Tíminn - 09.07.1942, Síða 1
< RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
BDDUHtTSI, Llndaigötu 9 A,
Slmar 2353 og 4373.
AFGRKIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝBINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A.
Síml 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA hJT.
Slmar 3948 og 3720.
26. ár.
Reykjavík, fimmtndagiuu 9. júlí 1942
76. blað
Múlasýslur hafa pcgfar hafnað mínníhlutaplngfmönnunum
Forvígisilokkar kjördæmabreytingarinnar
haia tapað iylgi í stórum stíl í kosníngunum
Alpýðuflokkurinn, sem átti frumkvæðið að stjórnarskrárflaninu,
hefir beðið meiri kosningfaósigfur, en dæmi eru til hér á landi
Bjarni Bjarnason,
sem vann Snæfellsnessýslu frá
Sj álf stæðisflokknum.
Sveinbjörn Högnason,
sem vann Vestur-Skaptafells-
sýslu frá Sjálfstæðisflokknum.
í p r ó tt a skól amim
að Laugfarvatni
sagft upp
Hefir útskrífað 48 nem-
endur á 10 árum
íþróttaskólanum að Laugar-
vatni var sagt upp síðasta júní.
í vetur voru 6 nemendur á skól-
anum, þar af tvær stúlkur. Af
stúlkunum hlaut Sigríður Val-
geirsdóttir frá Reykjavík hæstu
einkunn. Hún er félagi í Glímu-
félaginu Ármann. Af piltunum
varð hæstur Pétur Stefán
Kristjánsson frá Húsavík. Aðrir
nemendur voru: Bjarni G.
Bakkmann, Borgarnesi, Gutt-
ormur Sigurbjörnsson Gilsár-
teigi, Kári Steinsson Neðra-
Ási Hjaltadal og Sigríður Guð-
jónsdóttir Eyrarþakka.
íþróttaskólinn hefir starfað í
10 ár undir stjórn Björns Jak-
obssonar og á þeim tíma braut-
skráð 48 nemendur.
í ráði er að skólinn taki til
starfa undir nafninu íþrótta-
kennaraskóli íslands og starfi
hér eftir samkvæmt lögum, sem
samþykkt voru um þá stofnun
á síðasta Alþingi.
í heimboði Þingf-
eyingfa
Nokkrir Þingeyingar gerðu
Einari Jónssyni myndhöggvara
og konu hans boð til þriggja eða
fjögurra vikna ferðar og dval-
(Framh. á 4. síOu)
w
Urslít í kaupstöðum
í kaupstöðunum hefir fylgis-
hrun Sjálfstæðisflokksins orðið
mjög mikið. í þingkosningunum
1937 fær Sjálfstæðisflokkurinn
þar 13.701 atkv., en nú 11.959
atkv. Hann tapar því 1742 atkv
Alþýðuflokkurinn fékk 1937 i
kaupstöðunum 6659 atkv., en
fær nú 5585 atkv. eða nær 1100
atkv. færra. Hins vegar hafa
Framsóknarflokkurinn, og þó
einkum Kommúnistaflokkur-
inn unnið á. Framsóknarflokk-
urinn fékk 1937 í bæjunum 1640
atkv., en fær nú 2005 atkv. eða
365 atkv. fleira. Kommúnista-
flokkurinn fékk 1937 í kaup-
stöðunum 3904 atkv., en fær nú
6837 atkv. eða nær 3000 atkv.
fleira.
Hér fara á eftir úrslit í ein-
stökum kjördæmum. Atkvæða-
tölurnar frá kosningunum 1937
eru tilgreindar innan sviga:
Reykjavík.
Kosningaúrslitin í Reykjavík
urðu þessi:
Sjálfstæðisflokkurinn 8801
(10.026) atkv., Kommúnista-
flokkurinn 5335 (2718) atkv., Al-
þýðuflokkurinn 3319 (4135) at-
kv,. Framsóknarflokkurinn 905
(1047) atkv., Þjóðveldismenn
618 atkv. og listi Sigurðar Jón-
assonar 103 atkv.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 3
þingmenn kosna, kommúnistar
2 og Alþýðufl. 1. Sjálfstæðisfl.
hefir því misst eitt þingsæti til
kommúnista.
