Tíminn - 14.06.1942, Blaðsíða 3

Tíminn - 14.06.1942, Blaðsíða 3
63. blað TÍMITVTV, snmnadagiim 14. jnmí 1943 247 Höfnin á Hornafirði Viðtal við Pálma Loftsson Eins og menn rekur vafa- laust minni til, strandaði „Esja“ á Hornafirði 17. maí. Hún náð- ist aftur á flot 23. f. mán Eftir að þessi atburður gerð- ist, hafa ýmsir menn með lít- inn velvilja eða skilning á sam- göngumálum dreifbýlisins, kraf- izt þess, að strandferðaskipin hættu að koma á Hornafjörð. Hefir þessi krafa m. a. komið fram í blaðinu „Þjóðólfur“ Viðkomur strandferðaskipa til Hornafjarðar eru ekki aðeins hagsmunamál nokkurra sveit- arfélaga, sem sækja þangað alla verzlun sína, heldur mikils hluta útgerðarinnar á Aust- fjörðum, sem flytur sig þangað yfir vetrarvertíðina. Það mun líka vera hægt með frekar litlum tilkostnaði, að halda höfninni á Hornafirði sæmilega öruggri. Ástæðan til þess, að Esja strandaði þar á dögunum mun fyrst og fremst hafa verið sú, að laus sandur hafði safnazt þar fyrir, en hon- um ætti að vera hægt að halda í burtu. Pálmi Loftsson forstjóri, sem fyrstur hóf áætlunarferðir stórra skipa til Hornafjarðar og vann að björgun Esju á dögun- um, er manna kunnugastur Handavinmisýning á Ljósavatni Um síðastliðin mánaðamót, efndu kvenfélagskonur í Ljósa- vatnssókn til handavinnusýn- ingar á hinu forna höfuðbóli, Ljósavatni. Þarna voru til sýnis nokkuð á annað hundrað munir, stórir og smáir, er annað hvort voru unn- ir á heimilunum eða í hús- mæðraskólanum að Laugum. Sýningin bar á sér öll merki fegurðar og fjölbreytni, enda höfðu þarna margar hendur lagt hönd á plóginn. Þarna voru munir eftir konur og karla, á ýmsum aldri, saumuð handavinna, smíðaýinna, leður- vinna og fl. Jafnvel blint fólk á níræðisaldri átti þarna sína handavinnu. Það er siður margra, að gala sem hæst um afturför heimil- isiðnaðarins hér á landi, hann tilheyri tímabili, sem sé löngu liðið, öðru vísi hefði það nú verið hér áður fyrr, og þar fram eftir götunum. En ef við lítum yfir hina stóru handa- vinnusýningu á Ljósavatni og gerum okkur einhverja sann- gjarna grein fyrir því, hversu geysileg vinna hlýtur að standa á bak við alla þessa sýningar- muni, þá sést greinilegast, að skoðanir þessara manna eru innantóm orð, og ekkert annað. Hún sannar, að til eru byggðar- lög, þar sem iðnaður heimil- anna stendur með hinum mesta blóma og fylgist fullkomlega með kröfum nútímans hvað með kröfum nútímans, hvað vísi. Húsmæðraskólinn að Laugum, undir forustu Kristjönu Péturs- dóttur, hefir haft mikil áhrif í þá átt að glæða heimilisiðnað i Þingeyjarsýslu, og á sýning- unni á Ljósavatni kom það greinilega í ljós, að þessi skóli hefir þegar lyft hiklu átaki i þessu efni, svo að glöggt mátti .sjá, að áhrifa hans hafði gætt á flestum bæjum, sem þarna áttu sýningarmuni. Slikar handavinnusýningar er fyrirhugað, að hver kvenfé- lagsdeild haldi innan sinna vé- banda hér í sýslunni, en síðan verður efnt til sýslusýningar í héraðsskólanum að Laugum síð- ar í vor. Slíkar handavinnusýningar ættu að vera sem oftast. Þær glæða félagslífið, þær eru lær- dómsríkar, þær vekja áhuga og menn skilja betur, hversu þýð- ingarmikill heimilisiðnaðurinn er fyrir hvert heimili, hvort sem er í byggð eða bæ. Það er alltaf gott að nema staðar og líta yfir, hvað unnizt hefir á undanförnum árum. Með því myndast aukin þekk- ing og áhugi fyrir hvaða máli sem er, og næstu sporin verða stærri. Finnur. þessum málum. Blaðamaður Tímans hefir því snúið sér til