Tíminn - 09.07.1942, Blaðsíða 4
300
TfMINN, fimmtuelagiiiii 9. jiilí 1943
76. h!að
í dag eru allra síðustu iorvöð að kaupa miða og
endurnýja.
HAPPDRÆTTIÐ.
tR BÆIVUM
Knattspyrnufélagið Valur
á Akureyri.
Knattspyrnufélagið Valur fór til Ak-
ureyrar síðastliðið laugardagskvöld.
Fyrirhugað var að félagið flýgi norð-
ur, en af því gat þá ekki orðið. En
þá tóku Valsmenn sig til og fóru í bíl
kl. 6 á laugardagskvöldið fyrir Hval-
fjörð og komu um sjö leytið á sunnu-
dagsmorgun til Akureyrar. Á sunnu-
laginn hvíldu knattspyrnumennirnir
sig um stund, en kepptu svo við Ak-
ureyringa seinni hluta dagsins. Lauk
þeim leik með því, að Akureyringar
sigruðu með 5 mörkum gegn 4. Á
mánudagskvöldið var svo aftur keppt
og unnu þá Valsmenn Akureyringana
með 4 mörkum gegn 2. Margir áhorf-
endur voru að báðum kappleikjun-
Lúðrasveit Reykjavíkur 20 ára.
Þann 7. þ. m. átti Lúðrasveit Reykja-
víkur 20 ára afmæli. Sveitin var stofn-
uð 7. júlí 1922 fyrir forgöngu nokk-
urra áhugamanna úr lúðrasveitunum
„Gigju“ og „Hörpu“, sem þá höfðu
starfað um nokkurt skeið hér í bæn-
um. Voru þessar lúðrasveitir samein-
aðar í eina sveit og hlaut hún nafnið
„Lúðrasveit Reykjavíkur'. Á þessum
20 árum hefir lúðrasveitin leyst af
hendi merkilegt tónlistarstarf, þótt
við erfið starfsskilyrði væri að etja
að mörgu leyti. Lúðrasveitin hefir far-
ið nokkrar ferðir út á land og haldið
þar tónleika við góðan orðstír. En
minnisstæðust verður lúðrasveitin
Reykvíkingum sjálfum fyrir þá marg-
háttuðu ánægju, sem hún hefir veitt
þeim með tónlistarflutningi sínum, oft
allan ársins hring, það tímabil, sem
hún hefir starfað.
Þriðji aðalfundur
Landsambands blandaðra kóra og
kvennakóra á íslandi, var haldinn í
Reykjavík dagana 26.-27. júní. j
Upptökubeiðni bárust sambandinu frá
tveimur kórum: Kirkjukór Borgarness
og Söngfélaginu „Húnar“ í Reykjavík,
og voru upptökubeiðnir þeirra sam-
þykktar. Formaður framkvæmdar-
stjórnar, Jón Alexandersson, gaf
skýrslu um starf sambandsins á liðnu
ári. Hafði stjómin meðal annars unn- ;
ið að því að útvega kórum innan Sam-
bandsins styrk til söngkennslu. Söng-
kennarar Sambandsins á þessu starfs-
ári voru: Frú Jóhanna Johnsen Ögri,
og Hr. Þórður Kristleifsson söngkenn-
ari á Laugarvatni. Einnig var unnið
að undirbúningi að útgáfu sönglaga-
heftis, sem væntanlega kemur út
seinni hluta sumars. Ákveðið var að
verja kr. 3.000.00 til söngkennslu á
næsta ári. Stjóm Sambandsins var
öll endurkosin, og skipa hana: For-
maður Jón Alexandersson, forstöðu-
maður. Ritari Guðmundur Benjamíns-
son, klæðskeram. Gjaldkeri Bent
Bjamason, bókari. í stjórn söngmála-
ráðs voru kosnir: Björgvin Guðmunds-
son Akureyri, formaður. Jónas Tóm-
asson ísafirði, fyrsti meðstjórnandi.
Brynjólfur Sigfússon Vestmannaeyj-
um, annar meðstjórnandi. Þar að auki
var kosin varastjórn og varaendúr-
skoðendur.
Hjónaefni.
Laugardaginn 27. júní opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Ingunn Eiríks-
dóttir, Kampholti og Þorsteinn Guð-
mundsson frá Þórarinsstöðum, nú
starfsmaður við Kaupfél. Árnesinga,
Sigtúnum.
Vísitalan.
Samkvæmt nýútkomnum Hagtíð-
tíðindum var vísitalan í júníbyrjun í
ár 183, þ. e. 83% hærri heldur en á
1. ársfjórðungi 1939 eða nokkru fyrir
stríðsbyrjun. Hækkaði hún um 1 stig j
frá næsta mánuði á undan, en var >
Forvígisflokkar kjördæmabreytiogarínnar
haía tapað iylgi í stórum stil......