Sjálfstæðisfl. hefir tapað 1225
atkv. frá því í seinustu þing-
kosningum,þrátt fyrir öllu meiri
þátttöku nú. Alþýðuflokkurinn
hefir tapað 816 atkvæðum og
Framsóknarflokkurinn 142 at-
kv. Kommúnistar hafa unnið
1617 atkv.
íhaldsblöðin skrifa mjög um
tap Framsóknarfl. í þessari
kosningu. Þó er tap hans hlut-
fallslega sízt meira en hjá Sjálf-
stæðisflokknum.
Hafnarfjörður.
Kosningu hlaut Emil Jónsson
(A) með 933 (935) atkv., Þor-
leifur Jónsson (S) fékk 756
(996) atkv., Sigríður Sæland (K)
fékk 160 (6) atkv. og Jón Helga-
son (F) 45 (7) atkv.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
tapað 240 atkv. og misst þing-
sætið.
ísafjörður:
Kosinn var Finnur Jónsson
(A) með 667 (754) atkv., Björn
Björnsson (S) fékk 433 (576)
atkv., Sigurður Thoroddsen (K)
fékk 214 (18) atkv. og Guð-
mundur I. Kristjánsson (F) 39
(8) atkv.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
tapað 140 atkv. og Alþýðufl. 87
atkv., þrátt fyrir svipaða kosn-
ingaþátttöku og síðast.
Akureyri:
Kosinn var Sigurður Hlíðar
(S) með 1080 (913) atkv., Vil-
hjálmur Þór (F) fékk 902 (528)
atkVi, Steingrímur Aðalsteins-
son (K) fékk 650 (639) atkv.)
og Jón Sigurðsson (A) 214 (258)
atkv.
Framsóknarflokkurinn hefir
bætt við sig 374 atkv. og Sjálf-
stæðisfl. 167 atkv., en a. m. k.
Kosningaúrslitin eru nú kunn að mestu. Framsókn-
arflokkurinn hefir stórum aukið fylgi sitt, en báðir for-
vígisflokkar kjördæmabreytingarinnar, Alþýðuflokkur-
inn og Sjálfstæðisflokkurinn, hafa stórtapað, þótt þeim
hafi tekist með öflugri kosningasamvinnu í nokkrum
kjördæmum að hindra það, að Framsóknarflokkurinn
fengi stöðvunarvaldið. Einkum hefir Alþýðuflokkurinn,
sem fyrstur hóf máls á kjördæmabreytingunni, fengið
ómilda útreið í kosningunum og verður þess skammt að
bíða, að lokið sé áhrifum hans í íslenzkum stjórnmál-
um. Hinsvegar hefir Kommúnistaflokkurinn, sem mark-
aði sér vígstöðu á öðrum vettvangi en kjördæmamálinu,
stóraukið fylgi sitt. Stjórnarskrárbröltið hefir því fengið
sinn þunga áfellisdóm hjá þjóðinni og ætti að vera Sjálf-
stæðisflokknum og Alþýðuflokknum sterk hvatning til
þess að hætta við þetta vanhugsaða og háskasamlega
flan sitt og taka kjördæmamálið til vandlegrar og skyn-
samlegrar athugunar, eins og Framsóknarflokkurinn
lagði til á síðasta þingi.
Mikla athygli vekja kosningaúrslitin í tvímennings-
kjördæmunum. Það er bersýnilegt, að kjósendurnir
þar ætla að svara valdaráninu með því að fylkja sér svo
öfluglega um Framsóknarflokkinn, að hann fái báða
þingmennina kosna, þótt hlutfallskosning sé viðhöfð.
