Tíminn - 21.06.1942, Blaðsíða 2
Aukablað
TÍMIM, sunuudaginn 21. júní 1943
Aukablað
Titanlega ekki skýrt með öðru
en að nefna dæmi um fram-
komu mína i þessum efnum. En
þetta var einmitt það, sem Nor-
úal og lið hans vildi allra sizt.
Þeir vildu mega njóta þeirra
fjárhagshlunninda og allfjöl-
breyttu fyrirgreiðslu á þessu
sviöi, sem ég haíði staðið að, en
mega samhliða þvi ófrægja mig
fyrir að hafa fellt nokimð af
þeirri „bráð“, sem þeir vildu
„eigna sér“, og dregið nokkuð
af eldsneyti að þeím arni, þar
sem þeir vildu, að sið Fróðár-
drauganna, „verma sin hræ“.
Þegar gogn voru lögð á borðið
um vinnu mina við að stoina
menningarsjóð til eflingar hst-
um og visindum, endurvekja
þann sjóð, þegar aðrir höföu
gert hann að engu, brúa með
nokkrum hætti bilið milli Is-
lands og útlanúa fyrir þá, sem
vilúu af veikum eða miklum
mætti feta í spor sr. Matthias-
ar um ferðalög til andlegra að-
drátta, eiga þátt i að hrinda á-
leiðis margháttaðri húsagerð til
stuðnings og eílingar andlegu
lífi í landinu, auk margháttaðra
annara persónulegra fyrir-
greiðslna, þá stóð Nordal og hð
hans ekki aðeins orðlaust um
rök, heldur afhjúpað, sem af-
brýðissamir andlegir umkomu-
leysingjar á þeim vettvangi sem
um var deilt. Nordal finnur æ
glögglega Fróðárástand sitt og
sinna nánustu félaga, þegar
hann er búinn aö knýja fram
rök, sem bregða nokkuð annarri
birtu yfir pólitískar aögerðir til
framdráttar hstum og vísind-
um, heldur en hentugar eru fyr-
ir særöa vanmáttarkennd hans.
XV.
Næsti liður á dagsskrá Nor-
dals snertir pólitíska og flokks-
lega aðstöðu mína undangeng-
in 8 ár. Hann gefur J skyn, að
ég hafi alian þennan tíma setið
á svikráðum við ríkisstjórnina
í von um að geta fengið tæki-
færi til að útvega mér ráð-
herrastól. Hér er meir en litið
blandað málum. Frændi Nor-
dals, Jón Þorláksson, eyddi fjór-
um vikum af þingtímanum
1924, til að reyna að mynda
ráðuneyti, en mistókst það.
Hann vildi verða forsætisráð-
herra og lagði fram í þessu
skyni þá orku, sem í honum bjó.
Þegar þingflokkur og miðstjórn
Framsóknarflokksins skoraði á
mig, sumarið 1934, að freista að
mynda stjórn, lýsti ég strax yf-
ir, að ég myndi ekki gera það,
m. a. af því, að nokkrir leiötog-
ar þess flokks, sem Framsókn-
armenn urðu þá að starfa með,
vegna aðkallandi þarfa at-
vinnulífsins, báru til mín af-
brýðiskenndan öfundarhug.
Benti ég samherjum mínum á,
að heppilegra myndi, vegna
málefna þeirra, sem þurfti að
leysa, að fá í ríkisstjórnina
menn, sem ekki vektu afbrýði
óhjákvæmilegra samstarfs-
manna. Síðan átti ég mjög
verulegan þátt í að fá myndaða
þá stjórn, sem sat með nokkr-
um breytingum lengur en nokk-
ur önnur þingstjórn á íslandi.
