Tíminn - 26.03.1942, Page 3
23. blað
TÍMPiN, fimmtadaglim 26. marz 1942
87
ANNÁLL
Afmæli.
í dag er Haukur Ingjalds-
son, bóndi að Garðshorni i
Kaldakirin, fimmtugur að aldri.
Hann er fæddur að Mýri í Bárð-
ardal 28. febrúar, 1892, sonur
merkishjónanna Marzelínu
Helgadóttur og Ingjalds Jóns-
sonar.
Haukur fluttist ungur að
aldri, með foreldrum sínum, að
Garðshorni, þar sem hann hefir
dvalið síðan. Hann var snemma
mikill og sterkur og hneigðist
hugur hans í æsku til smíða og
bóklegs náms. Dvaldi hann í
unglingaskóla að Ljósavatni i
byrjun, en síðar var hann tvo
vetur í Gagnfræðaskólanum á
Akureyri, þar sem hann reynd-
ist með þeim fremstu að dugn-
aði og námshæfileikum.
Haukur tók við jörð sinní lítt
byggði að húsum og með lltlu
og þýfðu túni. Lagði hann fljót-
lega hönd á plóginn og gerðist
athafnamaður mikill um bygg-
ingar og ræktun. Má telja hann
einn helzta brautryðjanda hér
í stórfelldri túnasléttun. Tók
hann hestana og nýtízku jarð-
ræktarverkfæri strax í þjónustu
sína og muldi niður, á stuttum
tíma, þúfurnar í gamla túninu.
Síðan hóf hann stórfellda rækt-
un utan túns og valdi svo vel
hæft land til ræktunar, og
vandaði verk sitt, að aldrei
bregzt þar gras.
Samhliða þessu hefir Haukur
húsað jörð sína af miklum
myndarskap og skapað nýjar
og betri engjar með áveitum.
Allar þessar framkvæmdir
vóru að mestu gerðar áður en
hin almenna ræktunaröld hófst
hér á landi og mun Haukur því
ekki hafa notið þeirra hlunn-
inda við umbætur sínar, sem
hann hefði verðskuldað og sjálf-
sagt þykir að veita nú á dögum.
Haukur í Garðshorni er
dverghagur bæði á tré og járn
og húgvitsmaður mikill við öll
vínnubrögð. Hann hefir fundið
upp einfalt, en stórmerkilegt á-
hald, sem flestir bændur munu
kannast við: „heyskúffuna" svo
nefndu. Þessi uppfinning má
segja, að sé ólaunuð enn, en hún
er búin, án efa, að spara bænd-
um landsins, tugþúsundir i
vinnu og hefir gert þeim kleift
að nota sláttuvélar á votum út-
engjum með prýðilegum á-
rangri. Hefir Haukur þarna lagt
sinna. Og þetta er einnig og
ekki síður óheppilegt og skað-
legt fyrir rikið sjálft, sem jörð-
ina á, þvi venjulega rýrnar hún
og gengur úr sér með slíku bú-
skaparlagi. Þetta er mönnum
og þegar að verða ljóst. Þess
vegna hefir ríkið á síðustu ár-
um gert tilraunir til að sklpta
prestssetursjörðum og láta mæla
prestinum út eitthvert horn af
landi jarðarinnar. En þetta
hefir gefizt illa að minnsta
kosti þar sem ég bezt þekki til,
á Vallanesi eystra. Og fólkið
sjálft, sem vant er að líta heim
til hinna fornu höfuðbóla, þar
sem prestarnir áður bjuggu
stórum búum, það sættir sig
ekki við það að sjá prestinn sinn
húka á litlum landskika á út-
jcðrum hins forna stórbýlis.
Annað hvort er því að flytja
prestinn gersamlega burt af
hinu forna prestssetri og fá
honum nýjan bústað eða gera
honum kleift að búa á höfuð-
bólinu með þeirri rausn, sem
stöðu hans hæfir og hin gamla
slðvenja krefst.
Áður fyr fylgdu mörgum hin-
um stærri prestssetrum áhöfn,
ær, kýr, hestar, jafnvel innan-
stokksmunir og sængurfatnað-
ur. Illu heilli hefir þetta nú
víðast hvar verið afnumið. En
ég hygg, að aftur eigi upp að
taka þessa fornu venju. Ef
hægt væri að koma því smátt og
smátt þannig fyrir, að prests-
setrunum fylgdi nokkur áhöfn
nauðsynlegustu búvélar og
jafnvel húsgögn, þá mundi það
í framtíðinni ekki aðeins auð-
velda prestunum stórlega að
reisa þegar I byrjun myndarbú
á sveitaprestssetrunum, heldur
mundi þetta auka virðuleik
prestssetranna sjálfra og prest-
urinn jafnframt fá betri að-
stöðu til áhrifaríks starfs í
sofnuðum sínum.
