Tíminn - 21.10.1942, Qupperneq 1

Tíminn - 21.10.1942, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: \ ÞÓRARINN t>ÓRARINSSON. J FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: \ JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: ' FRAMSÓKNARFLOKKURINN. 26. ár. Reykjavlk, miðvilcudagiim 21. okt. 1942 < 125. klað KO SNINGAURSLITIN Sjálfstæðisflokkurinn heflr tapað 1042 atkv. í R.vík siðan í vetnr Jónas Jónssons Nauðsynleg og ónauðsynleg kynni við setu- liðið Hér dvelja nú um stundar- sakir nokkrir tugir þúsunda at hermönnum frá þrem nábúa- löndum okkar: Noregi, Eng- landi og Bandaríkjunum. Þetta eru þau lönd, sem viö munum, ef allt er meö felldu, hafa einna mest skipti við eftir að styrjöld- inni lýkur. í þessum hóp hefir komiö í ljós, að eru nokkrir þeir menn, sem gert hafa þjóð sinni minnk- unn og skaða meö framkomu sinni. En langsamlega mestur hluti aðkomumannanna eru prýöilegir menn. í þeirra hóp eru áreiöanlega fjölmargir há- menntaðir menn, sem engin veruleg kynni fá af þjóð eöa landi. Mér sýnist, að tveir megin- gallar hafi verið á sambúð okk- ar við setuliðið. Annars vegar hefir hið íslenzka mannfélag látið leika um lönd og hól, þó að hér dafnaði óátalið nokkuð af lægstu kynnum, sem geta orðið milli aðkomuhers og fólks, sem býr með hernum. Aftur á móti er rétt að minnast þess með viðurkenningu, að yfirher- stjórn Bandaríkjanna hefir fyr- ir sitt leyti reynt að hindra, að íslenzkar. stúlkur .væru. tál- dregnar með svikulum loforð- um um hjónabönd. Með því að banna hermönnum Bandaríkj- anna að giftast hér á íslandi, er íslenzkum stúlkum og vanda- mönnum þeirra ótvírætt gefið í skyn, að ábyrgðin liggur hjá hverjum einstakling, ef ver fer. En samhliða því að hið ís- lenzka mannfélag hefir sýnt hinn ítrasta vanmátt við að hindra þau kynni við borgara, sem verið hafa báðum aðilum minnst til sóma, og sem nú eru auglýst í kvikmynd vestan hafs, þá hefir fram að þessu verið forðast frá okkar hálfu að koma á nokkurri kynningu, sem verið gæti til gagns og skemmtunar bæði íslendingum og mönnum úr setuliði þeirra þriggja þjóða, sem dvelja hér um stund. Þó er ein undantekning í þessu efni. Biskup íslendinga, Sigur- geir Sigurðsson, hefir reynt að koma á kynnum milli erlendu prestanna, sem starfa hjá hern- um og íslenzku prestastéttar- innar. Hafa þessi kynni orðið íslandi til sæmdar og aðkomu- mönnunum til ánægju. Fyrir nokkrum árum eyddi ísland af litlum efnum miklu fé til að kynna land og þjóð með þátttöku í sýningunni í New York. Sú kynningarstarfsemi var gagnleg, svo sem bezt mátti vera. En ef rétt var að leggja út í fyrirtæki eins og New York sýninguna til að kynna landið sem bezt í augum stærri þjóða, þá er sannarlega athugavert, að hafa hér svo árum skipti mik- inn fjölda mjög dugandi manna frá þeim þjóðum, sem við von- um framvegis að eiga mest skipti við, og haga sambúðinni (Framh. á 4. síðuj Þátttaka mun yfirleitt hafa orðið sæmileg í alþingis- kosningunum á sunnudaginn og mánudaginn, Veðr- áttan var víðast hagstæðari þessa daga en vænta mátti og búist var við af þeim flokkum, sem sóttust eftir að hafa kosningarnar á