(Framh. af 1. síðu)
þingsætið, þótt kosið verði eftir
fyrirkomulagi hlutfallskosn-
inganna.
Suður-Múlasýsla:
Eysteinn Jónsson (F) 1105
(1116), Ingvar Pálmason (F)
1037 (1000), Árni Jónsson (S)
538 (M. G. 686), Jón Sigfússon
(S) 480 (K. G. 620), Lúðvík
Jósefsson (K) 415 (261), Arn-
finnur Jónsson (K) 365 (332),
Jónas Guðmundsson (A) 262
(562) og Eyþór Þórðarson (A)
190 (F. S. 408).
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
stórtapað fylgi og myndi ekki
hafa fengið mann kosinn, þótt
hlutfallskosning hefði verið.
Framsóknarflokkurinn hefði
fengið báða þingmennina.
Austur-Skaftaf ellssýsla:
Kosinn var Páll Þorsteinsson
(F) með 294 (337), Helgi Iler-
mann Eiríksson (S) 164 (B. T.
248), Knútur Kristinsson (A)
127 (23) og Ásmundur Sigurðs-
son (K) 40 atkv.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
stórlega tapað fylgi síðan 1937,
en aðstaða Framsóknarflokks-
ins má heita óbreytt.
18% hærri en í júníbyrjun í fyrra. Mat-
vöruvísitalan var 225 í byrjun júnímán-
aðar eða 24% hærri heldur en í júní-
byrjun í fyrra. Er hún óbreytt frá
næsta mánuði á undan. Eldsneytis- og
ljósmetisvisitalan er líka óbreytt frá
næsta mánuði á undan. Var hún 204
í júníbyrjun í fyrra. Húsnæðisvísital-
an hækkaði um 3 stig í maímánuöi
vegna þess, að hin lögleyfða hækkun
húsaleigu, vegna hækkunar viðhalds-
kostnaðar, var' ákveðin 14% frá 14.
maí í stað 11% áður.
Frá Upplýsingaskrifstofu
stúdenta:
í nýkominni skýrslu frá Vilhj.
Finsen sendifulltrúa íslands í Stokk-
hólmi, er skýrt frá þvi, að Áskell Löve
hafi í vor lokið fil.lic.-prófi í erfða-
og grasafræði við háskólann i Lundi.
Lauk hann náminu á skemmri tíma
en nokkur annar hefir gert í þessum
greinum við háskólann þar. Vinnur
Áskell nú að erfðarannsóknum og býr
sig undir doktorspróf.
Aðalfundur Sambands íslenzkra
karlakóra
var haldinn í húsi Verzlunarmanna-
félaga Reykjavíkur mánudaginn 29.
júní s. 1. í stjórn voru kosnir: For-
maður Ágúst Bjarnason og meðstjórn-
endur í Reykjavík Friðrik Eyfjörð og
Kári Sigurðsson. Fyrir Sunnlendinga-
fjórðung sr. Garðar Þorsteinsson, Vest-
firðingafjórðung sr. Páll Sigurðsson,
Norðlendingafjórðung Þormóður Eyj-
ólfsson konsúll og Austfirðingafjórð-
ung; Jón Vigfússon. Söngmálaráð var
endurkosið. en það skipa söngstjór-
arnir Jón Halldórsson, formaður, Ingi-
mundur Árnason og sr. Garðar
Þorsteinsson. Tala sambandskóra er 19
og ríkir mikill áhugi fyrir starfsemi
sambandsins.
! Vestur-Skaftafellssýsla:
Kosinn var Sveinbjörn Högna-
son (F) með 460 (289), Gísli
Sveinsson (S) hlaut 378 (436),
Hlöðver Sigurðsson (K) fékk 21
(16), Guðjón B. Baldvinsson
(A) fékk 13 (32) atkv.
í seinustu kosningum fékk
frambjóðandi Bændaflokksins
105 atkv.
Sigur Sveinbjarnar er hinn
glæsilegasti. Alþýðuflokkurinn
reyndi sitt ítrasta til að styrkja
aðstöðu Gísla, blað flokksins var
látið rógbera Sveinbjörn öflug-
lega og frambjóðandi flokks-
ins lék sama hlutverk á fund-
um. Sjálft þorði íhaldið ekki að
standa fyrir þessum rógburði og
fékk því Alþýðuflokkinn til
þess. Hann reyndist íhaldinu
dyggur, en Gísli féll samt.
Rangárvaliasýsla:
Kosnir voru Helgi Jónasson
(F) með 971 (934) atkv. og
Björn Björnsson með 873 (Sv. H.
