Tíminn - 23.04.1942, Side 4
140
TlME¥N, fimmtudaglim 23. aprfl 1942
36. blað
tJR BÆNUM
Aðalfundur
Norrœna félagBlns var haldinn í
Oddfellowhúfiinu 1 íyrrakvöld. Stjórn
félagsins var öll endurkosin, en hana
sklpa: Stefán Jóh. Stefánsson form,
Guðlaugur Rósinkranz ritari, Jón Ey-
þórsson, Páll ísólfsson og Vilhjálmur
Þ. Gisiason eru meðstjórnendur. Rit-
arinn Guðl. Rósinkranz flutti skýrslu
um starfsemi félagsins á árinu. Þrátt
fyrir samgönguleysi vlð hin Norður-
löndin, vann félagið að ýmsum málum.
Meðal annars 'ndi það til þrlggja
skemmtifunda. Þar sem fluttir voru
fyrirlestrar og fræðsluerindi um Norð-
urlönd, sýndur forleikurinn að leik-
ritinu Gösta Berling, lesið upp, sungin
norræn lög o. fl. þá gekkst félagið íyr-
ir norrænum hljómleikum í Gamla Bió.
Pengu félagsinenn ókeypis aðgang að
þessum tónleikum enda var húsfyllir.
í ráði var að endurtaka hljómleikana
en húsið reyndizt ófáanlegt aftur, svo
að það fórst fyrir. Félagið hafði jóla-
dagskrá í útvarpinu á jóladaginn eins
og á siðastllðnu ári. Þá var hafin út-
gáfa nýs rits, sem félagið annast ein-
samalt, en áður haía félagsmenn feng-
ið . hið sameininlega ársrit Nordens
Kalender. Þetta nýja rit heltir ,JIor-
ræn jól“ og mun það koma út árlega
eftirleiðis. Ritari skýrði frá því, að
þann 17. maí myndi íélagið efna til
samkomu í Iðnó fyrir norska hermenn,
sem hér eru. Að lokum sagði ritarinn,
að þrátt fyrir samgönguleysið við
Norðurlöndin, myndi hvergi verða
slakað á um starfsemi félagsins heldur
myndi hún verða elfd svo sem auðið
væri. Pélagsmenn eru alls 1011. Sjóðs-
eignir félagsins eru 4500 krónur.
Barnadagurinn.
í dag er sumardagurinn fyrsti. Hann
er boðberi gróandans, sumarylsins og
hinna björtu nátta. Við þennan dag
er tengd heitari gleði meðal ungra og
gamalla en við nokkurn annan dag
ársins, en þó er sumardagurinn fyrsti
sérstaklega dagur æskunnar og barn-
anna. Hér í höfuðstaðniun hafa verið
gerðar ráðstafanir af hálfu þeirra
fuilorðnu til að helga börnunum þenn-
an dag. Nefnd manna hefir undirbúið
fjölbreytt hátíðahöld, sem eru til ágóða
fyrir margskonar aðhlynningar og
uppeldisstarfsemi bamanna í höfuð-
staðnum. Auk hátíðahaldanna verða
merki og ritið „Sólskin" selt á götun-
um og í húsum. Ef dæma skal eftir
viðtökunum, sem þessi starfsemi hefir
hlotið að undanfömu, þarf ekki að ef-
ast um að bæjarbúar opna dyr sínar
með glöðu geði fyrir bömunum og
„Sólskininu" í dag.
Gjöf til menntamálaráðs.
Menntarnálaráði barst nýlega svo-
hljóðandi bréf, undlrritað af hjónun-
um Sigriði Stefánsdóttur og Þorleifi
Gunnarsyni: — „Hér með leyfi ég
undirritaður mér, að ánafna, eftir minn
da«, (málverkasafni) listasafni rikis-
lns, málverk af Snæfellsjökli, málað
aí Jóhannesi KJarval, er mér var 'gef-
ið af starfsfólki mínu, á fimmtíu ára
afmælisdegi minum. Skal málverklð
vera í vörslum okkar hjónanna, á
meðan við lifum annað hvort eða bæði,
nema við ákveðúm að gefa það fyrr.
Við fráfall okkar (hjónanna) ber okk-
ar afkomendum að afhenda það taf-
arlaust (málvi_.„dsaíni) listasafni rík-
isins til fullrar elgnar og umráða,
enda verði það jafnan geymt i safn-
inu. Málverkið má ekki selja eða veð-
setja.“
61eðilegt snmar!