hans og fengið hjá honum þá umsögn, sem hér fer á eftir: — Ég var nokkra daga á Hornafirði, meðan verið var að ná Esju á flot. Komst ég þá að raun um, að bráðnauðsynlegt er, að gerðar séu talsverðar hafnarbætur þar. Þaðan munu hafa gengið í vetur um 30—40 bátar frá Austfjörðum og fjöldi útlendra og innlendra skipa, sem hafa tekið þar fisk til út- flutnings. Einnig er það vitað, að garðrækt hefir verið mjög mikil í Hornafirði að undan- förnu, svo að telja má, að Horn- firðingar hafi verið brautryðj- endur á því sviði, enda er mjög mikið flutt þaðan af kartöflum. Það er þess vegna alveg ófært, þegar svona mikið er þarna um að vera, að höfninni séu ekki gerð þau skil, að skip geti far- ið þar út og inn nokkurn veg- inn örugg. Það, sem mér sýnist að þyrfti að gera nú þegar, er að útvega nýjan hafnsögumann, sem tæki við af þeim, sem nú er, Birni Eymundssyni, sem er kominn hátt á sjötugs aldur og hefir viljað hætta fyrir nokkru, en ekki getað, vegna þess, að eng- inn hefir viljað taka við af honum. Þarf hinn nýi hafn- sögumaður að vera með Birni fyrst nokkurn tíma til þess að kynnast ósnum og straumnum þarna, því að kunnugri mann en Björn Eymundsson mun ekki vera hægt að fá í Hornafirði. Þá þarf að koma nýr hafn- sögubátur, stærri og kraftmeiri en sá, sem nú er. Einnig þurfa Hornfirðingar að eignast pramma með sanddælu, svo að hægt sé að halda opinni sigl- ingáleið fyrir báta að bryggjun- um. Rannsókn þarf að fara fram á því, hvernig haga skuli og framkvæma fyrirhleðslu milli nokkurra eyja, til þess að fyr- irbyggja framburð í höfnina og hvernig straumurinn í firðin- um verður bezt hagnýttur til þess að láta hann grafa upp siglingaleiðirnar. Má nærri geta, að þar er afl, sem hægt er að nota. Sést það ljósast á því, að hægt var að láta strauminn grafa Esju lausa á nokkrum dögum. Þessi hafnarmál Hornafjarð- ar eru svo þýðingarmikil fyrir stórt sveitahérað og útveg Austurlands, að ekki má lengur dragast að hefjast handa um endurbæturnar. VöruveltaKaupféL Stykkishólms nam 2,5 milj. kr. sl. ár Aðalfundur Kaupfélags Stykkishólms var haldinn í Stykkishólmi dagana 28. og 29. maí. Fundinn sátu 18 fulltrúar frá 10 félagsdeildum, stjórn félags- ins, annar endurskoðandinn, framkvæmdarstjóri félagsins og nokkrir gestir. Framkvæmdastjórinn, Sig- urður Steinþórsson, lagði fram reikninga félagsins og gaf yfir- lit yfir hag þess og rekstur á liðnu starfsári. Vöruvelta félagsins hafði aukizt mikið á liðnu ári, og nam í heild 2 i/2 miljón króna. Þar af voru gjaldeyrisvörur 1 y2 miljón, en aukning veltunnar, miðuð við árið 1940, nam um 500 þúsund krónum. Hagur við- skiptamanna hafði mjög breytzt til batnaðar. Innstæður við- skiptamanna á * félagssvæðinu námu um 500 þúsund kr. og hagur þeirra batnað gagnvart félaginu á liðnu ári um 318 þúsund kr. — Út á við hafði hagur félagsins minni breyting- um tekið, er stafaði af því, að það átti mjög miklar vörubirgð- ir um áramót, bæði óseldar gjaldeyrisvörur og aðkeyptar vörur. Hreinar tekjur félagsins voru rúmlega 56 þúsund krónur, en auk þess var varið til afskrifta IÓlafur I Audunnsson útvegsmaður Ólafur Auðunsson, útgerðar- maður í Vestmannaeyjum, var til moldar borinn í Vestmanna- eyjum á fimmtudag. Með hon- um er í val fallinn einn hinn gagnmerkasti af borguriun Vestmannaeyja, sem var hvort tveggja í senn hygginn athafna- maður, og áhugasamur for- göngumaður um félagslegar framkvæmdir í byggðarlagi sínu. Ólafur var fæddur að Torfastöðum í