Fyrstu þrjú árin var þessi stjórn
svo liðfá, að ekki mátti vanta
einn af stuðningsmönnum
hennar á þingfund, ef málin
áttu að geta lokizt. Hver einn
af stuðningsmönnum stjórnar-
innar gat fellt hana, hvenær
sem var, öll þessi ár. Fyrir les-
endur Tímans þarf ekki að taka
það fram, að í hín umræddu 8
ár, ritaði ég, án endurgjalds,
um það bil helming af því pólit-
íska efni, sem kom í aðalstuðn-
ingsblaði Framsóknarflokksins,
til framdráttar xíkisstjórninni
og málefnum hennar. Þegar
sýnt var, eftir kosningarnar
1937, að ráðuneytið frá 1934
hlyti innan skamms að stranda,
vegna veiklunar í Alþýðuflokkn-
um, beitti ég mér fyrir málefna-
samstarfi við gamla andstæð-
inga og andstöðuflokk. Upp úr
því myndaðist þjóðstjórnin,
sem stýrðí málefnum lándsins
í nálega þrjú ár, til mikillar
giftu fyrir land og þjóð. Saga
Nordals um stjórnmál undan-
genginna ára, er þess vegna
steypt í „Stormsmóti“, eins og
önnur samskonar ritverk hans.
XVI.
Þó undarlegt sé, lætur Nordal
koma í ljós einskonar áhuga
fyrir þrifum Framsóknarflokks-
ins og þykir ég hafa verið.þar
lélegur liðsmaður. Úr því hon-
um þykir máli skipta að ræða
þetta efni, vil ég leiða fram
nokkur vitni til fullra skýringa
1 málinu, og mun framburður
þeirra þyngri á metunum held-
ur en smjörlíkisþankar Nordals.
Sumariö 1934 lýstu fjórir aí
helztu leiðtogum Alþýðuflokks-
ins yfir, skriflega, og síðar í
bók, sem Héðinn Valdimarsson
ritaði um mig, að það væri mér
að kenna, að meginhlutinn af
Framsóknarmönnum væri ekki
nú þegar kominn í Alþýðu-
flokkinn. Þeir menn, sem vitn-
uðu á þennan hátt, höfðu lengi
verið í nábýli við Framsóknar-
flokkinn, og eiga að því leyti
að vera dómbærir um þetta mál-
efni. í bók sinni um mig, bætir
Héðinn Valdimarsson við frá
eigin brjósti, að ég hafi verið
svo eljusamur i vinnu minni til
framdráttar stefnu Framsókn-
armanna, að þrátt fyrir allt sem
hann hafi gert á árunum 1934
—37, til að hindra, að ég hefði
nokkur áhrif í Alþýðuflokkn-
um, þá hafi mér lánazt að ráða
þar mjög miklu, og að lokum
því sem mestu skipti, að fá hann
rekinn úr þeim flokki, sem hann
hafði lagt margra ára vinnu í
að gera að virki um persónu-
lega hagsmuni sína. — Eg skal
að vísu játa, að það hrós, sem
þessir fjórir leiðtogar Alþýðu-
flokksins bera á mig, er marg-
faldlega of mikið. En þar sem
þeir gefa þessa skýrslu í full-
kominni alvöru, og jafnvel í
nokkrum óvildarhug til mín, þá
verða orð þeirra ekki metin sem
rakalaust skjall. Ég hygg, að ef
dómur þeirra Jóns Baldvins-
sonar, Stefáns Jóhanns, Héðins
og Vilmundar, er færður í al-
mennt mál, þá sé hann nærri
því, sem almennt mun álitið, að
vinna mín að stofnun og við-
gangi Framsóknarflokksins
undangenginn aldarfjórðung
hafi verið mjög þýðingarmikil,
svo að það séu meiriháttar ó-
sannindi, þegar Nordal fullyrð-
ir, að flokkurinn hafi skaðazt
á störfum minum.
XVII.
