Tíminn - 28.07.1942, Síða 3
83. blað
TlMEVIV, jiriðjndagma 28. júlí 1942
327
Skinnaverksmiðjan ÍÐUNN
framleiðir fjölmargar tegnndir af skóm á karla,
konur og börn. — Ymnnr exmfremnr úr húðnm, skinn-
«ar-- - -
um og gærum margskonar leðnrvörur, s. s. leður til
skógerðar, fataskinn, hanzkaskinn, töskuskinn, loð-
sútaðar gærur o. m. fl.
Skinnaverksmiðjan ISunn, er búin nýjustu og fnll-
komnustu tœkjum, og hefir á að skipa hóp af fag-
lærðum mönnum, sem þogar hafa sýnt, að þeir eru
færir um að keppa við utlenda farmleiðslu á þessu
sviði.
IÐUNNARV0RUR fást hjá kaupfélögum um allt
land og mörgtim kaupmönnam.
Iðunnarvörur eru smekklegar, haldgóðar, ódýrar
Notið IBUNNAR vórur
þær eigi víðari en svo, að hest-
arnir voru tregir. Einna lakast
var að fara niður af jöklinum,
því að þar voru malarhaugar
miklir, fullir af sandbleytu og
holklaka. Á jöklinum var kulda-
stormur á norðan, en þegar nið-
ur á sandinn kom, gekk í snjó-
veður rétt á móti, svo að lítið
sást frá sér. Færið var illt á
söndunum og aurar miklir, svo
að hestarnir lágu sumsstaðar í.
Héldu þeir þó allan daginn á-
fram til kvölds og urðu að rétta
sig eftir áttavitanum, því að
eigi var við annað að styðjast
fyrir dimmviðrinu. Þó gátu þeir
komizt austur yfir Skjálfanda-
fljót og tóku þeir náttstað
skömmu síðar þar á söndunum.
Gáfu þeir hestum sínum nokk-
uð og bundu þá síðan saman,
en bárust sjálfir fyrir í tjaldi
sínu. Sjötta daginn var hægt
veður um morguninn, en þykkt
loft; glórði þá austur í Trölla-
dyngju. Var þá hárað í hestana,
en eigi fengu þeir helming þess,
er þeir þurft hefðu. Var svo lagt
upp og haldið austur ýfir
Hrauná. Þá fór að blása norðan
og gekk veðrið meira til austurs,
þegar fram á daginn kom, með
snjókomu allmikilli, svo að eigi
sá nema fáa faðma. Áttu þeir
erfitt með að reka hestana móti
óveðrinu, og þurfti vandlega að
gæta þess, að halda þeim sam-
an, svo að eigi týndist af þeim.
Var þá kominn talsverður snjór,
svo að eigi var hægt að sneiða
fyrir torfærur og þurfti oft að
draga hestana upp úr. Sigurður
var kunnugur og vissi af vants-
föllunum, sem yfir var farið,
hvað veginum leið, þótt dimmt
væri. Fóru þeir þá upp á norð-
urjaðar jökulsins og komust
slysalaust eftir honum, allt að
felli því, er Björn Gunnlaugs-
son kallaði Reykjarfell og sum-
ir ætluðu sama og Kistufell. Þar
fóru þeir niður af jöklinum;
fengu það allgóðan veg norðan
undir því og hvíldu hesta sína
um hríð, þegar austur fyrir það
kom um kvöldið og gáfu þeim
það, sem eftir var af heyinu. En
þó var afarlangur vegur þang-
að, sem hægt var að fá haga
handa þeim, og því þótti ótækt
að dvelja þar um nóttina. Var
því lagt upp aftur og haldið á-
fram alla nóttina í hægri og
dimmri snjódrífu. Að morgni
hins sjöunda dags var farið yf-
ir Jökulsá, sem þar er í fimm
kvíslum, og haldið áfram í sama
dimmviðri og ófærð yfir óslétt
og öldótt land og sumsstaðar ill-
fært hraun. Náðu þeir loksins
um kvöldið, milli náttmála og
miðnættis, eftir að hafa haldið
áfram þrjú dægur, austur í
Hvannalindir; tjölduðu þar und-
ir Lindakeili og slepptu hest-
unum á beit, én þó var þar snjór
í mjóalegg og mokaöi niður alla
nóttina. Áttunda daginn var
veðrið engu betra, en snjór
meiri en áður. Héldu þeir með
miklum erfiðismunum austur
yfir Kreppu og settust að um
kvöldið í Fagradal á Brúarör-
æfum eftir eigi langa en erfiða
leið. Þegar þeir morgun hins
níunda dags litu út, var veðrið
sízt betra en áður; höfðu tveir
hestarnir drepizt um nóttina af
kulda, hungri og þreytu. Voru
sig komnir eftir slíkar hrakning-
ar. Um miðjan dag birti þó
veðrið, svo að sá norður í Herðu-
breið á Mývatnsfjöllum. Var þá
lagt upp og haldið áfram eftir
Brúaröræfum síðari hluta dags-
ins og fram yfir miðja nótt.
