Tíminn - 18.04.1942, Page 1

Tíminn - 18.04.1942, Page 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON: PORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON ÚTGEPANDI: FR AMSÓKN ARFLOKKURINN. 26. ár. ISeykjavík, laugardaglnn 18. apríl 1942 33. blað Afstaða Framsóknarflokksins til stjórnarskrárbrevtingar o; Jónas Jónsson Veízlufagnaður á elleítu stund tveggja þingkosninga - Víðtal við forsætlsráðherra - Öll blöð bæjarins hafa nú skýrt frá því, að stjórnar- skrárnefndin 1 neðri deild hafi klofnað og muni fulltrúar Framsóknarflokksins flytja rökstudda dagskrá um frá- vísun málsins. Jafnframt hafa þau skýrt frá því, að Framsóknarflokkurinn hafi látið fulltrúa sína í nefnd- inni skýra frá því, að flokkurinn myndi láta forsætis- ráðherra biðjast lausnar fyrir ráðuneyti sitt, ef dag- skráin verður felld, og ráðherrar flokksins myndu þá heldur ekki gegna stjórnarstörfum til bráðabirgða. Tíminn hefir talið rétt, að fá Sigurður Nordal hefir aldrei haft þinglukku. Þegar honum buðust hærri laun í Noregi en hér, var það ekki áreynslulaust fyrir Framsóknarmenn, að fá laun hans hækkuð með Alþing- íssamþykkt. Síðar skrifaði Nor- dal Alþingi ráðleggingar um störf þess. Var hann þá studd- ur af listamönnum, svo sem Al- exander Jóhannessyni, Páli fs- ólfssyni, Jónasi Þorbergssyni o. fl. — Ráðlegging Nordals var að engu höfð í Alþingi. Næst komu á vegum Nordals nokkrir lista- menn og myndgerðarmenn. Rit- uðu þeir Alþingi og sögðu sjálfa sig eina hafa vit á list og álitu annað fólk ófært til að dæma um listræn málefni, líkt og blindur maður um prentað mál. Menntamálanefnd neðri deild- ar lét þetta plagg í skjalasafn þingsins með góðlátlegu brosi. Alþingi tók enganveginn líklega í þá kenningu, að þjóðin væri jafn fávís og smekklaus eins og höf. þessir vildu vera láta. Enn fer Nordal á stúfana, og allt af á vegum húsbænda sinna.þelrra sem eiga að gefa út „Arf ís- lendinga.“ Hann safnar að sér i*úmlega 60 mönnum og sendir Alþingl enn bréf. Efnislegur kjarni þess er sá, að þetta fólk og þeirra líkar eigi að setjast að veizlufagnaði hjá ríkissjóði, hafa þar föst laun og jötu, án tillits til framkomu eða tiiverkn- aðar. Óvissuna um ríkisframlag- ið telur Nordal óviðeigandi. Ef rakinn er hugsunarháttur Nor- dals og samherja hans, þá er hann þessi. Menn eins og Þor- valdur Skúlason eða Jóhann Briem eru snillingar á borð við Snorra Sturluson. Skáld og llstamenn einir hafa vit á að dæma um fagurfræðileg efni. Allir aðrir borgarar landsins hafa alls ekkert vit á þess hátt- ar fræðum. Skáld og listamenn eiga að vera á lífstíðarlaunum hjá ríkinu, og þeim ríflegum. Skáldin og listamennirnir eiga á hverju árl að tilkynna Al- þingi, hvaða nýja snillinga eigi að taka á föst laun. Þar sem þingmenn eins og aðrir borg- arar hafa alls ekkert vit á gildi þessara andans manna, eiga þeir möglunarlaust að hlýða fyrirskipun stéttarfélags þess, sem mannhópar þessir mynda. Nordal er vel ritfær maður, þegar hann fæst við þau efni, sem hann ber kennsl á. En hann hefir ekki sýnt neinn þroska 1 þjóðmálum. Og eftir að hann gerðist fastur griðmaður hjá útgáfufyrirtæki kommúnista, hafa tillögur hans um þau efni, er þeir láta sig máli skipta, mótast i öllum aðalatriðum af vilja þessara samstarfsmanna. Það þarf ekki að f jölyrða um