þessum tíma. Þó hamlaði ófærð kjörsókn í nokkrum sveitum. Úrslit eru enn ekki kunn, nema í fáum kjördæmum, og verður því enn ekkert sagt um heildarniðurstöður kosninganna. Af þeim úrslitum, sem eru kunn, vekur áframhaldandi tap Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík mesta athygli. Flokkurinn er búinn að tapa 1042 atkv. síðan í bæjarstjórnarkosningunum í vetur. Þessi úrslit eru þegar kunn: Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 8292 atkv., Sósíalistaflokkurinn 5980 atkv., Alþýðuflokkurinn 3303 atkv., Framsóknarflokkur- inn 945 atkv. og Þjóðveldis- flokkurinn 1284 atkv. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þessa menn kjörna: Magnús Jónsson, Jakob Möller, Bjarna Benediktsson og Sigurð Krist- j ánsson. Sósíalistaf lokkurinn: Einar Olgeirsson, Brynjólf Bjarnason, Sigfús Sigurhjart- arson. Alþýðuflokkurinn Stefán Jóh. Stefánsson. í sumar urðu úrslitin þessi: Sjálfstæðisflokkurinn 8801, Sósíalistaflokkurinn 5335, Al- þýðuflokkurinn 3319, Fram- sóknarflokkurinn 905, Þjóð- veldisflokkurinn 618. Hafnarfjörður: Kosinn var Emil Jónsson (A) 913 (933), Þorleifur Jónsson 748 (756), Sigríður Sæland (Sós.) 202 (100), Jón Helgason (F) 37 (45), ísafjörður: Kosinn var Finnur Jónsson (A) 628 (667), Björn Björns- son (S) 431 (433), Sigurður Thoroddsen (Sós.) 274 (214), Guðmundur Ingi Kristjánsson (F) 45 (39). Akureyri: Kosinn var Sigurður Hlíðar (S) 1009 (1080), Vilhjálmur Þór (F) 874 (902), Steingrímur Aðalsteinsson (Sós.) 746 (650), Jón Sigurðsson (A) 181 (214). Siglufjörður: Kosinn var Áki Jakobsson (Sós.) 482, Sigurður Kristjáns- son (S) 469, Erlendur Þorsteins- son (A) 386, Ragnar Guðjóns- son (F) 102. Séyðisfjörður: Kosinn var Lárus Jóhannes- son (S) 214 (153), Jóhann Guð- mundsson (A) 130 (180), Ás- geir Blöndal Magnússon (Sós.) 72 (67), Karl Finnbogason (F) 48 (73). Vestmannaeyjar: Kosinn var Jóhann Jósefsson (S) 708 (736), Þórður Bene- diktsson (Sós.) 520 (461), Gylfi Þ. Gíslason (A) 299 (272), Ste- fán Franklín (F) 123 (131). Borgarf jarðarsýsla: Kosinn var Pétur Ottesen (S) 673 (700), Sverrir Gíslason (F) 345 (365), Sigurður Einarsson (A) 295 (333), Steinþór Guð- mundsson (Sós.) 98 (62). Mýrasýsla: Kosinn var Bjarni Ásgeirsson (F) 487 (486), Friðrik Þórðar- son (S) 343 (345), Jóhann Kúld (Sós.) 104 (77), A-listinn 12 (11). Austur-Húnavatnssýsla: Kosinn var Jón Pálmason (S) 559 (591), Hannes Pálsson (F) 474 (494), Friðfinnur Ólafsson (A) 42 (17), Klemens Þorleifs- son (Sós.) 50 (29). Árnessýsla: Kosnir voru Jörundur Bryn jólfsson (F) og Eiríkur Einars son (S). A-listi fékk 153 (194), B-listi 1285 (1341 og 1214), C- listi 256 (238), D-listi 824 (861 og 713). Kennaranámskeið á Akureyrí Dagana 1.