Tíminn - 21.10.1942, Blaðsíða 4

Tíminn - 21.10.1942, Blaðsíða 4
496 TÍMBYTV, miðviknclagiim 21. okt. 1942 125. blað ÍTSÖLUSTAÐIR TÍMMS t IIUYKJAVÍK Verzluninn Vitinn, Lauganesvegi 52 .... Sími 2260 Þorsteinsbúð, Hringbraut 61 ... — 2803 Flöskubúðin, Bergstaðastræti 10 ... — 5395 Leifskaffi, Skólavörðustíg 3 ... — 2139 Bókaskemman, Laugaveg 20 B Bókabúð KRON, Alþýðuhúsinu ... — 5325 Söluturninn, Hverfisgötu ... — 4175 Sælgætisbúðin Kolasundi Verzlunin Ægir, Grófinni Bókaverzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1 ... ... — 1336 Bókastöð Eimreiðarinnar, Aðalstræti 6 ... — 3158 Ólafur R. Ólafs, Vesturgötu 16 ... — 1754 Konfektgerðin Fjóla, Vesturgötu 29 ... — 1916 Jafet Sigurðsson, Bræðraborgarstíg 29 ... — 4040 ÚR BÆNHM Loftvarnamerki eru svo að segja daglegir viðburðir hér í bænum um þessar mundir. í gærmorgun kl. 9,02 var gefið hér hættumerki og í Hafnaríirði og stóö það í 52 mínútur. Þýzk flugvél flaug hér yfir bæinn og nágrennið, en var hrakin burtu af skothríð úr loftvarna- byssrnn setuhðsins. Bruni í Eimskip. í gærmorgun kl. 11,46 var slökkvi- hðið hvatt á vettvang að Eimskipa- félagshúsinu. Hafði komizt eldur þar í rusl, sem geymt var undir lyftunni. SlökkvUiðið réði strax niðurlögum eldsins og mun tjón hafa orðið lítið af völdum elds. Lík finnst við Ægisgarð. Á mánudagsmorguninn fundu skip- verjar af Laxfossi lík, sem lá á virum bitanna, er heidur bryggjunni vestan Ægisgarðs uppi. Líkið fannst alveg úti við enda bryggjunnar og flæddi sjór fast að því, ,er það fannst. Reyndist lík þetta vera af norskum sjómanni, er hvarf hér í september. Sigurður Hjörleifsson múrari átti 60 ára afmæli í gær. Hann er fæddur á Vatnsleysuströnd, en hefir dvalið hér síðan 1900 Stundaði hann fyrst sjómennsku, unz hann gerðist múrari. Sifurður hefir starfaö í mörg- um félögum (Ungmennafélagi Reykja- víkur, Víkingur, Múrarafélaginu, Lúðrasveit Reykjavíkur o. fl.) og reynzt hinn bezti félagsmaður. Hann nýtur vinsælda ahra, sem hann þekkja. Hámarki póstávísana hefir verið breytt, þannig að það hækkar úr kr. 5.000,00 í kr. 10.000,00 til kaupstaða, og úr kr. 1.000,00 í kr. 2.000,00 til annarra póstafgreiðslustaða. — Hámark póstkrafa hefir verið hækkað úr kr. 1.000,00 í kr. 10.000,00, ef póstkröfuávísunin á að útborgast í kaupstaö, armars kr. 2.000,00. — Kaup- staöir eru: Reykjavík, Akranes, ísa- fjörður, Siglufjörður, Akureyri, Seyð- isfjörður, Neskaupstaður, Vestmanna- eyíar og HafnarfjörCur. Skilagrein frá S. I. B. S. Áheit: Frá Gottfred Bernhöft kr. 50,00, Önnu Óskars 15,00, kerlingu 20,00, manninum, sem ekki dó (í fyll- iríinu) 60,00, kosningaráheit frá G S. og E. H. 50,00. Gjafir: N. N. 25,00, Oddi Jónassyni 100,00, N. N. 50,00, Rannveieu Lund, Raufarhöfn 126,00 kr., Guðbjöreu Jónsdóttir, Ehiheimil inu, til minningar um dóttur hennar: Jónu Guðbjörgu Jónsdóttur 100,00 kr., gömlum manni 10,00 kr., Bjama Pét- urssyni, Rvk. 500,00 kr„ starfsfólki sama 110,00 kr„ ónefndum afh. yfir- lækninum á Vífilstöðum (í vinnuheim- ilissjóð) 1000,00 kr„ ónefndri konu 40,00 kr„ S. V. 20,00 kr„ Ingibjörg Cl. Þorláksson 1000,00 k. „ þrem félögum 330,00, G. G. 100,00, H. C. 100,00, Guðl. Jónssyni 50,00, Guðm Þórarinssyni 20,00 kr„ N. N. 97,00 kr.,‘ S. A. 10,00 kr„ N. N. að austan 50,00 kr„ P. Eggerts 50,00'kr„ A. M. 10,00 kr„ I. S. 25,00 kr„ Albert Einarssyni, Eb 50,00 kr„ Bjama Bjarnasyni 100,00 kr„ Ingú- björgu Sígurðardóttur 10,00 kr„ N. N. 50,00 kr„ Arinbirni Sigurðssyni 100,00 kr„ Ólafíu Ingimundard. 