Fljótshlíð 29. maí 1879, sonur Auðuns bónda Jónssonar í Eyvindarmúla og Sólveigar Jónsdóttur. Hann fluttist til Vestmannaeyja skömmu eftir aldamót. Árið 1906 eignaðist hann hlut í vél- bát. Fer orð af því, hve afkoma vélbáta Ólafs eða báta þeirra, er hann átti hluti í, reyndist góð, en það var rakið til fyrir- hyggju Ólafs um mannaval og allan útbúnað bátanna. Sam- hliða útgerðinni lagði Ólafur mikla stund á jarðrækt og hin síðari ár rak hann einnig verzl- un, einkum með kol. Ólafur var ýmist stofnandi eða þátttakandi allra meiri- háttar félagssamtaka útvegs- manna í Vestmannaeyjum. Má þar til nefna Olíusamlagið, Lifrarsamlagið, ísfélag Vest- mannaeyja og Fisksölusamlag Vestmannaeyja. í bæjarstjórn átti Ólafur sæti mörg kjör- ' tímabil, og allt þar til í vetur, I er hann ákvað að gefa ekki kost á því að verða í kjöri. í bæjarstjórn lét hann sig flest I mál miklu skipta, en einkum mun hann þó hafa beitzt fyrir hafnarmálum Ey.janna, svo sem byggingu Básaskersbryggjunnar og dýpkun hafnarinnar. Þá átti hann sæti í fjárhagsnefnd öll hin örðugustu kreppuár, en þá reyndi ósjaldan á hyggindi og úrræðasemi þessa manns, sem af ýmsum eignum félagsins 23600 krónum. Ákveðið var að verja nettó- hagnaði þannig: 1% af vöru- veltu, 25000 krónur, var lagt í varasjóð samkvæmt ákvæðum Samvinnulaganna. Úthlutað var til félagsmanna 6% af á- góðaskyldri úttekt, og er sú upphæð áætluð um 27000 krón- ur. Skiptist þetta þaning, að 3% eru lögð í stofnsjóð félags- manna, en 3% útborguð eða færð í reikninga. í mennin^ar- sjóð K. St. voru lagðar 500' kr. Eftirstöðvar teknanna, um 3500 krónur, voru lagðar í verðfalls- sjóð. Félagið rekur hraðfrystihús, saumastofu og dúnhreinsunar- stöð. Líka hefir það 3 bíla í för- um og á m.b. Baldur að hálfu. Eru reéstursreikningar þessar- ar starfrækslu gerðir sérstak- lega. Yfirleitt gekk rekstur þessara fyrirtækja vel, og sum gáfu allverulegan hagnað, sem að mestu var varið til afskrifta. Úr stjórn félagsins gekk Jón V. Hjaltalin, bóndi í Brokey, og var hann endurkosinn. Stjórnina skipa: Hallur Kristjánsson, bóndi á Gríshóli, formaður, Stefán Jónsson, skólastjóri, Stykkishólmi, vara- formaður, sr. Jósef Jónsson, prófastur, Setbergi, Óskar Kristjánsson, bóndi, Hóli og Jón V. Hjaltalín, bóndi, Brokey. Fulltrúar á aðalfund S. í. S. voru kosnir: Óskar Kristjáns- son, bóndi, Hóli og Magnús Sigurðsson; verzlunarmaður, Stykkishólmi. ‘ hvarvetna vakti traust, þar sem eftir varð að leita. Ólafur var prýðilegum gáfum gæddur, svo sem málfar hans allt bar vott um. Hann var óá- leitinn, en þrautseigur, og þann- ig skapi farinn, að honum var óljúft að láta hlut sinn, eða hætta við hálfunnið verk. Ólafur var kvæntur Margréti Sigurðardóttur frá Syðstu- Grund undir Eyjafjöllum, hinni ágætustu konu, svo sem hún á kyn til. Var Margrét að koma frá því að fylgja móður sinni til grafar, kvöldið sem Ólafur , hafði veikzt snögglega af heila- blóðfalli, og lézt Ólafur um nóttina. Þetta var hinn 31. maí. Þau hjón áttu tvö börn, Kjartan, kvæntan Ingu Sæm- undsdóttur frá Garðsauka og Sólveigu, gifta Anders Bergsen Halls, útgerðarmanni í Vest- mannaeyjum. Hafa Vestmannaeyar misst einn sinna ágætustu borgara, við fráfall Ólafs Auðunssonar. G. M. Samband isl. snmvinnufélaqa. Höfum til ódýrar og góðar bólusetningingar- sprautur. <S» Frá liðnum árum (Framh. af 2. síöu) mestar fyrningar á vorin.“ — „Allt var kvalið, bæði menn og skepnur.“ — „Niðursetningarn- ir voru kvaldir. Þeim var, eins og hestunum, gefinn úrgangurinn úr matnum.