Þannig hefði Framsóknarflokkurinn fengið báða þing-
rnennina í Múlasýslum, þótt þar hefði verið hlutfalls-
kosning nú. í Skagafjarðarsýslu og Árnessýslu þarf hann
ekki að vinna nema um 100 atkvæði frá Sjálfstæðis-
flokknum til þess að fá báða þingmennina kosna, þótt
liöfð væri hlutfallskosning. Þá er vinningur bæjarflokk-
anna orðinn lítill af ófriðarbröltinu á þessum óvissu og
náskasamlegu tímum.
Öll rök mæla þannig eindregið með því, að bæjarflokk-
arnir hætti við hið ábyrgðarlausa og háskasamlega flan
sitt í stjórnarskrármálinu.
helmingur þeirra hefir verið frá
jafnaðarmönnum, ef miðað er
við úrsljt bæjarstjórnarkosn-
inganna í vetur. Fyrirskipuðu
foringjar jafnaðarmanna liðs-
mönnum sínum að kjósa Sigurð
Hlíðar.
Seyðisfjörður.
Kosinn var Haraldur Guð-
mundsson (A) með 180 (288) at-
kv., Lárus Jóhannesson (S) fékk
153 (199) atkv., Hjálmar Vil-
hjálmsson (F) fékk 73 (10) atkv.
og Árni Ágústsson (K) fékk 67
(10) atkv.
Alþýðuflokkurinn hefir tapað
108 atkv. og Sjálfstæðisflokkur-
inn 46 atkv.
V estmannaey jar.
Kosinn var Jóhann Þ. Jósefs-
son (S) með 736 (879) atkv.,
ísleifur Högnason (K) fékk 461
(489) atkv., Gylfi Þ. Gíslason
(A) 272 (289) atkv. og Sveinn
Guðmundsson (F) 131 (40) at-
kv.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
tapað 143 atkv.
Úrslit i dreifbýlis-
kjördæmum
Gullbringu- og Kjósarsýsla.
Kosinn var Ólafur Thors (S)
með 1246 (1504) atkv., Guð-
mundur I. Guðmundsson (A)
fékk 548 (593), Þórarinn Þórar-
insson (F) fékk 334 (86) atkv.
og Guðjón Benediktsson 215
(58) atkv.
Ólafur hefir tapað 250 atkv.
í seinustu kosningum hafði
hann 770 atkv. fram yfir Al-
þýðufl., Framsóknarfl. og Kom-
múnistafl. samanlagða. Nú fær
hann aðeins 150 atkv. fram yfir
þessa flokka. Seinast höfðu líka
nazistar í kjöri og fengu 118 at-
kv. Má ætla, að þau atkvæði
hafi leitað til Ólafs nú. Raun-
verulegur meirihluti hans þá
hefir því verið um 900 atkv.
Er það óglæsileg útkoma hjá
forsætisráðherra að fara úr 900
atkv. meirahluta í 150 atkv,
meirahluta.
Borgarfjarðarsýsla.
Kosinn var Pétur Ottesen (S)
með 700 (730) atkv., Sverrir
Gíslason (F) fékk 362 (398) at-
kv., Sigurður Einarsson (A) fékk
333 (280) atkv. og Steinþór Guð-
mundsson (K) 62 (8) atkv.
Þetta mun vera eina kjör-
dæmið, þar sem Alþýðufl. hefir
aðeins aukið atkvæðatölu sína,
ef miðað er við þau kjördæmi,
þar sem hann hafði í kjöri sein-
ast. En mikil er ekki aukningin,
ein 53 atkv.
Mýrasýsla.
Kosinn var Bjarni Ásgeirsson
(F) með 486 (516) atkv., Frið-
rik Þórðarson (S) fékk 345
(421) atkv. og landlisti Alþýðu-
flokksins 11 (21) atkv.
Framsóknarflokkurinn hefir
tapað 30 atkv., en Sjálfstæðis-
flokkurinn 76, svo að hlutföllin
eru Framsóknarfl. enn hagstæð-
ari en 1937.
Snæfellsnessýsla.