Náðu þeir að Brú, efsta bæ á
Jökuldal, einni stundu eftir mið-
nætti 8. júlí og fengu hinar
beztu viðtökur. í byggðinni hafði
raunar gert snjóáfelli þá daga,
sem þeir voru á fjöllunum, en
bæði hafði óveðrið byrjað degi
síðar í byggðinni og hvergi nærri
orðið svo ákaft sem á öræfun-
um.
Skrifstofa
Framsóknnrflokksins
er á Lindargötu 9 A
Framaóknarmenn utan al
landl, sem koma til Reykja-
vlkur, ættu alltaf að koma
á skrlfstofuna, þegar þeir
geta komið þvl við. Það er
nauösynlegt fyrir flokks-
starfsemina, og skrlfstof-
unni er mjög mlkils vlrði
að hafa samband viö sem
flesta flokksmenn utan af
landi.
Skrifið eða símið til Tlmans
og tilkynnið honum nýja áskrif-
endur. Sími 2323.
ÍTtbreiðið Tímaiui!
V'INNIÐ 0TULLEGA AÐ ÚTBREIÐSLU TÍMANS
622
Victor Hugo:
til birtingar einhverja slíka sögu, og af
þeim er nóg til, eða bók, sem unnið
hefði sér varanlega frægð vegna kosta,
sem jafnan munu metnir meðan bók-
menntir eru í heiðri hafðar, þótti það
góð nýlunda að varpa reyfurunum í
eitt skipti fyrir borð og birta heldur gott
ritverk. Þeirri reglu fylgdi Þorsteinn
Gíslason jafnan í „Lögréttu" og hlaut
að launum maklegt hrós. Mun vart svo
komið óg bókmenntasmekkur fólks svo
rangsnúinn, að ekki séu þeir allmargir,
er þakklátir eru Tímanum fyrir þessa
nýbreytni.
Ekki er þó svo að skilja, að það eigi
engan rétt á sér, að fólk lesi sér til
dægrastyttingar eingöngu, en við það
eru reyfararnir miðaðir. Slíkt væri
fjarri lagi. En það væri áreiðanlega illa
farið, ef léttmetið og reyfararnir drægju
svo mjög að sér huga fólks, er það tekur
sér bók í hönd, að hinar betri bækur,
þær sem mættu verða til aukins þroska
og víðfeðmari skilnings á lífinu og fyr-
irbærum þess, lægju oftast óhreyfðar í
hillum og skápum.
Sorgleg voru endalok Esmeröldu,
Kvasimodos og erkidjáknans, en enn
væri þó slík framvinda grátlegri.
Esmeralda
II. KAFLI.
SÖGULOK.
Þjónar erkibiskupsins báru lík Claude
Frollos brott síðar um daginn. En þá
var Kvasimodo horfinn úr Frúarkirkj-
unnL Ýmsar sögusagnir voru á sveimi:
Fólk efaðist ekki um að djöfullinn —
Kvasimodo — hefði sótt erkidjáknann
— galdramanninn — á samningsdegi.
Sumir sögðu, að hann hefði limlest lík-
amann til þess að ná í sálina, eins og
apar brjöta skel á skógarhnetu til þess
að ná í kjamann. Þess vegna var erki-
djákninn heldur ekki grafinn í vígðri
moldu. Enginn vissi, hvað við Kvasi-
modo hefði tekið. Hann var með öllu
horfinn.
Það var fyrst ári síðar, þegar þegnar
Karls VIII. ætluðu að taka lík úr graf-
hvelfingunni undir gálganum og fá því
leg í virðulegri stað, að menn veittu því
athygli, að ein beinagrindin, nýleg að
sjá, var sem læst utan um aðra. Önnur
þessara beinagrinda virtist vera af
konu og enn mátti sjá votta fyrir kyrtli
'hennar.er líkindi þóttu til.að hefði verið
hvítur. Utan um hálsinn var festi og
við hana hékk ofurlítill silkiskjatti,
prýddur grænum glerperlum, hvort
tveggja svo lítils virði, að böðlarnir höfðu
Guðm. Amlrésson
gullsmiður.
Laugavegi 50. — Sími 3769.
hinir flestir mjög dasaðir og
meiddir og var eigi að hugsa til,
að leggja upp að svo stöddu,
enda voru mennirnir líka illa á
Gnllbrnðkanp
Gullbrúðkaup eiga 30. júlí Árni
Árnason og Þuríður Kristjáns-
dóttir í Blöndugerði í Hróars-
tungu í Norður-Múlasýslu.
Árni er fæddur 9. ágúst 1867
á Þverá í Hallárdal í Húna-
vatnssýslu, sonur Árna Jóns-
sonar hreppstjóra og danne-
brogsmanns, og Svanlaugar
Björnsdóttur. Voru þau annál-
uð sæmdar og myndarhjón, sem
Húnvetningar og. fleiri munu
lengi minnast.