Ganga Nordals hefir verið
þrep af þrepi niður á við. Að
lokum kom þar, að hann taldi
sig kominn 1 þau vandræði, að
hann hefði ekkert á að treysta
sér til bjargar, nema skóla-
göngu sína og námstitla. Þessi
hugsun kom fram í því formi,
að hann tók að ásaka mig fyrir
of litla skólagöngu, og alveg
sérstaklega fyrir að hafa ekki
gengið sama veg og hann. Nú
er það að vísu meir en rétt, að
skólaferill minn er ekki langur,
en margfaldur meiri hluti sam-
landa minna er líkt settur í
því efni, og hafa sumir jafnvel
setið enn skemmra á skóla-
bekknum. Þar sem Nordal „legg-
ur línuna“ með þessum hætti,
setur hann , sig sjálfan og fá-
eina stallbræður sína á aðra
hlið, en alla aðra íslendinga
hinu megin í heim hins al-
gerða menningarleysis. Það
vekur mestu furðu, að maður,
sem er jafn haldinn af þóknun-
arsýki eins og Nordal, ' skuli
kasta yfirlætishanzka sínum á
þann hátt framan í nálega alla
samborgara sína. Hér var um að
ræða yfirsjón í vinnubrögðum,
hliðstæða þeirri, þegar mynd-
gerðarmennirnir, sem þráðu
allra mest, að margir menn
kæmu að kaupa dýrum dóm-
um þeirra ófullkomnu myndir,
sögðu í gremjukasti, að allir
hinir væntanlegu kaupendur
hefðu ekki fremur vit á list
heldur en ólæs maður á bók-
menntum.
Sigurður Nordal kemst að
þeirri niðurstöðu, að mér sé illa
við stúdenta. Þá vantar skýr-
ingu á því, hvers vegna ég hefi
sýnt mun meiri umhyggju fyrir
stúdentum heldur en Nordal
sjálfur. Hann veit vel, að hvorki
hann eða þeir menn með stúd-
entsprófi, sem gegnt hafa emb-
ætti kennslumálaráðherra hafa
sýnt menntaskólanum í Reykja-
vík nokkra umönnun. Þeirra
vegna hefði berklaveikin enn
getað blómgazt í menntaskól-
anum. Þeirra vegna hefðu
blautu fötin nemendanna enn
verið hengd upp við vitin á
nemendum í kennsluherbergj -
unum. Þeirra vegna hefði með-
hald með ofdrykkju enn lifað
góðu lífi í menntaskólanum,
eins og þegar flestir kennarar
skólans skrifuðu undir brenni-
vínsskjalið fræga, skömmu eft-
ir að Nordal var þar lærisveinn.1
Að öllum líkindum finnur
Nordal, að það sé nokkrum erf-
iðleikum bundið, að samræma
vinnu mína fyrir endurreisn
norðlenzka menntaskólans við
þann fjandskap, sem hann vill
láta mig bera til stúdentsmennt- ■
unar. A þeim árum voru það
einmitt stéttarbræður Sigurðar,!
sem spilltu fyrir því nauðsynja- j
máli. Mestu fjandmennirnir
voru sálufélagar og námsbræð-
ur Nordals. Þeir vilúu einoka
stúdentsprófið fyrir þrönga
klíku tiltekinna sérhagsmuna-
manna. Nordal veit, að hann
var þýðingarlaus maður í þessu
stórmáli, en að ég átti veruleg-
an þátt í að brjóta þann hring
sem vanmenntaðir og þrótt-
lausir hnignunarpostular höfðu
slegið um leiðina. að fast-
launuðum ríkisembættum. Það
er sennilega óþarfi að angra
Nordal með því að benda hon-
um á, að ef ekki hefði notið við
annarra vinnu en hans, myndi
hann sitja enn sem óvelkominn
leigjandi með lærisveinahóp
sinn í herbergjum, sem Alþingi
mátti ekki án vera.
Nordal er slysinn maður.
Hvers vegna þurfti hann að
gera tvennt í einu: Að cpin-
bera öllum landslýð þann inni-
byrgða námstitlagorgeir, sem
þrengir að sál hans og byrjar að
ásaka þann mann fyrir óvild til
stúdentsmenntunar, sem hefir
ómótmælanlega haft meiri á-
hrif til eflingar þeirri tegund
skólagöngu, heldur en öll breið-
fylking Nordals á smjörlíkisvíg-
vellinum.
XVIII.
Ég hefi nú frestað að gefa
samandregið yfirlit um gang
deilumálsins. Rætur þess liggja
í ‘erlendum áhrifum, sem um
nokkurra ára bil hafa leitazt
við að slíta þróunina í bók-
menntum og listum hér á landi.