50,00 kr„ Þóru Sigurðard. 30,00 kr„ Ág. Guðm. og Pr. Ágústs. 200,00 kr„ tveim systrum 100,00 kr„ S. S. 33,00 kr. Móttekið nafn- laust í pósti 250.00 kr„ Þór. Ejörns- syni 50,00. — Seld blöð og merki: í Reykjavík kr. 29184.05, Hafnarfirði 1382,20 kr„ Eyrarbakka 381,15 kr.. Garði 453,00 kr„ Selfossi 401,30 kr.. Borgar- nesi 728,00, Stokkseyri 305,00 kr„ Elönduósi 235,80 kr„ Akranesi 1074,00 kr„ og giöf frá skipshöfninni á v/b Ver 100,00. — Hagnaður af skemmtun í Oddfellow 4/10 kr. 2838,00. — Kærar þakkir til allra þeirra, sem hér eiga hlut að máli. — Ólafur Björnsson. Tækifærisgj afir, í góðu úrvall. Trúlofnnarhringar, Sent gegn póstkröfu. Gnðm. Andrésson gullsmiður. Laugavegi 50. — Sími 3769. Kennaranámskeið á Akureyri (Framh. af 1. síðu) Mér fannst áliugi sá, sem kom fram hjá þessum nemendum fyrir íslenzkri tungu, óvenju- lega ánægjuiegur og öilu meiri en ég heíi oröið var við í öðr- um héruöum, sem ég þekki. Má eflaust þakka þetta að nokkru leyti Snorra Sigfússyni skóla- stjóra á Akureyri, sem er jafn- framt námstjóri i Norölend- ingafjórðungi og er óvenjulega áhugasamur og fjörmikili mað- ur. Hjá þessum norðlenzku kenn- urum rikir heilbrigður og þjóð- legur andi, sem ég tel mikils verðan fyrir störf kennarastétt- arinnar. í iþróttum var einkum leið- beint um þær íþróttir, sem hægt er aö iðka við eríiðustu skilyröi, t. d. i þröngum skólastofum. Margháttaðir leikar fyrir börn voru kenndir og hjálp i viðlög- um. Friðrik Hjartar skólastjóri á Siglufirði haíöi æfingar i staf- setningu, en hann er maður landskunnur fyrir áhuga á is- lenzku máli. Auk kennslunnar flutti ég tvö erindi á námskeiðinu, annað um mállýzku, hitt um málleys- ur.“ Hvað er anhars að frétta úr Norðurlandi? „Mér finnst þar mikill mynd- ar- og menningarbragur á mörgu. Ég var við setningu Menntaskóians á Akureyri og virðist skólabragur vera þar með ágætum. Umgengni prýðileg, og ýmsar góðar erfðavenjur hafa skapazt í skólanum. Að sama skapi virtist mér ríkja góður andi meðal kennara og nem- enda i Barnaskóla Akureyrar. Þessir skólar bera það með sér, að þeim er vel stjórnað. Meðan ég dvaldist á Akureyri var stofnað Samband norð- lenzkra barnakennara. Áður hefir starfað Kennarafélag Eyjafjarðar — og að mörgu leyti unniö merkilegt starf. Formaður hins nýja kennara- sambands er Sigurður Gunnars- son skólastjóri á Húsavík, á- gætur maður, sem ég vænti mikils af í framtíðinni.“ Hvað líður framburðarrann- sóknunum? „Ég notaði ferðina til að at- huga framburð á Akureyri og nágrenninu og á Siglufirði. Norðlenzki framburðurinn á í vök að verjast. Hann er yfirleitt á undanhaldi og margt í hon- um að hverfa.