Sælgætis- og efnagerðin Freyja h.L
íslenzkar stúlkur
gfiltast her-
mönaum
í brezkum blöðum, sem eru
nýkomin hingað, er skýrt frá
því, að brezku hernaðaryfir-
völdin telji að 25 liðsforingjar
og óbreyttir hermenn hafi gifzt
íslenzkum stúlkum síðan ísland
var hernumið.
Stríð og friður
(Framh. af 1. síBu)
dæmi geti sigrað' stóran meiri-
hluta.
Framsóknarmenn hafa nú á-
stæðu tii að segja: Ef aðrir
flokkar sameinast um að búa til
svikamyllu til að skapa skipu-
lag eingöngu í því skyni að níð-
ast á Framsóknarmönnum, þá
neita þeir allri þátttöku
í samstjórn með þeim,
sem standa að þessu athæfi.
Ranglætið, sem á að beita, er
fordæmalaust og alveg óvenju-
lega iubbalegt. Þjóðinni er
boðið upp á tvennar kosnlngar
í vor og í haust. Ekki friðar-
kosningar, heldur með því hatri
og beiskju, sem Sjáifstæðis-
menn töldu að myndi drotna
í sál þeirra eftir bæjarstjórn-
arkosningar f vetur, ef vegið
hefði verið að þeim vopnlausum.
MbL segir í gær, að ef á ann-
að borð eigi að kjósa, þá megi
hafa kosningar eins og hér er
iýst. Þetta er rangt. Kosningar
til bæjarstjórnar Reykjavíkur
gátu verið undir þeim kring-
umstæðum, að raunverulegur
meirihluti hefði tapað leakn-
um, og fyllzt hatri og óvild til
þeirra, sem rangindin frömdu.
Stjórnarskrá Ásgeirs Ásgeirs-
sonar er eðlisverri heldur en sú
drengskaparlausa lausn bæjar-
stjórnarkosninga, sem AlþfL
boðaði f vetur. Hér er ekki
talað um ranglæti í eitt skipti,
heldur að gera siðleysið og rang-
indin að var'anlegu skipu-
lagi. Mbl. virðist undrast það,
að ef Sjáifstæðisfiokkurinn vill
nota lið Stalins til að búa þjóð-
inni stjórnarlög, þá er óvand-
ari eftirleikurinn. Það er frem-
ur óglæsilegt, að eiga að fagna
sumarkomu 1942, með því að
sjá framundan slysagjamasta
manninn á Alþingi, bera inn f
löggjafarsamkomuna arfahrúgu
til að kveikja í landinu ófriðar-
eld sambærilegan við þann, sem
slökktur var í vetur með skyn-
samlegu og drengilegu starfi
Framsóknarmanna í sambandi
við bæjarstjórnarkosningarnar
í Reykjavik.
Enn má vænta þess, að til
séu þeir menn í landinu, sem
ekki láta óvitana ráða fyrir
þjóðinni fremur en í átökunum
f byrjun yfirstandandi árs.
J. J.
Skrifstofa
Framsóknarflokkstns
er á Lindargötu 9 A
GLEÐILEGT SUMAR!
Qisli J. Johnsen.
GLEÐILEGT SLMAR!
Shlnnaverksmiðjan iðunn.
GLEÐILEGT SUMAR!
UUarverksmlðjan Frumtíðln.
1
l*\ GLEÐILEGT SUMAR!
I • Eimskipafélag tslands H. F. —u — u—u^u — u — u — u —u— u^u — u — o ■■■■■■ n — n — n—n — r.—«fr
❖-
§IGL1MGAR
milli Bretlands og Islands halda áfram,
eins og að undanfömu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Culliford & Clark Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
454
Vlctor Hugo:
Esmeralda
455
— Farðu til fjandans! hrópaði Claude
Frolla. — Hér eru síðustu skildingarn-
ir, sem þú færð frá mér!
Presturinn kastaði pyngju út um
gluggann. Hún lenti á enni Jóhanns.
Stúdentinn gekk á braut glaður og óá-
nægður i senn, eina g rakki, sem rétt
hefir verið kjötbein og rekinn síðan á
djn-.
IV. KAFLI.
Gleðin iifi!