Fyrst er sótt að elztu og yngstu
listamönnunum, sem leggja
stund á að sýna fegurð en ekki
ljótleika. En eftir að mennta-
mál er stofnað, og einkum eftir
að Nordal hættir að starfa þar,
finna hin sjúku aðkomuöfl, að
menntamálaráð er hindrun á
leið þeirra. Hatur þeirra á
menntamálaráði vex, þegar
Þjóðvinafélagið og menningar-
sjóður taka höndum saman og
hefja víðtækt starf til að
koma upp hlutlausum, vönduð-
um bókasöfnum á sem allra-
flestum heimilum á landinu.
Auk hins beina gagns að þeirri
bókasafnsmyndun, var með
þessari framkvæmd settur slag-
brandur fyrir þá þróun, sem
leiguþjónar hins útlenda valds
stóðu að með útgáfu erlendra
undirróðurs- og byltingarrita.
Hér er þess vegna um að ræða
stórfelldan stefnumun í þýð-
ingarmiklum átökum í andlegu
lífi þjóðarinnar. Hér er um að
velja, hvort á að slíta með öllu
sundur þráðinn í þjóðmenningu
íslands eða láta hið nýja þrosk-
ast á grundvelli hinnar alda-
gömlu þjóðmenningar. í öðru
lagi er barátta um það, hvort
nú eigi að tigna ljótleikann i
stað fegurðarinnar.
Hér er þess vegna um raun-
verulega innrás eða herferö að
ræða, og nú er • lokið mikils-
verðum kafla hennar. Alþingi
hefir vísað á bug öllum tillög-
um hins erlenda áróðurslýðs,
þar sem þeir hafa viljað taka í
sínar hendur vald yfir fram-
kvæmdum ríkisvaldsins í þessu
efni. Tilraun sú, sem Sigui'ður
Nordal gerði, að gefa einum
færasta listamanninum vald til
að velja sjálfur úr verkum sín-
um í listasafn landsins, endaði
með þeim hætti, að málarinn
afhenti þjóðfélaginu mynd, þar
sem ung og saklaus stúlka horf-
ir hugfangin á flegið naut, þar
sem megináherzla er lögð á að
sýna kynþroska þess. Þegar þar
bættist við, að þrír málarar, sem
ekki eru sendibréfsfærir, tóku
að rita Alþingi bréf, sem var
fullt af heimskulegum þekk-
ingargorgeir og ósæmilegum og
bjánalegum árásum á menn-
ingu borgaranna í landinu, þá
var búið að fullsanna, að ekki
kæmi til mála, að ríkið afhenti
slíkum mönnum rétt til forustu
og framkvæmdir um nokkra
tegund mannfélagsmála.
XIX.
Þegar hið nýskipulagða inn-
rásarlið hafði hafið sókn í vetur
sem leið, þótti mér rétt, að
glögglega kæmi fram hver
þróttur væri i liðsafla þessum.
Skjal hinna 66 var að engu
haft. Allur þorri þeirra fyrir-
varð sig út af frumhlaupinu.
Milli állra þessara manna, sem
ekki eru skipulagðir kommún-
istár, er ekkert band er tengir
þá saman, miklu fremur sam-
keppni og afbrýðisandi. Enginn
þeirra hefir reynt að standa
fyrir máli sínu opinberlega, ef
undanteknar eru fáeinar við-
vaningslegar stílæfingar í fúk-
yrðum. Langflestir undirskrif-
endur voru lokkaðir eða þrýst
með persónulegum áróðri til að
vera með, af því þeir væru í fé-
lagi með öðrum, sem væru óá-
nægðir. Bandalagið skildi vel,
hvert straumurinn hafði borið
þetta styrjaldarmál í vetur,
þegar enginn maður hreyfði
„stríðsmálefnum“ á aðalfundi
þess.
Mér var vel ljóst, að megin-
hluti þeirra manna, sem kallað
var að tækju þátt í ófriði gegn
menntamálaráði, voru lítt færir
til að standa fyrir máli sínu op-
inberlega. Eg valdi andstæðing-
unum talsmann, þann sem frá
almennu sjónarmiði var talinn
færastur til að verja málið:
Baráttuna fyrir ljótleikanum.