Kosinn var Bjarni Bjarna-
son (F) með 644 (433) atkv.,
Gunnar Thoroddsen fékk 578
(752) atkv., Ólafur Friðriksson
(A) fékk 158 (222) atkv., Guð-
mundur Vigfússon (K) fékk 60
(7) atkv. og Alexander Guð-
mundsson fékk 23 atkv.
Sigur Bjarna er langsamlega
glæsilegasti sigurinn í þessum
kosningum. Hann bætir við
flokkinn 211 atkv. Sigurinn er
ekki sízt mikilvægur vegna þess,
að þetta er í fyrsta sinn sem
hinu sterka íhaldsvaldi er
hnekkt á Snæfellsnesi.
Dalasýsla.
Kosinn var Þorsteinn Þor-
teinsson (S) með 357 (B. 402)
atkv., Pálmi Einarsson (F) fékk
307 (321), Jóhannes úr Kötlum
(K) fékk 33 og Gunnar Stefáns-
son (A) 13 (16).
Þátttakan er nú minni en sein-
ast. Bilið milli Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokks-
ins hefir minnkað.
Barðastrandarsýsla:
Kosinn var Gísli Jónsson (S)
með 610 (406) atkv. Steingrím-
ur Steinþórsson (F) fékk 533
(565) atkv., Helgi Hannesson
(A) fékk 126 (290) atkv. og Al-
bert Guðmundsson (K) 83 (62)
atkv.
Alþýðuflokkurinn fær nú 164
atkv. færra en í seinustu kosn-
ingum, og hefir það fylgi auð-
'sjáanlega lent hjá Sjálfstæðis-
flokknum, enda var vitanlegt,
að Alþýðuflokksforingjarnir
hvöttu liðsmenn sína til að
kjósa Gísla. Verður það senni-
lega seinasta kosningaafrek Al-
þýðuflokksins að fella Stein-
grím Steinþórsson og koma
Gísla vélstjóra á þing!
Vestur-ísaf jarðarsýsla:
Kosinn var Ásgeir Ásgeirsson
(A) með 460 (497) atkv., Halldór
Kristjánsson (F) fékk 345 (255),
Bárður Jakotasson (S) 197 (411)
og landlisti kommúnista 10.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
auðsjáanlega lánað Ásgeiri á
annað hundrað atkvæði og
þannig tryggt kosningu hans.
Strandasýsla:
Kosinn var Hermann Jónas-
son með 524 (632) atkv., Pétur
Guðmundsson (S) fékk 210 (B
311) og Björn Kristmundsson
(K) 58 (4) atkv. Landlisti Al-
þýðuflokksins hlaut 9 atkv.
Þátttaka hefir verið minni nú
en seinast. Þótt atkvæðatala
Hermanns hafi því lækkað, er
hún hlutfallslega hagstæðari
nú en þá.
Vestur-Húnavatnssýsla:
Kosinn var Skúli Guðmunds-
son (F) með 415 (436) atkv.,
Guðbrandur ísberg fékk 246
(B 346), Elisabet Eiríksdóttir
(K) fékk 54 (14) og Arngrímur
Kristjánsson (A) fékk 26 atkv.
Þátttakan er minni en sein-
ast. Þótt atkvæðatala Skúla
hafi lækkað, eru hlutföllin milli
hans og frambjóðanda Sjálf-
stæðisflokksins stórum hag-
stæðari en seinast. Jafnaðar-
menn kusu Skúla seinast og má
því segja, að raunverulega hafi
atkvæðatala hans hækkað.
Austur-Húnavatnssýsla:
Kosinn var Jón Pálmason (S)
með 591 (428), Hannes Pálsson
(F) fékk 494 (318), Klemens
Á víðavangi
SJÁLFSMORÐ ALÞÝÐU-
FLOKKSINS.
Alþýðuflokkurinn hefir reynt
hvert herbragðið af öðru til að
bjarga sér undan eltingaleik
kommúnista. Stefna flokksins
hefir þar af leiðandi verið
meira miðuð við pólitísk klók-
indi en málefnin sjálf. Flokkur-
inn er með kaupfestingu annað
árið, en móti henni hitt árið.