það, að allir menn, sem hugsa sér að ísienzka þjóðin eigi að lifa frjáls í sínu landi, eru ekki aðeins á móti pólitík kommún- ista í landsmálum, heldur og öllu bakferli þeirra og leyniá- róðri, hvar sem hann kemur fram. Sigurður Nordal er nú orðinn útbreiðslustjóri hinnar erlendu stefnu á vissu sviði. Hann er látinn nota fyrrver- andl vlnsældir sínar og ýmsa aðra aðstöðu, það sem hún nær. Grein myndgerðarmannanna (Framh, á 4. siOu) nánarl upplýsingar um þessl mál hjá Hermanni Jónassyni forsætisráðherra. — Hvaða ákvarðanir hefir Framsóknarflokkurinn tekið í þessu máli? — Þingmenn Framsóknar- flokksins og miðstjórn hans hafa einum rómi samþykkt fyrir nokkrum dögum, að ef dag- skrártillaga flokksins í kjör- dæmamálinu verður felld, verði ekki hjá því komizt, að ráðherr- ar flokksins segi af sér og gegni ekki störfum til bráðabirgða. í samræmi við þessa ákvörð- un ritaði ég formanni Sjálf stæðisflokksins bréf 15. þ. m., þar sem ég skýrði honum frá þessari ákvörðun Framsóknar- flokksins, til þess að flokkar þeir, sem að stjórnarskrár- breytingu ætla að standa, hagi vinunbrögðum sínum í sam- ræmi vlð það. Jafnframt lét ég formann Al- þýðuflokksins, sem beitir sér fyrir samþykkt kjördæmabreyt- ingarinnar, vita um þessa á- kvörðun. Ég hefi einnig skýrt rikis- stjóra frá því, hvernig þessi mál stæðu. — Þetta er þá tilkynningin sem Alþýðublaðið kallar „hót- anir“ yðar? — Já, það hefir talið hent- ugt að nota það nafn. En eins og bréfið ber með sér, einkum niðurlag þess, er það sent til þess að koma í veg fyrir öng- þveiti vi*5 stjórnarskiptin. Bréfið sýnlr, að við ráðherrar Framsóknarflokksins munum fara frá völdum jafnskjótt og dagskrártillagan verður felld á Alþingi, og munum ekki undir nokkrum kringumstæðum gegna ráðherrastörfum til bráða- birgða. Þegar flokkarnír, sem að stjórnarskrárbreytingunni standa, vita þetta fyrirfram, er þeim í lófa lagið, að hafa til- búna nýja ríklsstjórn, um leið og þeir fella dagskrártillöguna. Bréf mitt er öryggisráðstöfun til að koma 1 veg fyrir, að þeir flokkar verði þá óundirbúnir að taka við stjórnarstörfum. Það er næsta broslegt að kalla þetta hótun, þvi vitanlega hefir Sjálfstæðisflokknum og Alþýðu- flokknum verið það fullljóst, að ráðherrar Framsóknarflokks- ins mundu ekki verða áfram i ríkisstjórn, ef sýnt er, að stjórnarskrárfrumfarpið á að ganga fram. Frumvarpið er lika beinlínis borið fram til þess að spilla stjórnarsamvinnunni. — Hefir Sjálfstæðisflokknum ekki verið IJóst fyrir löngu, að Framsóknarflokkurinn myndl hætta þátttöku í rikisstjórn, ef stjórnarskrárbreyting yrðl gerð með þessum hætti? — Jú. Sjálístæðismönnum hefir verið það kunnugt löngu áður en ég tilkynnti formanni flokksins það bréflega hinn 15. apríl. Þegar ráðið var fram úr þeim erfiðleikum, sem voru um síðastliðin áramót á sam- vinnu flokkanna um lands- stjórn, ræddi stjórnin ltarlega um alla þá erfiðleika, er gætu orðið til hindrunar samstarfi á næstunni. Þá voru samningar gerðir um afgreiðslu skatta- mála ög ýmissa fleiri mála, til þess að trygja samstarfið og verja það áföllum. Þá kom og í ljós, svo glöggt sem verða mátti, að Framsóknarflokkurinn myndi láta stjórnarskrárbreyt- ingu á þessum viðsjárverðu tímum, varða fullkomnum sam- vinnuslitum um ríkisstjórn. — Var þá nokkuð rætt um