Lesandinn hefir ef til viil ekki gleymt
þvi, að nokkur hluti Kraftaverka-
garðsins var umluktur hinum gamla
hringmúr borgarinnar. Um þessar
mundir voru nokkrir hinna fjölmörgu
turna hans teknir að hrynja. Einn
turna þessara hafði verið gerður að
skemmtistað umrenninganna. í kjall-
ara hans var veitingastofa og hvers
konar þægindi á efri hæðunum. Tum
þessi var umrenningunum hugþekkast-
ur samkomustaður. Þar var jafnan
miklð um að vera á nótt sem degi.
Dyr veitingastofunnar voru lágar og
tröppurnar ógreiðfærar. Yfir dyrunum
gat að lita skilti, þar sem gefið var til
kynna, að hér væri á boðstólum brauð
og nýslátrað hænsni ásamt áletruninni:
Aux sonneurs pour les trépassés.
Kvöld nokkurt, skömmu eftir að
kvöldklukkunum hafði verið hringt i
öllum klukknaturnum Parisarborgar,
hefði næturvörðurinn orðið þess var,
að eitthvað óvenjulegt var á seiði í veit-
ingastofu umrenninganna, ef hann
hefði lagt leið sína inn í Kraftaverka-
garðinn. Þar var drukkið fastar og haft
hærra en þó var venja. Utan dyra stóðu
hópar manna, sem ræddu saman 1
hálfum hljóðum, eins og mikilvæg
ráðagerð væri á dagskrá. Hér og þar
gat að líta tötralega menn og skugga-
lega brýna branda á steinbrúnlnni.
Inni í kránni var látið svo mikið yfir
spilum og vínföngum, að það hefði
reynzt erfiðleikum háð að glöggva sig
á, hvað taunverulega stóð til, þótt þess
hefði verið freistað. Hið eina, sem
komumaður hefði getað sannfærzt um,
var, að umrenningarnir voru i óvenju-
lega góðu skapi. Flestir þeirra höfðu
einhvers konar vopn með höndum. Það
blikaði á ljái, axir, sverðsblöð og bryn-
tröll.
Salurinn var mjög rúmgóður, en
borðunum var raðað svo þétt saman, og
gestirnir voru svo margir, að allt rann
þar saman I eltt: karliar og konur,
bekkir og bjórkollur, fólk að drykkju.
fólk í svefni og fólk við spil, hraust
fólk og örkumla. örfá kertaljós brunnu
Fjárpestirnar
(Framh. af 3. siBu)
fyrst, mætti ætla til þessa um
3 milj. kr.
Svuntuefni
Peysufatasatin
Peysufatafrakkaefni
Taftsilki
Kjólatau, allskonar
Gardínutau
Silkisokkar o. fl.
D yngja
Laugaveg 25.
Kopar,
alumlnium og flelil máimar
keyptir i -LANDSSMIÐJUNNI.
Vinnið ötullega fyrir
Tímann.
-GAMLA BtÓ ■
Draugaeyjan .
Amerisk kvikmynd með
BOB HOPE og
PAULETTE GODDARD.
Börn innan 12 ára fá ekki
aðgang.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
-NÝJA BÍÓ.
GÆFUBARNUD
(A Little Bit of Heaven)
Skemmtileg söngvamynd.
Aðalhlutverk leiku
GLORIA JEAN, ásamt
ROBERT STACK. NAN
GREY, BUTCH og BUDDY.
— Sýnd kL 7 og 9 —
Sýning kl. 5.
/Efintýri leikarans
(The Great Garrik)
Amerísk gamanmynd með
OLIVIA DE HAVILAND Og
BRIAN AHERNE.
— Síðasta sinn. —
Framsóknariélög
sem enn hafa ekki sent skýrslur, eru beðin að gera
það með fyrstu ferð,
Skrifstofa Framsókiiarflokksins
Lindargötu 9A
Gleðilegt
§nmar!
Samband ísl. samvínnuíélaga.
GLEÐILEGT SUMAR!
Klœðaverksmiðjan Gcfjun.
GLEÐILEGT SUMAR!
Sjóklœðagerð Íslands.
4.0
GLEÐILEGT SUMAR!
Kaffibœtisverksmiðjan Freyja.
°Ý
GLEÐILEGT SUMAR!
Sápuverksmiðjan Sjöfn.
GLEÐILEGT SUMAR!
B/f. Hampiðjan.
hs
SHIPAUTCEBÐ
MMUI.n
1
Gleðilegft sumar!