Hann er með gengislækkun
annað árið en krefst gengis-
hækkunar hitt árið. Hann for-
dæmir alla samvinnu við „í-
haldið“ annað árið en gerir við
það pólitísk hrossakaup hitt
árið.
Síðasta herbragð Alþýðu-
flokksins er að verzla með kjós-
endur við Sjálfstæðisflokkinn.
Grunur lék á þessu áður. Nú
hafa kosningaúrslitin staðfest
það.
Til þess að tryggja kosningu
Ásgeirs Ásgeirssonar, lánar
flokkurinn Gísla Jónssyni allt
hvað hann getur af atkvæðum í
Barðastrandar- og Jóni Pálma-
syni í A.-Húnavatnssýslu.
Við kosningarnar 1937 fékk
flokkurinn 290 atkv. í Barða-
strandarsýslu, en 126 nú. í A,-
Húnavatnssýslu fékk flokkur-
inn 94 atkvæði síðast en nú 17.
Við síðustu kosningar fékk
Sjálfstæðisflokkurinn 410 atkv.
í V.-ísafjarðarsýslu, en nú 196.
Verzlunin og hrossakaupin
eru svo auðsæ á þessum stöðum,
að þýðingarlaust er að dylja
þau.
Þegar Alþýðuflokkurinn er
mest hrjáður af ásókn kom-
múnista, gerir hann kosninga-
bandalag við íhaldið.
Svona flokki er ekki við bjarg-
andi. Þegar hann ætlar að vera
hygginn, anar hann beint af
augum í pólitískt kviksendi og
fremur sjálfsmorð.
Þorleifsson (K) 29 atkv. og Frið-
fínnur Ólafsson (A) 17 (94) at-
kvæði.
í seinustu kosningum fékk
Bændaflokkurinn 261 atkv.
Jafnaðarmönnum var nú skipað
frá hærri stöðum hér syðra að
kjósa Jón Pálmason, og mun
hann hafa fengið um 100 atkv.
hjá þeim.
Skagaf jarðarsýsla:
Kosnir voru Sigurður Þórðar-
son (F) með 1125 (Stgr. St.
1066) og Pálmi Hannesson (F)
1099 (1072), Pétur Hannesson
(S) fékk 751 (M. G. 983), Jó-
hann Hafstein 657 (J. S. 972),
Ármann Halldórsson (A) 74,
Ragnar Jóhannesson (A) 75,
Pétur Laxdal (K) 73, Þóroddur
Guðmundsson (K) 71.
Framsóknarmenn hafa stór-
aukið fylgi sitt í Skagafirði, en
þar kusu jafnaðarmenn með
þeim í seinustu kosningum. Tap
íhaldsins er mikið, en eðlilegt.
Norður-Þingeyjarsýsla:
Kosinn var Gísli Guðmunds-
son (F) með 608 (539), Benedikt
Gíslason (S) fékk 133 (183) at-
kvæði, Kristján Júlíusson (K)
49 (34) og Benjamín Sigvalda-
son (A) 23 (48).
Framsóknarflokkurinn hefir
verulega bætt aðstöðu sína í
þessu kjördæmi.
Norður-Múlasýsla:
Kosningu hlutu Páll Zophón-
íasson (F) 764 (723) atkv. og
Páll Hermannsson (F) 732
(696) atkv. Sveinn Jónsson (S)
fékk 342 (564) atkv. og Gísli
Helgason (S) 297 (585) atkv.,
Pétur Halldórsson (A) 48 (Ll. 4)
atkv., Soffía Ingvarsdóttir (A)
46 atkv., Sigurður Árnason (K)
46 (Ll. 4) atkv. og Jóhannes
Stefánsson (K) 55 atkv.
Atkvæðatap Sjálfstæðisflokks-
ins í Norður-Múlasýslu er sér-
staklega mikið og er fullvíst,
að íhaldið vinnur þar hvorugt
(Framh. d 4. slðu)