946) atkv., Ingólfur Jónsson
(S) fékk 820 (J. Ó. 895) atkv.,
Sigurjóh Sigurðsson (S) 789 (P.
M. 891) atkv., Ágúst Einarsson
(A) 16 atkv. og Björn Bl. Jóns-
son (A) 13 atkv.
Framsóknarflokkurinn er
hlutfallslega mun sterkari í
þessum kosningum en 1937.
Árnessýsla:
Kosnir voru Jörundur Bryn-
jólfsson (F) með 1341 (1305)
og Páll Hallgrímsson (F) með
1214 (B. B. 1253) atkv., Eirík-
ur Einarsson (S) fékk 861
(1075) atkv., Sigurður Ólafsson
(S) 713 (Þ. Ó. 989) atkv., Gunn-
ar Benediktsson (K) fékk 238
(8) og Ingimar Jónsson (A)
194 (170).
Sjálfstæðisflok,kurinn hefir
stórtapað frá því í seinustu
kosningum og bilið milli hans
og Framsóknarflokksins stórum
aukizt.
Þegar blaðið var að fara í
prentun bárust úrslit atkvæða-
talningarinnar úr Eyjafjarðar-
sýslu:
Kosningu hlutu Bernharð
Stefánsson (F) 1575 (1654) og
Einar Árnason (F) 1523 (1593)
atkv., Stefán Stefánsson (S)
fékk 1078 (1292) atkv., Garðar
Þorsteinsson (S) 1076 (1356)
atkv., Erlendur Þorsteinsson
(A) 487 (653) atkv., Kristján
Sigurðsson (A) 349 (582) atkv.,
Áki Jakobsson (K) 725 (Þ. G.
278) atkv. og Gunnar Jóhanns-
son 665 (291) atkv.
596 Victor Hugo:
hærum, gekk út úr fylkingunni og
mælti til fyrirliðans á þessa leið:
— Þetta er flónska úr henni og ekk-
ert annað, hái herra! Ef hún hefir látið
Tatarastúlkuna komast undan, þá er
það ekki hennar sök, því að hún er alls
ekki vinveitt Töturunum. Ég hefi nú
gengt þjónustu í varðliðinu í fimmtíu
ár og heyrt hana formæla þeim á hverju
kvöldi. Ef stúlkan, sem við erum á hnot-
skóg eftir, er litla dansmærin með geit-
ina, þá get ég um það borið, að hún
hatar hana af öllu hjarta.
Gudule mælti orðum þessum til á-
réttingar:
— Já, hana öllum öðrum meira.
Allt varðliðið staðfesti það, að vitn-
isburður gamla mannsins væri sann-
leikanum samkvæmur, svo að fyrirlið-
inn sá enga ástæðu til þess að efast
lengur.
Tristan l’Hermite hafði gerzt von-
laus um að honum auðnaðist að fá
nokkrar upplýsingar hjá einsetukon-
unni. Hann sneri því við henni baki og
hún horfði óttaslegin á það, að hann
sté á bak fáki sínum.
— Áfram gakk! skipaði hann fyrir. —
Við skulum halda leitinni áfram annars
staðar. Ég mun ekki unna mér svefns,
fyrr en Tatarastúlkan hefir verið hengd.
Gudulu hvíslaði um lei ðog henni var
Esmeralda 597
litið í áttina til dóttur sinnar, sem
hún hafði ekki dirfzt að virða viðlits,
meðan hermennirnir voru viðstaddir:
— Henni er borgið!
Vesalings barnið hafði legið í horn-
inu allan þenna tíma án þess að hafa
látið á sér bæra, og óttinn við dauð-
ann hafði aldrei vikið úr huga hennar.
Hún hafði Jieyrt hvert orð af samræðu
þeirra Gudulu og Tristans.
í þessari svipan heyrði hún rödd segja
við fyrirliðann:
— Nei, fjandinn hafi það, herra minn.
Það er ekki í mínunm verkahring sem
liðforingi að hengja galdrakvendi. Um-
renningarnir hafa verið brytjaðir niður
eða þeim stökkt á flótta. Nú fel ég vð-
ur að ljúka verki þessu. Með y.ðar leyfi
held ég til hersveitar minnar, sem er
forustulaus í svipinn.
Það var Föbus de Chateaupers, sem
talaði. Það er ógerlegt að lýsa áhrifum
þeim, sem hljómur raddar þessarar
hafði á ungu stúlkuna.
Hún reis á fætur og áður en móður-
inni auðnaðist að koma í veg fyrir það
hljóp hún út að glugganum og hfópaði:
Föbus! Föbus minn! Komdu hingað til
mín!