“ Þessum áburði á látna sveit- unga mína mótmæli ég harð- lega sem hreinum ósannindum. Harðindavorið mikla 1882, misstu sumir bændur hér nokk- uð af ám, vegna heyskorts, en þá var Jón Eiríksson farinn héð- an úr sveitinni, svo að sá fellir hefir naumast getað ruglað minni hans. Við fleiri rangar frásagnir í bók þessari öenni ég ekki að eltast, þó að af nógu sé að taka. Ég er ekki sömu skoðunar og Jón Eyþórsson, að sögumaður og höfundur eigi þökk fyrir verkið. Ágúst Helgason. NIGLIMAR milli Bretlands og Islands halda áfram, eins og að undanfömu. Höfum 3—4 skip í förum. Tilkynningar um vöru- sendingar sendist Culliford & Clark Ltd. BRADLEYS CHAMBERS, LONDON STREET, FLEETWOOD. Kaupendur Tímans Nokkrir menn i ýmsum hreppum landsins eiga ennþá eftir að greiða Tímann frá síðastliðnu ári, 1941. Það er fastlega skorað á þessa menn, að sýna skilsemi sína sem fyrst með því að greiða blaðið annaðhvort beint til afgreiðsl- unnar í Reykjavík eða til næsta umboðsmanns Tímans. + ÚTBREIÐIÐ TÍMANN ^ Lísti Framsóknarflokksíns í Reykjavík er B*llStí Kosningaskrifstofa listans er í Sambandshúsinu 3. hæð, sími 3978. Framsóknarmenn, sesn farid úr bænum, munið eftir að kjósa hja lögmanni áður en þér farið. 554 Victor Hugo: Qeitin hafði alls ekki beðið þess, að Gringoire léti nafns síns getið. Hann var vart fyrr kominn inn í klefann, en hún tók að auðsýna honum alls konar vináttumerki. Gingoire endurgalt einn- ig atlot hennar. — Hver er með þér? spurði Tatara- stúlkan lágri röddu. — Vertu bara róleg! svaraði Grin- goire. — Þetta er vinur minn! Heimspekingurinn lagði ljóskerið frá sér á gólfið, settist á þrepskjöldinn og hrópaði frá sér numinn með Djali í örmum sér: — Ó, þetta er þakklátt dýr og áreið- anlega mun merkilegra fyrir þrifnað sinn en líkamsstærð. Djali er ráðkæn, bragðvís og lærð eins og málfræðingur! Hefir þú gleymt nokkrum af listum þínum, Djali mín? Hvernig gengur Jakob Charmolue? Svartklæddi maðurinn gaf Gringoire ekki kost á því að ljúka máli sínu, held- ur gekk rakleitt að honum og stjakaði duglega við honum. Gringoire spratt á fætur. — Það var alveg satt. Ég gleymdi því, að við áttum að hafa hraðann á. Það er nú samt sem áður engin ástæða til þess, herra minn, að berja mann svona óvægilega í bakið. Kæra, fagra barn! Þú ert í hættu stödd og Djali einnig. Esmeralda 551 blasti. Með hryllingi fleygði hann sér á kné, spennti greipar og renndi sjónum til himins. Og í sömu svifum greip hann óstjórnleg gleði. Hann stökk á fætur og hljóp af stað þangað, sem hann hafði falið Esmeröldu. Hann ætlaði að fleygja sér fyrir fæt- ur hennar, sem hann hafði bjargað frá bráðum bana í annað sinn. En þegar inn í klefann kom, var þar enga manneskju að finna. II. KAFLI. Gringoire og ókunni maðurinn. Þegar umrenningarnir hófu áhlaup- ið á kirkjuna, svaf Esmeralda. Háreystið umhverfis kirkjuna og jarmið í geitinni hreif hana þó brátt úr náðarörmum svefnsins. Hún reis upp í fleti sínu, hlustaði eftir hávað- anum og skyggndist um undrandi yfir ljósadýrðinni og skarkalanum. Því næst spratt hún á fætur og skundaði út úr klefanum til þess að komast að raun um, hvað um væri að vera. Við sjónum hennar blasti umrót torgsins, óskipulögð áhlaup múgsins, sem líktist helzt froskahópi í rökkrinu, og kyndlar á víð og dreif. — Henni var næst að ætla, að forynjur djöfulsins og steinmyndir kirkjunnar ættu í styrj-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.