kosningaírestun? — Kosningafrestun var aldrei gerð að samningsatriði eða skil- yrði fyrir áframhaldandi stjórnarsamstarfi, þótt svo hafi verið skýrt frá í Alþýðublaðinu. Það var álitið sjálfsagt, eftir að ákveðið var að láta bæjar- stjórnarkosningar fara fram, að ekki yrðl frestað alþingiskosn- ingum nú i sumar. — Það er þvi á fullkomnum misskilningi byggt, að það sé eitthvað alveg nýtt, að kosningar eigi að fara fram í sumar. Allir flokkar hafa gert ráð fyrir alþingiskosning- um í sumar, og því hefir verið margyfirlýst af öllum flokks- blöðunum nú um margra mán- aða skeið. Það er llka auðséð, að hversu nauðsynleg sem kosningafrestun kynni að vera, þá er hún óframkvæmanleg með þeirri pólitisku aðstöðu, sem er í landinu, og eftir að farið hefir verið með kosninga- frestunarmálið á þann hátt, sem raun ber vitni um. — Hvað segið þér um stjórn- arskrárfrumvarpið sjálft? •— Um það hefi ég áður látið í ljós álit mitt. Frumvarpinu er varpað fram í þinginu gersam- lega undirbúnlngslaust. Það ber með sér öll einkenni handahófs- verks — á sjáanlega að vera „kosningaflesk" og ekkert ann- að. Það er tálbeita, sem borin er að vitum Sjálfstæðisflokks- ins og ætlazt er til, að hann gíni við, til þess að núverandi stjórn- arsamvinna spilllst. Ef þetta frumvarp á eftir að verða stjórnarskipunarlög fyrir land- ið, mun skapast fullkomið öng- þveiti í stjórnmálunum, Enginn skilji þó orð mín svo, að stjórnin, sem tekur við, geti ekki fyrst um sinn unnið þau ver k á viðunandi hátt, sem vinna þarf. Ég á við hitt, að þau stjórnarskipunarlög, sem þjóðin fær, ef frumvarpið öðlast laga- gildi, fela 1 sér þann sjúkdóm, sem ekki leiðir nema tll elnnar niðurstöðu. Valdataka karalN Hinum sogulegu málaferlum t Ríom frestað Merkilegustu tíðindi þessarar viku eru stjórnarskiptin í Vichy. Laval er nú orðinn forsætis- og utanrikismálaráðherra og raun- verulega æðsti maður rikisins, þótt Petain marskálkur beri enn titil rlkisleiðtogans. Darlan er farinn úr ríkisstjóminni, en verður áfram æðsti maður flot- ans, flughersins og landhersins. Það þykir augljóst mál, að Laval er kominn í stjórnina fyr- ir tilstuðlan Þjóðverja einna. Petain lét hann fara úr stjórn sinni haustið 1940, vegna þess, að hann var alveg á bandi Þjóðverja. Fyrst á eftir var La- val í einskonar útlegð í Paris og Petain vildi ekkert samneyti við hann hafa. Þjóðverjar hafa jafnan sótt fast, að Laval fengi aftur sæti i stjórninni, og nú loksins hefir Petain látið und- an. Þjóðverjar hafa áreiðan- lega beítt miklum hótunum. Laval hefir enn látið fátt Uppi um fyrirhugaða stefnu sína. Hann hefir aðeins lýst því takmarki sínu, að friðarsamn- ingur verði gerður milli Þjóð- verja og Frakka, en aðeins vopnahléssamningur er í gildi, og að kappkostuð verði góð sam vinna við Þýzkaland og Banda- ríkin. Bandamenn búast hinsvegar við hinu versta. Bretar hafa alltaf talið Laval fjandmann sinn. Brezk blöð óttast, að valdataka hans tákni algera samvinnu Frakka og Þjóðverja og franska flotanum verði nú beitt gegn Bandamönnum. Þau láta ennfremur þann ugg í ljós, að Japanir fái bækistöðvar á Madagaskar, en þaðan má gera innrás I Suður-Afríku. Banda- ríkjamenn gera Jafnframt lítið úr fyrlrheiti Lavals um vin- samlega sambúð. Má m. a. marka það á því, að þeir hafa kvatt heim Bandaríkjaþegna