—10. okt. var haldið námskeið fyrir barnakenn- ara á Akureyri að tilhlutun fræðslumálastjóra. Sóttu það um 60 kennarar úr Norðlendingafjórðungi og einn austan af Héraði. Snorri Sigfússon skólastjóri stjórnaði námskeið- inu. Aðallega var kennd íslenzka og íþróttir. Kennarar voru: Björn Guðfinnsson lektor, Friðrik Hjartar skólastjóri og Þorsteinn Einarsson íþróttafulitrúi. Marinó Stefánsson kenndi teikningu. Björn Guðfinnsson er nýkom- inn að norðan, og hefir Tírninn spurt hann tíðinda. „Ég tel“, segir Björn, „að ég hafi aldrei haft duglegri og á- hugasamari nemendahóp eða fengið meiri árangur af kennslu á jafn skömmum tíma. Ég hefi verið tálinn sæmilega vinnu- harður, en þessi hópur vann svo duglega, að ég þurfti ekki að hvetja, og kennslustundir voru líka hafðar eftir þörfum. Kennd var málfræði, setn- ingafræði og stafsetning. Jafn- framt var lögð áherzla á að leið- beina um, hvernig ætti að kenna þessar greinar til þess að ná sem beztum árangri. (Framh. á 4. síðuj Bjöm Guðfinnsson. J úii Eyþórsson: Opið bréf til Valtýs Stefáussouar, útvarpsráðsmanns og ritstjóra MorgunMaðsins Mér er það móti skapi að standa í opinberum deilum við sam- starfsmenn mína í útvarpsráði. Framkoma yðar, sem ritstjóra Morgunblaðsins, neyðir mig þó til að bregða út af þessu. Þykir mér þá rétt og skylt að rifja jafnframt upp tildrögin til þess, að ég bað Jóhann Sæmundsson lækni að fresta erindi sínu, en aflýsti því siðan, er hann vildi ekki fallast á frestun. Síðastliðinn miðvikudag sá ég, að Alþýðublaðið hafði tekið upp harðar pólitískar ádeilur á andstöðuflokka sína, með fyrra útvarpserindi læknisins sem höfuðrök. Ég sá þegar, að útvarps- ráð átti á hættu að hljóta þungan áfellisdóm, ef það léti fram- haldserindi læknisins koma í útyarpið samdægurs, án þess að hafa svo mikið sem kynnt sér það. En það skal tekið fram, að útvarpsráð er vant að taka erindi ólesin, þegar valinkunnir menn eiga í hlut, og svo var um þéssi tvö erindi Jóhanns Sæmundsson- ar, er hann bauð þau til flutnings. Ég hringdi þegar til Jóh. Sæmundssonar og bað hann að lofa mér að lesa handrit sitt. Var það auðsótt. Er ég hafði lesið þaö, sendi ég handritið aftur með nokkrum bendingum, er ég óskaðí að hann tæki til greina. Síðar um daginn fékk ég bréf frá lækninum, þar sem hann tilkynnti mér, að hann gæti ekki tekið bendingar mínar til greina. Þegar svo var komið, vildi ég ekki ráða fram úr þessu máli án þess að bera mig saman við einhverja samstarfsmenn mína, eins og siður er. Fór ég þá út í skrifstofu Morgunblaðsins og rakst á yður, hr. Valtýr Stefánsson, í anddyrinu. Skýrði ég yður stutt- lega frá málavöxtum og spurði um álit yðar. Þér sögðuð þá orð- rétt: „Það er ekki um annað að gera en að stöðva þetta>‘ Og eftir nokkur fleiri orðskipti tölduð þér allt of óvarlegt að kasta þessu sama sem inn í útvarpsumræðurnar, og endurtókuð að lokum: „Við verðum að taka það á okkur að stöðva þetta.“ Ég kvaðst mundu athuga málið nánar og náði nokkru síðar tali af Jóhanni lækni í síma. Sagði ég honum, að ég vildi mælast til þess að fá að fresta erindinu fram í næstu viku. Þessu neitaði læknirinn og kvað sér einmitt áhugamál að koma því á framfæri fyrir ko^n- ingar, svo að það yrði rætt og túlkað, „því að ég ætla'að vinna að því öllum árum, að vísitalan verði lækkuð fyrir 1. nóv.