Aðvörun til
almennings
frá ríkísstjórnínní
Timanum hefir borizt eftir-
farandi aðvörun til almennings,
sem setuliðsstjórn Bandaríkj-
anna hér hefir beðið ríkisstjórn-
ina að koma á framfæri.
Skyldur hermanna á verði.
Til þess að öllum megi skilj-
ast, hve mikilvægt er og nauð-
synlegt að hlýða fyrirmælum
þeim, sem gefin eru af her-
mönnum á verði, skulu eftir-
farandi upplýsingar gefnar:
Þegar leið liggur inn í her-
mannabúðir og að hermanna-
virkjum, eru fyrir greinileg
aðyörunarmerki á ensku og ís-
lenzku, þar sem greint er frá,
að vopnaðir varðmenn séu á
verði. Samkvæmt lögum er það
á ábyrgð varðmanns, að hann
framkvæmi skyldustörf sin
fljótt og nákvæmlega. og er um
hernað er að ræða getur hann
átt á hættu að verða tekinn af
lífi, samkvæmt dómi herréttar,
ef hann gerir sig sekan um van-
rækslu 1 skyldustörfum sinum.
Komast mætti þannig að orði,
að hermaður sá, sem er á verði,
sé hið vakandi auga herbúðar
sinnar. Hann verður að vera
viðbúinn því að ekki sé komið
honum að óvörum, og vera stöð-
ugt á varðbergi gegn þeim, sem
kynnu að vilja komast hjá því,
að hann taki eftir þeim. Hann
verður að hafa það hugfast, að
óvinir geta komið úr lofti, oft
vel dulbúnir, með þeim fasta
ásetningi að afla sér mikil-
vægra hernaðarlegra upplýs-
inga, eða til þess að vinna 6-
bætanlegt tjón á hernaðar-
virkjum eða tækjum. Aldrei má
hann víkja af verði, hvernig
sem veður er og hvað sem líður
aðbúnaði hans sjálfs, jafnvel
þótt hann, ef því er að skipta,
eigi á hættu að verða fyrir skot-
fram drjúgan skerf í þágu land-
búnaðarins.
Haukur Ingjaldsson er giftur
Nönnu Gísladóttur frá Prest-
hvammi, mestu myndarkonu,
sem hefir átt sinn mikla þátt
í að gera garðinn frægan.
Þau eiga sex efnilegar dætur.
28. febr. 1942
Baldur Baldvinsson
frá Ófeigsstöðum.
Um meðferð hinna niðurlögðu
prestssetra, er prestum hefir
verið fækkað eða þeir fluttir til
og fenginn nýr aðsetursstaður
innan prestakallsins, hefir hing-
að til ekki verið fylgt föstum
reglum. Sum þeirra hafa verið
seld og eru nú í einstakra
manna eign, og munu flestir
sammála um, að þar hafi verið
illa ráðið. Önnur hafa verið
leigð til langs tíma eða jafnvel
sett í erfðaábúð. Verður það
naumast talið hyggilegt, að
minnsta kosti að því er þær
jarðir snertir, sem vel eru falln-
ar til skiptingar í fleiri býli.
Einhverjum kann að hafa verið
skipt i smá býli. Heppilegast tel
ég, að framvegis verði þau
prestssetur, er lögð kunna verða
niður sem slík, afhent stjórn
nýbýlamála til umráða og ráð-
stöfunar, og verði þar stofnað
nýbýli eftír þvi sem heppilegast
kann að þykja að fram farinni
ítarlegri rannsókn á hverjum
stað.
Ég hefi nú lauslega drepið á
þau megin atriði, er ég tel að
taka beri einkum tillit til, þeg-
ar breytingar eru gerðar, á nú-
verandi prestakallaskipun
landslns. Ýmsum kann að virð-
ast svo, að önnur sjónarmlð
muni heppilegri og réttari, og
er þá í þessu efni sem öðrum
skylt að hafa það, er betur virð-
ist. Það, sem mestu skiptir, er
þetta, að menn athugi sem
gaumgæfilegast og reyni að
koma sér saman um þau höfuð-
sjónarmið, er taka beri tillit til,
áður en ráðizt er í stórar breyt-
ingar að því er prestaköllin
snertir. Annars er hætt við að
þær breytingar verði meira og
minna kák og fálm, án allrar
samræmingar, sem vafasamt er
að reyndist til bóta fyrir kirkj-
una sjálfa eða rikið.
Dr. theol. Jón Helgason hisknp
verður jarðsunginn föstudag 27. marz n. k. og hefst
athöfnin með húskveðju á heimill hans kl. 1 e. h.