frá Frakklandi. Jafnframt hafa þeir kvatt heim sendiherra sinn í Vichy tíl þess að skýra frá ástandinu þar. Flest virðist benda til, að ótti Bandamanna sé ekki ástæðu- laus. Fái Þjóðverjar yfirráð yf- ir Tunis og franska flotanum, styrkist aðstað þeirra geysilega til Miðjarðarhafssóknar. Vegna þess, að Þjóðverjar leggja nú mikið kapp á slíka sókn, má gera ráð fyrir því, að fljótlega verði úr því skorið, hversu náin verður samvinna þeirra og Frakka á næstunni. Athygli vekur það, að eitt fyrsta stjórnarverk Lavals var að stöðva Riom-málaferlin gegn fyrri forráðamönnum Frakka, Daladier, Blum, Gamelin o. fl. Þjóðverjar munu hafa ætlast til, að þessi réttarhöld yrðu til að afsanna það, að þeir bæru ábyrgð á upptökum stríðsins. En hinir ákærðu, einkum Dala- dier, hafa varið mál sitt rösk- lega. Þjóðverjar bera einir á- Nýtt tmgmennaíélag í Reykjavík Stjórn U. M. F. íslands hefir sent blöðunum í Reykjavík á- varp, þar sem ráðgerð er stofn- un nýs ungmennafélags i höf- uðstaðnum. Verður stofnfundur félagsins haldinn í Kaupþings- salnum n. k. sunnudag 19. apríl, og hefst hann kl. 2 e. h. Ungmennafélögin eru einn hinn bezti félagsskapur, sem starfað hefir hér á landi. Þeg- ar þau hófu starf sitt laust eftir s. 1. aldamót, fór vakningar- alda yfir landið í margskonar menningu, og má áreiðanlega rekja margar framfarir, sem orðið hafa á íslandi síðustu (Framh. á 4. síðu) Daladier, sem sagði Þjóðverjum og Petain til syndanna { Riom. Málaferl- unum hefir þvi verið frestað. byrgð á þvi að styrjöldin- hófst, sagði Daladier í fyrsta réttar- haldinu og hélt áfram að rök- styðja þá skoðun sína, þótt dómstjórlnn segði honum að hætta. Ef hér á að ákæra menn fyrir lélegan viðbúnað hersins, sagði Daladier ennfremur, þá ætti Petain marskálkur að vera hér, en ekki ég. Hann var einn áhrifamesti maður herstjórn- arinnar til seinustu stundar, samþykkti allt, sem gert var, og hafði enga sérstöðu. Þegar ég tók við hermálaráðuneytinu 1936, var hernaðarframleiðslan í mestu niðurníðslu, en ég kom henni i það horf, að aldrei stóð á því að kröfum herstjórnar- innar væri fullnægt. Það er þannig fyrst og fremst henn- ar sök, að ekki var meira gert. Það er líka vltað mál, að her- stjórnin notaði hvergi nærri þann mannafla eða hergögn, sem hún hafði yfir að ráða, í orustunni um Frakkland. Mörg bezt æfðu herfylkin tóku aldrei þátt í orustum og mörg hundruð skriðdreka voru aldrei notaðir. Aðeins de Gaulle' stjórnaði skriðdrekasveitum með veruleg- um árangri. Mistök herstjórn- arinnar áttu meginþáttinn í ó- sigri Frakklands. Hafi nokkur maður lagt hart að sér til að efla hervarnir Frakklnds, þá er það ég. Ég hlaut fjandskap iðjuhölda og verkalýðssamtaka fyrir starf mitt á þvi sviðl. En sá árangur náðist líka, að hægt var að fullnægja kröfum her- stjórnar og ráðunauta hennar. Það er ekki mín sök, að kröf- urnar voru ekki meiri. — Blum talaði mjög á sömu leið. Hann taldi herstjórnina eiga mestan þátt 1 ósigri Frakk- lands. Nú er Riommálaferlunum frestað um óákveðinn tíma. Þau hafa borið annan ávöxt en Þjóð- verjar og frönsku hershöfð- ingjarnir, sem hafa hrifsað völdin, ætluðust til. Réttarsal- urinn í Riom var seinasti vett- vangurinn í Frakklandi, þar sem frjálsir Frakkar fengu að segja mál sitt óhindrað. Það reyndist valdhöfunum