Þuríður er fædd 7. júní 1861
að Hvammi á Jökuldal í Norð-
ur-Múlasýslu, dóttir Kristjáns
Kröyers, merkisbónda, og Elín-
ar Margrétar Þorgrímsdóttur
prests að Þingmúla. Þuríður er
í móðurætt komin af hinni al-
kunnu Bólstaðarhlíðarætt.
Árni og Þuríður hafa búið all-
an sinn búskap í Hróarstungu.
Þau hafa eignast átta börn, en
að eins þrjú þeirra eru á lífi.
Árni nam ungur búfræði að
Hólum í Hjaltadal. Hann er
greindur ágæta vel, félagi góð-
ur, skemmtilegur í viðræðum og
mjög bókhneigður. Trúr er hann
og áreiðanlegur um allt, er hann
hefir að sér tekið, enda hefir
hann gegnt mörgum trúnað-
arstörfum fyrir sveit sína og
byggðarlag. Hann var lengi
vegaverkstjóri í Hróarstungu,
átti sæti í hreppsnefnd nær 40
ár og um margra ára skeið í
sýslunefnd og skattanefnd, og
safnaðarfulltrúi um fjölda ára.
Þuríður er vel gefin dugnað-
ar- og myndarkona, einlæg og
glaðlynd og svo vinnugefin, að
henni fellur aldrei verk úr
hendi.
Þau hjón eru sérstaklega vin-
sæl, greiðug mjög og gestrisin.
Hafa þau jafnan búið í þjóð-
leið og hefir því oft verið gest-
kvæmt á heimili þeirra. Þau eru
enn ung í anda og fylgjast vel
með öllu sem við ber, og sér
furðu lítið á, þótt þau hafi átt
við ýmsa erfiðleika að stríða
og séu nú farin að heilsu.
Á þessum merkisdegi æfi
þeirra mun mikill fjöldi kunn-
ingja, vina og ættingja minn-
ast liðinna samverustunda með
gleði og ánægju og senda þeim
hlýjar kveðjur og árnaðarósk-
ir með þökk fyrir liðna tíð.
G. J.
Smnband ísi. samvinnufélaffa.
Tekjuafgangi kaupfélags er úthlutað til fé-
lagsmanna í hlutfalli við viðskipti þeirra.
Afmæll.
Steinþór Þórðarson bóndi að
Hala í Suðursveit átti 50 ára
afmæli 10. júní s. 1. Hann er af
góðum skaftfellskum ættum
kominn og hefur alið allan sinn
aldur að Hala, sem er eitt býlið
í Breiðabólsstaðartorfunni í
Suðursveit, landnámsjörð Hrol-
laugs Rögnvaldssonar.
Steinþór átti ekki kost neinn-
ar skólagöngu í æsku frekar en
þá var títt. Hann lærði að lesa,
skrifa og reikna, en á þennan
grundvöll hefir hann byggt með
sjálfsnámi, enda blandast eng-
um hugur um, sem spjallar við
Steinþór, að hann fylgist vel
með, er prýðilega greindur og
vel ritfær.
Hann er kvæntur Steinunni
Guðmundsdóttur frá Reynivöll-
um í Suðursveit. Eiga þau tvö
börn, Torfa, er lauk prófi í
kennaraskólanum í vor, og Önnu
Þóru, sem er húsfreyja í Reykja-
vík.
Steinþór hefir bætt jörð sína
mjög, bæði að ræktun og hús-
um. Túnið er allt slétt og töðu-
fall hefir þrefaldazt síðan hann
tók við búi árið 1915. Þá hefir
hann byggt bæjarhús öll og
peningshús úr steinsteypu, leitt
inn vatn og raflýst.
Félagsmál hefir hann mjög
látið til sín taka* beitt sér fyrir
stofnun lestrarfélags og ung-
mennafélags í sveitinni. Hann
hefir átt sæti í stjórn Kaupfé-
lags Austur-Skaftfellinga frá
stofnun þess 1919, verið for-
maður búnaðarfélags . sveitar-
innar um 20 ár og í stjórn
Menningarfélags Austur-Skaft-
fellinga frá stofnun þess, að
heita má.
Steinþór er búhagur í bezta
lagi eins og margir Skaftfell-
ingar. Hestajárn byrjaði hann
að smíða, þegar hann var 12
ára og annaðist eftir það járn-
ingar á heimilinu.
Yfirleitt er Steinþór að mörgu
leyti búinn beztu kostum ís-
lenzkra bænda, hann er efna-
lega sjálfstæður, frj álslyndur,
bjartsýnn og glaðlyndur.
Tíminn óskar honum og heim-
ili hans allra heilla í framtíð-
inni.
Trúlofuiiarlirmgar,
ræklfærlsgjaflr,
í góðu úrvali.
Sent gegn póstkröfu.