Auk þess var þessi maður, Sig-
urður Nordal, einskonar fram-
kvæmdastjóri hjá fésterkasta
stuðningsmanni þessara nýju
vinnubragða. Þessi talsmaður
hefir nú fengið að tala. Ásak-
anir hans hafa verið teknar til
meðferðar. Sókn hans á
menntamálaráð hefir orðið að
engu. Sakir þær, sem hann bar
á menntamálaráð um ranga
endurskoðun, reyndust að vera
ósannar, að því er snerti nú-
verandi menntamálaráð, en
sannar sem sök á hendur hon-
um sjálfum, þegar hann var
formaður þessarar nefndar.
Talsmaður Innrásarliðsins
gafst strax upp, að því er snerti
málefnaumræður, alveg eins og
viðvaningarnir sem höfðu sagt:
„Vér aleinir vitum“. Þá snerist
Sigurður Nordal að mér með
persónulegri ádeilu. Ég hrakti
jafn óðum hvern lið og gerði
vörnina að sókn. Jafnskjótt og
Nordal hafði verið hrakinn úr
einni aðstöðu, hrökk hann til
baka, og kom með nýjar skrök-
sagnir, sem allar hafa farið
sömu leið. Ég hefi látið verkin
tala og í hvert sinn hefir hin
þróttlausa árás Sigurðar endað
í fullkominni uppgjöf. Málefna-
lega er þess vegna fullgengið
frá innrásarliðinu. Ósigur þess
er algerður og fullkominn, svo
að ekki verður á betra kosið frá
þeirra hálfu sem sótt var að.
XX.
Sigurður Nordal hefir skotið
persónu sinni nokkuð fram fyrir
fylkingar, og þykir ekki rétt að
skilja til fulls við þetta mál, án
þess að gera honum nokkur skil
um það efni. Menn vissu, að
hann var gæddur góðum náms-
gáfum, og margir , samlandar
hans hafa í lengstu lög viljað
vona, að eftir hann gæti legið
nokkurt þjóðnýtt starf. Smátt
og smátt hafa þessar vonir
verið að minnka. Hann hefir
verið starfslaus í starfinu. Hann
átti að vera rithöfundur í ís-
lenzkri bókmenntasögu, en þar
er uppskeran tæpast sýnileg.
Hann átti að verja helgi tung-
unnar. En hann lætur viðgang-
ast mótmælalaust, að tvenn rétt
ritun sé lögheimiluð samtímis á
vegum þjóðfélagsins. Hann hef-
ir verið svo hirðulaus um móð-
urmálskennsluna í háskólanum
og vaxandi framburðarspillingu
í landinu, að Alþingi hefir orð-
ið að skerast í leikinn og leggja
háskólanum til vel hæfan
mann, vegna nemendanna, og
veita öðrum mönnum fé til að
standa fyrir nýrri sókn um
réttan framburð móðurmálsins.
Eftir að sorpbókmenntir tóku
að dafna hér undir verndar-
væng bolsévika, brást Nordal
skyldu sinni um eðlilegar varn-
arráðstafanir og varð síðar
einskonar starfsmaður hjá því
fyrirtæki, sem mest var liaft
fyrir sökum. Hans nánustu sam-
starfsmenn afþökuðu í haust
sem leið þýðingu Sveinbjarnar
Egilsonar á Odysseifskviðu og
sjálfa Laxdælu. Nordal studdi
þetta að einhverju leyti, a. m.
k. afbökun Laxdælu. Þingið tók
þá í taumana, eftir bendingu
menntamálaráðs, og lét varða
hegningu að gera skrílútgáfu af
fornritunum.
XXI.
Ástæðan til þess, að Nordal
stendur nú svo illa að vígi,
sem raun ber vitni um, er van-
menntun hans um mörg hin
þýðingarmestu atriði. Hann
lifir af að skrifa, en kann þó
ekki að skrifa. Af bláberum
viðvaningshætti játar hann á
sig ótilneyddur, að hann sé því-
líkur úrvalsrati í félagsmálum,
að hann hafi gengið í flokk, af
því að honum þótti naínið
fallegt. Auk þess vissi hann
ekki, að flokkurinn stefndi að
því að gera landið frjálst, en
sjálfur vill hann halda því undir
dönsku valdi. Samskonar
þroskaleysi kemur fram í því,
þegar hann segir, að menn sem
vita að Taine og Ruskin voru
miklir listfræðingar, en ekki
listamenn, hljóti að þykjast
jafn snjallir þessum fræði-
mönnum. Eftir sömu reglu ættu
alir, sem vita að Kristur var
mikill spámaður og spekingur,
að þykjast honum jafn snjallir.