María Helgason, böm og tengdadætur.
Trjáræktarnámskeíd
verður haldið að Hallormsstað 1 vor. Stendur það yfir frá miðj-
tl LX—O—KMWKHBKHaXHHW I— n IXnH) t I
Samband ísl. samvinnufclatia.
Samvinnumenn! Munið að sjóðir kaupfélaganna
eru yður trygging fyrir góðum framtíðarvið-
skiptum. Þér eflið þá bezt með því að beina öll-
um viðskiptum yðar til kaupfélaganna.
um maí til júniloka.
Uppihald er ókeypis, og nemendum veittur styrkur.
Umsóknir sendist hið fyrsta til skógarvarðarins á Hallorms-
stað.
hríð óvinanna. Ef hann bregzt
skyldu sinni og einhver sleppur
fram hjá honum í heimildar-
leysi, á varðmaðurinn á hættu
að sæta þungri refsingu fyrir
vanrækslu á hinni afarmikil-
vægu skyldu sinni, án þess að
að því sé spurt, hver ástæðan
hafi verið, eða hverja afsökun
hann hafi fram að íæra.
Oft hafa menn, sem r-nga
heimild hafa til þess haft, korn-
izt inn í herbúðirnar og geta
nálgazt mikilvæg hernaðarleg
mannvirki. Ekki sjaldan hafa
menn þessir komizt undan,
vegna þess að varðmaður hefir
hikað við að skjóta á þá, er
honum hefir verið ókunnugt
um, hverjir þeir væru. Með
þessu móti hefir öryggl og vörn
herliðsins og íslands sjálfs ver-
ið stofnað í hættu á alvarlegan
hátt. Því miður hafa saklausir
menn, bæði óbreyttir borgarar
og hermenn, særzt eða látið lif-
ið nýlega af völdum varð-
manna, sem hafa verið að fram-
kvæma skipanir, er þeir verða
að hlýða við framkvæmd skyldu-
starfa sinna. Það er ekki siður
ástæða til að harma þetta, þar
sem hernaðaryfirvöldin hafa
það hugfast, að íslendingar
hafa verið óvopnaðir svo öldum
skiptir og eru óvanir hernaðar-
aga. Vegna þessa og vegna
hinna hörmulegu slysa, er orð-
ið hafa, skora hernaðaryfirvöld-
in á almenning að sýna skiln-
ing á skýringu þeirri, sem hér
hefir verið gefin, og að veita
samstarf öllum þeim hermönn-
um, sem á verði eru, við fram-
kvæmd hins erfiða verndar-
hlutverks þeirra.
Allar skynsamlegar ráðstafan-
if, sem ekki koma í bága við
hernaðarnauðsyn, eru gerðar til
þess að koma í veg fyrir, að
saklausir menn verði fyrir slys-
um. Er maður fær skipun um
að nema staðar, verður hann að
nema staðar þegar i stað og
víkja ekki úr stað fyrr en hon-
um er gefin fyrirmæli eða merki
um að halda áfram. Ef óbreytt-
um borgara er ekki fyllilega
ljóst, hvernig honum beri að
haga sér á leið inn í herbúðir
eða þegar hann er þangað kom-
inn, ber honum að bíða hjá
varðmanni og fara þess á leit,
að sóttur sé liðsforingi sá, sem
á verði er (Officer of the Day).
Fækkun, en ekkl
fjölgun
(Framh. af 2. síðu)
kosningu í „frjálsri samkeppni“.
Þessum liðléttingum tekst
stundum að komast upp eftir
baki flokksstjórnanna og „á
lista“ í skjóli sér meiri manna,
er lyfta þeim, án verðleika, inn
í þingsalinn. Þessir þingmenn
verða svo nokkurskonar vaxta-
laust „fylgifé" Alþingis, þjóð-
inni til lítils gagns eða heiðurs,
en fremur til þrengsla og tafar
við störf Alþingis.
Við auknar umræður um
kjördæmabreytingu og þing-
mannafjölgun hljóta að vakna
þessar kröfur hjá mörgum heil-
brigðum mönnum:
Færri þingmenn.
Einfaldara og öruggara
stj órnarf yrirkomulag.
Minni skriffjnnska.
Fækkun í nefndum og skrif-
stofum.
Einfaldara þjóðlíf.
V. G.
Orðakast
(Framh. af 2. siðu)
um og samsýslungum beztu
kveðjur. Ég er sannfærður um,
að þeir muni, nú sem fyrr, fjöl-
menna á kjörstaði við næstu
alþingiskosningar — ekki sem
handjárnaður óþjóðalýður,
heldur sem framsæknir ætt-
jarðarvinir, sem góð skil kunna
bæði á mönnum og málefnum
og meta hvort tveggja að verð-
leikum.
p.t. Reykjavík, 20. marz 1941
Þór. Gr. Víkingur.
