, ér lagt var fyrir síðasta
Alþingi og ákveði um leið, að
styrkir, sem veittir verða út á
jarðabætur ársins 1941, skuli
greiðast eftir hinum endurskoð-
uðu lögum.
Tillaga til þingsályktunar, um
aff stofna sjóff til minningar um
Sigurff Sigurffsson, búnaffar-
málastjóra.
Búnaðarþing ályktar að fela
stjórn Búnaðarfélags íslands
að gangast fyrir því, að stofn-
aður verði sjóður til minningar
um Sigurð Sigurðssonar bún-
aðarmálastjóra.
Stjórn Búnaðarfélags íslands
leiti til búnaðarsambandanna
og hreppsbúnaðarfélaganna um
fjárframlög í þessu skyni, og
tilkynni, að hún taki á móti fé
í sjóðinn.
Markmið sjóðsins verði að
efla framtak og þekkingu bænda
á viðfangsefnum landbúnðar-
ins.
Stjórn Búnaðarfélags íslands
leggi skipulagsskrá fyrir sjóð-
inn fyrir næsta Búnaðarþing.
Afmæli
(Framh. af 3. siðu)
hefir starfað þér til hamingju,
sveit þinni til vegs- og virð-
ingarauka, og bændastéttinni í
heild til sóma.
Ennþá ertu hraustur og ern
og heldur öllum störfum áfram
um hríð. Heill og hamingja
fylgi þér hér eftir sem hingað
til. og blessi heimili þitt í fram-
tíð og þitt æfikvöld.
Dagur Brynjólfsson.
ReiknÍDgsskíl . . .
(Framh. af 1. síðu)
Mjólkurstöðin tók á árinu á
móti 7.045.6491/2 lítra af mjólk,
auk lítilsháttar af rjóma.
Reksturskostnaður stöðvar-
innar (svonefnt stöðvargjald)
reyndist að hafa numlð 3,86
aurum á hvern innveginn
mjólkurlítra.
Meðalverð til bænda á félags-
svæðinu, utan bæjarlandsins,
að frádregnum afföllum, varð
55,139 aurar fyrir lítra og er þá
miðað við mjólkina komna til
stöðvarinnar. Á sama hátt varð
meðalverð til bændanna á bæj-
arlandinu, þeirra, sem hafa til-
skilin lönd á móti kúm sínum,
61,164 aurar fyrir lítra.
Rétt er að benda á það, að
hér er aðeins um meðalverð að
ræða, því eins og gefur að skilja,
m. a. vegna þess, hversu breyti
legt mjólkurverðið hefir verið
á árinu, verða þeir, sem hafa
haft hlutfallslega meiri mjólk
framan af árinu, þegar verðið
var lægst, fyrir neðan meðal-
verðið. Hinir aftur á móti fyrir
ofan það. Þetta og annað fleira
kemur einnig til greina, þegar
borið er saman útborgaða verðið
hjá mjólkurbúum verðjöfnunar-
svæðisins fyrir umrætt ár.
398
Victor Hugo:
Ésmeralda
399
genginn úr greipum réttarvaldsins.
Enginn mátti þar við honum blaka. En
þess varð hann vel að gæta, að yfirgefa
ekki griðastaðinn. Ef hann steig einu
skrefi lengra en friðhelgin náði, gat
glötun beðið hans. Verðir laganna voru
hvarvetna á vakki og gripu bráð sína,
ef nokkurt færi gafst á. Þess vegna
dvöldu afbrotamenn stundum fram á
elliár í klaustrum, á hallarþrepum eða
1 forgörðum kirkna. Þannig urðu griða-
staðir raunverulega að fangelsum.
Stöku sinnum bar þó til, að friðhelgi
þessara staða var að engu gerð með há-
tíðlegri tilskipun æðstu stjórnarvalda
og sökudólgurinn síðan seldur i hend-
ur böðulsins. En slíkt var mjög sjald-
gæft og þótti beinlínis óviðurkvæmi-
legt. Svo djúpa virðingu báru menn fyr-
ir þessari helgi og slík ógn stóð þeim af
henni, að þeir héldu jafnvel dýr vera
hennar vitandi. Frá því er sagt, að
veiðimaður var í skógi og elti hjört með
veiðihuridum sínum. Hjörturinn leitaði
lengi undan honum, en nam loks stað-
ar á heilagri gröf, Þá þorðu hundarnir
ekki að ráða á hann, því að þeir fundu
helgi grafarinnar, heldur ýlfruðu og
gjömmuðu í kringum hann.
í öllum kirkjum var klefi, sem hverj-
um manni var heimil vist í, í fullum
náðum og griðum. Svo var og um Frú-
arkirkjuna. Þar var þessi friðarins bú-
staður hátt frá jörðu, og gat þaðan að
líta yfir hálfa borgina. Þangað hafði
Kvasimodo leitað með Esmeröldu, eftir
hið fífldjarfa og sigursæla tiltæki sitt.
Esmeralda hafði verið hálft sem í
móki, er þeir atburðir gerðust. Hún var
öll máttvana og vissi það eitt, að hún
var hrifin á loft. Þar sveif hún og
sveiflaðist yfir einhverju hyldýpi, að
henni þótti.
Hás rödd Kvasimodos og sögaþung
hlátrasköll umdu henni í eyrum. Þegar
hún opnaði augun, blöstu við henni
þúsundir helluþaka, rauð og blá. Kvasi-
modo laut yfir hana, ægilegur ásýndum,
en þó glaður 1 bragði.
Hún lokaði augunum aftur. Hún hélt
helzt, að allar þrautir lífsins væru nú
búnar: AÖ þeir hefðu tekið hana af
lífi, en vanskapningurinn rænt líkinu.