óþægi- legt. Þess vegna hefir honum verið lokað. Erlendar Sréttir Risaflugvélar amerlska flug- hersins hafa nú í vikunni flogið frá Ástralíu til árása á ýmsar bækistöðvar Japana á Filipps- eyjum. Árangurinn er talinn góður. Bretar halda áfram miklum loftárásum á Ruhrhéruðin og bækistöðvar Þjóðverja 1 Frakk- landi. Berggrav biskup hefir verið látinn laus úr íangabúðum Þjóðverja í Noregl. Von Rundstedt, einn helzti hershöfðingi Þjóðverja, er nú á eftirlitsferð í Frakklandi. Þykir Á víðavangi ÞAÐ ER EKKI GOTT AÐ KONAN SÉ EIN. Kvenréttindafélag íslands -70 meðlimir) og Kvenstúdentafé- lag íslands (10—20 meðlimir) hafa sent Alþingi mótmæli gegn þelrri hugrenningasynd Páima Hannessonar, að vilja reisa menntaskóla fyrir pllta í Skál- holti, en breyta Kvennaskólan- um í Reykjavík í menntaskóla og vandaða uppeldisstofnun fyrir stúlkur. Telja félögin, að með þessu sé skertur sá réttur, sem kon- ur hafi lögum samkvæmt um skólagöngu til jafns við karla. Virðast þær og hafa í huga orð ritningarinnar um það, sem guð hafi nú einu sinni sameinað, megi mennirnir ekki sundur- skilja. Eru kvenfélögin ákveðin móti þvl, að skólapiltarnir verði sendir til náms út úr bænum, en stúlkurnar látnar hýrast einar eftir við Tjörnina. Það er ekki gott, að konan sé ein. Fyrstar rlta þær undlr mót- mælin Laufey Valdemarsdóttir og Katrín Thoroddsen. EN ER GOTT, AÐ MAÐURINN SÉ EINN? Ekki var nú skaparinn á þeirri skoðun forðum daga, enda voru þelr kynbræður, hann og sá gamli Adam, að því er bezt verður séð af heimildum þeim, er geymzt hafa. Kemur þar fram hin fyrsta tilraun til að sniðganga kon- urnar, að Adam skyldi verða fyrsti ábúandl jarðarinnar. Ráðríki karlmannanna er þvi eldra en erfðasyndin. En hvað um það. Nú er þetta breytt. Afkomendur Adams eru svo miklir ættlerar, að þeir hafa engin karlréttindafélög til að mótmæla því, að þeir verði flæmdir úr Eden frá Evudætr- um og látnir hokra einir utan bæjar. Konumar verða að hafa vit fyrir þeim. SÉRA JAKOB OG BARNATÍMARNIR. Húsfreyja úr Norðurlandi, sem stödd er hér i bænum, snerl sér til Tímans I gær og kvaðst vilja mótmæla hinni ómaklegu hnútu, sem Morgunbl. væri að senda séra Jakob Jónssyni fyrir barnatíma hans. Á sínu heimili væru mörg börn og þeim þætti vænt um séra Jakob fyrir barnatímana eins og raunar ýmsa fleiri, sem skemmtu þeim. Þar sem hún þekkti til i nágrenninu, hefði hún orðið vör við hið sama. Það má vera, að sveitabörnin hafi ekki vit á þessu á borð við börnin í Reykjavík, og ekkl sé eíns vandgert við þau. Um það þori ég ekkert að fullyrða, en þau kunna þá heldur ekki að meta Morgunblaðið. ALÞÝÐUBLAÐIÐ MILLI VON- AR OG ÓTTA. Alþýðuþlaðið segir 1 niður- lagi forystugreínar sinnar i gær: „Menn biða úrslitanna 1 kjördæmamálinu milli vonar og ótta. Spurningin, sem nú er á allra vörum, er þessi: Stendur Sjálfstæðisflokkurinn við yfir- lýsta stefnu slna í réttlætismál- inu?“ Það er von að Alþýðublaðið spyrji. Skyldi því sjálfu finn- ast hvíla sú, er það býður Sjálf- stæðisflokknum að leggast 1 milli sín og kommúnistanna, svo girnileg? Og skyldi ekki margan Sjálf- stæðismann hrylla við óværð- inni í slíkri flatsæng? þetta benda til, að Þjóðverjar vilji vera viðbúnir ef Banda- menn freista innrásar á þess- um slóðum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.