En Föbus var á braut. Hann hleypti
fáki sínum á horni Coutelleriestræti í
Þakkarávarp
Hjartans þakkir færi ég öll-
um þeim mörgu, sem tóku þátt
í raunum mínum og erfiðleik-
um við hina langvinnu sjúk-
dómslegu, andlát og jarðarför
mannsins míns elskulega, Matt-
híasar Matthíassonar, bónda á
Hömrum í Laxárdal í Dalasýslu.
Sérstaklega þakka ég sveitung-
um mínum, Laxdælingum, og
venzlamönnum mínum og ætt-
ingjum fyrir drengilega fram-
komu og fjárhagslegan stuðn-
ing. Síðast, en ekki sízt, þakka
ég ágæta hjúkrun og aðhlynn-
ingu í sjúkrahúsinu Sólheimum.
Ég bið góðan guð að launa ykk-
ur þetta allt saman, einum og
sérhverjum eftir því sem non-
um bezt hentar.
Halla Pétursdóttir.
.■).. 1 .......... "
Svípjóð og ná-
grannar hennar
(Framh. af 3. síðu)
leggur jafnframt mikla áherzlu
á það, að hún bíði ekki tjón á
sálu sinni. Það er heldur aldrei
hægt neinu um það að spá, hve-
nær hinna verstu tíðinda er að
vænta. Þótt allt hafi farið vel
hjá Svíum til þessa, kunna þau
viðhorf að breytast, er minnst
varir.
Sænsku blöðin hafa til dæm-
is alls ekki farið leynt með
það, hvers konar ástand ríkir í
Noregi. Fregnir og frásagnir um
þau atriði hafa yfirleitt ekki
getað verið opinskárri. Þegar
sum sænsku blaðanna fluttu
fyrir skömmu síðan fregnir um
grimmd þá, sem ríkir í norsk-
um fangelsum og fangabúðum,
sá dómsmálaráðherrann ástæðu
til þess að gera blöð þessi upp-
tæk. Varði hann gerðir sínar
með því, að blöðin myndu ekki
hafa við að flytja ógnarsögur
frá hálfu beggja stríðsaðila, ef
slíkt ætti að tíðkas.t. Auk þessa
gæti slíkt sem þetta spillt sam-
búð Svíþjóðar við framandi
stórveldi. Rök hans virðast þó
hafa verið léttvæg fundin, og
jafnvel stuðningsblöð ráðherr-
ans létu þess getið, að allt virt-
ist til þess benda, að frásagnir
þessar væru sannleikanum sam-
kvæmar. Jafnframt létu þau
þess getið, að það skyldi aldrei
dulið hinni sænsku þjóð, að
hryllilegir atburðir gerðust í
Noregi og öðrum þeim löndum,
sem hersveitir nazista hefðu
hernumið.
I heimboði Þingeyinga
(Framh. af 1. síðu)
ar í Þingeyjarsýslum í sumar.
Kom Sigurður Jónsson, bóndi á
Arnarvatni, hingað til Reykja-
víkur til þess að sækja þau
hjónin, og lögðu þau af stað
norður 1 morgun.
Einar hefir aldrei áður komið
til Norðurlands.
í fyrra sumar buðu Skaftfell-
ingar Einari til sín.
Þúsnndir vita
að gæfan fylgir trúlofunar-
hringunum frá SIGURÞÓR.
Sent gegn póstkröfu.
Sendið nákvæmt mál.
. GAMT.A KIG - NV.IA HtA
Týndi GÆTTU ÞÍN,
briiðguminn • FAGRA MÆR!
(BRIDAL SUITE). (Nice Girl)
Amerísk gamanmynd. Amerísk söngvamynd frá
Universal Pictures.
Leikendur: Aðalhlutverk leikur og
ANNABELLA, syngur hin góðkunna
ROBERT YOUNG. söngvamær:
‘Sýnd kl. 7 og 9. DEANNA DURBIN
Aðrir leikarar eru:
Framhaldssýning 3V2-6V2: FRANSHOT TONE,
HUGDJARFI WALTER BRENNAN,
RIDDARINN. ROBERT STACK O. fl.
Tim Holt — cowboymynd. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Gisti- og veitingaMsið
T ryggvaskálí
við Selfoss í Árnessýslu er til sölu nú þegar. — Tilboð sendist
undirrituðum fyrir 15. þ. m.
Réttur áskilinn til að hafna öllum tilboðum.
SVEINBJÖRN JÓXSSOX
hæstaréttarlögmaður.
SAVOÁ de PARÍS mýkir Imöina og
styrkir. Gefur henni yndisfagran lit
blæ og ver hana kvillum
NOTSÐ