Hún þorði ekki að líta á hann og lét
hann taka sig í fangið og bera sig
brott. Hringjarinn fór með hana beina
lið i griðaklefann. Þar lagði hann hana
frá sér, másandi og blásandi, og hún
fann stórar og grófar hendur hans leysa
ólarnar, sem hún var bundin með. Um
leið og hendurnar losnuðu fann hún
eins og ofurlítinn kipp, líkt og þegar
farxegi í skipi vaknar um miðja nótt
A krossgötmn
(Framh. af 1. síðu)
mæðiveiki í sauðfé, sem svo er kölluð
Hún fór fyrir alvöru að gera vart við
sig í Kelduhverfi síðastliðinn vetur og
er nú orðin útbreidd um mestalla
sveitina. Sýkin hefir þegar eytt meiri
hlutanum af sauðfé nokkura bænda,
þar sem hún fyrst kom upp. í Keldu
hverfi eru ekki, fremur en í öðrum
sveitum norður þar, skilyrði fyrir aðrar
atvinnugreinir en sauðfjárræklt-
inni, svo teljandi sé. Hér er því mikið
alvörumál á ferðum.
A víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
ekki keypt listaverk fyrir það
fé, sem því bar að kaupa lista
verk fyrir undanfarin ár.
Vill Tíminn ekki eyðileggja
þetta listræna kæruefni málar-
anna fyrirfram, en mun á sín-
um tíma víkja nánar að því.
Kaupendur Tímans
Tilkynniff afgr. blaffsins tafar-
laust, ef vanskil verffa á blaffinu.
Mun hún gera allt, sem i hennar
valdi stendur, til þess aff bæta
úr því.
r -riAIMTT.A Tltrt - _ ivtV-.ta ntrt
Stríðsfréttarit- VEÐREIÐA
arinn. G ARPURIIVIV
(ARISE MY LOVE) (Going Places)
með Gamanmýnd með fjörugri
CLAUDETTE COLBERT tízkutónlist, leikin af hin-
Og RAY MILLAND. um fræga LOUIS ARM-
STRONG og hljómsveit
Synd kl. 7 og 9. hans.. — Aðalhlutverk
leika:
Framhaldssýning 3y2—6V2 DICK POWELL,
JÁTNING AFBROTAMANNSINS ANITA LOUISE og
RONALD REAGAN.
með Victor McLaglen. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn fá ekki affgang. — Lægra verff kl. 5. —
i
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu mér
vinsemd á áttrœðisafmœli mínu.
SIGURÐUR ÞORSTEINSSON
Hólseli.
———------------------------------
Aðalfundir í deildum KRON
í Reykjavík verða scm hcr segir:
Deild 3: í Alþýðuhúsinu sunnudaginn 22. marz kl. 2 e. h.
— 5: í Alþýðuhúsinu sunnudaginn 22. marz kl. 5 e. h.
—. 16: á Skólavörðustíg 12 sunnudaginn 22. marz kl. 2 e. h.
— 7: á Skólavörðustíg 12 sunnudaginn 22. marz kl. 8,30 e.h.
— 10: í Barnaskóla Skerjafjarðar þriðjudaginn 24. marz
kl. 8,30 e. h.
— 9: í Baðstofu iðnaðarmanna þriðjudaginn 24 marz
kl. 8,30 e. h.
— 8: í Baffstofu iðnaðarmanna miðvikudaginn 21. marz
kl. 8,30 e. h.
— 2: á Skólavörðustíg 12 fimmtudaginn 26. marz kl. 8,30 e.h.
— 1: í Baðstofu iðnaðarmanna föstud. 27. marz kl. 8,30 e.h.
— 11: á Skólavörðustíg 12 laugardaginn 28. marz kl. 8 e. h.
— 6: í Baðstofu iðnaðarmanna mánud. 20. maz kl. 8,30 e.h.
— 4: í Baðstofu iðnaðarmanna þriðjudaginn 31. marz
kl. 8,30 e. h.
Tilkynnlng.
Að getim tilefni tilkynnist hér með, að
framkvæmdastjóri vor I Aew York, hr. Helgi
Þorsteinsson og frú hans, taka ekki ú móti
neinskonar beiðnum um vörukaup, nema að
leyfi vort komi til.
Samband ísl. samvinnuiélaga.
Auglýsing
Samkvæmt heimild í 5. gr. bráðabirgðalaga nr. 1, 8. jan.
1942, er hér með bannað að leggja meir á eftirtaldar vörur í
heildsölu og smásölu en gert var í árslok 1941:
Vefnaðarvörur og fatnaður, hvers konar
sem er.
Skófatnaður, hvers konar sem er.
Samkvæmt tilvitnaðri lagagrein er gerðardóm í kaupgjalds-
og verðlagsmálum þó heimilt að fengnum tillögum verðlagsnefnd-
ar að úrskurða um breytingar á álagningunni og ákveða hana
að nýju.
Viðskiptamálaráðuneytið, 19. marz 1942.
Eysteinn Jónsson.
Torfi Jóhannsson.
Sumardvalanelnd
hefir opna skrifstofu i barnaskólum bæjar-
ins, Austurbæjarskólanum, Laugarnesskólan-
um, Miðhæjarskólanum og Skildingarnesskól-
an 9im, sunnudaginn 22. marz og múnudaginn
23. marz frú kl. 10—12 og 14—17, l>ar sem tek-
ið vcrður ú móti umsóknum um fyrirgreiðslu
vegna þeirra, sem ekki geta sjúlfir komið
börnum sínum í sveit.
Róndi - Kaupir þú búnaðarblaðið FREY?