Hann virðist ennfremur líta svo
á, að af því að dr. Páll Eggerrt
hefir ritað um Jón Sigurðsson,
þá þyrfti hann þess vegna að
líkjast Jóni í einu og öllu. En
mest er þó sú vöntun Sigurðar,
að hann heldur að rætin ó-
sannindi um andstæðinga séu
jafn sterk gögn í máli eins og
málefnaleg rök.
Frumástæðan til vanmáttar
Nordals er einmitt sú skóla-
ganga hans, sem hann telur
vera sinn höfuðkost. Þegar hann
gekk í Reykjavíkurskóla, var
þar óöld mikil. Piltar gerðu
uppreisn móti rektor og hröktu
hann frá starfi. Auk þess hrintu
þeir og óvirtu kennara sina
á margan hátt. Sprengi-
efnum var komið fyrir í skóla-
húsinu, og var tilviljun ein, að
fólk var ekki drepið með þess-
um illvirkjum. Nordal mun að
vísu hafa skort kjark til að taka
beinan þátt í þessum róstum,
auk þess sem þær gáfu sýnilega
engan fjárhagslegan arð. En
eitrað andrúmsloft skólans
náði til allra. Það kældi og eyddi
hugsjónum. Það var óvenjulega
vel falið til að skapa í brjóstum
nemenda kalda, persónulega
eigingirni og fyrirlitningu á
óeigingjörnum hugsjónum. —
Frammistaða Nordals, löngu
síðar, gagnvart Einari Kvaran,
þegar hann óttaðist, að þetta
skáld kynni að fá óvenjulega
viðurkenningu erlendis, var
einskonar áframhald af mann-
hatursaðgerðum skólapilta í
Latínuskólanum, þegar Nordal
var að drekka í sig áhrif þeirr-
ar stofnunar eins og hún var þá.
Tiltölulega snemma fékk
Nordal einkennilega, en tæp-
lega vel heilbrigða aðdáun á
Jóni Sigurðssyni. Kjarkur og
óeigingirni Jóns var fullkomin
andstæða við hina linu og eig-
ingjörnu sérhyggju Nordals.
Hann taldi sig með nokkrum
hætti setjast í sæti Jóns, sem
vörður íslenzkra fræða í þeirri
stofnun, sem kennir sig við Jón
Sigurðsson. En Nordal var betta
ekki nóg. Hann lagði mikla
stund á að eignast stól, sem
forsetinn hafði setið í. Maður-
inn, sem hafði mótast í sprengi-
lofti Reykjavíkurskólans, áleit
að hann gæti með einshvers-
konar töfrakrafti öðlazt þrek
og manndyggð Jóns Sigurðs-
sonar með snertingu við sæti
hans. En alveg eins og andi Jóns
Sigurðssonar kemur ekki í Al-
exander Jóhannesson með gull-
keðju þeirri, sem Guðbrandur
Jónsson „doktor frá Greifs-
wald“ hengdi um háls hans,
þannig hefir orðið bið á því, að
manndómur Jóns Sigurðsson-
ar hafi borizt til Sigurðar Nor-
dals með hinum fágæta stól.
Þvert á móti hefir Nordal gert
meginafglöp ævi sinnar í hinu
dýrmæta sæti. Þaðan lagði hann
á sig fjötur norsku útlegðar-
innar, þaðan eyðilagði hann
bókaútgáfu menntamálaráðs
1928-31, þaðan flúði hann skiln-
aðarflokkinn með fallega nafn-
inu, þaðan sendi hann innlim-
unarávarp sitt til Sigurðar
Eggerz, þaðan réðist hann í af-
brýðislund á Einar Kvaran,
þaðan lét hann frá sér fara
sáttmálann við bókaútgáfu
kommúnista, sem skapar hon-
um útlegð innanlands, þaðan
leggur hann upp í leiðangra
sína í útvarpið, til að tala um
Afmæli.