“ S A V O N dc P A.R I S varðveita hörund yðar —' gera það mjúkt og heilbrigt og verja það öllum kvillum. SAVON de PARIS er mjúk sem rjómi og hefir yndislegan hressandi rósailm. — Notið beztu og vönduðustu sápuna! - Notið SAVOA de PARIS - Nauðsynlcg og ónauð~ synleg kynni . . . (Framh. af 1. síðu) þannig, að lélegasti hluti hinna erlendu manna kynnist léleg- asta hluta íslenzku þjóðarinn- ar. En sá hluti erlendu gest- anna, sem mest er í varið, sér Esjuna og hið tæra skyggni, en sér lítið af þeim íslendingum, sem eru hin raunverulega þjóð. Ég vil leyfa mér að benda á nokkur atriði í þessu máli, sem ekki er enn of seint að taka til greina. í fyrsta lagi að hafa frá hálfu þjóðfélagsins aukið eftirlit með kynnum milli íslendinga og setuliðsins, sem eru til leiðinda fyrir báða. f öðru lagi að gera ráðstafanir til, eftir því sem við á og óskað er eftir, að erlendir setuliðsmenn haldi fyrirlestra á ensku og norsku um landið og þjóðina og sýni jafnframt skuggamyndir og kvikmyndir til skýringar. í þriðja lagi, að menn úr hernum, sem stunda norræna málfræði eða bók- menntir, geti átt kost á hent- ugri kennslu í þeim fræðum í háskólanum. Og f fjórða lagi, að freistað sé að koma á skipulegri kynningu í sambandi við ein- falda og yfirlætislausa risnu af landsins hálfu, milli manna úr setuliðinu og íslendinga, þann- ig að saman nái til viðtals og kynningar, verkfræðingar, hag- fræðingar og bændur, skip- stjórnarmenn, Iæknar, kennar- ar, blaðamenn, guðfræðingar o. s. frv. Það er mikil yfirsjón, að Iáta hinn mikla fjölda ágætra manna úr þrem þjóðríkjum, sem dvelja hér um stund, mynda sér skoðun um landið og þjóðina,1 án þess að kynnast til muna þeim íslendingum, sem eru þjóðin. Fyrstu ísl stúdentarnir (Framh. af 3. síðu) ir frá íslandi og aðstoða íslenzku stúdentana gagnvart háskólun- um í Bandaríkjunum. Hygg ég, að enginn hér né heima hafi verið betur til þess starfs fallinn en hann.“ Þessir nýju meistarar hafa báðir stundað nám við háskóla á Norðurlöndum, auk háskóla- náms hér. Þorvaldur las alþjóðarétt í Finnlandi, en Þórhallur hag- fræði í Svíþjóð. Þúsnndir vita að gæfan fylgir trúlofunar- hringunum írá SIGURÞÓR. Sent gegn póstkröfu. Sendið nákvæmt mál. Tímarit Þjóð~ ræknisfélagsins (Framh. af 3. síðu) lega, og segðu frá þvi, þegar heim kæmi, er þeir hefðu séð og heyrt. Myndi þeim þá vera láandi, þótt þeim yrði tíðrætt um frændur sína fyrir austan jöklana? Yrðu þeir ekki miklu fremur brjóstumkennanlegir, sem ekki gætu fundið hrærast hjá sér einhverja verulega löngun til þess að brúa bilið milli austurs og vesturs? Má vera, að einhverjum finnist þetta fjarstætt og heimskulegt dæmi, en það er ekki eins vit- laust og það lítur út fyrir að vera. Vestur-íslendingar eru að minnsta kosti eins margir og í- búar nefndra sýslna. Þeir eru að vísu fjarlægari, en sú fjar- lægð er þó ekki meiri en svo, að það er skylda okkar, sem heima erum, að telja þá nákominn hluta af íslenzku þjóðinni. Þess vegna eigum við að kaupa og lesa timarit þeirra og blöð og kynnast því, sem þeír eru að gera til eflingar íslenzkri menn- ingu. Lesið t. d. skýrslur og þingtíðindi Þjóðræknisfélagsins í þessum árgangi tímaritsins. Þær skýrslur eru alls ekki þurr- ar eða leiðinlegar í augum þeirra, sem skynjað geta líf og