Fjailagrös
fást í heildsölu hjá
Sambandi
ísl. samvinnnfélaga
VinniS ötullcga fyrir
Tímann.
§IGLIM«AR
milli Bretlands og íslands halda áfram,
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
CulliSord & Clark Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Tilkynning íráVíðskiptauefnd
um vörukaup írá Ameríku
Líklegt er að erfitt verði að fá eftirfarandi vörur frá Banda-
ríkjunum, nema fyrir milligöngu Viðskiptanefndar:
Hamp
Gúmmí og vörur úr þvi
Aluminium og vörur úr því
Kopar og vörur úr honum
Blý og vörur úr þvl
Tin og vörur úr þvi
Zink og vörur úr þvi
Hér er átt við málma þessa óunna, eða vörur, sem eru gerðar úr
þeim eingöngu.
Dieselvélar
Rafmangsvélar
Skrifstofuvélar
Saumavélar
Kælivélar.
Þeir, sem óska að njóta aðstoðar nefndarinnar við kaup á
þessum vörum, sendi skriflega beiðni til hennar þar að lútandi,
ásamt sundurliðuðum pöntunum og innflutningsleyfum. Banka-
tryggingu verður að setja fyrir kaupunum.
Viðskíptanefnd.
Dóndi — Kanpir fsii liúnaðarbiaðið FREY?
Lesendur!
Vekjið athygli kunningja yð-
ar á, að hverjum þeim manni,
sem vill fylgjast vel með al-
mennum málum, er nauðsyn-
legt að lesa Tímann.
Skrifið eða simið til Tímans
og tilkynnið honum nýja áskrif-
endur. Sími 2323.
408 Victor Hugo:
— Hérna, drundi 'hann. Þú getur
blásið í þessa flautu, þegar þú þarft mín
við og vilt, að ég komi. Ég heyri gaulið
í henni.
Svo flýtti hann sér burt.
IV. KAFLI.
Grásteinn og krystall.
Margar vikur voru umliðnar. Esmer-
alda hafði náð eðlilegu sálarjafnvægi
að nýju. Dýpsta sæla og þyngsta sorg
eru sjaldan langæar. Hjartað er aldrei
lengi þanið, sem fremst má verða. Tat-
arastúlkan hafði svo margt þolað, en
fátt olli henni öllu meiri undrun. En
smátt og smátt öðlaðist hún nýja von.Að
vísu var hún fráskilin öllu mannlegu
samfélagi, fjarri glaumi lífsins, en samt
þótti henni það ekki óhugsandi, að
þangað myndu spor hennar þó liggja 1
annað sinn. Það mátti líkja henni við
lík, sem grafið hefði verið, en átti þó í
fórum sínum lykil til þess að opna
grafarþróna.
Þær óttalegu sýnir, sem lengl þjáðu
hana, hurfu henni, er fram liðu stund-
ir. Grimmdarvargarnir, sem hún hafði
komizt í kynni við, féllu i gleymsku:
Pétur Torterue, Jakob Charmolue,
presturinn.
Esmeralda 405
um, en þegar hún dró hann til sín,
ljómaði afskræmt andlit hans af ást-
úð og gleði. Hún ætlaði að leiða hann
inn í klefann, en hann gaf staðar við
þröskuldinn og vildi ekki lengra fara.
—• Nei, nei, þusaði hann, náttuglan
setzt ekki í hreiður lævirkjans.
Hún tyllti sér á fletið sitt. Geitin svaf
á gólfinu. Þau biðu bæði átekta um
stund og virtu hvort annað fyrir sér.
Hún var undrafögur; hann var ægilega
ljótur. Hún gat lengi horft á hann og
séð æ ný og ný lýti. Hún horfði á
bæklaða og skakka fætur, knýtt og
kreppt bakið, blóðhlaupið augað. Hana
furðaði mest á því, að slíkur van-
skapnaður skyldi vera til. En í andliti
greppslns speglaðist slik sorg og bliða,
að henni tók að hverfa allur geigur.
Hann varð fyrri til að rjúfa þögnina:
—■ Vildir þú fá mig hingað aftur?
— Já, svaraði hún og kinkaði kolll
til áherzlu.
Hann skildi hana strax.
— Æ, sagði hann dálítið hikandi við
að gera nýja játningu. Ég er heyrnar-
sljór.
— Lika heyrnarsljór, aumingja mað-
ur! hrópaði Tatarastúlkan. Meðaumk-
unin leyndi sér ekki.
Hann brosti dapurlega.
— Það vantaði ekki annað, áttu við.