Jón Jónsson, bóndi í Þjórsár-
holti í Gnúpverjahreppi, átti
nýlega 65-ára afmæli. Hann er
fæddur 27. maí 1977 að Minna-
Núpi í Gnúpverjahreppi og ólzt
þar upp hjá foreldrum sínum,
Margréti Jónsdóttur og Jóni
Jónssyni, bróður Brynjólfs
fræðimanns. Systkinin voru
átta og efnahagur mjög þröng-
ur. Jón missti föður sinn árið
1901 og varð þá að taka við for-
stöðu búsins með móður sinni,
því að hann var elztur systkina
sinna. Þrjátíu ára gamall reisti
hann bú í Þjórsárholti og
kvæntist það vor Helgu Ste-
fánsdóttur frá Leirubakka í
Landssveit, af Víkingslækjar-
ætt.
Þau hjón hafa nú búið í
Þjórsárholti í 35 ár samfleytt
og búnazt vel. Þau eiga sjö börn,
sem öll eru upp komin, þar af
eru fjögur að mestu leyti heima
við.
Þjórsárholt er ekki stór jörð,
en vel setin. Þegar Jón kom
þangað, fékk hann 130 hesta af
túninu fyrsta sumarið.
Nú er venjulegur töðufengur
um 500 hestar.
Jón er maður fríður sýnum,
ágætlega greindur og góður bú-
þegn. Hann ólzt upp á þeim
árum, er skólaganga stóð lítt til
boða fátæku sveitafólki. En
hann átti til greindra að telja,
enda skrifar hann ágæta rit-
hönd, sem mun sverja sig í ætt
við Brynjólf föðurbróður hans.
Þá átti hann og góðan ná-
granna, þar sem var séra Valde-
mar Briem, er kenndi honum
undir fermingu.
Jón er einn af þeim mönn-
um, sem eru traustir hornstein-
ar í stétt sinni, sveit sinni og
þjóðfélagi í heild.
Þeir gera skyldu sína og eru
öllum góðir, mönnum og mál-
leysingjum.
Með kyrlátu æfistarfi vernda
þeir þjóðarmeið íslendinga.
dauðann og eilífðina, þegar
hann veit, að hinir „fáfróðu“
landar hans fordæma hann fyr-
ir skóladrengj apör í mannfé-
laginu. Og úr þessum stól send-
ir hann skæting til þeirra, sem
hafa aukið veldi Þjóðvinafé-
lagsins, sem stofnað var til
stuðnings við málefni Jóns Sig-
urðssonar fyrir það eitt, að hafa
tífaldað viðskiptamannatölu
þess á einu ári.
Það urðu Slgurði Nordal all-
mikil vonbrigði, þegar hann
fann, að það þótti lítill vegs-
auki fyrir hann að gerast for-
málaritari bolsévikaútgáfunnar
hér á landi. Honum mun verða
það enn meiri vonbrigði, þegar
hann sér og skilur til fulls, að
hann situr ekki í gullstól, og að
jafnvel stóll Jóns Sigurðssonar
gefur honum ekkert af hinum
fágætu eiginleikum forsetans.
En allramest vonbrigði verða
honum sennilega að vita, að
hann kann ekki að skrifa, að
hann hefir á þeim vettvangi
verið hrakinn stig af stigi, unz
hann hefir hvergi fótfestu.
Liðsafli hans er sundraður og
málsstaður sá, sem hann tók að
sér að verja: trúin á ljótleik-
ann, er nú hafður í háði og
spotti um allt land. Þetta eru
raunaleg herferðarlok. En það
mætti vel verða ungum mönn-
um til viðvörunar, að það.nægir
ekki að eignast stól Jóns Sig-
urðssonar, til þess að verða
maður að meiri. Hver maður
verður að smíða sinn eigin
stól. Jafnvel stóll hinna fræg-
ustu hetja verður gagnslaus
fyrir þann mann, s em hefir
sviðið vængi æskuhugsjónanna
í brunarústum sjúkrar, per-
sónulegrar eigingirni. J. J.
/