tilfinningu að baki þeim. Þar er getið um söngfélög og söng- flokka, íslenzkuskóla fyrir börn og unglinga, söngferðalög, leik- samkomur, íslendingadaga, heimsóknir deilda á milli, bygg- ingu minnisvarða,' bókasöfn, söfnun gamalla minja og skjala, fyrirlestrahöld og þinghald. En miðstöð þessarar starfsemi þjóð- ræknisdeildanna, er þjóðræknis- félagið sjálft með hinn ótrauða forseta, dr. Richard Beck í broddi fylkingar. Ódrepandi á- hugi og framúrskarandi dugn- aður einkennir þann ágæta mann. Hann hefir t. d. á liðnu ári sett sér það mark að heim- sækja í eigin persónu allar sam- bandsdeildir, alla leið vestur að Kyrrahafi. Er gott, meðan ís- land á jafn lifandi áhugamenn og starfsmenn í þjónustu þjóð- ræknismálsins. Jakob Jónsson. Lesendur! Vekið athygli kunningja yð- ar á, að hverjum þeim manni, sem vill fylgjast vel með al- mennum málum, er nauðsyn- legt að lesa Tímann. Skrifið eða símið til Tímans og tilkynnlð honum nýja áskrlf- endur. Sími 2323. Útbrciðið Tímanu! GAMLA BtÓ- Flóttamennirnir (Strange Cargo) Aðalhlutverkin leika: CLARK GABLE, JOAN CRAWFORD Sýnd kl. 7 og 9. Börn fá ekki aðgang. Framhaldssýnlng 3V2-6V2: Hjá Rio Grande Tim Holt — Cowboymynd. Börn inan 14 ára fá ekki aðgang. .NÝJA BÍÓ 1 Innrásar- mennirnir. (The Invaders). Mjög spennandi amerísk stórmynd. — Aðalhlutv. leika: LAURENCE PLIVER, LESLIE HOWARD, RAYMOND MASSEY, ERIC PORTMAN, ANTON WALBROOK. Börn yngri en 16 ára fá ekki aðgang. Sýnd í dag kl. 3, 5, 7 og 9. Smásölu verð á v i 11 <1111111 Útsöluverð á enskum og amerískum vindlum má eigí vera hærra en hér segir: * Golofina Perfectos ... 25 stk. kassi kr. 40.00 — Londres . .. 50 — ' — — 61.25 — Conchas ... 50 — — — 46.25 — Royal Cheroots ... ... 100 — — — 55.00 Wills’ Rajah Perfectos .. . 25 — — — 20.00 Panetelas (Elroitan) .. . 50 — — — 47.50 Cremo . .. 50 — — — 42.50 Golfers (smávindlar) . .. 50 — — — 21.90 Golfers — 5 — pakki — 2.20 Piccadilly (smávindlar) ... . . .. 10 — blikkaskja — 2.75 Muriel Senators ... 25 — kassi — 25.00 Muriel Babies .. . 50 — — — 32.50 Rocky Ford .. . 50 — — — 36.25 Van Bibber 5 — pakki — 2.50 Le Roy — — — 5.00 Royal Bengal .. . 10 — .— — 3.75 Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má útsöluverð. vera 3% hærra en að framan greinir, vegna flutningskostnaðar. T óbakseinkasala ríkisíns. Vogrek. í vor rak lítinn bát (skektu) á fjöruna fyrir fram- an Selbúðir við Vesturgötu hér í bænum. Báturinn er áralaus og nokkuð brotinn. Er hér með skorað á eiganda að gefa sig fram fyrir 1. nóvember n. k. og sanna rétt sinn. Reykjavík, 17. okt. 1942. Lögreglnstjóri. Dómnefnd í verðlagsmálum hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á smjörlíki: í heildsölu ...... kr. 4.35 í smásölu ........— 5.10 Reykjavík, 20. okt. 1942. Dómnefnd í verðlagsmálum. Tll brúOargjafa Kaffi-, Te-, Matarstell o. fl. Kristalvörur — Keramikvörur. K. EINARSSON & BJ0RNSSON. Rankastræti 11. Innheímtumenn Tímans um land allt! Viimið eftir fremsta megni að innheimtu Tím- ans. — Gjalddaginn var 1. júlí. DIMEEHTA TLMMS. T I M IIV IV er víðlesnasta auglýsingablaðið!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.