“ Ég dró í efa, að nokkuð yrði aðhafst í því efni fyrr en eftir kosning- ar og erindið yrði þvi í fullu gildi. En er læknirinn vildi ekkert sveigja til, tilkynnti ég honum, að ég sæi mér því miður ekki fært .annað en að aflýsa erindinu, þótt mér þætti það leitt. Því næst hringdi ég til yðar, skýrði yður að nýju frá málavöxt- um og spurði yður að því síðast orða, hvort þér væruð ákveðið í'ylgjandi þessari ráðstöfun. Þessu játuðuð þér hiklaust og á- kveðið. Þessu næst ræddi ég við Pálma Hannesson i síma, og féllst hann á að þessi ráðstöfun mundi vera réttmæt eins og sakir stæöu og bæri útvarpinu að gæta sérstakrar varúðar, þegar pólit- ískar umræður stæðu fyrir dyrum. Daginn eftir réðist Alþbl. og Vísir mjög á mig persónulega fyrir þessa ráðstöfun. Morgunbl. þagði. Á föstudag þagði Vísir og Morgunbl. en Alþbl. hélt áfram. Ég bar af mér sakir lítils háttar í Tímanum. Ég lét yðar ekki getið og taldi rétt að það biði fundar í úfvarpsráði. Á laugardag flytur Mgbl. loks tvær svæsnar árásargreinar um mig. Ég hringdi til yðar og spurði, hverju þetta sætti. Þér voruð ekki djarfmæltur, og ég vorkenndi yður. En ég skýrði Alþbl. og Vísi frá málavöxtum, og um kvöldið lét ég útvarpið birta yfirlýsingu um, að ég hefði ráðfært mig við yður og Pálma Hannesson um aflýsingu erindisins. Nú lýsið þér yfir því í blaði yðar á sunnudaginn var, að þetta séu „rangfærslur og ósannindi.“ Þér krefjist þess, að ég segi af mér formennsku í útvarpsráði vegna þess að ég boði þar ekki til funda mánuðum saman og semji um dagskrárefni upp á eigin spýtur. Ég gæti svarað þessu með því að birta skýrslur um fundar- sókn yðar, Valtýr, og sýna fram á hvor okkar hafi sótt betur fundi siðan við fórum að starfa þar saman. Þér hafið aldrei fundið að störfum mínum sem formanns, það ég man til. En þér hafið þvert á móti viðurkennt, að ég ynni þar meira en mér bæri skylda til, og þér hafið nýlega látið í ljós, að þér telduð æskilegt að ég bætti þar á mig störfum. Mér virðast því ummæli yðar i Morgunbl. benda til, -að yður hafi ekki verið sjálfrátt. Ég hefi aldrei þurft á því að halda að vinna eið á æfi minni, en ég er reiðubúinn að staðfesta með eiði þau ummæli yðar, sem tilfærð eru hér að framan. Þau sýna, að það var eftir yðar tillögu, sem ég aflýsti erindinu. Gg þau sýna að þér lýstuð yður undandráttarlaust samþykkan þeirri ráðstöfun. Það hefir oft komið fyrir mig og aðra formenn útvarpsráðs og skrifstofustjóra, að við höfum orðið að ráða fram úr vandamál- um, án þess að geta lagt þau fyrir útvarpsráð í heild. Það er þá reynt að bera sig saman við tvo eða fleiri úr útvarpsráði utan fundar, ef mögulegt er. En ég man aldrei eftir, að nokkur maður hafi gengið frá slíku atkvæði sínu eftir á — fyrr en þér reynið það nú, jafnframt því sem þér lýsið mig ósannindamann. Þetta mál hefir frá minni hendi sætt sömu meðferð og fjölda- mörg önnur vandamál, sem skrifstofa útvarpsráðs hefir þurft að ráða tafarlaust fram úr. Slíkt verður ekki umflúið. Og þó að það geti orkað tvímælis þá gert er, gefur það engan rétt til brigzl- yrða um óheiðarlegt atferli, sízt af þeim, sem hafa verið kvaddir til ráða. Slíkt er ódrengskapur og lítilmennska af verstu tegund. Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð að sinni. Ég ætla heldur ekki að fara hörðum orðum um framkomu yðar. Þar verða aðrir um að dæma eftir því, sem þeir eru drengir til. Samstarf okkar í útvarpsráði hefir yfirleitt verið gott og vin- samlegt engu síður en annarra, sem þar eiga sæti. Ég harma nánast og vorkenni yður hinar illu nornir, sem virðast sitja um manndóm yðar og drengskap. Virðingarfyllst. Jón Eyþórsson. Á víðavangi KÓNGUR VILL SIGLA, EN BYR HLYTUR AÐ RÁÐA. Sjálfstæðis- og Alþýðuflokk- urinn bjuggu til 3 ný þmgsæti í vor, 2 í Reykjavík og 1 á Siglu- firðí. Attu þau að vera eins kon- ar sætabrauð með „steiktu gæsun.um“ úr sveitakjördæm- unum. En hjól hamingjunnar hefir reynzt þessum vitru mönnum hverfult. Kommarnir komu til skjalanna og hrifsuðu til sín sætabrauðið. Þeir fengu Siglufjörð í sinn hlut og annað þmgsætið í Reykjavík. Hinu hélt Sjálfstæðisílokkurinn með herkjum. Alþýðuflokkurinn.sem ætlaöi að sigla háan byr — íékk ekkert nema reykinn af rétt- unum. „ÞJÓÐARSKÖMM“ VÍSIS. Vísir er sár yfir kosningaúr- slitunum í Reykjavik fyrir hönd Sjálístæðisflokksins. Hann seg- ir að kommúnistar hafi aukið fylgi sitt nokkuð í Reykjavík, „og'er það þjóðarskömm“. Það viíl svo vel til, að kommarnir eiga fyrst og fremst Vísi og hinni veiku stjórn Ólafs Thors að þakka velgengni sína. Það kemur því úr hörðustu átt, er Vísir fer að kvema yfir „þjóð- arskömm“ í þessu efni. Það var Vísir og lið hans, sem drýgstan átti þáttinn í þvi að rjúfa starf gömlu þjóðstjórn- arinnar og gera það að engu. > Það er því eftir öðru hjá þessu furöulega blaði, að byrja nú að hrópa á nýja þjóðstjórn daginn eftir kosningarnar! Nú á ekki að horfa í smábita til kratanna og kommanna, til þess að Thorsfjölskyldan geti lafað áfram við völdin. VERKLÝÐ SLEIÐTO GI telur óeðlilegt, að verðlagi á afurðum ráði nefnd manna, þar sem meirihlutinn geti verið hliðhollur bændum. Hitt finnst honum ofur eðlilegt, að stétta- félög setji launataxta! HVER STJÓRNAR DAGSBRÚN? Nýlega hitti ég góðkunningja minn úr launastétt, gamlan skrifstofumann, sem hafði sagt mér það í vor, að hann hefði kosið með kommúnistum. Spurði ég hann að þvi, hvort hann vissi hver raunverulega hefði stjórnað Dagsbrún í smá- skæruhernaðinum við Eimskip í vor. Ekki vissi hann það, en gat upp á formanninum, Sig- urði Guðnasyni. — Ég vissi betur. Ég vissi, að það var Þor- steinn Pétursson! „Og hver er hann?“ spurði vinur minn. — Ég er ekki alveg viss um, að hann kjósi með kommúnistum, eftir að ég hafði sagt honum vörn Þorsteins í þjófnaðarmái- inu forðum daga. Og mér er heldur ekki grunlaust um, að honum hafi hrosið hugur við, þegar hann gerðí sér grein fyr- ir, með hverjum hætti þetta mikla vald, valdið yfir verka- lýðsfélögunum, sem fyrir löngu er orðið of stórt til þess að geta haldið fundi, hafði flutzt i hendur á þessum heiðursmanni! Stjórnarfleyið. Stjórnarfleyið fer í hring, ferðin hægt því gengur. Undrar margan íslending, ef það flýtur lengur. Ei er kyn þó úfinn sjár, yfir bátinn gangi. Róa þrír með íhaldsár, Óli, Kobbi, Mangi. Um það vil ég engu spá, allt þó merki beri. Fleyið loks að lendi á leyndu hættuskeri. Skáld-Refur. Ástand. Góma-brandar gjalla hátt, grómi blandast orðin þrátt, Dóma vandar drengja fátt, drómi grandar eymdar brátt.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.